Morgunblaðið - 19.05.2022, Blaðsíða 24
24 FRÉTTIR
Innlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 19. MAÍ 2022
Kringlan | Glerártorg | Skeifan | Sími 588 0640 | casa.is
FLOTTAR
ÚTSKRIFTAR
GJAFIR
Design Letters
skartgripir í
miklu úrvali.
Lukkutröll
5.790,- stk.
Kay Bojesen
stúdentshúfa
á apa – 2.990,-
Kay Bojesen api
H: 20 cm 18.990,-
Design Letters
Favourite bolli
3.290,-
Specktrum Crush
Couple kertastjaki
Clear/Pink – 7.990,-
Specktrum Crush
Single kertastjaki
Pink – 5.590,-
Fjárhagur Snorrastofu er í jafnvægi þrátt fyrir um
30% samdrátt í tekjum í kórónuveirufaraldri.
Tekjur af ferðaþjónustu eru mikilvægur liður í
rekstri Snorrastofu. Þær minnkuðu verulega í far-
aldrinum, eins og hjá öðrum fyrirtækjum og stofn-
unum sem veita ferðafólki þjónustu. Bergur Þor-
geirsson forstöðumaður segir að brugðist hafi
verið við með sparnaði, sérstaklega í mannahaldi,
en tekur fram að það hafi tekist án þess að segja
upp starfsfólki. Þar hafi eðlileg starfsmannavelta
komið til.
Bergur segir ekki útlit fyrir auknar fjárveitingar
frá ríkinu. Það komi fram í samningaviðræðum um nýjan samning. „Það er ekki bjart fram undan
í þessu því við þurfum að leita annarra leiða til að fjármagna starfsemina, fjölga umsóknum í alls
konar sjóði, og í því liggur mikil vinna sem ekki nýtist þá í annað,“ segir Bergur.
Nú sér fyrir endann á stóra goðafræðiverkefninu. Unnið er að útgáfu á sjöunda og síðasta
bindinu um rannsóknirnar. Jafnframt er unnið að tveimur minni verkefnum um norræna goðafræði.
Af öðrum rannsóknarverkefnum nefnir Bergur að nú sé að hefjast verkefni um Harald harð-
ráða og hvernig hann birtist í ýmsum heimildum. Það er unnið í samvinnu við Edinborgarháskóla.
Ráðstefnuhald er að hefjast aftur eftir faraldur. Síðar í þessum mánuði verður þriggja daga
ráðstefna um bandaríska rithöfundinn Henry David Thoreau, sem hafði mikinn áhuga á Snorra
Sturlusyni. Er það stærsta verkefni Snorrastofu á þessu sviði í ár.
Ýmislegt verður um að vera í Reykholti í sumar. Nefna má fornbíladag 4. júní, málþing um
gamla bíla, varðveislugildi þeirra og sagnfræði, auk þess sem fornbílar verða til sýnis á staðnum.
Tekist hefur að halda sjó
SAMDRÁTTUR Í FARALDRI
Snorrastofa Rannsóknir og þjónusta við ferða-
fólk er í nánu sambýli við Reykholtskirkju.
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
VIÐTAL
Helgi Bjarnason
helgi@mbl.is
Snorrastofa er að hefja frumhönnun á nýt-
ingu austurálmu gamla héraðsskólahússins í
Reykholti til sýninga sem tengjast sögu
Snorra Sturlusonar. Forstöðumaður
Snorrastofu segir að ýmsar hugmyndir séu
uppi, meðal annars um
betri tengingu Snorra-
laugar og þeirra gesta
sem þangað koma við
Snorrasýninguna og bygg-
ingu virkisveggja um
fornminjasvæðið í anda
Reykholts á tímum
Snorra Sturlusonar.
Boðin lóð í Borgarnesi
Farið er í þessa vinnu í
kjölfar þess að varaeintakasafn Lands-
bókasafnsins hefur sprengt húsnæðið í
Reykholti utan af sér og ákveðið hefur verið
að flytja það annað. Ekki hefur verið ákveð-
ið hvert en sveitarstjórn Borgarbyggðar
hefur boðið fram án endurgjalds lóð í Borg-
arnesi.
Eftir að skólahald lagðist af hefur austur-
álma héraðsskólahússins verið notuð fyrir
varaeintakasafnið. Í norðurálmu er hátíð-
arsalur og stúdíóherbergi fyrir fræði- og
listamenn á vegum Snorrastofu.
Móttaka og sýning
Bergur Þorgeirsson forstöðumaður
Snorrastofu telur að húsnæðið sem losnar
sé tilvalið sem sýningaraðstaða. Nefnir að
miklar kröfur hafi verið gerðar til geymslu-
húsnæðis bókasafnsins með tilliti til bruna-
varna, raka og loftræstingar. Lítið þurfi að
gera til að koma því í önnur not. Það sé
helst lagfæringar á aðgengi fyrir hreyfi-
hamlaða.
Húsið er á fjórum hæðum. Hugmyndin er
að vera með móttöku á jarðhæðinni og sýn-
ingar á þremur efri hæðunum. Fyrsta hæð-
in er við hlið Snorralaugar sem margir
ferðamenn sækja heim, allt að 200 þúsund á
ári. Vantað hefur betri tengingu sýning-
arinnar í Snorrastofu við Snorralaug-
arsvæðið. Bergur segir upplagt að nota þá
hæð fyrir kaffihús, bókabúð og minja-
gripaverslun, á svipaðan hátt og nú er að
hluta í móttöku Snorrastofu. Á annarri
hæðinni mætti koma fyrir grunnsýningu
um Snorra Sturluson, ef til vill endurbættri
sýningin sem nú er í Snorrastofu. Bergur
segir að fornminjasvæðið sem grafið var
upp í Reykholti sé í framhaldi af annarri
hæðinni. Því hafi komið upp sú hugmynd að
opna þar út og gera virkisvegg í kringum
fornminjasvæðið, eins og rannsóknir benda
til að hafi verið í Reykholti á tímum
Snorra.
Á þriðju og fjórðu hæðinni mætti að hans
sögn hafa fyrirlestrarsali þar sem hægt
yrði að veita fræðslu og hafa sýningu á því
hvernig verk Snorra hafa verið notuð í tón-
list, bókmenntum, kvikmyndum og hönnun.
Nefnir í því sambandi Game of Thrones,
Lord of the Rings, verk Willams Morris,
rithöfundar og listamanns, og tónlist Rich-
ards Wagners.
Höfðar til margra
„Ég tel að þetta efni ætti að höfða til Ís-
lendinga og erlendra ferðamanna, jafnt
ungra sem eldri. Þetta er dauðafæri fyrir
Snorrastofu,“ segir Bergur Þorgeirsson um
nýju sýningaraðstöðuna.
Hann segir að verið sé að sækja um
styrki til að vinna að frumhönnun og við-
skiptaáætlun nýs sýningarpláss með það að
markmiði að gera starfsemina sjálfbæra
fjárhagslega.
Dauðafæri fyrir Snorrastofu
- Áhugi á að koma upp nýrri Snorrasýningu þegar varaeintakasafnið hverfur úr héraðsskólahúsinu
- Kemur á tengslum við Snorralaug - Hugmynd um að reisa virkisvegg um fornminjasvæðið
Morgunblaðið/Helgi Bjarnason
Reykholt Vonast er til að hægt verði að koma upp stærri og veglegri sýningu um líf og starf Snorra Sturlusonar þegar varaeintök Lands-
bókasafnsins fara úr austurálmu héraðsskólahússins sem hér blasir við. Sýningin yrði í beinum tengslum við Snorralaug og fornminjasvæðið.
Bergur
Þorgeirsson
Flugfélagið Niceair, sem áformar
millilandaflug frá Akureyri í sumar,
er komið í samstarf við Umhyggju,
félag langveikra barna, sem felst í
því að bjóða langveikum börnum og
fjölskyldum þeirra sérstök kjör á ut-
anlandsferðum með félaginu.
Frá þessu samstarfi er greint á
vef Umhyggju. Þar er lýst mikilli
ánægju með samkomulagið en sam-
kvæmt því geta langveik börn flogið
frítt með Niceair á alla áfangastaði
og foreldrar og/eða forráðamenn fá
50% afslátt í sömu ferð. Áfanga-
staðir Niceair í sumar eru Kaup-
mannahöfn, Tenerife og London en
næsta vetur stendur til að fljúga til
Kaupmannahafnar, London og Man-
chester.
Stefnt er að jómfrúfluginu í næsta
mánuði. Niceair hefur fest kaup á
Airbus A319-vél með 150 flug-
sætum.
Framkvæmdastjóri Niceair er
Þorvaldur Lúðvík Sigurjónsson.
Hann er meðal stofnenda, auk
ýmissa norðlenskra fyrirtækja á
borð við KEA, Höld, Kaldbak, Nor-
landair og Ferðaskrifstofu Akur-
eyrar.
Langveik börn fljúga
frítt með Niceair
Flugfélag Vél frá Niceair fer senn í sitt fyrsta millilandaflug frá Akureyri.