Morgunblaðið - 25.05.2022, Blaðsíða 33
MENNING 33
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 25. MAÍ 2022
Sviðslistahópurinn Fullorðið fólk
frumsýnir einleikinn Stelpur og
stráka eftir breska leikskáldið
Dennis Kelly í Gaflaraleikhúsinu
annað kvöld kl. 20. Leikstjóri er An-
nalísa Hermannsdóttir, íslenska
þýðingu gerði Matthías Tryggvi
Haraldsson og Björk Guðmunds-
dóttir leikur. Magnús Thorlacius
hannar lýsingu og Andrés Þór Þor-
varðarson hljóðmynd.
Einleikurinn, sem á frummálinu
heitir Girls and boys, var fyrst sett-
ur upp í Royal Court Theatre í
London 2018 við góðar viðtökur. Í
verkinu segir frá því hvernig
„óvænt stefnumót á flugvelli leiðir
af sér ákaft, ástríðufullt, sjóðandi
heitt ástarsamband. Fljótlega tekur
hið eðlilega fjölskyldulíf við. Þar til
heimurinn þeirra fer að molna í
sundur og hlutirnir taka óhugnan-
lega stefnu.“ Verkið tekur um tvo
klukkutíma í flutningi.
Stelpur og strákar í Gaflaraleikhúsinu
Ljósmynd/Gunnlöð Jóna Rúnarsdóttir
Einleikur Björk Guðmundsdóttir leikur.
Valgerður Jónsdóttir, tónlistar-
kona og bæjarlistamaður Akraness
2021-2022, stendur fyrir opinni tón-
listardagskrá í Tónlistarskólanum
á Akranesi á morgun, fimmtudag,
milli kl. 13.00 og 15.30. Þar koma
auk hennar m.a. fram Skólakór
Grundaskóla og Karlakórinn
Svanir. Samkvæmt upplýsingum
frá Valgerði hefur hún nýtt starfs-
ár sitt sem bæjarlistamaður til út-
gáfustarfsemi. Í desember 2021
kom út nótnabókin Tónar á ferð –
söngbók með tónlist eftir Valgerði í
útsetningum hennar fyrir barna- og
ungmennakóra og í febrúar gaf
hún ásamt fjölskyldu sinni út
geisladisk með íslenskum þjóð-
lögum. Nýlega birti Valgerður síð-
an fjögur lög sín á YouTube, þ.e.
„Áraskiptin“, „Sumardraumur“,
„Vinnubæn græðara“ og „Vetrar-
ljós“. Aðgangur er ókeypis á dag-
skránni á morgun en tekið er við
frjálsum framlögum og rennur all-
ur ágóði til Ljóssins.
Opin tónlistardagskrá bæjarlistamanns
Ljósmynd/Sigtryggur Ari Jóhannsson
Við píanóið Valgerður Jónsdóttir.
Ný stikla fyrir væntanlega kvik-
mynd um Þór þrumuguð í Marvel-
útgáfu, Thor: Love and Thunder,
hefur nú verið birt á netinu og má í
henni sjá leikarann Christian Bale
grámálaðan í hlutverki illmennisins
Gorr the God Butcher, eða Gorrs
guðabana. Kvikmyndin verður
frumsýnd 8. júlí og er sú fjórða um
Marvel-Þór og önnur myndin sem
Taika Waititi leikstýrir um kapp-
ann. Þótti fyrri mynd Waititi, Thor:
Ragnarok, afar vel heppnuð og
binda aðáendur Þórs því miklar
vonir við þessa.
Gorr fyrrnefndur reynist hin
mikla ógn myndarinnar þar sem
hann hyggst útrýma öllum guðum.
Þarf Þór þá að leita aðstoðar vina
sinna. Waititi hefur látið þau um-
mæli falla um myndina að hún sé
það galnasta sem hann hafi nokk-
urn tíma gert og er þá mikið sagt.
Gráleitur Bale í hlutverki Gorr guðabana
Grámann Bale í hlutverki hins illa Gorrs.
Ungir einleikarar er yfirskrift tón-
leika Sinfóníuhljómsveitar Íslands
sem fram fara í Eldborg Hörpu í
kvöld kl. 19.30 undir stjórn Kornilios
Michailidis. Einleikarar og ein-
söngvarar á tónleikunum voru valdir
í samkeppni sem haldin var í sam-
starfi við Listaháskóla Íslands í
október 2021. Sigurvegarar í keppn-
inni að þessu sinni voru klarinettu-
leikarinn Birkir Örn Hafsteinsson,
trompetleikarinn Ingibjörg Ragn-
heiður Linnet og söngkonurnar
Hanna Ágústa Olgeirsdóttir og Þór-
gunnur Anna Örnólfsdóttir. Birkir,
Ingibjörg og Hanna koma fram á
tónleikum kvöldsins, en Þórgunnur
mun koma fram á næsta ári.
Á efnisskránni eru Idomoneo,
ballettsvíta eftir W.A. Mozart,
Klarínettukonsert í f-moll eftir Carl
Maria von Weber, Trompetkonsert
eftir Henri Tomasi, Siboney eftir
Ernesto Lecuona, Meine Lippen, sie
küssen so heiß úr Giudittu eftir
Franz Lehár, Cavatina úr Don Pas-
quale eftir Gaetano Donizetti og No
word from Tom úr The Rake’s Pro-
gress eftir Igor Stravinskí.
„Framtíð tónlistarlífs á Íslandi
hvílir á herðum þeirra ungu hljóð-
færaleikara og söngvara sem um
þessar mundir taka sín fyrstu skref
á stóra sviðinu. Það er sérstakt til-
hlökkunarefni þegar framúrskar-
andi ungmenni stíga fram sem ein-
leikarar með Sinfóníuhljómsveit
Íslands og njóta árangurs þrotlausr-
ar vinnu. Í salnum sitja fjölskylda og
vinir sem hafa fylgst með tónlistar-
náminu um margra ára skeið og
fagnaðarlætin í Eldborg eru aldrei
einlægari en á þessum skemmtilegu
og spennandi tónleikum,“ segir í til-
kynningu frá hljómsveitinni. Skóla-
kortshafar fá miða á tónleikana á
1.900 kr. hvar sem er í salnum.
Ungir einleikarar í kvöld
Efnileg Birkir Örn Hafsteinsson, Hanna Ágústa Olgeirsdóttir og Ingibjörg
Ragnheiður Linnet koma fram á tónleikunum Ungir einleikarar í kvöld.
Kvikmyndahátíðin í Cannes er
ekki bara dans á rósum, veislur
og vín heldur einnig vettvangur
mótmæla. Á föstudaginn var stóð
hópur kvenna fyrir mótmælum
fyrir frumsýningu írönsku mynd-
arinnar Holy Spider og var til-
gangurinn að vekja athygli á því
ofbeldi sem konur um allan heim
eru beittar. Konurnar héldu uppi
borða með nöfnum 129 kvenna í
Frakklandi sem þær sögðu hafa
verið myrtar frá því hátíðin hófst
í Cannes. Tveimur dögum fyrr
voru önnur mótmæli og sjónum
þá beint að kynferðisofbeldi. Var
þá meðfylgjandi mynd tekin en á
líkama konunnar hafði verið mál-
að „hættið að nauðga okkur“.
Eins og sjá má vissu frumsýning-
argestir ekki hvaðan á þá stóð
veðrið.
AFP/Loic Venance
Mótmæltu ofbeldi gegn konum
Angela Lansbury
hlýtur heiðurs-
verðlaun fyrir
ævistarf sitt þeg-
ar Tony-verð-
launin verða
afhent 12. júní.
Frá þessu greinir
The New York
Times. Lansbury
þreytti frumraun
sína á Broadway 1957. Sjö árum
síðar fór hún þar með hlutverk í
söngleiknum Anyone Can Whistle
eftir Stephen Sondheim, en hún átti
eftir að leika í fleiri verkum hans,
m.a. fara með hlutverk Momma
Rose í Gypsy og Mrs. Lovett í
Sweeney Todd. Lansbury hefur á
löngum og farsælum ferli unnið til
fimm Tony-verðlauna og verið til-
nefnd til Óskarsverðlauna þrisvar.
Þekktust er hún sennilega fyrir
hlutverk sitt í sjónvarpsþáttunum
Murder, She Wrote.
Lansbury heiðruð
fyrir ævistarfið
Angela Lansbury
Nánari upplýsingar um sýningartíma á sambio.is
TRYGGÐU ÞÉR
MIÐA INNÁ
“Top Gun: Maverick is outstanding.”
“Breathtaking”
“It’s the BEST MOVIE OF THE YEAR!”
“Might be the best movie in 10 years.”
“Top Gun: Maverick is fantastic.” “Best Action Sequel Of All Time”
“What going to the movies is all about”
“You must see this one in the theater.”
“a must see!”
U S A TO D AY
72%
Empire Rolling StoneLA Times
STÓRKOSTLEG NÝ FJÖLSKYLDUMYND
ÚR TÖFRAHEIMI HARRY POTTER.SÝND MEÐ ÍSLENSKU TALI
BENEDICT
CUMBERBATCH
ELIZABETH
OLSEN
chiwetel
ejiofor
BENEDICT
WONG
xochitl
gomez
MICHAEL
STÜHLBARG
RACHEL
MCadams
96%
Empire
The Playlist BBC The sun
Total FilmRogerEbert.com