Morgunblaðið - 20.05.2022, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - 20.05.2022, Blaðsíða 12
BAKSVIÐ Þóroddur Bjarnason tobj@mbl.is Hugbúnaðarfyrirtækið Púls Media hefur skorið upp herör gegn þeirri þróun undanfarinna ára að sífellt meira auglýsingafé leitar til útlanda vegna vinsælda Facebook og Google sem aug- lýsingamiðla. Eins og sjá má á meðfylgjandi korti er um millj- arða króna að ræða ár hvert. Viðskiptin skila Íslandi engum skatttekjum. Helgi Pjetur framkvæmdastjóri Púls Media segir að aðeins um þriðj- ungur af því birtingarfé sem innlend fyrirtæki nota í vefauglýsingar endi hjá innlendum auglýsingamiðlum. Markmið Púls sé að hjálpa innlendu miðlunum að ná fyrri styrk. Vinna með níu miðlum Lausnin er að hans sögn nýr aug- lýsingamarkaður Púls í sjálfs- afgreiðslu þar sem auglýsendur geta keypt vefauglýsingar á níu íslensk- um auglýsingamiðlum. Miðlarnir eru Vísir.is, Já.is, Mannlíf, Kjarninn, Fótbolti.net, Fasteignir.is, Akur- eyri.net og fréttaöppin Púlsinn og Lumman. Helgi segir að eitt stærsta vanda- málið hafi hingað til verið að ekki hefur verið hægt að kaupa vef- auglýsingar á innlendum miðlum í sjálfsafgreiðslu líkt og hægt er að gera hjá erlendu miðlunum. Lítil og meðalstór fyrirtæki hafa nýtt sér þá þjónustu í stórum stíl undanfarin ár að sögn Helga. Byrjaði fyrir ári Helgi segir í samtali við Morg- unblaðið að þróun Púls auglýsinga- markaðarins hafi byrjað fyrir um ári. „Við eigum sjálfir smáforritin Púlsinn og Lummuna og vorum að leita leiða til að gera snjallari aug- lýsingar fyrir okkar miðla til að einfalda sölustarfið. Við vildum gera kerfi sem byggi til langtíma- samband við auglýsendur,“ segir Helgi. „Þegar við skoðuðum þetta betur og sáum sláandi tölur um útstreymi auglýsingafjár úr landi datt okkur í hug að sameina auglýsingamiðlana í eitt kerfi þar sem fólk gæti þjónust- að sig sjálft.“ Góðar viðtökur Helgi segir að viðtökur hafi verið góðar og nú þegar séu fyrirtæki byrjuð að nýta sér þjónustuna. Hann segir það hafa komið á óvart hve miðlarnir voru móttæki- legir fyrir kerfinu. „Þegar ég fór að tala við miðlana voru þeir langflestir til í að vera með og hjálpa til við að laga ástandið á markaðnum.“ Helgi segir að einn helsti vandinn við íslenska vefauglýsingamarkað- inn sé hvað margar mismunandi stærðir af auglýsingaborðum eru í gangi hjá miðlunum. „Þetta eru 20- 30 mismunandi stærðir. Það þýðir að það er mjög dýrt fyrir smærri auglýsendur að laga auglýsingar að hverjum miðli.“ Hann segir að Púls Media hafi til einföldunar ákveðið að einbeita sér að þremur algengustu vefborða- stærðunum. Flöt álagning Um verðlagningu segir Helgi að Púls Media sé með flata álagningu en verð auglýsinga sé annars ákvarðað í samstarfi Púls og miðl- anna. Segir hann markaðslögmálin spila þar inn í. Ef mikil eftirspurn er eftir auglýsingasvæðum á ákveðnum miðli hækki verðið, en ef hún er lítil þá lækki verðið. Þannig sé Púls Media eins og kauphöll sem laði að sér kaupendur og seljendur. „Bæði miðlar og auglýsendur fá aðgang að allri tölfræði í viðmótinu og sjá nákvæmlega hve mikið er smellt á eða horft á auglýsingarn- ar.“ Helgi segist vonast eftir örri fjölgun viðskiptavina. „Í næstu út- gáfu viljum við bæta við markhóp- um. Þannig geti viðskiptavinir valið t.d. íþróttaáhugafólk og auglýst bara á þeim miðlum eða undirsíðum sem fjalla um íþróttir.“ Hlaðvarps-, útvarps- og umhverfisauglýsingar eru einnig á teikniborðinu. „Við erum nú þegar að vinna með Bestu deild karla og kvenna og Billboard-skiltafyrirtæk- inu við að birta snjallar auglýsingar í borginni. T.d. getum við auglýst leiki hjá KR í boltanum eingöngu í Vesturbænum tveimur dögum fyrir leik. Kerfið er beintengt við KSÍ og uppfærast borðarnir sjálfvirkt ef leikjum er t.a.m. frestað vegna landsleikja og bikarkeppna.“ Uppfærslan fer þannig fram að kerfið sækir gögn á miðlara auglýs- andans og skiptir þeim út fyrir nýj- ar upplýsingar á réttum tíma. „Von- andi getum við sett þessa þjónustu líka í sjálfsafgreiðslu með tímanum.“ Samkeppnishæft í verði Spurður hvort Púls Media sé sam- keppnishæft í verði við Google og Facebook segir Helgi að svo sé. „Auglýsingar fyrir þrengri mark- hópa ættu að vera ódýrari hjá okkur en þeim útlensku. Þeir eru ódýrastir í mjög breiðum markhópum, en verða dýrari þegar hópurinn þreng- ist.“ Að lokum segir Helgi að minni fyrirtæki sem ekki hafi mikið fé til að eyða í hönnun geti notfært sér sniðmát sem Púls Media útvegar. Þannig geti fyrirtæki sjálf búið til auglýsingar með einföldum og auð- veldum hætti. Vilja hjálpa miðlum að ná fyrri styrk - Milljarðar leita til útlanda - Sjálfsafgreiðsla á auglýsingum á vefsíðum - Í samstarfi við Bestu deildina um auglýsingar sem uppfæra sig sjálfar - Miðlarnir móttækilegir - Of margar stærðir Þróun vefauglýsingatekna 2003-2020, ma. kr. Íslenskir vefmiðlar Facebook og Google '03 '04 '05 '06 '07 '08 '09 '10 '11 '12 '13 '14 '15 '16 '17 '18 '19 '20 Heimild: Púls Media/Hagstofan 4,0 3,5 3,0 2,5 2,0 1,5 1,0 0,5 0 Helgi Pjetur 12 FRÉTTIR Viðskipti | Atvinnulíf MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 20. MAÍ 2022 Nú finnur þú það sem þú leitar að á FINNA.is Gísli Freyr Valdórsson gislifreyr@mbl.is Fjárfestingar eru ekki bara fyrir efnað fólk, heldur verður fólk efnað ef það byrjar að fjárfesta. Þetta sagði Camilla Anderson, fjárfestir og frumkvöðull frá Noregi, sem í gær hélt fyrirlestur á vegum nýsköpunarnefndar FKA á Nýsköp- unarviku sem nú stendur yfir. Anderson hefur mikla reynslu af fjárfestingum og stofnun fyrirtækja. Sjálf hefur hún stofnað átta fyrir- tæki og komið að stofnun fjörutíu. Hún hefur að mestu fjárfest í tækni- greinum, en einnig í öðrum verkefn- um – allt frá brugg- og veitingahús- um og súkkulaðigerð yfir í önnur nýsköpunarfyrirtæki. Skapa mótvægi við karla Anderson sagði mikilvægt fyrir konur að vera ófeimnar við fjárfest- ingar í fyrirtækjum. Hún rakti dæmi af norskum fjárfestingarsjóðum sem aðeins eru ætlaðar konum og hafa, með góðum árangri, fjárfest í verk- efnum og fyrirtækjum sem stýrt er af konum. „Svona sköpum við mót- vægi við karlana, með því að fjár- festa sjálfar,“ sagði Anderson. Hún sagði að konur væru aðeins 20% stjórnarmeðlima í Noregi og hlutfall kvenna sem eiga í skráðum fyrirtækjum var innan við þriðjung- ur árið 2021. Á sama tíma hefðu fjár- festingasjóðir kvenna sýnt 35% meiri ávöxtun en karla. Sum verkefni misheppnast Anderson sagði þó að fjárfesting- ar væru ekki alltaf dans á rósum og hagnaður af þeim væri ekki sjálfgef- inn. Hún tók dæmi af eigin reynslu, en fyrir rúmum áratug hafði hún stofnað tæknifyrirtæki sem vann að forriti fyrir farsíma. Fyrirtækið náði samningi við Nokia, sem þá var með 83% markaðshlutdeild farsíma í heiminum, en á sama tímapunkti kynnti Apple nýjan snjallsíma til sögunnar, iPhone. Fyrirtæki hennar endaði á því að tapa tíu milljónum evra. „Tæknin breytist og við þurfum að taka mið af því,“ sagði Anderson. „Lærdómurinn af þessari sögu er helst sá að við getum ekki alltaf veðj- að á eða valið okkur sigurvegara. Við höfum ekki alltaf forsendur til að meta hvað framtíðin felur í sér og því er mikilvægt að fjárfesta frekar í mörgum verkefnum. Sum þeirra munu misheppnast en önnur munu heppnast mjög vel. Það sem við vit- um þó er að peningarnir vaxa ekki með því að sitja á bankabók þar sem verðbólga étur upp verðmæti þeirra, heldur með fjárfestingum í fyrir- tækjum og sjóðum.“ Hvatti konur til að fjár- festa sjálfar í fyrirtækjum - Rakti sögur af vel heppnuðum fjár- festingum kvenna Fjárfestingar Anderson segir fjárfestingar kvenna færa þeim völd og áhrif. Hagnaður Landsvirkjunar nær fjórfaldaðist á milli ára á fyrsta fjórðungi þessa árs, og nam um 115,2 milljónum bandaríkjadala (um 14,7 milljörðum króna), en var 31 milljón í fyrra. Tekjur ríkis- fyrirtækisins námu á tímabilinu 164,8 milljónum dala (rúmlega 21 milljarði króna) en voru 103,7 milljónir dala árið áður og jukust því um 26%. Á árshlutauppgjöri Landsvirkj- unar kemur fram að tekjur af raf- orkusölu námu 163,7 milljónum dala fyrstu þrjá mánuði ársins, en voru 110,4 milljónir á sama tíma í fyrra. Rekstrar- gjöld námu 70,2 milljónum dala og jukust um rúmlega þrjár milljónir dala á milli ára. Hörður Arn- arson, forstjóri Landsvirkjunar, segir í uppgjör- inu að meðal- verð til stórnotenda án flutnings sé nú hærra en það hefur áður verið, eða 41 dollari á megavatt- stund. Landsvirkjun hagnast á fyrsta ársfjórðungi Hörður Arnarson 20. maí 2022 Gengi Kaup Sala Mið Dollari 132.0 Sterlingspund 164.05 Kanadadalur 102.98 Dönsk króna 18.665 Norsk króna 13.601 Sænsk króna 13.27 Svissn. franki 132.46 Japanskt jen 1.0231 SDR 176.79 Evra 138.9 Meðalgengi/Viðskiptavog þröng 170.3956

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.