Morgunblaðið - 20.05.2022, Page 32
STILLANLEG
HJÓNARÚM
MEÐ BODYPRINT DÝNU
WWW.SVEFNOGHEILSA.IS
Svefn heilsa&
PANDORA
STILLANLEGUR
HÆGINDASTÓLL
VANDAÐAR
SÆNGUROG
KODDAR Í
ÚRVALI
EITT MESTA
ÚRVAL AF
HEILSUDÝNUM
Á LANDINU
ÚRVALAF
VÖNDUÐUM
HEILSURÚMUM
GERIÐ GÆÐA- OG
VERÐSAMANBURÐ
Leikarinn Guðjón Davíð Karlsson var í gær útnefndur
bæjarlistamaður Kópavogs árið 2022. „Hann er ekki
einungis einn af eftirlætisleikurum þjóðarinnar heldur
hefur hann skipað sér sess sem handritshöfundur fyrir
leikhús og sjónvarp og leikstýrt með eftirminnilegum
hætti leikritum og sjónvarpsþátt-
um. Hann mun nú deila hæfi-
leikum sínum með Kópavogsbú-
um á komandi mánuðum,“ er
haft eftir Karen Elísabetu Hall-
dórsdóttur, formanni lista- og
menningarráðs Kópavogsbæjar, í
tilkynningu. Styrkupphæð bæj-
arlistamanns er 1,5 milljónir
króna. „Ég er ótrúlega stoltur
og ekki síst fullur þakk-
lætis. Ég er gríðarlega
spenntur að fá að vinna
með Kópavogsbæ að ein-
hverju einstaklega snið-
ugu og skemmtilegu verk-
efni,“ segir Guðjón Davíð.
Bæjarlistamaður Kópavogs 2022
FÖSTUDAGUR 20. MAÍ 140. DAGUR ÁRSINS 2022
Sími: 569 1100
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is mbl.is: netfrett@mbl.is
Í lausasölu 776 kr.
Áskrift 8.383 kr. Helgaráskrift 5.230 kr.
PDF á mbl.is 7.430 kr. iPad-áskrift 7.430 kr.
Pavel Ermolinskij varð Íslandsmeistari í körfubolta í
áttunda skipti í fyrrakvöld þegar hann hjálpaði Vals-
mönnum að vinna sinn fyrsta meistaratitil í 39 ár.
„Gleðin yfir að vinna titil er alltaf sú sama,“ segir
Pavel, sem ætlar að fylgjast með úrslitaleikjunum í
handboltanum áður en hann tekur ákvörðun um fram-
haldið hjá sér á ferlinum. »27
Gleðin að vinna titil alltaf sú sama
ÍÞRÓTTIR MENNING
Steinþór Guðbjartsson
steinthor@mbl.is
Das-bandið, hljómsveit Hrafnistu,
hefur haldið dansleiki vikulega á
Hrafnistu í Hafnarfirði síðan árið
2000 nema hvað böllin féllu niður
vegna samkomutakmarkana þegar
kórónuveirufaraldurinn gerði fólki
lífið leitt. Nú er allt komið í fullan
gang og böllin á sínum stað klukkan
13.30 til 14.30 á föstudögum.
Böðvar Magnússon hefur haldið
utan um bandið frá upphafi. Hann
byrjaði að vinna hjá Hrafnistu um
mitt ár árið 2000, hélt utan um fé-
lagsstarfið og liður í því var að sjá
um ball á föstudögum. „Ég byrjaði
einn að spila á harmoniku og notaði
geisladiska í bland. Fljótlega fann ég
trommuleikara, sem var heimilis-
maður hérna, og við spiluðum saman
í dálítinn tíma. Þetta hlóð utan á sig,
gamlir kunningjar sem spiluðu aðal-
lega á harmoniku fóru að hringja í
mig og spyrja hvort þeir mættu
koma í bandið þegar þeir væru
komnir á aldur, með þeim árangri að
mest hafa 15 manns verið í hljóm-
sveitinni en nú erum við átta til tíu
að jafnaði.“
Fastur liður og mikil gleði
Ballið hefur verið fastur liður í
dagskránni með fyrrnefndum
undantekningum. „Þetta er svo vin-
sælt að það má ekki fella það niður,“
leggur Böðvar áherslu á. Reyndar
hafi dregið úr dansinum undanfarin
ár og segir hann ástæðuna þá að áð-
ur hafi íbúarnir verið mun betur á
sig komnir, en nú þegar þeir flytji
inn á stofnunina séu þeir mun lasn-
ari en áður. „Þegar ég byrjaði á
þessu var mjög mikið dansað,“ segir
Böðvar og bætir við að hann hafi
brugðist við breyttu fyrirkomulagi.
„Ég er með það sem ég kalla hjóla-
stólarallí og grindahlaup, hvet fólk
til þess að fara út á gólfið með
göngugrindurnar eða í hjólastól-
unum sínum og því hefur verið vel
tekið, er mjög vinsælt.“
Lagavalið miðast að mestu við þau
lög sem voru vinsæl upp úr 1960 og
fram á áttunda áratuginn. „Við höld-
um okkur svolítið við lögin sem voru
spiluð í sjómannaþáttum og óskalög-
um sjúklinga í útvarpinu, en höfum
dregið úr gömlu dönsunum, því fólk
er hætt að dansa ræl og skottís eins
og það gerði í upphafi. Nú eru það
dansarnir sem voru vinsælir í
Klúbbnum, í Glaumbæ, á Hótel Sögu
og víðar.“
Fram að faraldrinum spilaði Das-
bandið á árlegum sjómannadegi í
Hafnarfirði, kom oft fram í félags-
miðstöðvum og hélt eitt sveitaball, á
Borg í Grímsnesi sumarið 2013.
„Það var troðfullt hús og rosalega
gaman en því miður höfum við ekki
getað endurtekið leikinn.“
Eðlilega hafa verið miklar manna-
breytingar í bandinu en Böðvar seg-
ir að það lifi góðu lífi. „Bandið er
ekki dautt. Enginn hefur verið beð-
inn að koma í það og þeir sem hafa
spilað og þeir sem hafa hlustað hafa
haft mjög gaman af því. Ég er mjög
ánægður með báða þessa hópa.“
Stólarallí og grindahlaup
- Das-bandið heldur uppi fjörinu í Hafnarfirði á föstudögum
Gleði Íbúar bíða spenntir eftir því að dansinn byrji. Tækni Hjálpartækin koma sér vel á dansgólfinu.
Morgunblaðið/Eggert
Das-bandið á Hrafnistu Fremri röð frá vinstri: Kári Pálsson, Theódór Þráinn Bogason, Svanhildur Theódóra
Valdimarsdóttir, Jón Berg Halldórsson, Valbjörn Guðmundsson, Eyþór Guðmundsson og Stígur Herlufsen.
Fyrir aftan eru Magnús R. Aadnegard trommari og Böðvar Magnússon, sem leikur á píanó og syngur.