Morgunblaðið - 19.05.2022, Blaðsíða 48

Morgunblaðið - 19.05.2022, Blaðsíða 48
48 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 19. MAÍ 2022 ✝ Þorvarður Brynjólfsson fæddist 4. maí 1938 á Tungu við Reyð- arfjörð. Hann lést á hjúkrunarheimilinu Hrafnistu í Reykja- vík 7. maí 2022. Foreldrar hans voru Brynjólfur Þor- varðsson skrif- stofumaður, f. 6.5. 1902 á Suðureyri í Súgandafirði, d. 19.12. 1974 og Ásta Beck Þorvarðsson, hús- freyja og iðnverkakona, f. 14.9. 1913 á Sómastöðum við Reyð- arfjörð, d. 22.2. 2011. Systkini Þorvarðar eru al- systkin Ragnheiður, f. 17.3. 1935, d. 20.4. 1971, Anna, f. 19.7. 1939, d. 28.5. 1998, Ásthildur, f. 13.8. 1944, Ríkharð, f. 2.1. 1946, Eirík- ur, f. 28.12. 1950 og Stefán, f. 28.8. 1952, d. 11.7. 2019. Sam- feðra Bryndís, f. 8.3. 1925, d. 19.8. 2002. Þorvarður giftist eiginkonu sinni, Dóru Skúladóttur við- skiptafræðingi, f. 12.1. 1940, d. 11.6. 2018, þann 5. febrúar 1961. Foreldrar Dóru voru Stefanía Stefánsdóttir húsfreyja, f. 8.9. 1920 í Stóra-Lambhaga í Hraun- um, d. 8.12. 2007 og Skúli Magn- skertra, f. 29.1. 1963, eru a) Emil Örn háskólanemi, f. 7.12. 2001 og b) Dóra Björg nemi, f. 2.4. 2007. 4) Skúli Dór hagfræðingur, f. 13.1. 1977. Eiginkona hans er Veronica, fædd Oduro, sérkenn- ari heyrnarlausra, f. 14.4. 1978. Dætur þeirra eru a) Myah Sophia, f. 8.6. 2016 og b) Alana Freya, f. 8.6. 2016. Þorvarður flutti með foreldr- um sínum frá Reyðarfirði í Stykkishólm níu ára og síðar til Reykjavíkur árið 1952 þar sem fjölskyldan bjó við Óðinsgötu og Þorvarður sótti nám í Mennta- skóla Reykjavíkur. Hann lauk stúdentsprófi árið 1957. Fyrstu hjúskaparárin stundaði Þorvarður nám í læknisfræði, kandídatsárið var unnið á Eski- firði og Flateyri og síðan fram- haldsnám í heimilislækningum í Danmörku 1970-1974. Þegar heim var komið starfaði Þor- varður sem heimilislæknir á Do- mus Medica en 1977 réð hann sig á fyrstu heilsugæslustöð höf- uðborgarsvæðisins í Árbæ. Árið 1990 fluttu Dóra og Þorvarður aftur utan, fyrst til Malmö í Sví- þjóð og síðan til Sauda í Noregi. Þau fluttu að lokum til Keflavík- ur til að eyða ævikvöldinu nær ættingjum og vinum. Ekki var Þorvarður þó á því að hætta sem læknir, hann starfaði á Heilsu- gæslu Suðurnesja í hlutastarfi vel fram á áttræðisaldur. Þorvarður verður jarðsunginn frá Lindakirkju í Kópavogi í dag, 19. maí 2022, kl. 15. ússon frá Efri- Hömrum í Ása- hreppi, vörubifreið- arstjóri, f. 1.7. 1915, d. 27.6. 1995. Börn Þorvarðar og Dóru eru: 1) Brynjólfur tölv- unarfræðingur, f. 27.12. 1962. Hans börn með fyrrv. konu sinni, Steingerði Hreinsdóttur útibús- stjóra, f. 24.7. 1970, eru a) Þor- varður Hreinn, landvörður og húsasmiður, f. 31.3. 1992 og b) Urður Ýrr, blaðamaður og sirkus- listakona, f. 26.2. 1994. 2) Stefanía María, löggildur endurskoðandi, f. 8.11. 1964. Eiginmaður hennar er Malcolm William Biggart, löggildur endur- skoðandi, f. 12.5. 1965. Þeirra börn eru a) Vala Katherine líf- efnafræðingur, f. 18.7. 1996 og b) Ari Scott verkfræðingur, f. 5.4. 1998. 3) Ragnheiður Ásta verkfræð- ingur, f. 2.8. 1971. Sambýliskona hennar er Þórunn Guðjónsdóttir, sjónvarps- og kvikmyndagerð- arkona, f. 17.12. 1969. Hennar börn með fyrrv. konu sinni Brynju Brynleifsdóttur, sérkennslu- og tölvuráðgjafa blindra og sjón- „Krakkarnir í Tungu voru svo góðir krakkar, alltaf svo ljúf og góð.“ Þetta var einkunnin sem Stúlla frænka, sem gerst mátti þekkja, gaf þeim systkinum mín- um sem lifðu fyrsta æviskeiðið í Tungu í Reyðarfirði. Þetta voru Gagga, Þorvi og Anna. Við Ást- hildur vorum of ung fyrir svona einkunn þegar við fluttum frá Reyðarfirði. En nú eru þau öll farin, rétt eins og yngsti bróð- irinn, Stefán. Í dag kveðjum við Þorva sem var alltaf stóri bróðir. Átta ár voru milli okkar þannig að nánd- in var ekki mikil en alltaf var hann stóri bróðir og fyrirmynd. Á menntaskólaárum sótti hann leshringi í Kommúnistaá- varpinu sem Einar Olgeirsson hélt um langt árabil fyrir menntaskólanemendur. Þetta þykir kannski ekki góð latína í dag, en er það ekki eðlilegt, jafn- vel gott, að ungt fólk efist um hreyfiöfl samfélagsins, þó draumur og veruleiki hafi ekki endilega farið saman. Alltént varð Þorvi sannfærður sósíalisti og félagsheimili Æskulýðsfylk- ingarinnar í risinu á Tjarnargötu 20 mikill samkomustaður. Aldrei komst ég í leshring en endur- ómur þaðan plantaði róttækni í litla bróður. Pabba og mömmu þóttu stundum nóg um þaulsetur okkar þarna í risinu. Þorvi hafði hug á að komast til Sovétríkjanna til háskólanáms fiskiðnfræði og ég minnist sjálfs- námsbókar í rússnesku heima en það gekk ekki upp og læknis- fræðin varð fyrir valinu. Hann starfaði á nokkrum stöðum og ef fólk sem leitað hafði til hans vissi um tengsl okkar stóð ekki á góðum umsögnum að fyrra bragði. Um nokkurt skeið var hann við heilsugæsluna í Borgarnesi og mér er minnis- stætt viðbragð fullorðins manns, sem oft þurfti að leita þangað, þegar ég sagði að Þorvi væri að fara. Það hreinlega þyrmdi yfir hann, það hafði verið svo gott að fara til hans, Þorvarður er svo athugull, sagði hann. Aldursmunur og fjarlægð gerði dagleg samskipti stopul, en eitt áttum við þó sameiginlega, við vorum báðir í sveit hjá frændfólki okkar á Sómastöðum. Þorvi náttúrulega fyrst og ég tók svo við. Nýlega var umræða um sveitadvöl barna á heldur nei- kvæðum nótum en við vorum sammála um að betri sumur hefðum við ekki getað átt. Systk- inin Hans og Gunna voru önd- vegis fólk, Hans Framsóknar- maður en Lúðvík var maður Gunnu svo talsvert var rætt um pólitík og stundum hvessti nokk- uð. Sómastaðir voru og eru stórir í minningunni. Við hliðina á ál- verinu er þetta allt afskaplega lítið en enn stendur steinbærinn gamli sem afi okkar reisti, end- urgerður af miklum myndarskap og þegar við Þorvi og Ásthildur komum þar fyrir fáum misserum klökknaði Þorvi við minningarn- ar, hér var rúmið hans Bjössa frænda, hérna svaf ég. Svona var minningin góð Vinna þurftum við eftir því sem aldur og þroski leyfðu og þar lærðust vinnubrögð sem nú eru horfin við heyskap og skepnuhirðingu og sá sjóndeild- arhringur sem umhverfið mark- aði. Svo kynntist maður öðru frændfólki þar fyrir austan, enda frændgarður stór. Ljúflyndi ykkar verði kunnugt öllum mönnum, segir Páll postuli einhvers staðar. Ljúflyndi góðu krakkanna í Tungu þurfti ekki að gera kunnugt. Það bara var þeirra eðli. Ríkharð. Þorvarður Brynjólfsson Á fallegum vor- degi kvaddi Gunnar afi, saddur lífdaga og tilbúinn að kveðja. Við systkin- in vorum mjög rík af öfum og ömmum í uppvextinum og verður því skrýtið að geta ekki lengur sagst eiga afa á lífi. En lífið heldur áfram og afi kominn til ömmu og verða örugglega tekin nokkur dansspor þegar þau hittast ef við þekkjum þau rétt. Að eiga afa sem lifði og hrærð- ist í kringum gönguskíðin voru viss forréttindi og þegar komið var á Hlíðarveginn var það yfir- Gunnar Pétursson ✝ Gunnar Pét- ursson fæddist 31. mars 1930. Hann lést 4. maí 2022. Útför hans fór fram 14. maí 2022. leitt fyrsta spurn- ingin hvort við hefð- um ekki farið á skíði í dag, hvernig færið var og hvað var und- ir skíðunum. Má ekki bjóða ykkur vöfflur og súkkulaði kom svo í kjölfarið og því gat enginn neitað. Hann fylgd- ist vel með afkom- endunum á skíðun- um og var hann afar stoltur af Grænagarðsgenginu sem tyllti sér oftar en ekki á pall á hinum ýmsu mótum. Afi hreyfði sig alla tíð mjög mikið og var hann í hópi fyrstu Íslendinganna sem sendir voru á vetrarólympíuleika í Osló árið 1952 til að keppa í skíða- göngu. Hann tók líka 5 sinnum þátt í Vasagöngunni í Svíþjóð, síð- ast árið 2002 en þá var hann 72ja ára. Daginn sem hann varð 80 ára keppti hann í sprettgöngu við Sig- urð Arnar (langafabarn sitt) á Skíðavikunni og fannst það ekk- ert tiltökumál. Hér á Ísafirði mátti sjá bílinn hans með göngu- skíðum á toppnum næstum allt árið því að á meðan snjór var á Breiðadalsheiði fór hann þangað og gekk. Þegar ekki var hægt að fara á skíði þá fór hann í göngu- túra eða hjólaði og var varla sú stund sem hann sat og slakaði á. Alltaf að gera eitthvað. Hlíðarvegurinn var alltaf opinn fyrir okkur systkinin, hvort sem það var að koma í hádegismat eða gista milli vakta. Stutt var að skjótast úr vinnu í hádeginu á Hlíðarveginn og afi oftar en ekki tilbúinn með eitthvað þegar amma var að vinna. Skyr með rjóma, egg og rúgbrauð með kæfu var oftar en ekki á boðstólum og þar var sko ekkert í boði að vilja ekki borða eitthvað sem manni fannst ekki gott. Allir þurftu að smakka. Afi var mikill áhugamaður um kartöflurækt og það dugði sko ekki að hafa einn garð í bænum, heldur voru fjórir garðar sem til- heyrðu fjölskyldunni. Á vorin fengu barnabörnin símtal frá afa þar sem við vorum boðuð í að setja niður útsæðið og svo aftur á haustin að taka upp kartöflurnar. Það var ekki alltaf gleðilegt að fá þessi símtöl en við létum okkur hafa það og hjálpuðum til á hverju ári. Hann sinnti ekki bara kart- öflurækt heldur fór hann til berja, tók slátur, gerði kæfu og bakaði rúgbrauð. Berin sultaði hann og saftaði og geymdi uppi á lofti og voru margir árgangar af saft þar, sumir aðeins farnir að gerjast en það var látið liggja á milli hluta. Jóladagurinn var alltaf hjá ömmu og afa á Hlíðarveginum. Sveitahangikjöt, svið og laufa- brauð voru alger nauðsyn og höf- um við haldið í þann sið þó svo að mörgum þyki það undarlegt að hafa svið á jóladag og ekki allir til- búnir að smakka. En sumum hlut- um má einfaldlega ekki breyta. Minning um góðan mann yljar og kveðjum við Gunnar afa með söknuði og minnumst hans með hlýju í hjarta. Sigríður Laufey, Guðbjörg Rós og Pétur Albert. Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, GYLFI JÓNSSON, fv. vörubílstjóri, Gullhömrum 11, Kópavogi, lést fimmtudaginn 12. maí. Útförin fer fram frá Langholtskirkju miðvikudaginn 25. maí klukkan 11. Viðar Gylfason Drífa Skúladóttir Sigurjón Gylfason Anna Rakel Sigurðardóttir Halldór Gylfason Halla Skúladóttir barnabörn og barnabarnabörn Elskuleg eiginkona mín, móðir, tengdamóðir, amma og langamma, SÓLVEIG EINARSDÓTTIR, áður Erluási 82, lést á Hrafnistu Hraunvangi að kvöldi 15. maí. Útför fer fram frá Hafnarfjarðarkirkju mánudaginn 23. maí klukkan 13. Bestu þakkir til starfsfólks á Ölduhrauni fyrir góða umönnun. Helgi Björn Einarsson Ragnheiður Helgadóttir Runólfur Bjarnason Matthildur Helgadóttir Harpa Helgadóttir Árni Örn Jónsson ömmu- og langömmubörn Stapahrauni 5, Hafnarfirði Sími: 565 9775 www.uth.is - uth@uth.is Frímann 897 2468 Hálfdán 898 5765 Ólöf 898 3075 Kristín 699 0512 Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir og afi, MAGNÚS ÞORSTEINN JÓNASSON, fyrrverandi bóndi í Koti í Svarfaðardal, lést á Sjúkrahúsinu á Akureyri miðvikudaginn 11. maí. Útförin fer fram frá Dalvíkurkirkju laugardaginn 21. maí klukkan 13.30. Anna Lísa Stefánsdóttir Ingunn Magnúsdóttir Ari Már Gunnarsson Guðrún Magnúsdóttir Atli Þór Friðriksson Heiða Magnúsdóttir Sigurður Ingvi Rögnvaldsson og barnabörn Ástkær eiginkona mín, móðir okkar, amma og langamma, DÓRA ÁGÚSTSDÓTTIR, Sléttuvegi 19, lést á hjúkrunarheimilinu Sólteigi þriðjudaginn 3. maí. Útförin hefur farið fram í kyrrþey. Magnús Magnússon Ágúst Magnússon Hrafnhildur Haraldsdóttir Heiða Magnúsdóttir Hlíf Magnúsdóttir Brynja Magnúsdóttir Brynjar Ragnarsson barnabörn og barnabarnabörn Ástkær sambýlismaður, faðir, bróðir, tengdafaðir, afi og langafi, JÓHANN ÁSGEIRSSON, netagerðarmeistari og eyjajarl, Akureyjum, varð bráðkvaddur í Akureyjum miðvikudaginn 4. maí. Útförin fer fram frá Háteigskirkju þriðjudaginn 24. maí klukkan 15. Blóm og kransar vinsamlegast afþakkaðir, en þeir sem vilja minnast hans geta styrkt áframhaldandi uppbyggingu í Akureyjum. Kt.: 200691-2459, rn.: 0370-22-44854. Streymt verður frá athöfninni á www.akureyjar.is. Einnig má nálgast streymi á mbl.is/andlat. Anna Gunnarsdóttir Hallfríður Jóhannsdóttir Morten Teigen Jón Einar Jóhannsson Lina Zabelo Jón Páll Ásgeirsson J. Aðalheiður Vilhjálmsdóttir Ágúst Ásgeirsson Jóhann Vilhjálmsson fjölskyldur og aðrir aðstandendur
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.