Morgunblaðið - 25.05.2022, Blaðsíða 10
10 FRÉTTIR
Innlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 25. MAÍ 2022
w w w. i t r. i s
S ý num hver t ö ð r u tilli t s s emi
DAGMÁL
Stefán E. Stefánsson
ses@mbl.is
Tuttugu ár eru nú liðin frá því að
Andri Þór Guðmundsson réðst til
Ölgerðar Egils Skallagrímssonar
sem fjármálastjóri fyrirtækisins.
Að öllu óbreyttu mun hann í næsta
mánuði sjá gamlan draum rætast.
Þá er stefnt á skráningu fyrir-
tækisins í Kauphöll Íslands. Hann
segir við þau tímamót að sér hafi
lengi fundist Íslendingar eiga það
mikið í fyrirtækinu og vörum þess,
að rétt væri að gefa almenningi
kost á að eiga með beinum hætti
hlut í fyrirtækinu. Andri Þór er
gestur Dagmála í dag, þar sem
hann ræðir skráningu fyrirtækisins
á markað, tækifærin í framtíðinni
og einnig vegferðina til dagsins í
dag.
Á föstudag kemur í ljós hversu
margar áskriftir hafa borist í tæp-
lega 30% hlut í fyrirtækinu en fag-
fjárfestum og almenningi býðst út
þessa viku að skrá sig fyrir hlutum
sem núverandi eigendur hyggjast
láta af hendi í jöfnum hlutföllum.
Andri Þór segist hafa mikla trú á
framtíð fyrirtækisins og vill stýra
því áfram eftir skráningu á mark-
að. Athygli vekur að frá árinu 2002
hefur vörusala vaxið að jafnaði um
12% á ári og EBITDA hefur sömu-
leiðis vaxið um svipað hlutfall eða
13%. Bendir Andri Þór á að þetta
hafi bæði gerst með innri vexti og
kaupum á fyrirtækjum og umboð-
um.
Eigin vörur vaxið
Á síðustu árum hefur hlutdeild
þeirra vara sem fyrirtækið fram-
leiðir sjálft vaxið til muna og segir
Andri Þór að það vitni um mögu-
leika fyrirtækisins. Enn telur hann
færi á markaði til sameininga eða
uppkaupa en vöruþróunin muni
sömuleiðis skipta sköpum.
Nýverið tók Ölgerðin í notkun
nýja verksmiðju sem eykur fram-
leiðslumöguleika fyrirtækisins til
muna, ekki síst þegar kemur að 33
cl áldósum sem eru mjórri og
hærri en hinar klassísku sem
geymt hafa Appelsínið og Pepsi um
langan aldur. Segir Andri Þór að
markaðurinn kalli eftir þessum um-
búðum og því kalli sé einfaldlega
svarað. Upplýsir hann í viðtalinu í
fyrsta sinn að hinn vinsæli koffein-
og heilsudrykkur Collab verði boð-
inn í þessum umbúðum innan
skamms og hætti þá að birtast
neytendum í hinum klassíska bún-
ingi sem áður var minnst á.
Ekki óheppilegur tímapunktur
Miklar sviptingar hafa verið á
eignamörkuðum að undanförnu.
Ekki aðeins vegna stríðsátaka í
Úkraínu, eftirleiks heimsfaraldurs
og síhækkandi verðbólgu í flestum
þróuðum ríkjum heims. Andri Þór
segir að þessar aðstæður valdi sér
ekki ugg, nú þegar til stendur að
selja um 7,5 milljarða hlut í fyrir-
tækinu sem hann hefur verið við
stjórnvölinn hjá í tvo áratugi, fyrst
sem fjármálastjóri og svo forstjóri.
Hann bendir á að fyrirtækið sé
reist á mörgum grunnstoðum sem
tryggi stöðugleika þótt gefi á bát-
inn á ákveðnum sviðum. Einnig
megi segja að velta fyrirtækisins sé
svo að segja verðtryggð í sögulegu
samhengi.
Vaxtarmöguleikar
enn fyrir hendi
- Ölgerðin á markað - Collab á leið í nýjar og mjórri dósir
Dagmál Andri Þór Guðmundsson er gestur Stefáns Einars í Dagmálum.
Sigtryggur Sigtryggsson
sisi@mbl.is
Þyrla Landhelgisgæslunnar, TF-
LIF, stendur nú spaðalaus við flug-
skýli Gæslunnar á Reykjavíkur-
flugvelli. Þessi farsæla þyrla til ára-
tuga hefur lokið hlutverki sínu sem
björgunartæki Íslendinga og verður
brátt sett á sölu.
Leiguþyrlurnar, sem komu til
landsins á árunum 2019-2021 af
gerðinni Airbus Super Puma H225,
tóku við af eldri gerð þyrlna Land-
helgisgæslunnar, upplýsir Ásgeir
Erlendsson upplýsingafulltrúi.
TF-LIF hefur ekki verið í rekstri
Gæslunnar frá árinu 2020.
Þyrlan var smíðuð árið 1986 og
var keypt til landsins árið 1995.
Undanfarnar vikur hefur verið unn-
ið að því að gera þyrluna tilbúna fyr-
ir sölu. Á næstu dögum er gert ráð
fyrir að TF-LIF verði flutt með
flutningabíl frá Reykjavíkurflugvelli
í geymslu í flugskýli á Keflavíkur-
flugvelli. Þar verður þyrlan geymd
þar til hún verður seld. Ríkiskaup
koma til með að annast söluferlið,
segir Ásgeir.
Að sögn Ásgeirs er engin tölfræði
til um það hve mörgum mannslífum
TF-LIF hefur bjargað. „Ég held að
af mörgu mögnuðu sem TF-LIF kom
að þá verði nokkrir dagar í mars ár-
ið 1997 aldrei toppaðir,“ segir Ás-
geir. Á sex dögum var 39 mönnum í
sjávarháska bjargað um borð í TF-
LIF. Fyrst var 19 mönnum bjargað
af flutningaskipinu Víkartindi, þeg-
ar skipið strandaði austur af Þjórs-
árósi. Næst bjargaði áhöfn þyrl-
unnar 10 skipverjum af flutninga-
skipinu Dísarfelli eftir að skipið
fórst 100 sjómílur suðaustur af
Hornafirði. Þeir höfðu verið í sjón-
um í tvo klukkutíma þegar þeim var
bjargað. Er þetta einhver frækileg-
asta björgun Íslandssögunnar. Loks
var 10 mönnum bjargað af fiskiskip-
inu Þorsteini GK, sem rak vélarvana
upp í Krísuvíkurberg. Að bjarga 39
sjómönnum á sex dögum var ein-
stakt afrek.
Við björgun úr Víkartindi og Dís-
arfelli var Benóný Ásgrímsson flug-
stjóri og Auðunn Kristinsson sig-
maður. Við björgun úr Þorsteini GK
var Páll Halldórsson flugstjóri og
Hjálmar Jónsson sigmaður.
Morgunblaðið/sisi
Þyrlan í dag Spaðalaus á Reykjavíkurflugvelli og bíður þess að verða flutt.
TF-LIF verður
brátt sett á sölu
- Var lengi aðalbjörgunarþyrla Ís-
lendinga - 39 bjargað á sex dögum
Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir
gerir ýmsar athugasemdir við nýtt
frumvarp til sóttvarnalaga í umsögn
sem hann hefur sent Alþingi. Hann
segir m.a. að skýra þurfi betur
stjórnskipulega stöðu sóttvarna-
læknis innan
embættisins. „Ég
hef engar athuga-
semir við að ráð-
herra skipi sótt-
varnalækni en
spurningin sem
vaknar er hvort
þá sé hægt að tala
um embætti sótt-
varnalæknis? Það
þarf að mínu mati
að skýra betur
hver sé stjórnskipuleg staða sótt-
varnalæknis innan embættis land-
læknis. Mun sóttvarnalæknir ráða til
sín sitt starfsfólk eða verður það á
ábyrgð landlæknis? Mun sóttvarna-
læknir hafa til umráða sinn eigin
fjárlagalið?“ spyr Þórólfur.
Fagaðila vantar
Í frumvarpinu er einnig fjallað um
nýja farsóttanefnd sem á að koma í
stað sóttvarnaráðs. Hefur Þórólfur
áhyggjur af skipan nefndarinnar
vegna þess að þar vanti fagaðila með
sérþekkingu á smitsjúkdómum og
faraldsfræði.
„Hvernig á að tryggja að ráðlegg-
ingar til ráðherra verði á faglegum
nótum þegar einungis einn faglegur
aðili (sóttvarnalæknir) verður í
nefndinni? Hvað gerist ef sóttvarna-
læknir lendir í minnihluta varðandi
skilgreiningu á samfélagslegum
hættulegum sjúkdómi og ráðlegg-
ingum til ráðherra? Getur sóttvarna-
læknir sent eigin tillögur ef honum
líkar ekki niðurstaða nefndarinnar?“
spyr hann.
Hefur áhyggjur
af farsóttanefnd
- Gerir athugasemdir við nýtt frumvarp
Morgunblaðið/Sigurður Ragnarsson
Sóttvarnir Sóttvarnalæknir hefur
áhyggjur af skipan farsóttanefndar.
Þórólfur
Guðnason