Morgunblaðið - 18.05.2022, Page 25

Morgunblaðið - 18.05.2022, Page 25
MENNING 25 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 18. MAÍ 2022 Nánari upplýsingar um sýningartíma á sambio.is TRYGGÐU ÞÉR MIÐA INNÁ SÝND MEÐ ÍSLENSKU TALI STÓRKOSTLEG NÝ FJÖLSKYLDUMYND ÚR TÖFRAHEIMI HARRY POTTER. U S A TO D AY 92% Radio Times Total Film Empire Rolling StoneLA Times THE LEGACY CONTINUES 72% BENEDICT CUMBERBATCH ELIZABETH OLSEN chiwetel ejiofor BENEDICT WONG xochitl gomez MICHAEL STÜHLBARG RACHEL MCadams U ndir lok Prinsins erum við aftur á byrj- unarreit nútímans eftir upprifjun Kára Viðarssonar á dramatísku sumri á unglingsárunum. Hann situr með Tinnu, sem allt snerist um þessa mánuði þegar þau voru sextán og menntaskólinn beið þeirra og svo lífið allt. Kári vekur máls á því að það vanti svolítið hennar sögu í söguna sem verið er að leiða til lykta á sviðinu. Hún verður pínu hissa, sam- sinnir þessu, en bendir honum svo á að hann sé ekki hluti af hennar sögu. Ekki mikilvægur alla- vega. Hann verður pínu hissa. En sér svo að það er auðvitað hárrétt. Við horfum alltaf á heiminn frá okkar eigin hóli, nema þegar við erum minnt á að setja okkur í annarra spor, t.d. í leikhúsinu. Ef Prinsinn væri skáldskapur, ef einhver hefði sest niður og ákveðið að segja sögu af ótímabærri og óvæntri óléttu í litlu sjávarþorpi um árþúsundamótin síðustu, væri þetta saga Tinnu. Saga barnungrar móður í vonlausu stríði við þorpsmóralinn með ólíka, en á endanum álíka gagnslausa, mögulega barnsfeður í jaðri sög- unnar. Hetjusaga með hamingjuendi. En Prinsinn er saga Kára. Saga um kvíðinn og óframfærinn ungling sem er skotinn í sætu stelp- unni í sjoppunni. Og baklásinn sem hann hleypur í þegar hún hringir í hann einn daginn til að segja honum að þau eigi von á barni. Framtíðin er í upp- námi. Og leiðin að henni einfaldast ekki neitt þeg- ar í ljós kemur að mögulega sé Kári ekki pabbinn. Það er nógu mikið mál að máta sig í nýtt hlutverk þótt ekki bætist við efasemdir um að það standi þér yfirleitt til boða. Það er óhætt að segja að Kári hafi ekki staðið sig frábærlega í þessum snúnu aðstæðum. Saga hans er ekki hetjusaga. Það er samt ekki bara framtíðin sem er í upp- námi. Fortíðin sem verið er að rifja upp er öll í óreiðu. Tímalínan gengur illa upp og mikilvægar staðreyndir hafa ummyndast í áranna rás í huga söguhetjanna. Sýningin veitir skemmtilega inn- sýn í þessa vel þekktu aukaverkun tímans án þess að leiða mikið af ósamkvæmninni til lykta. Almennt ristir Prinsinn ekki djúpt, hvorki sem sálarlífskönnun né samfélagsrýni. En segir á hinn bóginn forvitnilega sögu sem hefur þann mikil- væga kost að vera – með öllum fyrirvörum – sönn. Og sem slík verðug þess að ræða, spegla sig í, og – óhjákvæmilega – dæma um mannkosti þeirra sem við sögu koma og hvort þessi tuttugu ár síðan þessir atburðir urðu hafi skilað okkur nokkuð á veg. Það er létt, næstum kæruleysislegt yfirbragð yfir útfærslu Maríu Reyndal á sýningunni, sem gildir líka um búninga Guðnýjar Hrundar Sigurð- ardóttur og hina mjög svo sannfærandi sjoppu sem myndar umgjörðina, sem er verk Guðnýjar og Egils Ingibergssonar. Samskipti við áhorf- endur eru talsverð og vel útfærð, ekki síst þegar áhorfendur eru látnir óska Kára til hamingju með niðurstöðu úr faðernisprófi. Þau Sólveig Guðmundsdóttir og Sverrir Þór Sverrisson bregða sér í ýmis hlutverk með snögg- um einföldum og snyrtilega formuðum búninga- skiptum. Mömmur Kára og Tinnu fá skörp svip- mót í fáum dráttum hjá Sólveigu, og Bjöggi, besti vinur aðal, verður nákvæmlega eins og svoleiðis drengir eiga að vera í meðförum Sverris, sem vitaskuld er eins og fiskur í vatni við að leika sig niður á unglingastigið, hokinn af reynslu. Eljarinn Rúnar Bjarki hefði samt mátt vera aðeins skýrari manngerð hjá höfundi, leikstjóra og þá að lokum leikara. Kári og Birna Pétursdóttir þurfa líka að túlka unglinga og seilast í þann kunna klisjubanka sem fullorðnir leikarar þurfa að eiga þegar þannig stendur á. Eðli og endurlitsform sögunnar gerir þetta óhjákvæmilegt og stíll sýningarinnar og afstaða gerir hæfilega skopgervingu að rökréttri nálgun. Þau komast enda ágætlega frá þessu. Birna skapar sérlega aðlaðandi, skýran og sann- færandi karakter úr Tinnu. Velta má fyrir sér hvort hún sé gerð of sterk og sjálfsörugg – það er alltaf ljóst að engin drusluskömmun er að fara að buga þessa ungu konu. Ef þetta væri sagan henn- ar hefðum við séð fleiri hliðar og meira ferðalag, geri ég ráð fyrir. Kári nýtur auðvitað þeirrar forgjafar að vera „hann sjálfur“, og er satt að segja talsvert afhjúp- andi við að sýna sjálfhverfu og -elsku unglingsins sem hann eitt sinn var. Eyðurnar sem þrátt fyrir allt eru í frásögninni, ósvöruðu spurningarnar, viðbrögðin og ákvarðanirnar sem eru látin ókrufin – allt snýr þetta að honum, þetta er sagan hans. Hann deilir henni með okkur af talsverðu hug- rekki og skilur eftir ótal umhugsunarefni um hvernig við erum sem samfélag, sem einstak- lingar, sem strákar, sem stelpur. Prinsinn svarar þeim fæstum en það er ekkert að því. Til þess eru áhorfendur. Raunasaga úr sjávarþorpi Saga unglings Prinsinn er saga um kvíðinn og óframfærinn ungling sem er skotinn í sætu stelpunni í sjoppunni. Og baklásinn sem hann hleypur í þegar hún segir honum að þau eigi von á barni. Þjóðleikhúsið Prinsinn bbbnn Eftir Maríu Reyndal og Kára Viðarsson. Leikstjóri: María Reyndal. Leikmynd: Guðný Hrund Sigurðardóttir og Egill Ingibergsson. Búningar: Guðný Hrund Sigurð- ardóttir. Tónlist: Úlfur Eldjárn. Hljóðhönnun: Úlfur Eld- járn og Ásta Jónína Arnardóttir. Lýsing: Jóhann Friðrik Ágústsson. Leikarar. Birna Pétursdóttir, Kári Viðars- son, Sólveig Guðmundsdóttir og Sverrir Þór Sverris- son. Þjóðleikhúsið sýnir í samstarfi við Frystiklefann á Rifi. Frumsýning á Rifi miðvikudaginn 27. apríl 2022 og í framhaldinu sýnt í maí á Ísafirði, í Borgarnesi, Reykjanesbæ, á Akureyri og Egilsstöðum. Rýnt í sýningu í Kassanum í Þjóðleikhúsinu fimmtudaginn 12. maí 2022. ÞORGEIR TRYGGVASON LEIKLIST Day 3578 nefnist nýtt tónleikhús- verk, byggt á tónlist Fabúlu, þ.e. Margrétar Kristínar Sigurð- ardóttur, sem frumsýnt verður í Gamla bíói í dag. Verkið segir af Maloru, fyrr- verandi stórstjörnu sem hvarf af sjónarsviðinu á hátindi frægðar sinnar. Af einhverjum ástæðum hefur hún lokað sig inni í ímyndunarheimi og á hverjum degi endurtekur hún sama leikinn. „Í dag er dagur 3.578 og hún dragnast á fætur. Hvað er ímyndun og hvað er raunveruleiki og hefur þessi leikur tilgang?“ segir í tilkynningu. Guðmundur Elías Knudsen leik- ur ástmann Maloru og Unnur Birna Björnsdóttir hliðarsjálf hennar. Sviðsetning er í höndum Söru Marti Guðmundsdóttur og Völu Ómars- dóttur. Auður Ösp Guðmundsdóttir sér um leikmynd og búninga og Egill Ingibergsson er höfundur ljósa og kvikra mynda. Að auki koma fram Jökull Jörgensen bassa- leikari, Björn Thoroddsen gítar- leikari og Jón Geir Jóhannsson trommuleikari. Day 3578 frumsýnt Fabúla Alþjóðlegi safnadagurinn er í dag og allt að 37.000 söfn í 158 löndum taka þátt í honum. Að þessu sinni er þema dagsins „Mikill er máttur safna“. Horft er til hlutverks safna í átt að sjálfbærni, nýsköpun og fræðslu. Íslensku safnaverðlaunin verða afhent í Safnahúsinu í dag en tilnefnd eru Gerðarsafn, Byggða- safnið í Görðum, Hönnunarsafn Ís- lands, Minjasafnið á Akureyri og Síldarminjasafn Íslands. Af við- burðum dagsins má nefna að boðið verður upp á leiðsögn um safn- geymslur Gerðarsafns og Náttúru- fræðistofu Kópavogs kl. 12.15. Morgunblaðið/RAX Gerðarsafn Tilnefnt til Safnaverðlauna. Safnadegi fagnað

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.