Morgunblaðið - 19.05.2022, Side 45

Morgunblaðið - 19.05.2022, Side 45
MINNINGAR 45 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 19. MAÍ 2022 ✝ Kristjana Kristjánsdóttir hjúkrunarfræð- ingur fæddist í Reykjavík 10. júlí 1951. Hún lést á Sjúkrahúsinu á Akranesi 7. maí 2022. Foreldrar henn- ar voru Eva Krist- jánsdóttir, f. 1913, d. 2015 og Kristján Benedikt Gauti Jónsson, f. 1913, d. 1990. Systkini Kristjönu: Jón Gauti, f. 1949, d. 2012; Þórdís Anna, f. 1953 og Guðbjörg Eva, f. 1956. Þann 28. júní 1975 giftist Kristjana Stefáni Magnússyni húsasmið, f. 22. janúar 1951. Foreldrar Stefáns voru Bryn- hildur Stefánsdóttir, f. 1922, d. 1998 og Hannes Magnús október 2005; Stefanía, f. 11. nóvember 2007 og Oddur, f. 27. desember 2009. 3) Bjarni, f. 24. maí 1988, bíl- stjóri. Kristjana ólst upp í Reykja- vík og að loknu gagnfræðaprófi frá Gagnfræðaskóla Austur- bæjar árið 1968 starfaði hún sem gangastúlka á sjúkra- húsum í Reykjavík og Kaup- mannahöfn, þar til hún hóf nám í Hjúkrunarskóla Íslands í mars 1970. Að loknu prófi í mars 1973 vann hún á Hvammstanga í hálft ár en ferðaðist um Evrópu síðustu mánuði ársins. Í janúar 1974 hóf hún síðan störf á Sjúkra- húsi Akraness, sem varð henn- ar vinnustaður næstu 45 ár. Fyrstu árin vann hún á lyflækningadeild, en vorið 1990 lauk hún námi í skurðhjúkrun og eftir það var skurðstofan hennar staður, þar til hún lét af störfum í lok árs 2019. Útför Kristjönu fer fram frá Akraneskirkju í dag, 19. maí 2022, kl. 14. Hlekkur á streymi: https://www.mbl.is/andlat Bjarnason, f. 1918, d. 2002, bóndi í Birkihlíð, Reyk- holtsdal. Börn Kristjönu og Stefáns eru: 1) Gauti, f. 8. júlí 1976, verkfræðing- ur, giftur Rebekku Blöndal söngkonu, f. 19. ágúst 1988. Börn þeirra eru Ólafur Árni Dav- íðsson, f. 20. desember 1999 (fóstursonur); Kristjana Íva, f. 12. nóvember 2004, móðir þeirra er Aðalbjörg Silja Ragn- arsdóttir, f. 1983; Embla, f. 16. október 2015 og Eva, f. 1. febr- úar 2019. 2) Brynhildur, f. 8. desember 1977, snyrtifræðingur, gift Daníel Ottesen, bónda á Ytra- Hólmi, f. 27. maí 1979. Börn þeirra eru Anton Teitur, f. 20. Ung felldu þau hugi saman, Stefán bróðir minn og Krist- jana Kristjánsdóttir hjúkrunar- fræðingur, sem í dag er kvödd. Ég man svo vel þegar Krist- jana kom fyrst á heimili verð- andi tengdafólksins í Birkihlíð. Af henni stafaði útgeislun; gleði og hressileiki einkenndi hennar fas og þessi fallega og skemmtilega kona small um- svifalaust í hópinn. Tók þátt í störfum úti jafnt sem inni og naut þess að vera hluti af hópn- um. Þau Stebbi og Kristjana giftu sig sumarið 1975, stofn- uðu heimili og byggðu sér fljót- lega glæsilegt einbýlishús á Esjuvöllunum. Börnin komu eitt af öðru. Gauti, Brynhildur og Bjarni voru þeirra auga- steinar og síðar einnig barna- börnin sem áttu margar og kærleiksríkar stundir með ömmu og afa. Hláturmild, jákvæð, drífandi og ákveðin voru allt mannkostir í fremstu röð sem prýddu Kristjönu. Svo tileinkaði hún sér heilbrigt líferni, var m.a. göngugarpur mikill. Það var því einhvern veginn fjarstæðu- kennt að hún skyldi undir lok hefðbundinnar starfsævi grein- ast með þann sjúkdóm sem nú í vor náði yfirhöndinni eins og hendi væri veifað. En Kristjana var staðföst og tók veikindun- um síðustu árin af æðruleysi. Ég hygg að fæstir þeir sem minna til þekkja hafi yfirleitt gert sér grein fyrir að þar væri á ferð manneskja sem gengi ekki heil til skógar. Hún var heldur ekkert að bera raunir sínar á torg, tók þessu eins og hverju öðru verkefni og sló hvergi slöku við. Það er dýrmætt að geta minnst garðveislu sem Krist- jana bauð sínum nánustu til um mitt síðasta sumar þegar hún fyllti sjö áratugina. Þau hjón voru frumbyggjar í sumarhúsa- hverfi úr landi Birkihlíðar sem nefnt er Melabyggð af því að í grunninn er hverfið á gróður- vana mel. Í dag er sá melur að mestu uppgróinn og falleg skógrækt á stærstum hluta svæðisins. Verk sem fyrst og fremst ber að þakka bjartsýni þeirra hjóna og dugnaði. Und- anfarin þrjú ár unnu þau að byggingu nýs húss á lóðinni og ætluðu þar að eiga sína Paradís á efri árum, umvafin þeim skógarplöntum sem þau komu á legg og nú veita bæði skjól og hlýju. Á pallinum við litla húsið þeirra hélt Kristjana upp á af- mælið sitt, þau tóku sér frí einn dag frá húsbyggingunni, rétt lögðu hamarinn og sögina frá sér á meðan. Rebekka tengda- dóttir þeirra stýrði söng og barnabörnin léku við ömmu. Kannski grunaði Kristjönu innst inni í hvað stefndi og þarna vildi hún eiga fallega stund á sínum forsendum. Ég viðurkenni fúslega að á liðnum dögum, þegar ég hef minnst hennar Kristjönu mág- konu minnar, þá hafa tár vætt koddann. Það er vel hægt að tárast yfir því óréttlæti að hún hafi ekki fengið að njóta lengra lífs með Stebba sínum og fal- legum afkomendum þeirra. Af eigingirni er líka hægt að gráta yfir því að veröldin er einfald- lega ekki jafn litrík og hún var meðan Kristjönu naut við. Okk- ar sem eftir lifum er að halda minningu hennar á lofti. Minn- ingu um alla þá gleði sem hún færði inn í tilveruna. Hún var skjólið og hlýjan rétt eins og trjáplönturnar fallegu sem hún plantaði með Stebba sínum. Takk fyrir allt, kæra mágkona, þín er sárt saknað. Magnús Magnússon. Hún Kristjana frænka mín var falleg, gáfuð og góð. Um- fram allt var hún góð. Við vor- um systradætur og ég sá hana fyrst nokkurra mánaða gamla þegar ég kom að norðan til Reykjavíkur til að fara þar í nám haustið 1951. Ég sé hana fyrir mér þar sem hún liggur í vöggunni og horfir á mig, bjart- leit með undrunarsvip í bláu kringlóttu augunum sínum. Oft kom ég á heimili foreldra henn- ar, Evu og Kristjáns, og það varð eins og mitt annað heimili í Reykjavík. Snemma komu í ljós ýmsir eðliskostir Kristjönu. Hún var kjarkmikil, dugleg og mann- blendin og einkar glaðvær, gat hlegið svo hjartanlega að ýmsu broslegu að henni vöknaði um augu. Ung að árum var hún send norður í Eyjafjörð til Sollu frænku sinnar, móður minnar, til að vera þar í dálít- inn tíma og kynnast sveitalíf- inu. Á seinni árum rifjuðum við Kristjana oft upp ýmis atvik frá barnæsku hennar, þar á meðal dvöl hennar á Munkaþverá þar sem hún þekkti engan þegar hún kom, en aðlagaðist öllu svo fljótt, öllu nema „villibráðinni“ sem var nokkurs konar grautur búinn til úr kálfsblóði og leit út eins og súkkulaðibúðingur en var aldeilis öðruvísi á bragðið. En ekki var Kristjana að gera neinar athugasemdir við það. Nei, hún lét sig hafa það að kyngja skrítna grautnum. Þetta litla broslega atvik lýsir Krist- jönu vel, hún tók öllu sem að höndum bar með jafnaðargeði. Það kom fáum á óvart að Kristjana skyldi ákveða að fara í hjúkrunarnám því hún var öll- um kostum búin til þess að sinna öðrum, hjúkra og líkna. Hún var samviskusöm og hlý- leg í fasi. Ég hitti stundum fólk sem hafði notið umhyggju hennar á sjúkrahúsinu á Akra- nesi og þegar ég sagði þeim frá skyldleika okkar var svarið oft: „Hún Kristjana, hún er einstök, svo hlýleg og umhyggjusöm.“ Kristjana naut mikillar ham- ingju í lífinu og það geislaði af henni góðvildin. Síðastliðin sumur var hún ásamt sínum góða manni Stefáni að byggja nýjan sumarbústað í Reyk- holtsdal á æskustöðvum Stef- áns og það leyndi sér ekki, þeg- ar hún minntist á þetta framtak þeirra, hvað hún var mikið náttúrubarn og undi sér vel í sveitinni. Það veitti henni mikla ánægju að geta haft barnabörn- in þar hjá sér. Systkinum sín- um var hún alla tíð mikil stoð og stytta, en Jón Gauti bróðir hennar lést fyrir tíu árum. Það er sárt að missa Kristjönu á góðum aldri, en hún skilur mik- ið eftir sig og veitti okkur sem þekktum hana svo mikla gleði. Ég og bræður mínir Kristján og Eysteinn og fjölskyldur okk- ar kveðjum hana með söknuði og miklu þakklæti fyrir ljúfar og góðar samverustundir. Kristín Jónsdóttir frá Munkaþverá. Gleðigjafinn og saumklúbbs- vinkona okkar hefur kvatt þessa jarðvist. Það var gæfa okkar að stofn- aður var átta kvenna Skaga- saumklúbburinn „Iðna Lísa“ árið 1977. Í þessum hópi voru hjúkrunarfræðingar og kennar- ar. Það var gaman að hittast, við þessar hressu konur, sem létum okkur fátt fyrir brjósti brenna. Nú er ein okkar horfin á braut. Kristjana var einstaklega glaðleg og jákvæð, hún hafði hlýja og skemmtilega nærveru og frábæra frásagnarhæfileika. Þegar hún mætti stundum í klúbb var hún ekki endilega með prjónadótið með sér held- ur fyndna og skemmtilega úr- klippu, sem hún las með til- þrifum og grét sjálf úr hlátri við upplesturinn. Hún átti það líka til að draga upp úr pússi sínu ljóðabækur og lesa fyrir okkur falleg ljóð og jafnvel minningargreinar, sem voru á einhvern hátt óvenjulegar eða broslegar. Þessar stundir eru ógleymanlegar. Gleðigjafinn hún vinkona okkar sá þetta fyndna og skemmtilega í tilverunni og deildi því á einstakan hátt til okkar sem með henni voru. Hún var röggsöm, ábyrg og kletturinn í öllu sem hún tók sér fyrir hendur, fyrst og fremst með fjölskyldu sinni, og hvort heldur var í vinnunni við umönnun og hjúkrun eða með vinum sínum. Kristjana átti yndislega fjöl- skyldu sem hún dáði og naut þess að sinna og vera sem mest með. Við sendum þeim okkar innilegustu samúðarkveðjur. Við þökkum vinkonu okkar gleðina og hláturinn en umfram allt áralanga vináttu og ánægjulegar og ógleymanlegar samverustundir. Sendum henni koss út í alheiminn sem nú varðveitir hana. Svanhildur, Ólafía, Sigrún, Guðbjörg, Guðrún, Soffía og Ágústa. Kristjana vinkona okkar og „hollsystir“ er farin í sína hinstu ferð eftir hetjulega bar- áttu við krabbamein. Jákvæðni, seigla og endalaus baráttuvilji einkenndi hana í sínum veik- indum. Vinskapur okkar hófst er við byrjuðum okkar hjúkrunarnám í G-holli 1970, ungar og blautar bak við eyrum. Það kom fljótt í ljós hvað námið átti vel við hana og með sínum smitandi hlátri og glaðværð átti hún stóran þátt í hvað hópurinn varð samstilltur og uppátekt- arsamur Einn af ótalmörgum kostum Kristjönu var áræði og ævin- týramennska, sem sýndi sig best er hún og Anna Þórunn réðu sig sem hjúkrunarforstjór- ar á landsbyggðinni sem fyrsta starf eftir útskrift. Þannig söfnuðu þær fyrir þriggja mánaða Evrópureisu sem ekki var algengt í þá daga. Síðan tekur alvara lífsins við með hjónabandi og barneignum þegar hún kynnist Stefáni sín- um á Akranesi. Þar búa þau og skilar hún ævistarfi sínu sem deildarstjóri á lyflækningadeild og skurðstofu. Í hennar störf- um nýttust vel hæfileikar henn- ar í mannlegum samskiptum, dugnaður, samviskusemi og ákveðni. Það var gaman að fylgjast með þeim Kristjönu og Stefáni byggja nýja sumarbústaðinn í sælureitnum sínum í Reyk- holtsdal. Við áttum því láni að fagna að fylgjast að stærstan hluta ævinnar, hittast reglulega og deila gleði og sorgum. Þessi þétti hópur sem nú kveður kæra vinkonu varð til eftir ógleymanlega afmælisferð til Kraká. Kristjönu verður sárt saknað úr okkar góða hópi. Við vottum Stefáni og fjöl- skyldunni allri okkar innileg- ustu samúð. Anna Þórunn, Hjördís, Áslaug S., Áslaug P., Ásta, Áststríður, Guðbjörg Stein- unn, Herdís, Júlía, Marta, Matthea og Sólfríður. Elsku Kristjana. Nú ert þú farin frá okkur og þín verður sárt saknað, ert komin á annan stað til að hjúkra og hjálpa. Ég man þegar þú komst fyrst á Akranes. Það var seint um kvöld og þú hringdir dyra- bjöllunni á gömlu deildinni okk- ar. Úti stóð falleg glaðleg kona, hjúkrunarkona, og bað um lykl- ana að læknabústaðnum. Ég man árin okkar á lyfja- deild og skurðstofu. Ég man allar skemmtilegu og góðu stundirnar og ferðalögin. Ég bið Guð og englana að vernda þig. Við Helgi sendum fjölskyld- unni allri innilegar samúðar- kveðjur. Þú, sem eldinn átt í hjarta, óhikandi og djarfur gengur út í myrkrið ægisvarta eins og hetja og góður drengur. Alltaf leggur bjarmann bjarta af brautryðjandans helgu glóð. Orð þín loga, allt þitt blóð; á undan ferðu og treður slóð. Þeir þurfa ekki um kulda að kvarta, sem kunna öll sín sólarljóð. (Davíð Stefánsson) Sigríður Gróa og Helgi. Himneskt er að vera með vorið vistað í sálinni, sólina og eilíft sumar í hjarta. (Sigurbjörn Þorkelsson) Í dag kveð ég kæran sam- starfsfélaga og vin til 46 ára. Leiðir okkar Kristjönu lágu saman á Sjúkrahúsi Akraness á miðju ári 1976 en hún lést laug- ardaginn 7. maí síðastliðinn. Upp í hugann koma myndir af ungri konu með hippaband um höfuð og í hippamussu. Óvenju kát og hress, þessari konu vildu allir kynnast. Þann- ig man ég hana frá þeim tíma er hún stundaði nám í Hjúkr- unarskóla Íslands. Hún var tilbúin að helga líf sitt hjúkrun. Kristjana útskrifaðist sem hjúkrunarfræðingur í mars 1973 en hóf störf við SA í jan- úar 1974. Hún starfaði á þeirri stofnun þar til hún lét af störf- um um áramótin 2019-2020. Hún starfaði lengi sem deild- arstjóri á lyflækningadeild en ákvað síðar að mennta sig frek- ar, hóf nám í skurðhjúkrun og lauk því námi 1990. Að því loknu hóf hún störf á skurð- stofum SA. Um nokkurra ára bil gegndi hún starfi deildar- stjóra þar. Hún sinnti störfum sínum af einstakri vandvirkni og aflaði sér mikillar reynslu og þekkingar á hjúkrun. Kristjana var ráðagóð, umhyggjusöm og bar hag sjúklinga sinna fyrir brjósti. Hún naut virðingar í hópi vinnufélaga, var vel lesin, miðlaði af reynslu sinni og þekkingu og gætti að réttindum samstarfsmanna sinna. Hún var kát og glöð flesta daga. Við áttum náið samstarf, sem stjórnendur í hjúkrun, í áratugi og aldrei bar skugga á það samstarf. Það var gott að leita til hennar, hún var hreinskilin, fagleg og sagði sína skoðun um- búðalaust en aldrei með hroka né yfirgang. Það var hægt að treysta þeim ráðum sem hún gaf. Fyrir það er ég henni þakklát. Í dymbilvikunni, nú í apríl, hittumst við nokkrir eldri hjúkrunarfræðingar og ljós- mæður í kaffi og var Kristjana þar hrókur alls fagnaðar, eins og svo oft áður. Spurði hana hvernig hún hefði það. Hún horfði á mig og svaraði: ég hef það gott en hvernig hefur þú það. Hún vildi ekki ræða veik- indi sín en bar alltaf óendan- lega umhyggju fyrir öðrum. Þannig var þessi góða kona. Það var aðdáunarvert að fylgjast með Kristjönu í hennar einkalífi og þeirri umhyggju sem hún bar fyrir börnum sín- um, tengdabörnum og barna- börnum. Sama hvað gekk á, alltaf var hún róleg, yfirveguð og gaf góð ráð, sýndi umhyggju og hlýju. Það var ekki síður fal- legt að fylgjast með samskipt- um þeirra hjóna, þar ríkti virð- ing og vinsemd. Að leiðarlokum sendum við fjölskyldan Stefáni, Gauta, Brynhildi, Bjarna og fjölskyld- um þeirra okkar innilegustu samúðarkveðjur á þessum erf- iðu tímum. Megi kær vinnu- félagi og vinur hvíla í friði. Steinunn Sigurðardóttir. Kristjana Kristjánsdóttir Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, STEINDÓR ÁRNASON frá Neskaupstað, lést á heimili sínu fimmtudaginn 12. maí. Útförin fer fram í kyrrþey að ósk hins látna. Metta Dagný Gunnarsdóttir Árný Gyða Steindórsdóttir Steve Button María Steindórsdóttir Jens Pétur Jensen Helga Steindórsdóttir Hallur Þorsteinsson Gunnar Valur Steindórsson Kristrún Einarsdóttir barnabörn og barnabarnabörn Ástkær eiginmaður minn, faðir, stjúpfaðir, tengdafaðir, afi og langafi, PÉTUR SVEINSSON fv. rannsóknarlögreglumaður, Prestastíg 9, Reykjavík, lést á líknardeild Landakots fimmtudaginn 12. maí. Útför hans fer fram frá Guðríðarkirkju föstudaginn 27. maí klukkan 10. Hjartans þakkir til Heru og starfsfólks Landakots fyrir ljúfa og yndislega umönnun. Streymt verður frá athöfninni. Hlekk á streymi má nálgast á www.mbl.is/andlat. Bjarney K. Friðriksdóttir Jón, Edda, Sveinn, Bergrún, Arnfríður, Arngrímur, Pétur Ingi, Sara Dögg, Guðný, Friðrik, Stella, Davíð, Anna Birna, afa- og langafabörn Okkar ástkæri eiginmaður, faðir, tengdafaðir og afi, GUÐMUNDUR GUNNARSSON, lést miðvikudaginn 11. maí á Heilbrigðisstofnun Norðurlands á Sauðárkróki. Útför hans fer fram frá Sauðárkrókskirkju föstudaginn 20. maí klukkan 14. Kristín Dröfn Árnadóttir Árni Þóroddur Guðmundsson Gunnar Gýgjar Guðmundsson Ragnar Freyr Guðmundsson Lilja Sif Þórisdóttir og barnabörn

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.