Morgunblaðið - 20.05.2022, Blaðsíða 16

Morgunblaðið - 20.05.2022, Blaðsíða 16
16 UMRÆÐAN MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 20. MAÍ 2022 Nýlega ræddust þeir við á Morgun- vaktinni á Rás1 hjá RÚV, Björn Þór Sig- björnsson fréttamað- ur og Vilhjálmur Árnason prófessor, en Björn Þór hafði nokkrum dögum áður komist á snoðir um svonefnda framtíðar- könnun á vegum for- sætisráðuneytisins sem fór fram um miðjan 9. áratug á síðastliðinni öld. Þetta voru hinar forvitnileg- ustu samræður hjá þeim skýr- leiksmönnum en Vilhjálmur hafði tekið þátt í könnuninni og starfað fyrir starfshópa innan könnunar- innar. Upphafsmaður könnunarinnar mun hafa verið forsætisráð- herrann sjálfur, Steingrímur Her- mannsson, en auk framkvæmda- nefndar voru kallaðir til 40-50 ráðgjafar sem störfuðu í 16 starfs- hópum með hin ólíkustu verkefni. Ég átti því láni að fagna að lenda í starfshópi um landkosti undir for- ystu Vilhjálms Lúðvíkssonar fram- kvæmdastjóra Rannsóknaráðs. Ég hef ætíð minnst þessarar sam- vinnu, bæði innan hóps og milli hópa, með ánægju og varð málkunnugur æði mörgum héðan og þaðan úr þjóðfélaginu sem ég svo rakst á meira eða minna ára- tugina síðan. En fyrrnefnt sam- tal varð til þess að mér datt í hug að rifja upp hvað ég hefði eiginlega skrifað í skýrslum fram- kvæmdanefndar sem tókst að gefa út áður en ráðgjafarnefnd lét af störfum. Í litlum bæklingi sem kallast „Auðlindir um aldamót; Sérrit 3; Viðauki 1“ (1987) er stuttur kafli um veðurfarssveiflur og áhrif þeirra. Þar greini ég frá vaxandi áhuga vísindamanna á áhrifum koltvíildis í lofthjúpi jarð- ar. Ég velti nú fyrir mér hvort þetta hafi verið í fyrsta sinn í nú- tímaumræðu sem minnst var á þessi mál hér á landi. Fram undan voru ár æ fleiri vísbendinga um hugsanlegar breytingar af völdum mengunar í lofthjúpi, breytingar af manna völdum, en það tók tím- ann sinn að ná eyrum ráðamanna. Ríkti ekki líka tregða hjá full- orðnum vísindamönnum eins og undirrituðum, tregða sem næsta kynslóð vísindamanna var laus við? Bið ég nú Morgunblaðið um birtingu á kafla mínum um koltví- ildi í fyrrnefndum bæklingi, svo- hljóðandi: „Áhrif koltvíildis: Ástæða er til að vekja athygli á einni kenningu um orsakir veð- urfarsbreytinga sem virðist njóta æ meiri viðurkenningar. Það er kenningin um áhrif aukins koltvíil- dis (CO2) í andrúmslofti. Það hefur aukist allt frá upphafi iðnbyltingar og mest síðustu áratugina og mun aukast mikið þá næstu. Skiptar skoðanir eru um hve mikil aukn- ingin er og raunar er einnig deilt um sjálfa hitaaukninguna sem hugsanlega fylgir í kjölfarið. En nú er talið að hún gæti orðið um- talsverð og jafnvel mjög mikil, einkum á norðurslóðum. Haustið 1985 var haldið al- þjóðlegt vísindaþing um þátt tvíil- dis og annarra svonefndra gróð- urhúsaefna í veðurfarssveiflum. Þingið var haldið á vegum UNEP (United Nations Environment Programme), ICSU (International Council of Scientific Unions) og WMO (World Meteorological Org- anization). Fulltrúar 30 þjóða voru á ráðstefnunni. Í inngangsorðum yfirlýsingar í lok ráðstefnunnar er komist svo að orði: „Vegna síauk- ins magns koltvíildis í lofthjúpi og annarra gastegunda sem valda gróðurhúsaáhrifum er nú talið að aukning á meðalhita á jörðinni verði meiri á fyrri helmingi næstu aldar en nokkru sinni í sögu mannkynsins.“ Í skýrslu frá ráðstefnunni er greint frá því að aukning á með- alhita við yfirborð jarðar sé áætl- uð líklegust á bilinu 1,5-4,5°C. Ennfremur er talið að áhrif koltví- ildis og slíkra gastegunda muni ráða mestu um veðurfarsbreyt- ingar á næstu öld. Sérstaklega er varað við bráðnun íss og þar af leiðandi hækkun á sjávarborði um 20-140 cm. Hækkun um rúman metra gæti valdið röskun og orðið afdrifarík víða. – Hvað um hafn- armannvirki o.fl. við strendur Ís- lands? Í ávarpi frá þinginu sem áður var getið er skorað á vísindamenn að vekja framkvæmdamenn og ráðamenn til umhugsunar um þá miklu veðurfarsbreytingu sem virðist að dómi fræðimannanna vera í aðsigi. Rætist spáin um stóraukinn meðalhita á næstu öld er einsýnt að margs konar breytingar verði á umhverfi í sjó og á þurru landi á okkar slóðum. Lífsskilyrði fyrir gróður og dýr verða önnur. Vatnsbúskapur verður annar. Úti- líf verður að einhverju leyti annað í mildara loftslagi, jafnvel ferða- þjónustan. Frá þessu öllu liggja svo meira eða minna sýnilegir þræðir inn í merg og bein þjóðfélagsins – vist- fræði mannfélagsins – sbr. töflu hér á eftir um mismunandi stig veðurfarsáhrifa. Hlýrra loftslag hefði önnur áhrif á heilsufar manna – og afkomu þjóðarinnar – og hagvöxt.“ Svo mörg voru þau orð árið 1987. Eftir Þór Jakobsson » Viðamikil 16 starfs- hópa framtíðarkönn- un á vegum ríkisstjórn- ar Íslands á 9. áratug síðastliðinnar aldar var markverð að mörgu leyti og mætti endurtaka. Þór Jakobsson Höfundur er veðurfræðingur. Mengun í lofthjúpi – frá hugmynd til aðgerða Næsta haust verða sex áratugir liðnir síð- an Kúbudeilan komst í fréttirnar þegar heimurinn rambaði á barmi kjarnorkustyrj- aldar. Að lokinni síð- ari heimsstyrjöld komu Bandaríkja- menn og Sovétmenn sér upp kjarnorku- vopnabúrum. Nógu mörg voru þessi vopn á dögum Kúbudeilunnar 1962 til að gjöreyða heiminum í kjarnorku- vopnastríði. Fremstu sérfræðingar bandarísku leyniþjónustunnar CIA fóru ekki í grafgötur með niður- stöður sínar þegar þeir töldu full- víst að Sovétmenn hefðu komið sér upp kjarnorkuvopnastöð á Kúbu. Myndirnar sem bandarískir flugmenn njósnavéla náðu af þess- ari rússnesku herstöð urðu fljót- lega kveikjan að Kúbudeilunni. Sovésku kjarnaflaugarnar sem deilt var um drógu 1.890 km og gátu á 13 mínútum jafnað höf- uðborg Bandaríkjanna við jörðu. Þá náði kalda stríðið hámarki. Frá lokum síðari heimsstyrjaldar, þegar Bandaríkja- menn vörpuðu kjarn- orkusprengjum á Jap- an, hafði vantraust milli stórveldanna aukist jafnt og þétt. Um þetta leyti hófu Bandaríkjamenn og Sovétmenn kjarn- orkuvopnakapphlaup til að vera við öllu búnir. Bandaríska flotanum tókst að koma í veg fyrir að Sovétmenn næðu til hafnar á Kúbu með tæki og tól í eldflaugastöðina sem ráða- menn í Washington höfðu áhyggj- ur af. Að morgni 16. október 1962 fékk Kennedy forseti upplýsingar um sovésk kjarnorkuvopn á Kúbu og kallaði nánustu samstarfsmenn sína til fundar í Hvíta húsinu. Dagana 18. og 19. október þetta sama ár tókust fulltrúar herráðs- ins á um hvernig ætti að bregðast við þessum tíðindum. Þeim vildu ráðgjafar hersins svara með loft- árásum á Kúbu og innrás í kjölfar- ið, sem Kennedy neitaði að sam- þykkja á þeim forsendum að sovéskir ráðamenn gætu með ófyr- irséðum afleiðingum svarað í sömu mynt. Hugmyndir um hafnbann voru líka kannaðar þegar þess var kraf- ist að vopnaflutningar til Kúbu yrðu umsvifalaust stöðvaðir. Hug- myndum Kennedys um skipa- og hafnbann við Kúbu svaraði Krúst- sjov, þáverandi forseti Sovétríkj- anna, með þeim skilaboðum að sovésk kjarnorkuvopn yrðu ey- landinu til varnar ef á það yrði ráðist. Í kjölfarið skipaði Fidel Castro her sínum að vera í við- bragðsstöðu þegar 511 orrustu- flugvélar í Bandaríkjunum voru tilbúnar til flugs. Dagana 23. og 24. október um- kringdu bandarísk herskip Kúbu þegar sovésk skip hlaðin efnum til eldflaugasmíða sigldu til eyj- arinnar og köstuðu akkerum skammt frá. Síðan sneru þau við. Tekist hafði að koma í veg fyrir átök án þess að hættan væri liðin hjá. Tveimur dögum seinna voru nokkrar kjarnorkuflauganna til- búnar til notkunar þegar banda- ríski herinn var settur í viðbragðs- stöðu. Á Allsherjarþingi Sameinuðu þjóðanna í New York ræddu fulltrúar Kúbu rétt lands síns til að vopnast og verjast nokkru áður en upp komst um kjarnorkuvopnavæðinguna. Krústsjov hafði ekki varnir Kúbu að leiðarljósi í málinu. Hann ætlaði sér að jafna stöðu stórveld- anna í vopnakapphlaupinu með gjöreyðingarvopnum nærri strönd- um Bandaríkjanna. Um miðjan október bárust fréttir af kjarn- orkuvopnum á Kúbu þegar ægileg- asta pólitíska hættuástand 20. ald- ar skall á. Þá töldu margir kjarnorkuvopnastyrjöld óumflýj- anlega. Að loknum 13 sólarhringa samningaumleitunum tókst Kenn- edy að þvinga Krústsjov til að láta af áætlunum sínum þegar ró komst á. Þessi friður var nú ekki alveg skilyrðislaus þegar báðir deiluað- ilar urðu að gefa eftir. Í telex- skeyti sagðist Krústsjov reiðu- búinn að flytja eldflaugarnar frá Kúbu ef Bandaríkjamenn lofuðu að ráðast ekki á landið. Um leið krafðist leiðtogi Sovétríkjanna þess að Bandaríkjamenn færu með kjarnavopn sín frá Tyrklandi. Á sama tíma var bandarísk njósnavél skotin niður yfir Kúbu. Þeirri árás neitaði Kennedy að svara þrátt fyrir hvatningu frá yfirmönnum hersins. Þess í stað lofaði hann op- inberlega að flytja eldflaugarnar frá Tyrklandi. Það sama sam- þykktu Rússar þegar hættan á kjarnorkustyrjöld var liðin hjá. Að deilunni lokinni náðu stór- veldin samningum um takmörkun kjarnorkuvopna til að minnka hættuna á gjöreyðingarstyrjöld. Þremur mánuðum áður en Ken- nedy var myrtur undirrituðu bæði stórveldin samninga um að banna kjarnorkuvopnasprengjutilraunir í andrúmslofti jarðar. Eftir Guðmund Karl Jónsson » Þremur mánuðum áður en Kennedy var myrtur undirrituðu bæði stórveldin samn- inga um að banna kjarnorkuvopna- sprengjutilraunir í andrúmslofti jarðar. Guðmundur Karl Jónsson Höfundur er farandverkamaður. Kúbudeilan 60 ára Búast má við að fjárfestingarumhverfið verði krefjandi fyrir lífeyrissjóði á næstu misserum. Hér eru einkum fjögur atriði sem blasa við: Breytt heimsmynd í kjölfar innrásar Rússa í Úkraínu, mikil og óviss verðbólga, hækk- andi vextir og lengri meðalævi. Sú breytta heimsmynd sem blas- ir við í kjölfar innrásar Rússa í Úkraínu varðar m.a. það að búast má við að fjárfestar muni ekki leng- ur njóta góðs af „arði friðarins“ (e. peace dividend). Er hér um að ræða arð í óeiginlegri merkingu en við lok kalda stríðsins gátu ríki dregið úr útgjöldum til hernaðar og varnarmála. Nú blasir við að þetta gangi til baka og í staðinn komi einhvers konar „átakaskattur“. Í fjárfestingar- umhverfi getur þetta einnig birst sem hækkun áhættuálags í ávöxtunarkröfu sem gerð er til fjárfestinga. Slík hækkun ávöxt- unarkröfu hefur svip- uð áhrif og vaxta- hækkun. Meiri verðbólga sem hætta er á að vari lengur en spár gera ráð fyrir. Verð- bólgan er afleiðing af: Samspili truflana á framleiðslu og í vöru- flutningum tengdum Covid-19- faraldrinum, eftirspurnar eftir varningi í stað þjónustu á tímabili faraldursins, örvunaraðgerða seðla- banka og stjórnvalda um heim all- an, skyndilegrar aukningar í eft- irspurn þegar hilla tók undir mildari útgáfu faraldursins og svo skellsins sem varð í tengslum við innrás Rússa í Úkraínu. Það er ekki eingöngu verðbólgan sjálf sem er vandamál heldur einnig óvissan um það hvernig hún komi til með að þróast. Gera má ráð fyrir að verðbólguóvissan hækki ávöxtunar- kröfu umfram álag vegna verðbólg- unnar sjálfrar. Þá kemur að viðbrögðum seðla- banka sem draga úr peninga- prentun og hækka vexti. Það verð- ur mismunandi eftir löndum hvernig aðgerðirnar birtast því útgangspunkturinn er mismunandi. Einnig má gera ráð fyrir að opin- ber fjármál verði aðhaldssamari í því skyni að stemma stigu við halla- rekstri. Loks má nefna lengri meðalævi. Hérlendis birtist hún í breyttum forsendum fyrir því hversu lengi líf- eyrissjóðir þurfi að greiða lífeyri til sjóðfélaga eftir starfslok. Því fylgja meiri skuldbindingar að óbreyttum eignum og möguleg skerðing rétt- inda. Lengri meðalævi ættu þó að geta fylgt fleiri ár á vinnumarkaði og meiri lífeyrissparnaður. Huga þarf að fjárfestingarstefnu lífeyrissjóða vegna þessara breyt- inga og gæta að áhættustýringu. Eftir Yngva Harðarson » Vegna breyttrar heimsmyndar, mikillar verðbólgu, hækkandi vaxta og lengri meðalævi má búast við krefjandi fjárfestingarumhverfi lífeyrissjóða. Yngvi Harðarson Höfundur er hagfræðingur og framkvæmdastjóri Analytica og er í framboði til stjórnar Frjálsa lífeyrissjóðsins þar sem rafræn kosn- ing stendur yfir til hádegis 22.5. nk. yngvi@analytica.is Áskoranir í fjárfestingum lífeyrissjóðaViðskipti

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.