Morgunblaðið - 18.05.2022, Qupperneq 14

Morgunblaðið - 18.05.2022, Qupperneq 14
14 UMRÆÐAN MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 18. MAÍ 2022 CHERRYBLOSSOMEAUDE TOILETTE Umvefðu þig blómum Kringlan 4-12 | s. 577-7040 | www.loccitane.is Í dag fögnum við hinum alþjóðlega safnadegi, sem hefur verið haldinn hátíðleg- ur 18. maí ár hvert, á vegum ICOM, Al- þjóðaráðs safna, síðan 1977. Deginum er gefin sérstök yfirskrift hverju sinni. Í ár er hún „Mikill er máttur safna“ sem kann að vekja okkur til umhugsunar um söfn og þann mátt sem í þeim býr. Söfn eru hús minninga, menningar og lista. Fortíðar, nútíðar, framtíðar. Sögu mannkyns og náttúru. Þau eru spegill, skotspónn og suðupottur hug- mynda og nýsköpunar. Fjársjóðsk- istur, ferðamannastaðir, fræðslu- miðstöðvar. Leiðarljós, vonarneisti, griðastaður. Upphafspunktur, veg- vísir, leiðarendi. Aðdráttarafl, at- hvarf, almenningsrými. Þá eru þau einnig vettvangur erfiðra skoð- anaskipta, átaka og óþægilegra um- ræðna. Í þeim býr vald – mjúkt vald sem ef til vill mætti bera saman við fjórða valdið – þar sem söfn opna á umræðu um margbreytileg og flókin málefni sem snerta okkur öll. Í þeim er fjallað um og horft gagnrýnum augum á söguna, stöðu okkar í heiminum og þau áhrif sem við höfum á umhverfi okkar. Þau búa yfir mætti til að fræða og upplýsa, til að skemmta og auka skilning okkar, til að setja hlutina í samhengi og varpa nýju ljósi á við- teknar hugmyndir. Þar upplifa gestir heiminn, mennsku, menningu og náttúru í ólík- ustu myndum og frá mismunandi tím- um. Þá búa söfn til rými fyrir tilfinn- ingar ekki síður en fyrir gagn- rýna hugsun, fag- og fræðimennsku. Þau eru lifandi, atvinnuskapandi og heilsueflandi og þau varðveita dýr- mætan, sameiginlegan arf okkar fyrir komandi kynslóðir, sem eiga skilið að hafa greiðan aðgang að þessum verð- mætum, þar sem þau – jafnt hlutir sem hugmyndir – krefjast sífelldrar endurskoðunar í samfélagi sem breyt- ist stöðugt með nýrri þekkingu. Ábyrgð safna er þannig mikil, engu síður en máttur þeirra. Mikilvægt er að samfélög hlúi vel að söfnum sínum, sem halda utan um allar þessar minn- ingar, áþreifanlegar sem óáþreif- anlegar. Því söfn staðna aldrei, heldur vaxa þau með tímanum og þarfnast stuðnings til þess að geta sinnt hlut- verki sínu sem skyldi. Enda eru söfn- in eign okkar allra og er það allra hagur að huga vel að varðveislu sam- eiginlegs menningararfs okkar til framtíðar. Í tilefni dagsins sendum við áminn- ingu til allra landsmanna um að hugsa vel um söfnin okkar, líkt og við myndum hugsa um okkar eigin fjöl- skyldualbúm. Ekki síst sendum við þessa áminningu til sveitarfélaga landsins. Þau eiga fjölmörg söfn um land allt og bera ábyrgð á því að þau dafni í sínum nærsamfélögum. Við vitum öll að ef eitthvað kemur fyrir okkar dýrmætustu minningar, fæst slíkt tjón ekki bætt. Munum, heim- sækjum og þökkum því fyrir söfnin í nærsamfélagi okkar og allt í kringum landið og sameinumst um að leysa hinn mikla mátt safna úr læðingi. Eftir Ólöfu Gerði Sigfúsdóttur og Hólmar Hólm » Söfn eru hús minn- inga, menningar, lista. Fortíðar, nútíðar, framtíðar. Sögu mann- kyns og náttúru. Þau eru spegill, skotspónn og suðupottur hug- mynda og nýsköpunar. Ólöf Gerður er formaður og Hólmar Hólm er ritari stjórnar Íslandsdeildar ICOM, Alþjóðaráðs safna. holmarholm@gmail.com Mikill er máttur safna Hólmar HólmÓlöf Gerður Sigfúsdóttir Í mínum huga er það svo óend- anlega þakkarvert að fá að vera vígður lífinu á ævinnar göngu upp á hvern einasta dag. Á milli fyrsta og síðasta and- varps manneskjunnar er heil ævi, löng eða stutt eftir atvikum eða eitthvað þar á milli. Vígður lífinu með sigurtákninu bæði á enni og brjósti, ristur í lófa frelsarans, skráður í lífsins bók, heldur líf mitt í ferðalag. Ferð sem aldrei tekur enda. Eilífðar ferð í gegnum ævina, að hinu síð- asta andvarpi. Í gegnum dauðans dyr. Inn til lífsins ljóma með Jesú um eilífð hjá Guði. Einhliða samningur Höfundur lífsins hefur gert samning við þig. Samningurinn er einhliða og óuppsegjanlegur af hans hálfu. Hann er gjöf Guðs til þín. Mótframlag þitt er ekkert. Þú þarft bara að taka við samn- ingnum í einlægni, af auðmýkt og með þakklæti. Hinn almáttugi eilífi Guð hefur fyrirgefið þér allar þínar syndir og misgjörðir í eitt skipti fyrir öll. Hann vill gefa þér frið í hjarta og hefur heitið því að vera með þér alla þína ævidaga og gefa þér ei- líft líf að þeim loknum. Það er á þínu valdi að rifta samningnum ef þú vilt ekki þiggja hann og halda honum í gildi. Að vera sítengdur við lífið Ekkert fær þig hrifið úr frels- arans fangi sem foreldrar þínir forðum af einskærri ást færðu þig í. Þú varst nefndur með nafni og nafnið þitt var letrað í lífsins bók með frelsarans hendi. Himnesku letri sem ekki fæst afmáð og ekk- ert strokleður fær þurrkað út. Þér var heitið eilífri samfylgd í skjóli skaparans. Því þegar þú ómálga og ósjálf- bjarga klæddur hvítum skrúða varst borinn af umhyggju og kær- leika af þeim sem elska þig mest upp að brunni réttlætisins til að laugast í vatni og anda, þá varstu tengdur við lífið. Sambandið er þráðlaust, upp- sprettan eilíf, þú ert sítengd/ur. Gjaldið hefur verið greitt í eitt skipti fyrir öll, af honum sem er uppsprettan og viðheldur straumnum. Af honum, sem er líf- ið sjálft. Hann hefur krýnt þig náð og miskunn og gert þig að erf- ingja eilífðarinnar. Þú eilífi faðir sem fatar mig, fæðir og endurnærir. Hvers vegna ætti ég að velja eða vilja flýja frá þér og afneita þér? Komdu vitinu fyrr mig. Hjálp- aðu mér að taka skrefin út í dag- inn. Í áttina til þín, til móts við líf- ið. Með kærleiks-, friðar- og sum- arkveðju. – Lifi lífið! Þakkar- vert að vera vígð- ur lífinu Eftir Sigurbjörn Þorkelsson Sigurbjörn Þorkelsson Höfundur er ljóðskáld og rithöfundur og aðdáandi lífsins. Skítafýlan frá fiskbræðslu hér á ár- um áður og hávaðamengun af flugi á mærum Keflavíkur og Ytri-Njarð- víkur í dag er keimlík, spurning um efnahag, svo maður lætur sig hafa það. Það er hins vegar allt annað mál þegar drynjandi orustuþotur æða yfir byggðina með ærandi hávaða. Á stundum með hangandi sprengjur á kviðnum. Bæjarstjórn Reykjanes- bæjar verður að beita sér í þessu máli. Annað er óþolandi. Ásgeir R. Helgason Orustuþotur með yfirgang Morgunblaðið/Árni Sæberg Atvinna Velvakandi Svarað í síma 569-1100 frá kl. 10-12.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.