Morgunblaðið - 19.05.2022, Blaðsíða 46

Morgunblaðið - 19.05.2022, Blaðsíða 46
46 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 19. MAÍ 2022 ✝ Ásgeir J. Guð- mundsson hús- gagnasmiður fædd- ist í Hafnarfirði 9. febrúar 1935. Hann lést 10. maí 2022. Ásgeir var næst- yngstur fjögurra systkina hjónanna Matthildar Sigurð- ardóttur húsmóður, f. 30. júlí 1901, d. 18. janúar 1987, og Guðmundar Kr. Guðmundssonar bifreiðastjóra, f. 2. nóvember 1898, d. 24. júní 1971. Jónína Guðmundsdóttir lifir bróður sinn en Halldór S. Guðmundsson og Sigríður Guðmundsdóttur eru látin. Björgu Harðardóttur og synir þeirra eru Sindri Freyr og Fann- ar Páll. Ásgeir ólst upp í Hafnarfirði og lauk húsgagnasmíðanámi frá Iðnskólanum í Hafnarfirði en það hóf hann 16 ára gamall. Þau hjón- in stofnuðu árið 1956 húsgagna- fyrirtækið Á. Guðmundsson á Ei- ríksgötu 9 í Reykjavík, til húsa í dag í Bæjarlind 8-10 í Kópavogi, sem þau ráku saman alla tíð. Ás- geir var virkur í Samtökum iðn- aðarins um árabil, sat í stjórn Meistarafélags húsgagnasmiða og í stjórn Útflutningssamtaka húsgagnaframleiðenda. Hann var sæmdur fálkaorðu fyrir störf sínu í þágu iðnaðarins. Einnig gegndi hann trúnaðarstörfum fyrir hestamannafélagið Gust í Kópavogi og var sæmdur gull- merki Landssambands hesta- mannafélaga (LH). Útför Ásgeirs fer fram í Digraneskirkju í dag, 19. maí 2022, kl. 11. Ásgeir giftist 21. maí 1955 Maríu Sig- mundsdóttur, f. 3. desember 1933, d. 23. desember 2006. Börn þeirra eru Sig- mundur, Guðmund- ur, Þóra og Ásgeir. Sigmundur er gift- ur Kristínu Ottesen og börn þeirra eru Gísli, Svavar, María og Eva. Kona Guð- mundar er Jónína Ninný Magn- úsdóttir, börn Guðmundar af fyrra hjónabandi eru Ásgeir Haukur og Kristín Helga. Þóra er gift Þorvaldi Gíslasyni og dæt- ur þeirra eru Tinna og Freyja. Ásgeir er giftur Berglindi Í dag kveð ég hinstu kveðju elskulegan tengdaföður minn Ás- geir J. Guðmundsson. Ég hitti Ás- geir fyrst árið 2008, en stuttu áður lágu leiðir okkar Guðmundar son- ar hans saman. Við Ásgeir urðum strax góðir vinir og fljótlega myndaðist skemmtilegur húmor og léttleiki í okkar samskiptum. Hann kom oft til okkar í mat og undanfarin ár var fastur liður að hann væri hjá okkur Gumma um áramót og oft um jól. Ásgeir unni tónlist og elskaði að dansa, þannig að um leið og Ásgeir steig í hús þá var ég fljót að setja á tónlist, helst Hauk Heiðar og félaga því þá hitti ég í mark. Meðan við Gummi vor- um að undirbúa matinn, þá sat Ás- geir og hlustaði en átti erfitt með að sitja kyrr, dansinn kallaði á hann. Við ferðuðumst einnig tölu- vert saman erlendis og Ásgeir var góður ferðafélagi, hress og skemmtilegur. Ásgeir var einstakt snyrti- menni, allt svo huggulegt í kring- um hann. Bíllinn hans alltaf ný- þrifinn, heimilið og sumarhúsið fallegt, snyrtilegt og öllu vel við haldið. Allt í röð og reglu á skrif- stofu hans í Á. Guðmundsson, en þangað kom hann daglega þangað til á síðasta ári þegar heilsan var farin að gefa sig. Ásgeir og Maja stofnuðu Á. Guðmundsson árið 1956, en strax á unglingsaldri byrjuðu tveir eldri synirnir að vinna í fyrirtækinu og reka það í dag. Honum var annt um fyrir- tækið, sem hann hafði byggt upp af elju og dugnaði ásamt eigin- konu og sonum, fylgdist með og átti þar athvarf. Ásgeir var frum- kvöðull og flott fyrirmynd. Þegar ég kem inn í fjölskyld- una, þá er eitt og hálft ár síðan Ás- geir missti Maju sína, en ég fann strax hvað hennar var sárt saknað af allri fjölskyldunni. Ég skynjaði söknuðinn hjá Ásgeiri, og þegar minnst var á hana var tár á hvarmi. Hefði svo gjarnan viljað kynnast þessari sómakonu. Ás- geir var mjög félagslyndur og hafði yndi af gleðskap og manna- mótum. Hestamennska hafði átt hug þeirra hjóna og var Ásgeir enn virkur í hestamennsku þegar ég kynntist honum. Elsa systir mín sem einnig er mikil hestakona talaði lofsamlega um Ásgeir og Maju um leið og ég sagði henni að ég væri nýbúin að kynnast Gumma syni þeirra. Hún hafði kynnst þeim löngu áður en ég kom inn í fjölskylduna, sagði að þau væru öðlingsfólk, það voru góð meðmæli inn í nýja sambandið mitt. Að leiðarlokum minnist ég elsku Ásgeirs með hlýju og þakk- læti fyrir samfylgdina og góð kynni. Ég sendi allri fjölskyldunni mínar dýpstu samúðarkveðjur. Sérstakar þakkir og samúðar- kveðjur til Aðalheiðar (Öllu) vin- konu Ásgeirs sem reyndist honum og okkur svo vel síðustu árin. Far þú í friði, friður Guðs þig blessi, hafðu þökk fyrir allt og allt. Jónína Ninný Magnúsdóttir. Nú er komið á fimmta áratug síðan ég hitti Ásgeir fyrst, þegar ég byrjaði að heimsækja Þóru dóttur hans. Ég hafði auðvitað tekið eftir þessum manni í hest- húsahverfinu í Gusti, enda fór hann sjaldnast með veggjum. Frá fyrsta degi tók Ásgeir mér vel og með okkur þróaðist vin- skapur og traust. Hann stóð þétt við bakið á okkur litlu fjölskyld- unni þegar við tókum okkar fyrstu skref út í lífið og aðstoðaði í einu og öllu. Seinna reyndist hann dætrum okkar vel og með þeim tókst einnig mikill vinskapur. Ásgeir var dugnaðarforkur sem byggði ásamt Mæju upp stöndugt fyrirtæki sem enn, tæp- um 70 árum seinna, er rekið á sömu kennitölu. Hann var fylginn sér, framsýnn og lausnamiðaður og óhræddur við að taka erfiðar ákvarðanir. Það var áhugavert að hlusta á hann segja frá upphafs- árum sínum í rekstri, hvernig kaupin gerðust á eyrinni þegar kom að fyrirgreiðslu bankanna og fleira í þeim dúr. Það var ekki sjálfgefið að ungur piltur úr Hafn- arfirði næði að koma undir sig fót- unum. En það tókst honum svo sannarlega með elju, miklu skapi og dugnaði. Bestu stundir okkar Ásgeirs tengjast hestamennskunni en því áhugamáli deildum við frá fyrsta degi. Hann hafði sem ungur mað- ur verið í sveit í uppsveitum Borg- arfjarðar og naut þess að segja sögur frá þeim tíma, sumar heyrði maður oft. Hann þekkti vel til og kynnti mig fyrir mörgum falleg- um og skemmtilegum reiðleiðum á þeim slóðum. Við forum í tugi ferða víðsvegar um landið og deildum þeim áhuga að skoða leið- ir og spá í hvert ætti að fara næst. Í þessum ferðum var hann hrókur alls fagnaðar og söng og sagði sög- ur. Fyrir 16 árum eignuðumst við saman jörðina Grímarsstaði og þá tók við mikil uppbygging. Ásgeir dró ekki af sér þegar kom að því að gera upp og taka til hendinni. Þetta voru góðir tímar og oft glatt á hjalla þegar sest var niður að loknu góðu dagsverki. Hann var mikið snyrtimenni og naut þess að taka til hendinni. Þá áttum við góðar stundir, hvort sem var við heyskap eða önnur sveitastörf. Svo ekki sé talað um þegar hryss- urnar köstuðu, þá var nú gaman. Þegar Ásgeir varð áttræður, fórum við Þóra með hann að Steinanesi í Arnarfirði, þar sem faðir hans var fæddur. Þangað er einungis fært sjóleiðina og siglum við þangað út í einmuna veður- blíðu. Það er ógleymanleg ferð enda hafði hann talað um það ár- um saman að þangað langaði hann að koma. Nú er komið að leiðarlokum og ég kveð góðan vin og tengdaföður og þakka samfylgdina. Þorvaldur Gíslason. Elsku besti afi Geiri. Ég kveð þig í dag með trega og söknuði. Það huggar mig að vita að elsku amma Maja tekur fagn- andi á móti þér syngjandi og dans- andi í sumarlandinu. Hjartað mitt er fullt af stolti og þakklæti og verð ég alltaf þakklát fyrir okkar góða og nána sam- band. Við vorum alltaf miklir vinir alveg fram á þinn síðasta dag. Þú og amma voruð best saman og er ég þakklát fyrir að eiga ykk- ur sem fyrirmyndir. Það var alltaf gaman að koma til ykkar í Hraun- tunguna og man ég helst eftir þeg- ar við frænkurnar fengum allar að gista hjá ykkur. Við vorum þá oft- ast í eins náttfötum sem þið keypt- uð fyrir okkur í útlöndum. Í seinni tíð eftir að amma fór frá okkur alltof snemma áttum við það til að fara tvö saman út að borða. Það var alltaf gaman að fara með þér, við gátum spjallað um allt mögulegt og skemmt okkur vel. Einu kröfurnar þínar voru að þú fengir steik að borða. Þú áttir það síðan til að reyna að plata þjóninn að þú værir með einni yngri. Ég minnist beggja ferðanna okkar saman til Tenerife á afmæl- inu þínu og pabba. Við áttum svo góðar stundir þar saman enda allt- af söngur, dans og gleði í kringum þig. Þú varst nefnilega alltaf til í að hafa gaman og bauðst upp í dans við öll tækifæri. Ég lofa þér, elsku afi minn, að varðveita í hjarta mínu allar góðu minningarnar okkar saman. Ég er þakklát fyrir allt sem þú kenndir mér og þá góðu fyrirmynd sem þú hefur að geyma. Það var alltaf gott að leita til þín og þú hvattir mig áfram í öllu því sem ég tók mér fyrir hendur. Ég mun reyna eftir bestu getu að halda áfram að gera þig stoltan og mun sjá til þess að þegar Kiddi minn verður eldri fái hann að kynnast þér nánar í anda. Ég kveð þig með miklum sökn- uði, elsku afi minn, og elska þig meira en þessi fáu orð fá lýst. Takk fyrir allt, þú varst bestur. Umhyggju og ástúð þína okkur veittir hverja stund. Ætíð gastu öðrum gefið yl frá þinni hlýju lund. Gáfur prýddu fagurt hjarta, gleðin bjó í hreinni sál. Í orði og verki að vera sannur var þitt dýpsta hjartans mál. (Ingibjörg Sigurðardóttir) Hvíldu í friði. Þín Kristín Helga. Elsku afi Geiri, hetjan mín og fyrirmynd, er farinn í sumarland- ið. Það er ótrúlega sárt og erfitt að skrifa niður kveðjuorð til þín, vit- andi að við komum ekki til með að hittast í bráð. Þú varst alltaf hrók- ur alls fagnaðar. Það skipti engu hvert þú komst, það var alltaf gaman að vera í kringum þig. Afi var töffari af gamla skólan- um. Hann hafði einstaklega gam- an af dansi og söng. Oft á ferðalög- um erlendis átti hann það til að taka lagið eða létt dansspor, við mikinn fögnuð viðstaddra. Afi, með breiða brosið, hláturinn og húmorinn, náði að kalla fram bros og sameina fólk á gleðistundum. Afi kenndi mér svo margt og á ég honum margt að þakka. Ég á eftir að sakna heimsókna þinna, sakna þín í vinnunni, brandaranna þinna og símtala. Þú varst alltaf hress og skemmtilegur, tilbúinn að segja mér sögur og gefa okkur góð ráð. Takk fyrir allar minningarnar. Ég mun gera mitt allra besta til þess að halda minningu þinni á lofti. Ég mun segja dætrum mín- um sögur af þér og ömmu Maju. Það sem ég hef mér til huggunar núna er að vita að þú og amma er- uð loks sameinuð í sumarlandinu. Það hafa eflaust verið miklir fagn- aðarfundir með söng og dansi fram á nótt. Hver minning dýrmæt perla að liðnum lífsins degi, hin ljúfu og góðu kynni af alhug þakka hér. Þinn kærleikur í verki var gjöf, sem gleymist eigi, og gæfa var það öllum, er fengu að kynnast þér. (Ingibjörg Sigurðardóttir.) Elsku afi minn, ég kveð þig með miklum söknuði. Hafðu þökk fyrir allt sem þú hefur kennt mér. Ég er stoltur að bera nafn þitt. Hvíl þú í friði. Þinn Ásgeir Haukur Guðmundsson. Elsku afi minn, það er erfitt að lýsa með orðum öllum þeim til- finningum og minningum sem streyma fram þegar ég sest niður til að skrifa um þig minningarorð. Hinsta kveðja. Kaflaskil sem ég vissi alltaf að myndi koma að, en var búin að kvíða. En allt hefur endi og það er góð áminning um hversu mikilvægt það er að lifa líf- inu, skapa minningar og vera óhræddur við að grípa þau tæki- færi sem gefast. Ásgeir Guðmundsson Vesturhlíð 2 | Fossvogi | s. 551 1266 | utfor@utfor.is | utfor.is VIÐ ÞJÓNUM ALLAN SÓLARHRINGINN Útfararþjónusta í yfir 70 ár Þökkum auðsýnda samúð og hlýhug við andlát og útför ástkærrar móður, tengdamóður, ömmu, langömmu og langalangömmu okkar, BJARNEYJAR JÓNSDÓTTUR, Sigtúni 43, Reykjavík, sem lést 29. apríl og var jarðsungin 10. maí. Kristinn Einarsson Margrét Hallsdóttir Guðrún Einarsdóttir Sumarliði Jónsson barnabörn, barnabarnabörn og barnabarnabarnabarn Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, GUÐRÚN JACOBSEN rithöfundur, lést á Skjóli laugardaginn 30. apríl. Þröstur Júlíus Karlsson Sigrún Stella Karlsdóttir Harpa Karlsdóttir Guðrún Glódís Gunnarsdóttir barnabörn og barnabarnabörn Elsku mamma okkar, tengdamamma, systir og mágkona, HILDIGUNNUR SIGRÚN GUÐLAUGSDÓTTIR hjúkrunarfræðingur, Suðurhólum 4, lést laugardaginn 7. maí. Útför fer fram frá Fella- og Hólakirkju miðvikudaginn 25. maí klukkan 13. Rafn Atli Hermannsson Halldóra Dröfn Arnviðardóttir Ernir Atli Hermannsson Ásta Margrét Guðlaugsdóttir Einar Ingi Ágústsson Þórunn Björk Guðlaugsdóttir Erna Guðlaugsdóttir Guðmundur Gunnarsson Ástkær faðir minn, tengdafaðir, afi og langafi, JÓN FINNSSON hæstaréttarlögmaður, lést sunnudaginn 15. maí á hjúkrunarheimilinu Sólvangi. Útför hans verður gerð frá Þjóðkirkjunni í Hafnarfirði fimmtudaginn 9. júní klukkan 13. Þeim sem vilja minnast hans er bent á Barnaspítalasjóð Hringsins. Kristín Jónsdóttir Ásbjörn Sigþór Snorrason Kristbjörg Tinna Ásbjörnsd. Páll Kristjánsson Jón Ásbjörnsson Tindur Orri Ásbjörnsson Ylfa Hrönn Ásbjörnsdóttir Styrmir Ási, Jón Flóki og stúlka Pálsdóttir Ástkær móðir okkar, sambýliskona og stjúpmóðir, ELÍN BJÖRG GUÐJÓNSDÓTTIR kennari, lést fimmtudaginn 12. maí á Landspítalanum. Guðjón Ari Logason Eva Björg Logadóttir Ólafur J. Stefánsson Bára Björg Ólafsdóttir Ragnar Ólafsson Elskulegur faðir minn, bróðir okkar og frændi, ODDUR HELGI BRAGASON, er látinn. Útförin fer fram í Garðakirkju miðvikudaginn 25. maí klukkan 13. Gunnhildur Rós Oddsdóttir Eyjólfur Bragason Hrönn Kjærnested Auður Bragadóttir og fjölskylda
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.