Morgunblaðið - 20.05.2022, Qupperneq 1

Morgunblaðið - 20.05.2022, Qupperneq 1
$'"%#("&!!&" #%$ !&!! F Ö S T U D A G U R 2 0. M A Í 2 0 2 2 .Stofnað 1913 . 117. tölublað . 110. árgangur . TÍSKA, STRAUMAR OG STEFNUR SMARTLAND 40 SÍÐUR _ Semja á um krónutöluhækk- anir og hagvaxt- arauka í kom- andi kjara- samningum og ná þarf sam- stöðu um að framlengja lífskjara- samninginn á svipuðum nótum og nú er byggt á. Þá er markmiðið að tryggja kaupmátt launa, að því er segir í kröfu stéttarfélagsins Framsýnar, sem birt hefur verið á vef félagsins. Aðalsteinn Á. Baldursson for- maður Framsýnar segir í samtali við Morgunblaðið í dag að almenn ánægja sé með þá leið sem farin var í lífskjarasamningnum, og að ná þurfi þríhliða samkomulagi launþega, atvinnurekenda og stjórnvalda með margvíslegum að- gerðum. Segir hann alla hafa miklar áhyggjur af verðbólgunni og vaxtahækkunum. »2 og 14 Vilja semja um krónutöluhækkanir og hagvaxtarauka Aðalsteinn Á. Baldursson Fjölmenni var á íbúafundi í Grindavík í gærkvöldi þar sem farið var yfir stöðu mála vegna jarðskjálftanna sem skekið hafa Reykjanesið síðustu daga. Fjölluðu þar helstu sérfræðingar um stöðuna og horfur á því hvort eldgos væri á næsta leiti, en nokkurt landris hefur orðið undir Þorbirni, bæjarfjalli Grindavíkur. Fannar Jónasson bæjarstjóri Grindavíkur segir í samtali við Morgunblaðið í dag að hrinan nú hafi minnt bæjarbúa óþægilega á hrinuna í aðdraganda síðasta goss. »4 Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Farið yfir stöðuna með íbúum Grindavíkur Andrés Magnússon andres@mbl.is Sex dagar eru nú liðnir frá borgar- stjórnarkosningum en eiginlegar meirihlutaviðræður eru ekki enn farnar af stað. Alls kyns þreifingar hafa þó átt sér stað og allir flokkar að tala við alla, þótt Dagur B. Eggerts- son oddviti Samfylkingar svari víst ekki enn símanum frá Hildi Björns- dóttur oddvita Sjálfstæðisflokksins. Bæði hafa hins vegar rætt töluvert við Einar Þorsteinsson oddvita Framsóknar, en án þess að hann hafi látið neitt uppi um hvort hann vilji fremur horfa til hægri eða vinstri. Af samtölum við borgarfulltrúa að dæma hefur mörgum möguleikum verið velt upp en óljóst hvaða hugur fylgir máli. Einn viðmælandi blaðs- ins orðaði það svo að í þeim póker væri sýnt á ýmis spil en síðan segði enginn neitt. Eftir því sem næst verður komist bíða stóru flokkarnir tveir þess að Framsókn geri upp hug sinn, en úr þeim herbúðum heyrist helst að Ein- ari Þorsteinssyni liggi ekkert á. Því eru ekki allir sammála og al- gengt viðkvæði að hann geti ekki beðið miklu lengur, það þurfi að fara að reyna af alvöru. Þeirrar óþolinmæði hefur orðið vart hjá smáflokkunum. Sósíalistar hafa viljað fá Vinstri-græn að borð- inu aftur en í gær sagði Kolbrún Baldursdóttir, oddviti Flokks fólks- ins, að sér þætti möguleiki á sam- starfi við Framsókn, Sjálfstæðis- flokk og Viðreisn frábær. Þórdís Lóa Þórhallsdóttir oddviti Viðreisnar sagði hins vegar flokk sinn enn í samfloti með Samfylkingu og Píröt- um í þessum efnum, en innan úr Við- reisn heyrist þó enn að fleira komi til greina. Komi ekki þeim mun skýrari merki í dag er líklegast að eiginlegar meirihlutaviðræður hefjist ekki fyrr en eftir helgi. Beðið eftir frumkvæði frá Framsóknarflokki - Óþolinmæði farið að gæta - Viðræður mögulegar eftir helgi Morgunblaðið/Ómar Ráðhúsið Nóg er af borgarfulltrú- um en meirihluti lætur á sér standa. _ Þéttbókað er í hópferðir fyrir ferðamenn yfir sumarmánuðina og eru forsvarsmenn rútufyrirtækj- anna prýðilega bjartsýnir á kom- andi mánuði. Þórir Garðarsson, stjórnar- formaður Gray Line, segir í samtali við Morgunblaðið í dag að nokkuð vel sé bókað á tímabilinu frá júní og alveg fram í september, og að þetta hafi farið hraðar af stað en bjart- sýnustu menn þorðu að vona í kjöl- far heimsfaraldursins. Hallgrímur Lárusson, forstjóri Snæland- Grímsson, tekur í sama streng og segir allt á réttri leið. »6 Morgunblaðið/Ómar Gullfoss Það er líflegt ferðasumar fram undan hjá hópferðaflutningafyrirtækjum. Ferðasumarið 2022 fer vel af stað

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.