Morgunblaðið - 20.05.2022, Blaðsíða 19

Morgunblaðið - 20.05.2022, Blaðsíða 19
MINNINGAR 19 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 20. MAÍ 2022 ✝ María Jó- hannsdóttir fæddist 25. maí 1940 í Flatey á Skjálfanda. Hún lést á hjúkrunar- heimilinu Lögmannshlíð 4. maí 2022. Foreldrar henn- ar voru hjónin Jó- hann Ögmundsson, f. 16. ágúst 1910, d. 15. febrúar 1993, og Karól- ína Jóhannesdóttir, f. 6. maí 1908, d. 20. október 1998. Systkini Maríu eru: Gunnar Brynjar, f. 18. ágúst 1935; Mar- grét, f. 2. október 1937, d. 22. nóvember 2018; drengur, f. 11. júlí 1943, d. 20. september 1943. Jóhann eignaðist einnig soninn Þráin, f. 16. ágúst 1965. Þann 26. desember 1959 gift- ist María Einari Erni Gunn- arssyni á Akureyri þar sem þau áni Viðari Finnssyni, f. 21. maí 1966. Börn þeirra eru: a) Einar Rafn, f. 1993, eiginkona hans er Halla Sif, f. 1990. Eiga þau þrjú börn; Natalíu Margréti, f. 2014; Bríeti Maríu, f. 2018, og Guðmund Darra, f. 2021. b) Viðar Örn, f. 1996, unnusta hans er Elísa, f. 1978. Börn þeirra eru tvö; Frosti Björn, f. 2019, og Máney Jasmín, f. 2021. c) Eva Rún, f. 2003. María flutti með fjölskyldu sinni frá Flatey til Akureyrar árið 1944 þar sem hún bjó alla tíð. Hún lauk námi við Hús- mæðraskólann á Laugalandi og starfaði lengst af utan heimilis samhliða uppeldi barna sinna og heimilishaldi. Bókabúð Jón- asar var vinnustaður Maríu um árabil en starfsævinni lauk hún sem heilsugæsluritari á Heilsu- gæslustöð Akureyrar. María tók um árabil þátt í kórastarfi á Akureyri og söng meðal ann- ars með kvennakórnum Gígj- unum, kór Akureyrarkirkju, Kvennakór Akureyrar og með Kór aldraðra. Útför Maríu fer fram frá Ak- ureyrarkirkju í dag, 20. maí 2022, kl. 13. áttu heimili allan sinn hjúskap. For- eldrar hans voru Gunnar Frið- riksson, f. 24. sept- ember 1908, d. 23. ágúst 1967 og Sig- ríður Helgadóttir, f. 16. júní 1915, d. 12. júní 1998. Börn Maríu og Einars: 1) Arna Borg, f. 7. maí 1960, gift Helga Magnússyni, f. 14. janúar 1949. Börn þeirra eru: a) Hlín, f. 1987, d. 1988. b) Magnús Örn, f. 1989, unnusta hans er Sigrún Ösp, f. 1994. c) Sunna María, f. 1991. d) Arnar Þór, f. 1996, unnusta hans er Edda Björg, f. 2000. 2) Birkir, f. 29. janúar 1963, kvæntur Önnu Sylvíu Sigmundsdóttur, f. 6. desember 1970. Sonur þeirra er Steinar Nói, f. 2010. 3) Ey- dís, f. 22. apríl 1970, gift Stef- Í dag þegar við kveðjum elsku móður mína hafa orðið kaflaskil í sögu fjölskyldunnar en tæp sjö ár eru síðan faðir minn lést og gamla æskuheim- ilið í Þingvallastræti 27, athvarf fjölskyldunnar í rúm 60 ár, hef- ur nú fengið nýja eigendur. Eft- ir sitja dýrmætar minningarnar sem munu lifa með okkur. Mamma fæddist í Flatey á Skjálfanda en flutti til Akureyr- ar með fjölskyldu sinni þegar hún var fjögurra ára gömul. Hún var alla tíð stolt af því að vera Flateyingur og rifjaði gjarnan upp rómantískar sögur af því hvernig foreldrar hennar kynntust í eynni og hvernig lífið var á þessum afskekkta stað. Það hefur ekki alltaf verið auð- velt. Eftirminnileg er ferðin sem fjölskyldan fór í út í Flatey fyrir nokkrum árum sem segja má að hafi verið hálfgerð píla- grímsferð á æskuslóðir mömmu. Hún hafði tekið saman fróðlegt ágrip um fólkið sitt sem þar hafði háð lífsbaráttuna og á áhrifamikilli stund í gamla hús- inu þeirra, Uppibæ, sagði mamma okkur þessar ótrúlegu sögur. Mamma var sterkur persónu- leiki sem með glaðværð sinni og einlægni átti auðvelt með að kynnast og umgangast fólk á öllum aldri. Í uppvexti hennar var mikið um tónlist og leiklist sem fylgdi mömmu alla tíð og naut hún þess innilega að fara á tónleika og í leikhús. Hún hafði fallega söngrödd og söng í nokkrum kórum í gegnum tíðina og hafði mikla ánægju af. Mamma spilaði einnig á píanó og til eru nokkur lög sem hún samdi og tileinkaði fjölskyldu- meðlimum. Að rækta garðinn sinn kunni mamma betur en margir, bæði í eiginlegri og óeiginlegri merk- ingu. Hún var með græna fingur og naut þess að vinna í sínum garði þar sem fjölærar, blómstrandi plöntur voru henn- ar uppáhald. Pabbi var aldrei langt undan og sameinuðust þau af mikilli eljusemi og metnaði í að skapa yndislegan sælureit og hlutu þau viðurkenningar fyrir fallegan garð oftar en einu sinni. Uppáhaldsstundir for- eldra minna í garðinum í Þin- góinu voru þó án efa þegar fjöl- skyldan sameinaðist á pallinum þar sem við höfum í gegnum tíð- ina notið samveru í óteljandi grillveislum með garðinn iðandi af kátum krökkum. Og vissu- lega var alltaf sól. Mamma ræktaði líka sam- skipti sín við fólk. Tilgerðarlaus og af eðlislægri einlægni fylgd- ist hún með samstarfsfólki, vin- um og fjölskyldu, alltaf tilbúin til að rétta hjálparhönd og hvetja. Ömmuhlutverkið var mömmu allra kærast. Hún naut þess að umgangast barnabörnin og rækta sambandið við þau. Áhugasöm fylgdist hún með námi þeirra og tómstundum og virtist hafa endalausa þolin- mæði og tíma. Fjölmörg eru skiptin sem foreldrar mínir héldu heimili fyrir okkur Helga þegar við brugðum okkur af bæ. Þetta voru gæðastundir fyrir þau öll og með árunum duldist engum að væntumþykjan og vináttan á milli mömmu, pabba og barnanna var einstök. Mamma uppskar svo sannar- lega þar eins og hún sáði. Mamma flutti á hjúkrunar- heimilið Lögmannshlíð haustið 2020 þegar erfitt var orðið fyrir hana að búa á eigin heimili. Þar naut hún sín vel og tók þátt í heimilishaldi á meðan kraftar leyfðu. Úr yndislegum hópi starfsfólks eignaðist mamma vinkonur sem önnuðust hana af einstakri virðingu og umhyggju sem hér er þakkað fyrir af heil- um hug. Þakklát fyrir allt kveð ég elsku mömmu mína. Blessuð sé minning hennar. Þín dóttir, Arna. Elsku mamma mín. Mér finnst skrýtið að kveðja þig. Ég veit að hvíldin er þér kærkomin, að þú færð loksins að hitta pabba og að þú ert hætt að þjást af sjúkdómnum sem tók af þér svo margt. En einhvern veginn var ég ekki alveg tilbúin. Að koma til þín og hlýja sér á höndunum í þínum höndum, sem voru alltaf heitar og mjúk- ar, að fá mömmufaðm, að hlæja með þér að einhverri vitleys- unni sem við vorum að rifja upp, að gráta saman og bara að vera hjá þér. Þetta er eitthvað sem ég á eftir að sakna svo mikið. Það er svo sannarlega margs að minnast og það er ekki hægt að líta yfir farinn veg og rifja upp þær minningar sem ég á um þig öðruvísi en að pabbi komi þar við sögu. Þið voruð einstak- lega samhent hjón sem hlúðuð vel að fólkinu ykkar. En þó varst þú samt svo sjálfstæð. Þú varst svo dugleg við allt sem þú tókst þér fyrir hendur. Sauma- skapur, prjón og hekl lék í höndunum á þér. Eldamennsk- an var list hjá þér svo ekki sé minnst á baksturinn. Ég man þegar við Stebbi giftum okkur. Þú hristir glæsilegar veiting- arnar fram úr erminni, ein og óstudd. Að ógleymdum ferming- um og skírnarveislum barnanna okkar Stebba, þar sem þitt fal- lega handbragð kom við sögu. Grænu fingurnir þínir voru ein- stakir, enda var garðurinn ykk- ar pabba sannkallað listaverk. Þú hlúðir endalaust að því lista- verki og naust þess að brasa úti í garði langt fram á kvöld. Þeg- ar þú varst ekki í garðinum eða að vinna, þá varstu á kóræfingu. Ég held að þú hafir verið í öllum þeim kórum sem hafa verið stofnaðir á Akureyri síðustu áratugina. Ekki nóg með það, heldur spilaðir þú listavel á pí- anóið, samdir lög og texta og söngst með þegar þannig lá á þér. Það er margt sem kemur upp í hugann á þessari stund; Ég man þegar þú kenndir mér að lesa. Ég man þegar þú kenndir mér að prjóna. Ég man þegar þú kenndir mér muninn á réttu og röngu. Ég man þegar ég fór á skíðanámskeið með þér. Ég man eftir öllum okkar ferða- lögum saman. Ég man alla hvatninguna í gegnum mína skólagöngu, hversu stolt þú varst af mér. Og mér fannst svo mikilvægt að þú fylgdist með því sem ég var að gera, því það gerðir þú svo sannarlega. Ég man þegar börnin mín fæddust. Þú mættir nokkrum mínútum eftir að þau komu í heiminn, með stóra og mjúka ömmufaðminn og knúsaðir þau. Ég man þegar þú og pabbi báðuð mig um að koma í kapell- una þegar þið endurnýjuðuð hjúskaparheitin ykkar á gull- brúðkaupsafmælisdaginn ykk- ar. Það var mögnuð stund. Svona gæti ég haldið áfram, en læt hér við sitja. Ég kveð þig í dag elsku mamma og minningarnar um þig lifa áfram hjá mér og mínu fólki. Ég á eftir að sakna þín óendanlega mikið en fagna því á sama tíma að þú og pabbi eruð aftur saman. Þú mátt endilega gefa honum faðmlag frá mér. Ég elska þig mamma og takk fyrir allt sem þú gafst mér. Þín Eydís. Við fráfall Maríu Jóhanns- dóttur, tengdamóður minnar, minnist ég þess hve hjálpleg, velviljuð og elskuleg hún var gagnvart öllum. Gilti einu hvort um var að ræða ættingja, vini eða aðra samferðamenn. María vildi öllum vel og var ávallt reiðubúin að leggja öðrum lið. María og Einar Örn Gunnars- son voru samrýndustu hjón sem ég hef kynnst um dagana. Far- sælt hjónaband þeirra náði yfir meira en hálfa öld þar til hann féll frá í árslok 2015. Andlát hans var okkur öllum mikið áfall og hafði miklar breytingar í för með sér fyrir Maríu. En hún tókst á við lífið og tilveruna af æðruleysi eftir sem áður. María bjó yfir margvíslegum hæfileikum. Til viðbótar við að vera myndarleg húsmóðir og mikil ræktunarkona hafði hún fallega söngrödd og lék á hljóð- færi. María söng í ýmsum kór- um um áratuga skeið. Hún las mikið allan þann tíma sem ég þekkti hana og var því vel að sér um margvísleg málefni enda kom hún frá listrænu menning- arheimili. Hún og Einar fylgd- ust ávallt vel með og voru for- vitin um þjóðfélagsumræðuna og lífið í kringum sig. Börnin okkar Örnu löðuðust að Maríu og Einari frá fyrstu tíð, rétt eins og önnur barna- börn þeirra, enda voru þau barngóð og skemmtilegir fé- lagar allra barnanna. Það var ávallt mikið tilhlökkunarefni þeirra að hitta afa og ömmu á Akureyri. Sem betur fer náði fjölskyldan að hittast oft þótt búseta væri á mismunandi landshornum. Nú minnumst við þessara stunda með þakklæti og rifjum upp ánægjulega atburði. Síðustu árin voru Maríu erfið vegna veikinda sem hún glímdi við. Frá haustinu árið 2020 naut hún umönnunar á Lögmanns- hlíð, því frábæra hjúkrunar- heimili á Akureyri. Þar sinnti úrvalsfólk henni af fagmennsku og hlýju. Það ber að þakka að leiðarlokum. Blessuð sé minning elsku- legrar tengdamóður minnar, Maríu Jóhannsdóttur, sem nú er horfin yfir á annað tilverustig þar sem hún hefur fengið hlýjar móttökur. Helgi Magnússon. Í dag kveðjum við systkinin eina af okkar allra bestu konum, hana ömmu Maju. Það gerum við með mikinn söknuð í hjarta en þökkum um leið fyrir að nú sé hún laus úr fjötrum illvígs sjúkdóms. Og bíði okkar eitt- hvað eftir þessa jarðvist þá er öruggt að afi Einar hefur tekið vel og innilega á móti ömmu. Ömmu Maju minnumst við sem glaðlyndrar félagsveru. Geislandi og fögur, lítil og létt á fæti, með smitandi hlátur og gjarnan raulandi enda mjög músíkölsk. Amma var barngóð kona og naut þess að vera um- kringd börnum sínum, barna- börnum og langömmubörnum og virtist alltaf hafa einstakt að- dráttarafl. Sem börn vissum við systkinin fátt betra en að kom- ast til ömmu og afa á Akureyri í Þingóið góða. Þar var alltaf líf og fjör og fullt hús af frænd- systkinum sem náðu vel saman. Í minningunni var garðurinn á kafi í snjó á veturna sem gaman var að leika í og byggja snjóhús á milli ferða í Hlíðarfjall (og ekkert jafnaðist á við heima- gerðu kleinurnar á stundum milli stríða). Á sumrin var aldrei minna en 20 stiga hiti og bikiní- veður, enda alltaf besta veðrið fyrir norðan. Ófáar grillveisl- urnar voru haldnar á pallinum með leikjum og krikketi í garð- inum og á þeim stundum, um- kringd stórfjölskyldunni, voru amma og afi sannarlega í essinu sínu. Á unglingsárum var ekki síð- ur gott að komast norður í ein- staklega notalega andrúmsloftið sem einkenndi Þingóið. Afi og amma voru enn útivinnandi framan af en eftir að þau hættu að vinna dútlaði afi við skáktölv- una, kapla og krossgátur og amma prjónaði, spilaði á píanóið á söng. Á vorin og sumrin nostr- uðu þau við ævintýragarðinn sinn sem geymdi tjörn, gróður- hús, flaggstöng, himinháar aspir og pallinn glæsilega sem afi smíðaði með ömmu sem handlangara. Amma var mikil vor-kona og klæjaði í puttana að komast í beðin að sinna plöntunum. Nú- tímalegur og umburðarlyndur hugsunarháttur ömmu var ein- kennandi og fannst henni allt sem barnabörnin tóku sér fyrir hendur æðislegt og spennandi. Hún gladdist yfir hvers konar flakki og ferðalögum og minnti reglulega á að nægur tími væri fyrir fasta vinnu og barneignir síðar (sjálf orðin þriggja barna móðir þrítug). Amma sýndi okkur alltaf stuðning í því sem við tókum okkur fyrir hendur og hvort sem það var verknám á fæðing- ardeildinni á Akureyri eða keppnisferðir norðan heiða var gistingin alltaf klár og heitt á könnunni í Þingóinu. Í lok árs 2015 féll afi Einar frá eftir stutt veikindi og var erfitt fyrir okkur öll að fylgja ömmu í gegnum þann mikla missi. Þau byrjuðu saman á unglingsárum, voru alla tíð ein- staklega samrýnd hjón og dreymdi um að eiga saman langt ævikvöld. Síðustu ár hefur tekið á að fylgjast með ömmu glíma við alzheimersjúkdóminn en þrátt fyrir hann glataði hún aldrei sínum hlýja persónuleika. Flest orð höfðu týnst úr minni hennar en „fallegt“, „yndislegt“ og „elskan“ voru orð sem alltaf voru á sínum stað rétt eins og einlægt bros og hlýtt faðmlag. Nú kveðjum við ömmu á þessum fallega vordegi, með miklu þakklæti fyrir allar ómet- anlegu minningarnar. Við höld- um áfram að passa blómin, syngja og njóta sólarinnar eins og henni einni var lagið. Góða nótt amma Maja. Magnús, Sunna og Arnar. Vina mín, úr öllum áttum unaðssöngvar berast mér. Leysir sólin fönn úr fjöllum, faðmar blærinn lönd og ver. Vorsins dís í veldi sínu vermir allt sem kól og dó. Hlýjar vonin huga mínum, hjartans vina, sofðu í ró. (Jóhannes Friðlaugsson.) Með þessu ljóði eftir afa okk- ar viljum við minnast elsku Maríu frænku okkar sem við kölluðum alltaf Dídí, litlu systur hans pabba, sem alltaf tók á móti okkur með brosi, hlýju og áhuga á því sem við vorum að fást við í lífinu. Við komum oft í Þingvalla- strætið sem börn, í minningunni var Dídí alltaf brosandi og kom með vísdómsorð sem voru góðar ábendingar út í lífið. Þau Einar áttu þar fallegt heimili þar sem gott var að heimsækja. Seinni ár voru heimsóknirnar færri en minningarnar tengjast flestar garðinum fallega, þvílíkur Edenslundur sem óx upp um- hverfis heimilið og Dídí sinnti af einstakri natni. Því miður fór Dídí sömu leið og Gréta frænka og amma, fékk þennan þunga sjúkdóm sem breytti lífi fjölskyldunnar allrar. Blikið hvarf smám saman úr augunum, en sérstaklega dýr- mætt er nú að hafa náð sam- verustund á ættarmótinu í fyrra, þar sem Dídí sat með okkur stutta stund í sólinni, glöð og kát á fallegum sumar- degi. Elsku Arna, Birkir, Eydís og fjölskyldur. Við sendum ykkur okkar innilegustu samúðar- kveðjur. Hanna, Lína, Sædís og fjölskyldur. María Jóhannsdóttir Minningarvefur á mbl.is Minningar og andlát Á minningar- og andlátsvef mbl.is getur þú lesið minningargreinar, fengið upplýsingar úr þjónustuskrá auk þess að fá greiðari aðgang að þeirri þjónustu sem Morgunblaðið hefur veitt í áratugi þegar andlát ber að höndum. Andláts-, útfarar- og þakkartilkynningar eru aðgengilegar öllum. www.mbl.is/andlát Okkar kæri eiginmaður, faðir, tengdafaðir, afi og langafi, ÖGMUNDUR EINARSSON, Árskógum 1b, Reykjavík, lést á Hrafnistu í Reykjavík föstudaginn 6. maí. Útförin fer fram frá Áskirkju mánudaginn 23. maí klukkan 13. Blóm og kransar vinsamlega afþakkaðir. Þeim sem vilja minnast hans er bent á Parkinsonsamtökin og Nýrnafélagið. Magdalena Jónsdóttir Kristín Ögmundsdóttir Gunnar Haraldsson Einar Ögmundsson Kristín Þóra Gunnarsdóttir Davíð Jón Ögmundsson Eva Dögg Þorgeirsdóttir barnabörn og barnabarnabörn Elskulegur eiginmaður og besti vinur minn, pabbi, tengdapabbi, afi og langafi, PÉTUR H. BJÖRNSSON, er látinn. Útför fer fram í kyrrþey að hans ósk. Sigurdís Sigurbergsdóttir María Björk Örn Sævar Hanna Kristín Knútur Þór Pétur Steinn Hanna Mjöll barnabörn og barnabarnabörn

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.