Morgunblaðið - 19.05.2022, Síða 26

Morgunblaðið - 19.05.2022, Síða 26
26 FRÉTTIR Innlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 19. MAÍ 2022 SPORTÍS SKE I FAN 1 1 1 08 REYKJAV ÍK S POR T I S . I S 520-1000 ALLT SEM ÞÚ ÞARFT Í ÚTIVISTINA! VIÐTAL Atli Steinn Guðmundsson atlisteinn@mbl.is „Ég hef bara alltaf haft mjög mikinn áhuga á velferð nemenda,“ segir Þórdís Eva Sigurðardóttir, grunn- skólakennari við Árbæjarskóla til margra ára, sem dreif sig í meistara- nám í náms- og starfsráðgjöf við Há- skóla Íslands og leggur í vor fram lokaritgerð sína þar, Velferð í ráð- gjöf – reynsla náms- og starfs- ráðgjafa í framhaldsskólum. Greinir Þórdís þar frá eigindlegri rannsókn sinni sem snerist um að fá innsýn í hlutverk framangreinds starfsfólks, náms- og starfsráðgjafa í framhalds- skólum, jafnt innan sem utan höfuð- borgarsvæðisins. Byggir Þórdís rannsókn sína á við- tölum við átta náms- og starfs- ráðgjafa og þeirra sýn á það hvernig stuðlað sé að velferð nemenda í ráð- gjöf. „Þá kannar höfundur einnig reynslu náms- og starfsráðgjafa af hugmyndafræði jákvæðrar sálfræði og styrkleikum og hvort velferðar- vinnan auki starfsánægju ráðgjaf- anna,“ eins og greinir frá í inngangi. Fram kemur í rannsókn Þórdísar að ráðgjafar telji mikilvægt að veita nemendum þetta utanumhald í nám- inu, að einhver sem hlustar, komi auga á styrkleika þeirra og hafi trú á þeim sé til staðar. Náms- og starfs- ráðgjafar í framhaldsskólum gegni þarna lykilhlutverki við að stuðla að velferð nemenda. Enn fremur tala ráðgjafarnir um að gefandi sé að vinna að velferð nemenda og leið- beina þeim í skólastarfinu. Notað persónulega nálgun „Það er bara þannig í kennslu að krakkarnir eru alls konar, þeir þurfa alls konar aðstoð og það þarf að hlusta á þá og huga að ýmsum mál- um. Ég gaf mér alltaf mjög góðan tíma í það,“ segir Þórdís í samtali við Morgunblaðið og kveður nemendur sína jafnan hafa haft mikinn aðgang að sér í skólanum og hafi hún lagt sérstaka áherslu á að vera til staðar fyrir þá. „Mér fannst þetta alltaf virka líka ofan í kennsluna, ef þeim leið vel gekk allt betur í skólanum,“ heldur hún áfram. „Svo hætti maður kannski að kenna þessum krökkum og fékk nýja nemendur en hinir héldu samt áfram að koma til mín til að spjalla og spyrja. Í frímínútum og bara öllum stundum var ég „námsráðgjafi“. Þetta er eitt af því sem heillar mig við kennsluna, að vera til staðar fyrir nemendur og kenna þeim á lífið og sjálfa sig. Ég hef alltaf notað þessa persónulegu nálgun í minni kennslu og þetta varð einmitt kveikjan að því að ég fór í þetta nám,“ segir Þórdís sem var að kenna á miðstigi, 5.-7. bekk. Ekkert einfalt í faginu Hún er Reykvíkingur, stúdent frá Fjölbrautaskólanum í Breiðholti þaðan sem leið hennar lá í íslensku við HÍ sem hún lauk þó ekki heldur settist á skólabekk í Kennaraháskól- anum þegar hann var og hét. „Þá hef ég sótt hin og þessi námskeið, svo sem varðandi leiðsagnarkennslu og fleira og verið leiðsagnarkennari sem er leiðbeinandi fyrir kennara- nema í starfsnámi,“ segir Þórdís, sér þyki mikilvægt að gera hlutina af einlægni og vera af alvöru í því sem hún tekur sér fyrir hendur. „Standa með sjálfum sér og þeim sem skipta mann máli, gildi góðra vina og félaga verður seint ofmetið auk þess að eiga góða að.“ Spurð út í náms- og starfsráðgjöf- ina sem fag, og hvort nemendur eða væntanlegir nemendur geti þreytt áhugasviðspróf sem leiði þá í allan sannleik um starfsferilinn fram und- an, segir Þórdís að ekkert sé einfalt í þessu fagi frekar en svo mörgum öðrum. „Það að leita sér aðstoðar hjá ráðgjafa gengur í meginatriðum út á það að leiðbeina fólki til þess að geta náð markmiðum sínum í sambandi við náms- og starfsval og áhugasviðs- próf geta gjarnan gefið vísbendingar sem fólk getur nýtt sér í leit sinni að námi eða starfi,“ útskýrir hún. „Oft kveikir þetta bara einhverjar hugmyndir hjá fólki, gefur því vís- bendingar um hvar styrkur þess liggur, svo sem þessi áhugasviðspróf, en það er nú almennt ekki þannig að fólk segi sem svo „jahá, frábært, ég á greinilega að vera arkitekt svo ég ætla bara að læra það“, þetta er ekki svart og hvítt frekar en svo margt annað, en engu að síður er mikil þörf fyrir þessa fræðigrein að mínu mati,“ heldur Þórdís áfram og nefnir sem dæmi að nú til dags sé skipulag kringum nám ekki eins einfalt og áður var, framboð á fjölbreytilegustu sí- og endurmenntun hafi til dæmis stóraukist og raunfærnimat komið til sögunnar, formlegt mat á þekkingu og hæfni fólks sem verður til víða annars staðar en í skólastofum. Covid-stemning í náminu „Nú er fólk líka að flytja hingað frá alls konar löndum, nýbúar og flóttafólk svo eitthvað sé nefnt, Vinnumálastofnun er í einhverjum tilfellum að þjónusta þetta fólk með náms- og starfsráðgjöf og það er bara svo ótrúlega margt í gangi á þessum vettvangi núna sem fólk veit ekki endilega af,“ segir Þórdís. Stundum virki hlutirnir og stundum ekki, eins og alls staðar í lífinu. Sum- ir eigi auðveldara en aðrir með að taka leiðsögn og tileinka sér þau ráð sem þeim bjóðast í námsráðgjöf, öðr- um gangi slíkt síður. Þórdís heldur til baka í sitt fyrra starf við kennslu að meistaranáminu loknu. Reiknar hún þá með að verða ríkari að eiginleikum og þekkingu sem nýtast muni í kennslunni án þess að hún hyggist beinlínis gerast náms- og starfsráðgjafi strax? „Mér finnst aðallega skipta miklu máli að vera alltaf að læra eitthvað nýtt. Í þessu tilfelli langaði mig bara að gera eitthvað, prófa eitthvað nýtt. Almennt held ég að þetta muni gagnast mér og ég ætla mér að vinna við þetta einhvern tímann þótt það verði kannski ekki strax,“ svarar Þórdís. Hún kveður skólasystkini sín í meistaranáminu hafa komið úr öllum áttum og lagt að baki mjög ólíkar fyrri háskólagráður. Þau hafi verið nokkrir tugir í náminu en örðugra væri að gera grein fyrir stemning- unni. „Ja, það var náttúrlega bara Covid-stemning, það var nú ekkert öðruvísi,“ svarar hún að nýafstöðnu tímabili er einkenndist af óvenju- legum samgangi fólks í námi jafnt sem á vinnumarkaði. Kveðst hún full tilhlökkunar að takast á við kennsluna á nýjan leik er þar að kemur. „Í Árbæjarskóla er af- skaplega gott að vinna og þar hef ég kynnst alveg frábæru fólki sem hefur kennt mér mikið. Ég er ekki bara eitthvert eyland, þetta byggist allt á samvinnu og ef þú ert í góðu teymi þá gerast góðir hlutir,“ segir kenn- arinn og kveður lykilþætti starfsins samvinnu fagaðila sem geri starfið meira lifandi og skemmtilegt. „Ég hef verið svo lánsöm að vinna með mörgum góðum kennurum í gegnum tíðina, fólki sem ég hef lært ótalmargt af,“ gerir Þórdís Eva Sig- urðardóttir, kennari við Árbæjar- skóla og meistaranemi í náms- og starfsráðgjöf við Háskóla Íslands, að sínum lokaorðum í samtali um kennslu, ráðgjöf og gildi góðs sam- starfs. Litríkar Vinkonur á Skólavörðustíg njóta einmuna veðurblíðu núna í maí, f.v. Hulda Hrund Jónasdóttir, Elínborg Þorsteinsdóttir, Berglind Magdalena Valdimarsdóttir og Þórdís Eva Sigurðardóttir sem hér er til viðtals. Samkennarar Berglind Magdalena Valdimarsdóttir, Þórdís og Hulda Hrund Jónasdóttir öskudagsklæddar í Árbæjarskóla í febrúar 2020. „Þetta er ekki svart og hvítt“ - Meistaraprófsrannsókn á upplifun náms- og starfsráðgjafa - Hlusta þarf á nemendur og að mörgu að hyggja - Hlakkar til að takast á við kennsluna á ný - Lánsöm með samstarfsfólk Ljósmynd/Íris Stefánsdóttir Kennari Þórdís Eva Sigurðardóttir ræddi við náms- og starfsráðgjafa.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.