Morgunblaðið - 20.05.2022, Side 21

Morgunblaðið - 20.05.2022, Side 21
MINNINGAR 21 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 20. MAÍ 2022 áttum við eftir að fylgjast að í starfi og leik um langt árabil. Pálína var í Hjálpræðishern- um og var mjög virk í starfinu þar. Hún var í hópi kvenna sem sáu um starf eldri kvenna og þar eins og annars staðar vann hún af heilindum og trú- mennsku. Það var því mjög ánægjulegt að fá að taka þátt í starfinu með henni og áttum við þar margar góðar stundir sam- an. En öllu er afmörkuð stund. Fyrir nokkrum árum lést Hilm- ar, maðurinn hennar. Eftir það fór heilsu hennar fljótlega að hraka og um leið fækkaði þeim stundum sem hún gat átt með vinahópnum. Á góðum degi fyr- ir nokkrum vikum fórum við saman að skoða nýja Herkast- alann og hitta fólkið sem Pálína hafði átt samleið með og var það henni mikill gleðidagur. Nú hefur Pálína kvatt þennan heim og er genginn til fundar við frelsara sinn Jesú Krist. Um leið og ég kveð Pálínu vinkonu mína með 23. Davíðs- sálmi, sem okkur báðum var svo kær, votta ég börnum henn- ar og fjölskyldum þeirra samúð og bið þeim blessunar Guðs um ókomin ár. Drottinn er minn hirðir, mig mun ekkert bresta. Á grænum grundum lætur hann mig hvílast, leiðir mig að vötnum, þar sem ég má næðis njóta. Hann hressir sál mína, leiðir mig um rétta vegu fyrir sakir nafns síns. Jafnvel þótt ég fari um dimman dal óttast ég ekkert illt, því að þú ert hjá mér, sproti þinn og stafur hugga mig. Þú býr mér borð frammi fyrir fjend- um mínum, þú smyr höfuð mitt með olíu, bikar minn er barmafullur. Já, gæfa og náð fylgja mér alla ævidaga mína, og í húsi Drottins bý ég langa ævi. (Davíðssálmur 23) Valgerður Gísladóttir. Tilvera okkar er undarlegt ferðalag. Við erum gestir og hótel okkar er jörðin. Einir fara og aðrir koma í dag, því alltaf bætast nýir hópar í skörðin. (Tómas Guðmundsson) Komið er að leiðarlokum og við kveðjum góða vinkonu og saumaklúbbsfélaga, Pálínu Imsland. Hún var gleðigjafi, mikið jólabarn og ljómaði þegar við hittumst hjá henni í desem- ber. Allt fallega jólaskrautið var smekklega sett upp og annað sett til hliðar yfir hátíð- ina. Pálína og hennar maður Hilmar voru dugleg í Hjálp- ræðishernum og unnu þar að góðum málefnum alla tíð. Ég sendi þér samúð mína því sálin sem núna dó svo lofsverð mun lengi sýna ljósið sem þarna bjó. Er lofum við ljósið bjarta á leið sem er stundum myrk þá þökkum við þessu hjarta sem þráði að veita styrk. Nú hjartað er hætt að tifa en hlý eru okkar tár því minningar munu lifa. í meira en þúsund ár. (KH) Minning þín mun ávallt lifa í gegnum daga dimma og bjarta. Lífsklukkan mun þó áfram tifa líkt og þín hlýja í okkar hjarta. Samúðarkveðjur til barna og fjölskyldna þeirra. Guðný, Guðrún, Erna, Friðbjört og Kristín. Kæri Thorvald Imsland, löngum samstarfsmaður á Grund. Eftir að hafa spjallað við þig í starfi í svo fjöldamörg ár á Grund þykir mér nú leitt að frétta að móðir þín er dáin! Hún sem vann á Grund og líka pabbi þinn heitinn sem var þar svo duglegur við að kaupa ljóðabækur mínar og sögur, og að syngja með mér í Grund- arkórnum. Auk þess hafði ég viðbót- artaugar til ykkar af því þið komuð frá Austurlandi þar sem ég kenndi einu sinni. Ykkur góðvinum Grundar- starfsliðsins vil ég nú senda kveðju mína og annarra, og láta svo fylgja með kafla úr málefnalegu ljóði mínu, sem heitir Samstarfsstúlkur mínar á elliheimilinu, og greini ég þar frá vinnustaðaumhverfi mínu sem þið þekktuð svo vel, en þar yrki ég m.a. svo: Þetta eru þó sömu vinkonurnar og þær sem ég hefi við umönnun verið kallaður með til að búa um örendar kynsystur þeirra; sem með jafn fallegan líkama eru þó að kveðja fyrir elli sakir, eftir að tíminn hafði skriplað úr greipum þeirra, sem og makarnir, skiljandi þær einar eftir í núinu, sem við lifum þó öll mestmegnis í, ósödd lífdaga, ung sem aldin! Tryggvi V. Líndal. ✝ Kristján Jóns- son fæddist á Dunk í Hörðudals- hreppi í Dalasýslu 28. október 1931. Hann lést á Sjúkrahúsi Suður- lands 5. maí 2022. Foreldrar hans voru Jón Laxdal, f. 7. desember 1891, d. 19. janúar 1981 og Kristjana Ingi- ríður Kristjánsdóttir, f. 12. september 1902, d. 13. desem- ber 1993. Systkini Kristjáns: Unnur, f. 26. ágúst 1923, d. 29. apríl 1986, Svanlaug, f. 31. desember 1924, d. 8. janúar 1925, Gísli, f. 9. janúar 1926, d. 7. september 1994, Magnús, f. 18. október 1927, d. 9. október 2007, Gunn- ar Aron, f. 14. nóvember 1934, d. 4. maí 2011, Jónas Steinar, f. 20. maí 1938, Rögnvaldur, f. 27. apríl 1941, d. 30. mars 2013. Seinni kona Kristjáns var Edda Björk Þorsteinsdóttir, f. 28. október 1947, d. 31. júlí 2002. Hún átti fyrir dóttur Grétu Björk Þorsteinsdóttur, f. 16. maí 1967, sem Kristján gekk í föðurstað. Hennar maki er Magnús Ingvarsson, f. 18. júlí 1964. Kristján ólst upp í Dölunum. Ungur fór hann til Grindavíkur þar sem hann stundaði sjó- mennsku. Flutti síðan á Hellu og reisti þar heimili fyrir fjöl- skyldu sína á Heiðvangi 3 og bjó þar í tæp 60 ár. Kristján starfaði lengst af við versl- unarstörf og var yfirmaður í pakkhúsinu á Hellu. Hann hafði mikinn áhuga á fjárrækt en helsta áhugamál hans var hestamennskan sem hann stundaði af krafti alla tíð þar til heilsan fór að gefa sig. Hann þótti frábær söngmaður og góður tenór. Kristján var heiðursfélagi í Hestamanna- félaginu Geysi. Kristján verður jarðsunginn frá Breiðabólsstaðarkirkju í Fljótshlíð í dag, 20. maí 2022, kl. 14. Kristján kvænt- ist Dýrfinnu Ósk Andrésdóttur, f. 4. október 1932, d. 9. júní 1965. Börn þeirra eru: Andrés, f. 16. september 1954, maki Ingv- eldur Pétursdóttir, f. 23. janúar 1954; drengur, f. 1955, d. 1955; Rúnar, f. 20. október 1956, maki Inga Kristín Sveinsdóttir, f. 14. ágúst 1953; Kristjón Laxdal, f. 29. desember 1957, maki Guð- ríður Hauksdóttir, f. 3. júní 1960; Magnús, f. 13. júní 1959, maki Oddrún María Pálsdóttir, f. 11. janúar 1962;. Dýrfinna, f. 14. maí 1960, maki Þórir Björn Kolbeinsson, f. 28. febrúar 1955; Hjálmar Trausti, f. 8. september 1962, maki Eygló Huld Jóhannesdóttir, f. 1. októ- ber 1964; Þorgerður, f. 26. maí 1964, maki Þorgeir Axelsson, f. 18. febrúar 1961. Kyrrlát kvöldstund við Rangárbakka kærleikur vorsins um jörðina fer í rökkrinu stendur með reistan makka gæðingur rauður sinn meistara ber. Teinréttur knapinn um taumana heldur túnin sín lítur í hinsta sinn söngvatn sitt sýpur dýrðinni seldur með hljómþýðum tón sækir roði í kinn. Minningar margar um huga hans reika auðmjúkur lyftir svo lúinni hönd stoltur á svip bros um varirnar leika á sprettinum hverfur í draumanna lönd. Minning þín mun ávallt lifa í mínu hjarta. Þín Þorgerður. Undanfarna daga hafa margir vottað mér samúð vegna fráfalls Kristjáns Jóns- sonar tengdaföður míns. Flestir hafa hnykkt á orðum sínum með að þar færi höfð- ingi, mikill maður og minn- isstæður, gleðigjafi og fleiri orðum í þeim dúr. Orð sem lýsa velvild, trausti og aðdáun. Slíkar umsagnir eru ekki keyptar, þær fást eingöngu með hegðun og trausti sem slíkur einstaklingur vekur hjá samferðamönnum sínum. Kristján fæddist í Dölunum. Á vertíð í Grindavík hitti hann Dýrfinnu Ósk og flutti með henni í Fljótshlíðina og síðar að Hellu. Reistu þau hús sem rúmaði alla. Sú gleði sem því fylgdi var þó dempuð af veik- indum Dýrfinnu sem lést úr heilaæxli 9. júní 1965. Eftir stóð Kristján einn með 7 börn og vandamenn hjálpuðu til eftir getu. Samt fóru 3 börn í fóstur og elstu drengirnir í sveit á sumrin. Ráðnar voru ráðskonur sem stoppuðu mis- lengi. Síðust þeirra var Edda Björk Þorsteinsdóttir sem varð seinni kona hans og gekk hann Grétu dóttur hennar í föðurstað. Sorgin kom aftur og Edda lést eftir stutt veikindi 2002. Kristján var hraustur og nautsterkur og byrjaði að vinna í kaupfélaginu og varð pakkhússtjóri. Stýrði viðskipt- um við bændur og gekk í alla vinnu. Hagur margra bænda og fjárráð gátu verið erfið og ýmsir minnast samninga við Kristján sem reyndi að vera sanngjarn og aðstoða gegn skilvísi. Eins og þessi upptalning bendir til var Kristján starf- samur. Hann rak rollubúskap fyrir heimilið og svo voru hestarnir – hans stóri gleði- gjafi. Hann var góður hesta- maður, glöggur á hross, tamdi sjálfur og reið mikið út. Tók þátt í starfi hestamannafélags- ins. Kristján þótti mikill gleði- gjafi, hress og upplífgandi og hafði glæsilega söngrödd. Hann kunni flesta texta og hópuðust menn að honum og sungu hástöfum. Undirritaður kynntist Kristjáni þegar ég kvæntist dóttur hans Dýrfinnu 1998. Kristján tók mér opnum örm- um og eftir að hafa deilt með mér sönggleði sinni, áttum við endalausar ánægjustundir við söng. Mér er minnisstætt þeg- ar Kristján hélt upp á áttræð- isafmæli sitt og vinir hans í Árbæ, Gunnar Jóhannsson og Vigdís, fengu Kristján Jó- hannsson til að syngja nokkur lög í afmælinu. Kristján kall- aði tengdapabba upp á svið og bað hann að syngja með sér „Ég berst á fáki fráum“ og rak svo upp stór augu þegar sá gamli fylgdi honum í hverri nótu! Samband Kristjáns og konu minnar Dýrfinnu var einstak- lega sterkt og fallegt allt frá því hún missti móður sína 5 ára gömul. Passaði hún vel upp á að sleppa pabba sínum ekki langt frá sér. Síðustu 2-3 árin sótti hann meir og meir stuðning til okkar hjóna og flutti loks til okkar haustið 2021 því á elliheimili vildi hann ekki fara. Hann var mjög ánægður hjá okkur og áttum við félagarnir góðar stundir við söng og spilamennsku en þau mæðginin nutu nærveru hvort annars. Hjartað var ekki sterkt og í apríllok fékk hann lungnabólgu og hjartabilun og lagðist á Heilbrigðisstofnun Suðurlands og lést þar í faðmi fjölskyldunnar. Kæri vinur. Við Dýrfinna þökkum þér samfylgdina og einstaklega ánægjulegan tíma hér í Árbyrgi, þín er sárt saknað. Þórir Björn Kolbeinsson. Frá unga aldri hefur Krist- ján Jónsson föðurbróðir minn verið hluti af lífi mínu. Ég man þegar Kristján kom með Díu í heimsókn, þegar amma hringdi í mömmu til að til- kynna að Día væri dáin, þegar amma hringdi og sagðist koma með einn úr krakkahópnum með sér í sveitina, þegar Kristján kom með Magga lít- inn sex ára snáða til okkar sem varð einn af okkur systk- inum, þegar Kristján kom með krakkahópinn í heimsóknir, þegar Kristján kom með Eddu og Grétu Björk, þegar Edda dó. Þá óttaðist ég að Kristján fyndi ekki gleðina aftur. Sem betur fer átti hann gleði eftir, eignaðist góða vinkonu um stund. Heimili Kristjáns og Eddu stóð mér alltaf opið sem ég nýtti mér til fulls á ung- lingsárum, þau munaði ekki um enn einn unglinginn. Eftir að ég varð fullorðin gift kona var Kristján hluti af okkar sorgar- og gleðistundum, alltaf var Kristján nálægur. Nú er lífshlaupi Kristjáns lokið, hann fékk ekki auðveld spil á hendi, hann ákvað að spila út frá þeim með gleði og söng. Ég veit að það er gaman núna í himnaríki því þar sem Krist- ján er þar er gaman. Við Ing- ólfur sendum börnum, tengda- börnum, barnabörnum og langafabörnum Kristjáns okk- ar innilegustu samúðarkveðj- ur. Kveðjum frænda og vin með þakklæti. Inga Jóna Gísladóttir. Í dag verður borinn til graf- ar í Breiðabólsstaðarkirkju- garði í Fljótshlíð föðurbróðir minn, Kristján á Hellu eins og hann var alltaf kallaður í minni sveit. Langar mig að minnast hans í nokkrum orð- um. Flutti hann ungur úr Döl- um austur á Hellu og bjó sér þar gott heimili alla tíð síðan. Það var tilhlökkunarefni þegar fjölskyldunnar á Hellu var von í heimsókn, beðið í eftirvænt- ingu eftir því að sjá bíl koma niður Harrastaðaveginn og gjarnan hlaupið niður á veg í þeirri von að fá far heim sem brást ekki. En í uppvextinum og minningunni var Kristján frændinn fyrir austan sem kom í heimsókn á sumrin. Þó fór Blönduhlíðarfjölskyldan, man ég, sumarið 1970 í heim- sókn austur, var það töluvert ferðalag á þeim tíma. En kynnin og samskiptin jukust mikið þegar við hjónin, nýgift og rétt um tvítugt, fluttum austur á Hellu þar sem við bjuggum í tvö góð ár. Ómet- anlegt var fyrir okkur að hafa innhlaup hjá þeim Kristjáni og Eddu í Heiðvanginum en þar var maður heimagangur þann tíma sem við bjuggum þar. Síðan er ég viss um að frænd- skapurinn við hann hafi hjálp- að mér mikið í starfi mínu sem kennari í þorpinu. Allir þekktu Kristján og að ég tel af góðu einu. Ekki spillti svo fyrir að ég hafði nokkurn áhuga á hestum en frændi var virkur og virtur hestamaður og átti alltaf góða hesta og bauð hann mér oft á hestbak. Við munum líka þegar hann kom stundum á sunnudagsmorgnum og tók son okkar, tveggja ára, með sér í gegningarnar, var það vel þegið af öllum. En nú er níutíu ára lífsgöngu lokið, ekki alltaf þrautalausri, en hann má vera stoltur af því sem hann afrek- aði á langri ævi. Ég þakka honum frændsemi og vináttu og ekki má gleyma söngnum sem var honum ástríða og ávallt gleði þegar brostið var í söng á góðum stundum. Fjölskyldu og afkomendum er vottuð samúð á erfiðri stund. Minningin um kæran frænda lifir. Kristján Þormar Gíslason. Í dag er kvaddur hinstu kveðju aldinn höfðingi og góð- vinur, Kristján Jónsson á Hellu, eða Stjáni eins og hann var kallaður meðal vina sinna. Hann hafði lifað langa ævi þegar að kallinu kom, fyllt níu tugi ára. Lengst af bjó hann að góðri heilsu utan síðustu mánuðina sem hann bjó í skjóli dóttur sinnar og tengda- sonar. Stjáni flutti sem ungur maður að Hellu með fjölskyldu sína og þar var starfsvettvang- ur hans í pakkhúsi Kaup- félagsins Þórs, lengst af sem forstöðumaður, allt þar til hann fór á eftirlaun. Um tíu ára skeið vorum við samstarfs- menn og það var ánægjulegt að fylgjast með hversu vel hann rækti sitt starf, hafði metnað fyrir góðri afkomu sinnar deildar og var í góðu sambandi við viðskiptavinina. Stjáni hafði skemmtilega nær- veru og létta lund. Enda var það svo að þegar hann fór á mannfagnaði safnaðist fólk gjarnan í kringum hann og vini átti hann marga á öllum aldri. Hann stundaði hesta- mennsku af krafti allt fram á níræðisaldurinn. Þegar honum fannst jafnaldrar sínir farnir að daprast fór hann að stunda útreiðar með okkur nokkrum strákum, sem vorum um fjórð- ungi aldar yngri en hann sjálf- ur, en gjarnan var það samt svo, að hann var mesti strák- urinn í hópnum. Um áratuga skeið fór þessi hópur árlega að heimsækja góðvini í Odda- hverfi á páskum og þá var jafnan glatt á hjalla og brostið í söng. Stjáni var afburðasöng- maður og kunni ógrynni af lögum og textum. Fyrir nokkr- um árum þegar hann var kom- inn nokkuð yfir áttrætt vorum við báðir staddir í sextugsaf- mæli góðs vinar. Þegar vel var liðið á samkvæmið stóð gamli maðurinn upp og söng einsöng kvæðið um Dísu. Það mátti heyra saumnál detta meðan á flutningnum stóð og að honum loknum var vel fagnað. Þótti þetta ótrúlega vel gert hjá svo öldruðum manni. Stjáni gat verið stríðinn og stundum varð hann fyrir slíku sjálfur. Fyrir margt löngu var hjá honum uppátækjasamur sumarstrák- ur í pakkhúsinu. Sá ákvað einn daginn að eyða hádegishléinu sínu í að hrekkja karlinn. Þeg- ar Stjáni var farinn heim í mat, tók stráksi sig til og smalaði nokkrum rollum úr nágrenninu inn í pakkhúsið og þaðan inn á skrifstofuna hjá Stjána. Faldi sig að því loknu á bak við stæðu af fóðurpokum og beið átekta. Um eittleytið mætti Stjáni með gest sem hann ætlaði að sýna skrifstof- una sína, en þar blasti við þeim ófögur sjón. Það var vott í veðri, rollurnar rennandi blautar og búnar að gera þarf- ir sínar út um allt gólf og ekki sáust handa skil fyrir gufu. Þennan daginn fannst Stjána þetta langt frá því að vera sniðugt uppátæki. En þegar frá leið var þessi atburður oft rifjaður upp á góðum stundum og þá hló hann manna hæst að tiltækinu. Ég vil við leiðarlok þakka Stjána fyrir samfylgd- ina. Börnum hans og fjölskyld- um þeirra sendi ég innilegar samúðarkveðjur. Guðmundur Einarsson. Kristján Jónsson líka bíða eftir sér. Hann var ekki tilbúinn frekar en við hin að kveðja. Elsku Stína, Árni, Gunni, Raggi, Lilja Sif og barnabörn, ég og mín fjölskylda sendum okkar innilegustu samúðar- kveðjur en líka þakklæti fyrir að geta talið okkur til vina svo góðs manns. Minning hans er ljós sem lifir. Sigríður A. Pálmadóttir og fjölskylda. Kveðja frá Golfklúbbi Skagafjarðar Með fáum orðum kveðjum við góðan félaga sem lést 11. maí sl. aðeins 73 ára að aldri. Guðmundur Gunnarsson hef- ur verið einn af okkar góðu fé- lagsmönnum um langt skeið. Hann hefur starfað fyrir klúbb- inn og verið fús til að rétta fram hjálparhönd þegar þurft hefur á að halda. Guðmundur spilaði reglulega golf með félögum sín- um í klúbbnum og var fé- lagsskapurinn honum mikilvæg- ur og eitt af hans aðaláhugamálum. Guðmundur var einn af samheldnum hópi karlmanna sem spila alltaf kl. 13:00 alla virka daga á sumrin á Hlíðarendavelli og gaman hefur verið að fylgjast með þessum áhugasama hópi fara hvern ein- asta dag af stað á mínútunni eitt, nema Guðmundur var oft með seinni skipunum, hljóp á eftir hollinu en gleymdi aldrei að segja „góðan og blessaðan daginn“ þegar hann hljóp framhjá fólki á bílastæðinu. Hópurinn hefur spilað í golf- hermi á veturna og þar naut Guðmundur sín vel. Guðmundur var manna fyrstur að mæta á æfingasvæðið á vorin og lét veðrið ekki á sig fá. Hann naut þess einnig að spila golf erlendis með fjölskyldunni, eins og t.d. á Spáni og í Danmörku þar sem tveir synir þeirra hjóna búa. Guðmundur var ljúfmenni og reglusamur og gaf sig að fólki og leitaði eftir fréttum. Hann gaf sig einnig að börnunum á vellinum með hlýlegu brosi og orðaskiptum. Ég vil fyrir hönd félaga í GSS senda eftirlifandi eiginkonu, sonum og ástvinum innilegar samúðarkveðjur. Minningin um góðan félaga lifir. F.h. Golfklúbbs Skagafjarðar, Sigríður Svavarsdóttir formaður.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.