Morgunblaðið - 18.05.2022, Qupperneq 10

Morgunblaðið - 18.05.2022, Qupperneq 10
10 FRÉTTIR Innlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 18. MAÍ 2022 577-1515 • Fleiri tilkynningar um nauðganir og heimilisofbeldi bárust lögreglu á fyrstu þremur mánuðum ársins en á sama tímabili á síðasta ári. Þannig var tilkynnt um 59 nauðg- anir sem er 17% aukning frá síð- asta ári. Tilkynnt var um 610 tilvik heimilisofbeldis eða ágreinings á milli skyldra eða tengdra aðila og er það 19% aukning. Alls voru til- kynnt 176 kynferðisbrot á þessu tímabili. Þessar upplýsingar koma fram í tölfræði embættis ríkislögreglu- stjóra. Tölurnar eru gefnar út árs- fjórðungslega, í samræmi við áherslur dómsmálaráðherra um aukna vitundarvakningu um kyn- ferðisbrot og kynbundið ofbeldi, segir í tilkynningu frá ríkislög- reglustjóra. Fram kemur að meðalfjöldi til- kynntra kynferðisbrota til lögreglu á fyrstu þremur mánuðum ársins, burtséð frá því hvenær þau áttu sér stað, var um tvö brot á dag. Mörg mál vegna maka eða fyrrverandi maka Flest tilvik heimilisofbeldis, tvö af hverjum þremur málum, eru vegna maka eða fyrrverandi maka. Þeim málum þar sem um er að ræða fyrrverandi maka fækkar raunar á milli ára. Í um fjórðungi heimilisofbeldis- mála er um að ræða fjölskyldu- tengsl, svo sem ofbeldi á milli barna og foreldra. Slíkum málum hefur fjölgað undanfarin ár, bæði þar sem foreldrar beita börn sín ofbeldi og öfugt. Ríkislögreglu- stjóri vekur þó athygli á því að töl- urnar eru tiltölulega lágar og því viðkvæmar fyrir sveiflum. Þegar litið er til ágreiningsmála, það er að segja mála þar sem lög- reglan kemur á vettvang en eng- inn grunur er um brot, þá hefur skráningu fjölgað miðað við fyrri ár, sérstaklega í þeim tilvikum þar sem um er að ræða ágreining á milli maka eða fyrrverandi maka. Tilvikin voru 320 fyrstu þrjá mán- uði ársins á móti 226 á sama tíma- bili í fyrra. Fleiri tilkynningar um nauðgun og ofbeldi - Tilkynnt um 610 tilvik heimilis- ofbeldis og ágrein- ings skyldra Morgunblaðið/G. Rúnar Ofbeldi Tvö kynferðisbrot voru að jafnaði tilkynnt á dag á tímabilinu. DAGMÁL Andrés Magnússon andres@mbl.is Eftirleikur sveitarstjórnarkosning- anna um helgina hófst með þreif- ingum þegar á kosninganótt, en nú er víða að komast mynd á helstu möguleika til meirihlutamyndunar í þeim sveitarfélögum, sem eru án meirihluta. Staðan er hins vegar við- kvæm og þeir stjórnmálamenn, sem þó gefa kost á viðtölum, tala flestir í véfréttastíl. Í Dagmálum í dag ræða tveir blaðamenn Morgunblaðsins um hið fréttnæmasta úr kosningunum, stöð- una í helstu sveitarfélögum og hvað megi lesa úr kosningunum. Þar beinast flestra augu að höf- uðborginni, þar sem meirhluti Sam- fylkingarinnar undir stjórn Dags B. Eggertssonar borgarstjóra féll aðr- ar kosningarnar í röð. Flestum ber saman um að þar sé Einar Þorsteinsson oddviti Fram- sóknar í lykilstöðu og geti unnið hvort heldur er til hægri eða vinstri. Það er hins vegar ekki vandalaust að berja saman meirihluta og mikið getur oltið á smæstu flokkunum. Meirihlutar í brennidepli - Eftirmál kosninganna í Dagmálum Morgunblaðið/Ágúst Óliver Pólitík Gísli Freyr Valdórsson og Andrés Magnússon ræða ástand og horfur. Alls voru 56.921 erlendur rík- isborgari skráður með búsetu hér á landi 1. maí síðastliðinn og hefur þeim fjölgað um 1.942 frá 1. desem- ber í fyrra eða um 3,5%. Í nýút- komnum tölum Þjóðskrár kemur fram að úkraínskum ríkisborgurum hefur fjölgað um 236,8% frá 1. des- ember sl. og voru þann 1. maí sl. 805 úkraínskir ríkisborgarar skráðir í þjóðskrá. Þá hefur sömu- leiðis átt sér stað umtalsverð fjölg- un ríkisborgara frá Venesúela eða um 44,4%. Eru nú 657 einstaklingar með venesúelskt ríkisfang búsettir hér á landi. „Pólskum ríkisborg- urum fjölgaði á ofangreindu tíma- bili um 317 einstaklinga og voru 21.508 talsins um síðustu mán- aðamót eða 1,5% landsmanna og rúmenskum ríkisborgurum hefur fjölgað um 202 eða um 7,3%,“ segir í frétt Þjóðskrár. Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Flóttafólk frá Úkraínu Margir hafa sótt um alþjóðlega vernd á Íslandi. 805 skráðir frá Úkraínu - 56.921 erlendur ríkisborgari búsettur á Íslandi

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.