Morgunblaðið - 20.05.2022, Side 4

Morgunblaðið - 20.05.2022, Side 4
4 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 20. MAÍ 2022 www.kofaroghus.is - Sími 553 1545 TIL Á LAGER Ítarlegarupplýsingarog teikningarásamtýmsumöðrumfróðleik STAPI - 14,98 fm Tilboðsverð 779.000kr. 25% afsláttur BREKKA34 - 9 fm Tilboðsverð 439.000kr. 25% afsláttur NAUST - 14,44 fm Tilboðsverð 539.000kr. 30% afsláttur VANTAR ÞIGPLÁSS? Afar einfalt er að reisa húsin okkar. Uppsetning tekur aðeins einn dag TILBOÐÁGARÐHÚSUM! „Við erum á virku svæði og erum vissulega að nýta þá auðlind sem eldvirknin er. Hætta á eldgosi er því eitthvað sem við þurfum að lifa við í okkar umhverfi,“ segir Tómas Már Sigurðsson, forstjóri HS Orku. Gerðar voru aðgerðaáætlanir árið 2020. „Við höfum farið yfir þær, svo er- um við með fulltrúa í vísindaráði al- mannavarna svo við erum í öflugum samskiptum,“ segir Tómas Már. Að- gerðirnar lúta að því að tryggja ör- yggi fólks á svæðinu, tryggja af- hendingu á heitu og köldu vatni til viðskiptavina og vernda mannvirki, fari allt á versta veg. Upplýstu hótelgesti Eftir að óvissustigi vegna jarð- skjálftanna á Reykjanesskaga var lýst yfir þann 15. maí hefur öryggis- teymi Bláa lónsins farið yfir allar sínar áætlanir og viðbúnað, að sögn Helgu Árnadóttur, framkvæmda- stjóra sölu-, markaðs- og þróunar- sviðs Bláa lónsins. „Starfsmenn og hótelgestir, sem dvelja hjá okkur, eru upplýstir um gang mála, en starfsemin er að öðru leyti óbreytt. Ef til frekari viðbún- aðar kemur erum við í nánum sam- skiptum við almannavarnadeild rík- islögreglustjóra og fylgjum fyrirmælum þeirra í hvívetna.“ Þá bendir Helga á að mannvirki Bláa lónsins séu byggð með það í huga að eiga að geta staðist nátt- úruvá sem þessa. Hún hefur því ekki miklar áhyggjur af þeim. thorab@mbl.is Hagnýtingu á eldvirkni fylgi hætta á eldgosi Morgunblaðið/Eggert Rólegt Starfsemi Bláa lónsins er óbreytt þrátt fyrir skjálftavirkni. - Fara yfir að- gerðaáætlanir Helgi Bjarnason helgi@mbl.is „Það er í gangi framhaldssaga og erfitt að segja fyrir um efni næsta kafla. Það hefði enginn trúað þessari sögu ef við hefðum sagt hana fyrir tíu árum,“ segir Páll Einarsson, pró- fessor emeritus, spurður að því hvað sé í gangi á Reykjanesi. „Þetta er mjög flókin atburðarás og kemur í beinu framhaldi af því sem verið hefur í gangi frá því í des- ember 2019, að minnsta kosti,“ segir Páll. Hann rifjar upp að landris hafi hafist undir Fagradalsfjalli eftir að gosið lognaðist út af. Kvikan hafi byrjað að safnast við botninn á jarð- skorpunni þegar hún hætti að geta komist upp á yfirborðið. Eins og í byrjun árs 2020 Síðan hafi hafist nýtt landris um síðustu mánaðamót undir fjallinu Þorbirni og nágrenni þess. Sú þróun sé endurtekning á því sem gerðist á fyrri hluta árs 2020, þrisvar í röð með hléum á milli. Samkvæmt til- kynningu vísindaráðs almannavarna er talið að kvikan safnist fyrir á 4-5 km dýpi og þar sé að myndast inn- skot. Veldur kvikusöfnunin umtals- verðri jarðskjálftavirkni. Páll segir að sömu sviðsmyndir eigi við nú og í að- draganda gossins í Geldingadölum en erfitt sé að meta hver sé lík- legust til að ganga eftir. Hann veltir því þó fyrir sér hvort þátta- skil hafi orðið við jarðskjálftann sem varð í Þrengslunum á kjördag. Hann stækki umtalsvert svæðið sem er undir í þessu efni. Sviðsmynd sem feli sér stóran skjálfta í Brenni- steinsfjöllum sé því heldur líklegri en áður. Tveir slíkir skjálftar, 6-6,5 stig, urðu þar á síðustu öld. Gæti gosið utan svæðisins Spurður um líkur á gosi segir Páll að þannig sviðsmyndir komi einnig til greina, í ljósi sögunnar. Þegar kvika er að safnast fyrir séu ein- hverjar líkur á því að hún komist upp á yfirborðið. Páll segir að það þurfi ekki endilega að verða í næsta nágrenni Grindavíkur eða í Svarts- engi, sem eru í útjaðri svæðisins sem rís, því kvikan hafi tilhneigingu til að leita útgangs fyrir utan. Nefnir hann gosið í Holuhrauni sem og Kröflu- elda á 8. og 9. áratugnum sem dæmi um það. Enginn veit efni næsta kafla - Ris á tveimur svæðum á Reykjanesi Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Geldingadalir Hraun flæddi í nokkrar áttir frá eldgosinu í Geldingadölum. Páll Einarsson Steinþór Stefánsson steinthors@mbl.is Fjölmenni var á íbúafundi í Grinda- vík í gærkvöldi, þar sem farið var yfir stöðu mála vegna óvissustigsins sem lýst hefur verið yfir vegna jarð- hræringa síðustu daga á Reykjanes- skaga. Fannar Jónasson bæjarstjóri Grindavíkur var fundarstjóri, en hann sagði í samtali við Morgun- blaðið að fundinum hefði verið ætlað að svara spurningum á borð við hversu líklegt væri að eldgos myndi hefjast við Grindavík. Sagði hann að Grindvíkingum liði misilla með jarðskjálftahrinuna, sem hefði kveikt á gömlum minningum um erfiða tíma þegar langvarandi jarðskjálftahrina skók bæinn á síð- asta ári. „Þannig að fólki líður ekk- ert vel með það þegar það byrjar svona hrina á nýjan leik,“ sagði Fannar og bætti við að það væri spurning hversu lengi hún myndi vara. „Þannig að það er auðvitað ekkert þægilegt við að búa við þess- ar aðstæður, en annað er ekki í boði,“ sagði Fannar og bætti við að hann væri tiltölulega rólegur yfir þessu og að flestir tækju þessu með jafnaðargeði. Bogi Adolfsson, formaður björg- unarsveitarinnar Þorbjarnar, sagði við Morgunblaðið að meðlimir sveit- arinnar væru komnir með mikinn reynslubanka. „Fólk ætti nú að vera orðið pínu vant þessu, því miður. Það er kannski það versta við þetta. Að treysta á þetta er orðið nánast eins og það sé til nammi í sjopp- unni,“ sagði Bogi. Gæti valdið miklu tjóni „Hraungos á vondum stað getur valdið miklu tjóni,“ sagði Magnús Tumi Guðmundsson jarðeðlisfræð- ingur, sem var frummælandi á íbúa- fundinum. Hann sagði hins vegar að litlar líkur væru á að slíkt gos ylli manntjóni. Í máli Magnúsar Tuma kom fram að síðasta eldgosið á Reykjanes- skaga fyrir gosið í Geldingadölum hefði verið árið 1240 og því hefðu engin eldgos orðið á Reykjanesskag- anum í tæplega átta hundruð ár. Hann benti einnig á að ekki væri hægt að spá fyrirfram hvernig slíkt eldgos gæti æxlast. Sagði Magnús Tumi að gossprungur síðustu 15.000 ára næðu ekki til sjávar á skaganum síðan ísa leysti og benti á að sam- kvæmt jarðfræðinni ætti eldgos ekki að ná til Grindavíkur. Hann sagði einnig að ómögulegt væri að vita hvenær eldgos myndi hefjast. Jarðskjálftahræringar síð- ustu daga gætu þess vegna hætt í dag. Halldór Geirsson jarðeðlisfræð- ingur fór yfir þau gögn sem tengd- ust kvikusöfnun á Reykjanesi. Sagði hann að kvika hefði verið að safnast saman undir Fagradalsfjalli á miklu dýpi eftir goslok og þenslan verið stöðug síðan þá. Hann segir að það sem er í gangi á Svartsengi núna sé eins konar framhald af því sem gerðist 2020. Kom fram í máli Halldórs að ekki væri mikil kvika í jörðinni og ef eld- gos hæfist yrði það lítið. Vel væri fylgst með öllum breytingum og ómögulegt væri að segja fyrir um hvað myndi gerast. „Ef kvikunni líð- ur vel á þessu dýpi þá verður hún þar,“ sagði Halldór. Kristín Jónsdóttir, hópstjóri Náttúruvárvöktunar hjá Veðurstofu Íslands, sagði að búast mætti við því næstu daga og mánuði að jarð- skjálftahrinan héldi áfram. Myndi virknin halda áfram á svipuðum slóðum við Þorbjörn og Svartsengi og líklegt væri að það styttist í næsta stóra jarðskjálfta. Benti Kristín hins vegar á að áhrif af stórum skjálfta austur af Kleif- arvatni yrðu meiri á höfuðborgar- svæðinu en í Grindavík. Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Íbúafundur Magnús Tumi Guðmundsson jarðeðlisfræðingur var frummælandi og fór yfir stöðu og horfur. Fólk orðið fullvant því að jörð skjálfi - Fjölmenni á íbúafundi í Grindavík vegna óvissuástandsins Óvissustig á Reykjanesskaga

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.