Morgunblaðið - 20.05.2022, Síða 29

Morgunblaðið - 20.05.2022, Síða 29
MENNING 29 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 20. MAÍ 2022 Nánari upplýsingar um sýningartíma á sambio.is TRYGGÐU ÞÉR MIÐA INNÁ SÝND MEÐ ÍSLENSKU TALI STÓRKOSTLEG NÝ FJÖLSKYLDUMYND ÚR TÖFRAHEIMI HARRY POTTER. U S A TO D AY 72% Empire Rolling StoneLA Times BENEDICT CUMBERBATCH ELIZABETH OLSEN chiwetel ejiofor BENEDICT WONG xochitl gomez MICHAEL STÜHLBARG RACHEL MCadams Miðstöð íslenskra bókmennta hefur tilkynnt um fyrri úthlutun ársins í styrki til þýðinga á íslensku. Að þessu sinni voru tæplega 11 millj. kr. veittar í 30 styrki sem er sambæri- legt við úthlutunina á sama tíma í fyrra. Þar af eru 13 verk sem teljast til myndríkra barna- og ungmenna- bóka. Þýtt er úr ensku, frönsku, þýsku, hollensku og spænsku. Kennir margra grasa 900.000 króna styrk hljóta: - Putin’s People eftir Catherine Belton sem Elín Guðmundsdóttir þýðir og Ugla útgáfa gefur út. - The Kingdom of the Wicked eftir Anthony Burgess sem Helgi Ingólfsson þýðir og Ugla útgáfa gefur út. 750.000 kr. hlýtur: - The Ungrateful Refugee. What Immigrants Never Tell You eftir Dina Nayeri sem Bjarni Jónsson þýðir og Angústúra gefur út. 700.000 kr. hlutu: - Violeta eftir Isabel Allende sem Sigrún Á. Eiríksdóttir þýðir og Forlagið gefur út. - Dune eftir Frank Herbert sem Dýrleif Bjarnadóttir og Kári Emil Helgason þýða og Partus forlag gefur út. 600.000 kr. hlutu: - Paradise eftir Abdulrazak Gurnah sem Helga Soffía Einars- dóttir þýðir og Angústúra gefur út. - Free eftir Lea Ypi sem Eyrún Edda Hjörleifsdóttir þýðir og Forlagið gefur út. - Dostoevsky in Love eftir Alex Christofi sem Áslaug Agnarsdóttir þýðir og Ugla útgáfa gefur út. 500.000 kr. hlýtur: - Paradísarmissir eftir John Milton sem Jón Erlendsson þýðir og Forlagið gefur út. Myndríkar barna- og ungmennabækur 450.000 kr. styrk hlýtur: - Loki: a Bad God’s Guide to Being Good eftir Loui Styowell sem Sólveig Sif Hreiðarsdóttir þýðir og Kver bókaútgáfa gefur út. 300.000 kr. hlýtur: - The Boy, the Mole, the Fox and the Horse eftir Charlie Mackesy sem Harpa Rún Kristjánsdóttir þýðir og Króníka gefur út. 200.000 kr. hljóta m.a.: - The Bolds Go Wild eftir Julian Clary sem Magnús Jökull Sigurjóns- son þýðir og Ugla útgáfa gefur út. - Gangsta Granny Strikes Again eftir David Walliams sem Guðni Kolbeinsson þýðir og BF útgáfa gefur út. 150.000 kr. hlýtur: - Le Corps humain eftir Joëlle Jolivet sem Sverrir Norland þýðir og AM forlag gefur út. 100.000 kr. hljóta m.a.: - Les germanes Crostó i el mis- teri dels llobarros eftir Anna Cabeza sem Ásmundur Helgason þýðir og Drápa gefur út. - Dinosaures eftir Bastien Cont- raire sem Sverrir Norland þýðir og AM forlag gefur út. - Dog Man and Cat Kid eftir Dav Pilkey sem Sigurgeir Orri Sigur- geirsson þýðir og BF útgáfa gefur út. Heildarlista styrkja má sjá á vef Miðstöðvarinnar, islit.is. Tæplega 11 millj- ónir til 30 þýðinga - Þýtt úr m.a. ensku og hollensku Dina Nayeri Abdulrazak Gurnah Joëlle Jolivet Catherine Belton Minjasafnið á Akureyri hlaut á alþjóðlega safnadeginum Íslensku safnaverðlaunin þegar þau voru veitt í 21. sinn í vikunni. Íslands- deild Alþjóðaráðs safna (ICOM) og Félag íslenskra safna og safn- manna (FÍSOS) standa saman að verðlaununum sem eru viðurkenn- ing veitt annað hvert ár fyrir fram- úrskarandi starfsemi hérlendis. Í rökstuðningi valnefndar segir: „Minjasafnið á Akureyri hefur á að skipa mjög hæfu starfsfólki sem af áhuga og metnaði hefur skipað því í fremstu röð minjasafna. Safnið hefur um árabil staðið mjög vel að fræðslu fyrir öll skólastig og skap- að gott samstarf við skóla, uppeld- isstofnanir og fleiri stofnanir og haldið fjölda fagnámskeiða fyrir nágrannasöfnin. Safnið hefur tekið virkan þátt í Eyfirska safnaklas- anum frá stofnun hans árið 2005 og lagt mikla rækt við samstarf, með áherslu á alla aldurshópa. Minja- safnið á Akureyri er m.a. í sam- starfi við Virk, Vinnumálastofnun, Fangelsismálastofnun og Akureyr- arbæ. Í því samstarfi sinnir safnið vel samfélagslegu hlutverki sínu og aðstoðar einstaklinga við að koma jafnvægi á líf sitt um leið og það Í tengslum við samfélagið Morgunblaðið/Árni Sæberg Gleði Fulltrúar Minjasafnsins á Akureyri tóku við verðlaununum í vikunni. styrkir eigin starfsemi. Safnið miðlar eyfirskum menningararfi með ýmsum hætti, bæði í útgáfu og sýningum á Akureyri: í Kirkju- hvoli, í Nonnahúsi, Davíðshúsi og Friðbjarnarhúsi. Þá hefur Minja- safnið á Akureyri, samkvæmt samningi við Þjóðminjasafn Íslands, umsjón með gamla torf- bænum í Laufási og sýningahaldi þar. […] Það er mat valnefndar að Minjasafnið á Akureyri haldi vel „lifandi“ tengslum milli svæðis- bundins menningararfs og samtím- ans með vel skipulagðri starfsemi og hafi margsýnt hvers samfélags- lega rekin minjasöfn eru megnug og mikilvæg þegar þau eru vel mönnuð og vel er haldið utan um þau. Áhersla á samfélagsleg gildi og samstarf við hina ýmsu ólíku hópa og aðila skipar Minjasafninu á Akureyri í hóp fremstu safna á Íslandi í dag.“ - Minjasafnið á Akureyri hlaut Íslensku safnaverðlaunin - Sýnir „hvers samfélagslega rekin minjasöfn eru megnug“ Vortónleikar Vocal Project verða haldnir í Guðríðarkirkju í kvöld kl. 20 und- ir stjórn Gunnars Ben. „Það er óhætt að segja að þetta verði sann- kölluð tónlistar- veisla, en lög kvöldsins koma úr öllum áttum; frá Rammstein til Spice Girls, og alls konar þar á milli. Lögin eiga það þó sameigin- legt að gleðja kórinn, og við vonum að þau muni gleðja áhorfendur jafn mikið,“ segir í tilkynningu. Vortónleikar Vocal Project í kvöld Gunnar Ben. Haukur Ingvars- son, bókmennta- fræðingur og rit- höfundur, ræðir tíma kalda stríðs- ins í Reykjavík í Mengi í kvöld kl. 21. Haukur hefur sl. ár rannsakað opinbert og óopinbert menn- ingarstarf Bandaríkjamanna á Íslandi og ætl- ar að segja sögur af menningar- starfi Bandaríkjamanna allt frá tímum seinni heimsstyrjaldar og fram á sjötta áratuginn. Aðgangur er ókeypis. Kalt stríð við Laugaveg rætt Haukur Ingvarsson Magnús Jóhann, píanóleikari, tón- skáld og upp- tökustjóri, kem- ur ásamt félögum sínum, þeim Tuma Árnasyni saxó- fónleikara og trommuleikar- anum Magnúsi Trygvasyni Eli- assen, fram á lokatónleikum vor- dagskrár Jazzklúbbsins Múlans á Björtuloftum í Hörpu í kvöld kl. 20. Á efnisskránni er tónlist af plötunni Without Listening sem Magnús gaf út 2020 við góðar viðtökur. Magnús Jóhann á Múlanum í Hörpu Magnús Jóhann

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.