Morgunblaðið - 18.05.2022, Page 28
Hljómsveitin ADHD mun leika tónlist af öllum hljóm-
plötum sínum, sjö talsins, 6. til 12. júní á Skuggabaldri
sem er til húsa í Pósthússtræti 9. Á hverju kvöldi mun
sveitin leika eina plötu fyrir hlé og eftir hlé mun hún
svo kynna efni af væntanlegri plötu sinni, 8. Áður en
hljómsveitin hefur leik munu veitingamenn á Hosíló
reiða fram sérstakan matseðil sem unninn er í sam-
starfi við hljómsveitina og byggður á hljóðheimi og til-
finningareisu hverrar plötu fyrir sig, eins og segir í til-
kynningu. Verða því haldnir sjö ólíkir tónleikar með sjö
ólíkum matseðlum sjö kvöld í röð.
Sjö tónleikar, sjö matseðlar
hillu hjá vini sínum. Hann hafi
fengið hana lánaða, samið lög við
ljóð eftir hann og gefið út plötu
með þeim. KFUM hafi keypt helm-
ing upplagsins og selt til styrktar
starfseminni. „Þá kynntist ég Lauf-
eyju Geirlaugsdóttur, eiginkonu
Sigurbjörns, en hún stjórnaði
KFUM-kórnum í nokkrum lögum á
disknum, og ef ég hefði ekki farið í
Vatnaskóg á sínum tíma hefði
sennilega aldrei orðið af þessum
útgáfum.“
Inga Dóra Jóhannsdóttir hannaði
útlit disksins, sem Hugverka-
útgáfan gefur út. Jóhann spilar á
kassagítar, rafmagnsgítar og bassa
í lögunum. Snorri Snorrason leikur
á orgel, Þórir Úlfarsson á píanó og
Rakel Björt Helgadóttir á horn.
Páll Rósinkranz, Regína Ósk og
Sigríður Guðnadóttir syngja sín
þrjú lögin hvert, Jóhann og Snorri,
sem sá um upptökur, syngja eitt
lag og Fósturvísarnir, sem eru hóp-
ur úr Karlakórnum Fóstbræðrum,
syngja í átta lögum og þar af einir
eitt lag, en eitt laganna er leikið án
söngs. „Þetta er látlaus framsetn-
ing,“ segir Jóhann. Ekki er algengt
að geisladiskar komi út um þessar
mundir en Jóhann vildi það frekar
en að gefa út eitt og eitt lag til
flutnings hjá streymisveitum.
„Þetta er skemmtilegur minjagrip-
ur, skjalfesting á því sem hefur
verið gert,“ segir Sigurbjörn.
Penninn Eymundsson og Kirkju-
húsið eru með diskinn í sölu en auk
þess má panta hann hjá Jóhanni
sjálfum (jhelga@gmail.com) eða hjá
KFUM (kfum@kfum.is), sem selur
hann til styrktar byggingu nýs
matskála í Vatnaskógi, en á næsta
ári verða 100 ár frá því KFUM hóf
þar starfsemi.
Steinþór Guðbjartsson
steinthor@mbl.is
Tónlistarmaðurinn og tónskáldið
Jóhann Helgason sendi frá sér
geisladiskinn Lifi lífið á dögunum.
Öll lögin eru eftir Jóhann við tíu
ljóð eftir Sigurbjörn Þorkelsson,
ljóðskáld og rithöfund, og eitt eftir
Þorkel Gunnar Sigurbjörnsson, föð-
ur hans.
Jóhann segir að upphaf verksins
megi rekja til þess að í desember
2020 hafi hann séð auglýsingu frá
tónmenntasjóði kirkjunnar um
styrki sem stæðu til boða vegna
efnis sem tengdist kirkjunni. Hann
hafi ákveðið að sækja um, hafi
munað eftir því að hafa séð ljóð
Sigurbjörns í Morgunblaðinu, hafi
náð sér í allar bækur hans, samið
lög við tvö ljóðanna og sent með
umsókninni. „Ég fékk ekki styrk en
í janúar var ég kominn með sjö lög,
hafði samband við Sigurbjörn,
sagði honum frá þessu og spurði
hvort hann væri sáttur við að ég
gæfi út geisladisk með lögum við
ljóð hans. Hann tók því vel og disk-
urinn kom út sumardaginn fyrsta.“
Í fyrsta sinn á plötu
Lög við ljóð eftir Sigurbjörn hafa
áður verið gerð og meðal annars
verið flutt af kirkjukórum, en þetta
er í fyrsta sinn sem lög við ljóð
hans koma út á plötu. Þess má geta
að Gissur Páll Gissurarson söng lag
eftir Jóhann í Júróvisjón um árið
án þess að komast áfram en grein
eftir Sigurbjörn í Morgunblaðinu
veitti tónskáldinu innblástur við
samningu lagsins. „Þetta er frá-
bært, lögin hafa tekist vel hjá
honum og þau falla vel að ljóð-
unum,“ segir Sigurbjörn um disk-
inn. „Jóhann er mjög hæfileika-
ríkur og fær en um leið hlédrægur
og hógvær snillingur. Mikið er í
hann varið og frá honum kemur
mjög vönduð tónlist.“
Þegar Jóhann var 12 ára fór
hann í Vatnaskóg með frænda sín-
um. Hann minnist þess að þá hafi
séra Friðrik Friðriksson verið
áberandi í samfélaginu. „Mamma
talaði mikið um hann og hann var
mikið í blöðunum í tengslum við
KFUM, Vatnaskóg, Val og Fóst-
bræður.“ Löngu síðar hafi hann séð
bók með ljóðum séra Friðriks í
Jóhann á nýjar slóðir
- Diskur með lögum við tíu ljóð eftir Sigurbjörn Þorkelsson
Ljósmynd/Hreinn S. Hákonarson
Ánægja Sigurbjörn Þorkelsson með diskinn og Jóhann Helgason.
Fiskislóð • Bíldshöfði • Smáratorg • Helluhraun • Baldursnes
www.gaeludyr.is
ÞAR SEM
VÍSINDI
OG
NÁTTÚRA
KOMA
SAMAN
MIÐVIKUDAGUR 18. MAÍ 138. DAGUR ÁRSINS 2022
Sími: 569 1100
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is mbl.is: netfrett@mbl.is
Í lausasölu 776 kr.
Áskrift 8.383 kr. Helgaráskrift 5.230 kr.
PDF á mbl.is 7.430 kr. iPad-áskrift 7.430 kr.
Knattspyrnukonan Sara Björk Gunnarsdóttir segir
Puma, sinn helsta styrktaraðila, strax hafa séð jákvæð
tækifæri í því að hún hafi orðið ófrísk þar sem reynsla
hennar af því að snúa aftur á knattspyrnuvöllinn á
hæsta stigi í kjölfar barnsburðar gæti orðið öðrum
knattspyrnukonum í fremstu röð mikil hvatning.
Sara Björk kveðst fyrst og fremst hafa snúið sterk
aftur fyrir sjálfa sig en sá að ef hún gæti um leið orðið
öðrum konum hvatning þá væri það hið besta mál. »
22-23.
Sara Björk telur það jákvætt ef
hennar reynsla nýtist öðrum
ÍÞRÓTTIR MENNING