Morgunblaðið - 18.05.2022, Qupperneq 22
Í LYON
Víðir Sigurðsson
vs@mbl.is
„Þetta fór allt í gang þegar ég lét
umboðsmanninn minn vita að ég
væri ólétt. Ég þurfti líka að hafa
samband við styrktaraðilana og
Puma er minn stærsti styrktaraðili.
Ég var dálítið stressuð yfir því
hvernig viðbrögðin þeirra yrðu en
þau reyndust ótrúlega góð,“ sagði
Sara Björk Gunnarsdóttir, landsliðs-
kona í knattspyrnu, við Morgun-
blaðið eftir að heimildarmyndin „Do
Both“, um endurkomu hennar eftir
barnsburð, var kynnt í Lyon á
mánudagskvöldið og sagt var frá í
blaðinu í gær.
„Þau sáu strax ákveðin tækifæri í
því, á jákvæðan hátt, að ég væri
ófrísk, og sögðu að reynsla mín gæti
verið hvatning fyrir aðrar knatt-
spyrnukonur sem spila í fremstu röð
um að þær gætu komið aftur eftir að
hafa eignast barn.
Ég vissi líka um leið og ég sam-
þykkti að vera með í þessari heimild-
armynd að þá yrði pressa á mér um
að gera hlutina almennilega. Reynd-
ar set ég alltaf gríðarlega mikla
pressu á sjálfa mig og vildi koma til
baka jafnöflug og ég var áður, þann-
ig að þetta fór vel saman.
Auðvitað var ég fyrst og fremst að
gera þetta fyrir sjálfa mig en sá að ef
ég gæti um leið orðið öðrum konum
hvatning þá væri það besta mál,“
sagði Sara sem tók virkan þátt í
kynningu myndarinnar í Lyon og sat
fyrir svörum að henni lokinni.
Hún kvaðst hafa verið mjög fljót
að fá viðbrögð við sinni vegferð og
endurkomu frá öðrum knattspyrnu-
konum.
„Já, mín ólétta og endurkoma hafa
strax haft áhrif. Ég hef fengið trillj-
ón skilaboð frá ungum konum og svo
erum við núna með annan leikmann í
Lyon, Amel Majri, sem varð ólétt í
október. Ég finn alveg að það er
mikil hvatning fyrir hana að hafa séð
mig koma til baka. Hún sá að þetta
var mjög erfitt en líka að ég kom aft-
ur sem sami leikmaður og í sama
formi. Hjá mér hefur ekkert breyst
annað en það að nú á ég yndislega
fjölskyldu.
Svo hafa aðrir leikmenn haft sam-
band, eins og þýska landsliðskonan
Melanie Leupolz sem spilar með
Chelsea. Hún varð ólétt og ég óskaði
henni til hamingju og sagði henni að
hún gæti alltaf leitað til mín. Hún
vildi fá svör við endalausum spurn-
ingum.
Auðvitað get ég deilt ýmsu til
þeirra um mína reynslu en það hefur
líka sín takmörk. Ég tel að hver ein-
asta móðir þurfi að ganga í gegnum
sína eigin reynslu. Þetta er ekki
skipulagt eins og þegar fólk slítur
krossband og á að byrja að hlaupa
eftir fjóra mánuði. Þetta er líkaminn
þinn, við erum allar ólíkar og endur-
koman tekur lengri tíma hjá einni og
styttri hjá annarri. Auðvitað er samt
hægt að gefa fullt af góðum ráðum
og gefa af sér í gegnum það sem þú
hefur gengið sjálf í gegnum.“
Vel þekkt á Íslandi en
nýtt fyrir leikmenn Lyon
Sara eignaðist soninn Ragnar
Frank með Árna Vilhjálmssyni,
sambýlismanni sínum og knatt-
spyrnumanni, þann 16. nóvember.
Margar íslenskar landsliðskonur og
samherjar Söru hafa áður haldið sín-
um ferli áfram eftir að hafa eignast
börn, svo sem Margrét Lára Viðars-
dóttir, sem kemur nokkuð við sögu í
heimildarmyndinni, Sif Atladóttir og
Dagný Brynjarsdóttir. Sara segir að
þær hafi haft áhrif á sig og hvernig
hún nálgaðist málin.
„Já, það var mikilvægt að sjá þær
koma aftur í jafngóðu formi, ef ekki
sem betri leikmenn, eftir barneign-
irnar, þannig að það var hvatning
fyrir mig að vita að þetta væri hægt.
En svo virkar eitt fyrir einn og ann-
að fyrir hinn. Ég var svo heppin að
geta æft mikið fram á sjöunda og
áttunda mánuð, en margar hafa
þurft að hætta eftir fimm mánuði.
Ég leitaði til þeirra, ekkert rosalega
mikið samt vegna þess hve ein-
staklingsbundið þetta er. En bara
það að vita að á Íslandi séu margar
knattspyrnukonur, og íþróttakonur
almennt, sem hafa eignast börn og
komið til baka sem jafngóðir íþrótta-
menn, ef ekki betri, skipti miklu
máli. Ég hef séð margar íslenskar
konur koma til baka og spilað með
sumum þeirra, en fyrir þær hérna
úti er það alveg nýtt að knattspyrnu-
kona í fremstu röð eignist barn og
komi aftur.“
Hvernig voru viðbrögð liðsfélag-
anna í Lyon?
„Auðvitað var þetta smá sjokk
fyrir liðið, þetta var í fyrsta sinn í
sögu Lyon sem leikmaður þess varð
ófrískur. Almennt er ekki mikið tal-
að um þessi mál innan liðanna, að
sjálfsögðu eru þau rædd almennt og
velt vöngum yfir barneignum og
stofnun fjölskyldna eftir að ferlinum
lýkur. Það var því mikil óvissa hjá
liðsfélögunum, þær vissu ekki hvort
Besta mál ef ég get verið
öðrum konum hvatning
- Ég er sami leikmaður og áður og nú á ég yndislega fjölskyldu
Morgunblaðið/Víðir Sigurðsson
Fjölskylda Sara Björk Gunnarsdóttir ásamt syni sínum Ragnari Frank Árnasyni og unnustanum og knattspyrnu-
manninum Árna Vilhjálmssyni á frumsýningu heimildarmyndarinnar „Do Both“ í Lyon í Frakklandi á dögunum.
NBA
Gunnar Valgeirsson
Los Angeles
Fyrir úrslitakeppnina í NBA-
deildinni spáði undirritaður að Phoe-
nix Suns og Milwaukee Bucks kæm-
ust í lokaúrslitarimmuna í deildinni
þar sem þessi lið vissu hvað til þess
þyrfti – sérstaklega að mæta með
rétt keppnisskap og hugarfar í alla
leiki keppninnar.
Skemmst er frá því að segja að síð-
ustu leikirnir í átta liða úrslitunum á
sunnudag sýndu enn einu sinni að
best er fyrir mann að hafa smá auð-
mýkt þegar til spádóms í íþróttum
kemur. Hluti af skilgreiningu á orð-
inu íþrótt er hugmyndin um „vanda-
mál með útkomu“, þ.e. að við vitum
ekki útkomu keppninnar fyrirfram.
Þetta er eitt af því sem laðar marga
að íþróttakeppni.
Í nútímaþjóðfélagi eru íþróttir eitt
af því fáa þar sem við getum aldrei
vitað fyrir fram hvað gerist. Engar
skoðanakannanir hjálpa okkur að
segja fyrir um úrslitin fyrir fram.
Jafnvel bestu sérfræðingar verða oft
að játa að spár eru bara það. Spár.
Mýs og menn sjá
ekki inn í framtíðina
Í leikjunum á sunnudag kom sigur
Boston Celtics gegn Milwaukee á
heimavelli ekki sérstaklega á óvart.
Undirritaður spáði fyrir rimmuna að
þessi lið væru jöfn og allt gæti gerst.
Stórtap Phoenix gegn Dallas Maver-
icks (123:90) á heimavelli var annar
handleggur. Sá leikur sýndi enn á ný
að í íþróttum getur allt gerst. Margt
getur haft áhrif á úrslitin.
Þjálfari Phoenix, Monty Williams,
viðurkenndi það eftir leikinn. „Við
völdum rangan dag til þess að spila
okkar versta leik á keppnistíma-
bilinu.
Þetta er nákvæmlega það sem get-
ur gerst í sjöunda og lokaleik í rimmu
liða í NBA deildinni. Bestu plön
„músa og manna“ – eins og ljóð-
skáldið Robert Burns orðaði það fyrir
löngu – geta farið út um þúfur í ein-
stökum leik“. Þessi úrslit þýða að
nýtt lið verður krýndur meistari á
þessu keppnistímabili og að öll fjögur
liðin sem eftir eru geta gert tilkall til
titilsins.
Boston orðið óstöðvandi
Í lokarimmu Austurdeildarinnar
eru nú tvö lið sem eiga ýmislegt sam-
eiginlegt. Boston og Miami Heat eru
Dallas kemur
öllum á óvart
AFP
Lykilmaður Slóveninn Luka Doncic hefur farið á kostum í úrslitakeppninni
fyrir Dallas en hann hefur skorað 32 stig að meðaltali og tekið tíu fráköst.
- Luka Doncic verður vandamál
22 ÍÞRÓTTIR
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 18. MAÍ 2022
Mjólkurbikar kvenna
2. umferð
Augnablik – Haukar................................. 1:4
ÍH – FH..................................................... 0:6
England
Southampton – Liverpool ........................ 1:2
Staðan:
Manch. City 37 28 6 3 96:24 90
Liverpool 37 27 8 2 91:25 89
Chelsea 36 20 10 6 73:31 70
Tottenham 37 21 5 11 64:40 68
Arsenal 37 21 3 13 56:47 66
Manch. Utd 37 16 10 11 57:56 58
West Ham 37 16 8 13 59:48 56
Wolves 37 15 6 16 37:40 51
Leicester 36 13 9 14 57:57 48
Brighton 37 11 15 11 39:43 48
Brentford 37 13 7 17 47:54 46
Newcastle 37 12 10 15 42:61 46
Crystal Palace 36 10 15 11 47:43 45
Aston Villa 36 13 5 18 49:50 44
Southampton 37 9 13 15 42:63 40
Everton 36 10 6 20 39:59 36
Leeds 37 8 11 18 40:78 35
Burnley 36 7 13 16 32:50 34
Watford 37 6 5 26 33:75 23
Norwich City 37 5 7 25 23:79 22
B-deild, umspil, seinni leikur:
Notthingham F. – Sheffield Utd. . 4:4 (vsp.)
_ Nottingham F. vann samanlegt 6:5 og
mætir Huddersfield í úrslitum.
Ítalía
C-deild, umspil, fyrri leikur:
Monopoli – Catanzaro ............................. 1:2
- Bjarki Steinn Bjarkason var ónotaður
varamaður hjá Catanzaro.
Grikkland
PAOK – Panathinaikos........................... 2:0
- Sverrir Ingi Ingason lék fyrstu 61 mín-
útuna fyrir PAOK og lagði upp mark.
AEK Aþena – Olympiacos ...................... 2:3
- Ögmundur Kristinsson lék fyrstu 90
mínúturnar í marki Olympiacos.
>;(//24)3;(
Ítalía
8-liða úrslit, annar leikur:
Dethrona Tortona – Venezia ............. 70:58
- Elvar Már Friðriksson var ekki í leik-
mannahópi Dethrona Tortona.
_ Staðan í einvíginu er 1:1.
>73G,&:=/D
Mikið breyttu
Liverpool-liði
tókst með naum-
indum að bera
sigurorð af
Southampton,
2:1, þegar liðin
mættust á St. Ma-
ry’s í Southamp-
ton í ensku úr-
valsdeildinni í
knattspyrnu
karla í gærkvöldi.
Jürgen Klopp, knattspyrnustjóri
Liverpool, gerði níu breytingar á
byrjunarliði sínu frá sigrinum í bik-
arúrslitaleiknum gegn Chelsea síð-
astliðinn laugardag.
Í gær byrjuðu hlutirnir erfiðlega
fyrir Liverpool þar sem Nathan
Redmond kom heimamönnum yfir á
13. mínútu með þrumuskoti sem fór
af James Milner og þaðan upp í
samskeytin. Á 27. mínútu jafnaði
Takumi Minamino metin með frá-
bæru skoti upp í markhornið nær.
Sigurmark Liverpool skoraði svo
Joel Matip á 67. mínútu þegar Kyle
Walker-Peters skallaði boltann í
höfuð Kamerúnans þaðan sem hann
sigldi upp í markhornið.
Liverpool er því einu stigi á eftir
toppliði Manchester City fyrir loka-
umferð deildarinnar sem fer fram
næstkomandi sunnudag. gunnareg-
ill@mbl.is
Hetja Matip skor-
aði sigurmarkið.
Liverpool
minnkaði for-
skot City
KNATTSPYRNA
Besta deild kvenna:
Laugardalur: Þróttur R. – Þór/KA..... 17.30
Kópavogur: Breiðablik – ÍBV .................. 18
Varmá: Afturelding – Stjarnan........... 19.15
KÖRFUKNATTLEIKUR
Fimmti úrslitaleikur karla:
Hlíðarendi: Valur – Tindastóll (2:2) .... 20.15
Í KVÖLD!