Morgunblaðið - 25.05.2022, Síða 13

Morgunblaðið - 25.05.2022, Síða 13
hann sagði í ávarpi sínu á mánudag- inn að Úkraínumenn væru að gjalda sjálfstæði sitt og frelsi dýru verði. Kallaði Selenskí jafnframt eftir því að algjört útflutningsbann yrði sett á rússneska olíu. Robert Habeck, varakanslari og efnahagsráðherra Þýskalands, sagð- ist í fyrrakvöld vera bjartsýnn á að samkomulag um slíkt bann myndi nást á vettvangi Evrópusambandsins á næstu dögum, en Viktor Orbán, forsætisráðherra Ungverjalands, hefur sett sig á móti slíku banni, nema Ungverjar fái langa undan- þágu og háa styrki úr sjóðum Evr- ópusambandsins til þess að mæta af- leiðingum olíubannsins. Ólíklegt virtist hins vegar þrátt fyrir bjartsýni Habecks að Orbán myndi láta af afstöðu sinni, en hann ritaði Charles Michel, forseta leið- togaráðs ESB, bréf í vikunni, þar sem hann lagði til að olíubannið yrði ekki rætt á fundi ráðsins í næstu viku þar sem ekki væri líklegt að sameig- inleg niðurstaða myndi fást. Ummæli Kissingers fordæmd Henry Kissinger, fyrrverandi ut- anríkisráðherra Bandaríkjanna, ávarpaði einnig Davos-ráðstefnuna á mánudaginn. Lagði hann þar til að Úkraínumenn myndu gefa eftir land- svæði til þess að binda endi á innrás Rússa. Þá hvatti Kissinger einnig til þess að vesturveldin ættu að hætta að reyna að stuðla að ósigri Rúss- lands, og sagði hann það geta haft skelfilegar afleiðingar fyrir stöðug- leikann í Evrópu. Sagði hinn 99 ára gamli Kissinger, sem lengi hefur verið talinn einn af merkisberum svonefndrar „raunsæ- ishyggju“ í alþjóðastjórnmálum, jafnframt að best væri ef markalína vopnahlés væri miðuð við stöðuna eins og hún var fyrir upphaf innrás- arinnar. Tillögum Kissingers var tekið fá- lega í Úkraínu og sagði Mikhaíl Po- dalíak, ráðgjafi Selenskís, að Úkra- ínumenn væru of uppteknir á vígvellinum að verja frelsi sitt og lýð- ræði til þess að hlusta á hrædda menn í Davos. Þá sagði Garrí Kasp- arov, fyrrverandi heimsmeistari í skák og einn af andstæðingum Pút- íns, að afstaða Kissingers væri ekki bara siðlaus, heldur röng, þar sem sagan sýndi að einræðisherrar á borð við Pútín og Xi Jinping þyrftu alltaf á endanum átök til að viðhalda völdum sínum. „Þetta er ekki kalda stríðið,“ sagði Kasparov. Stela korni og selja í Sýrlandi Kúleba sakaði í gær Rússa um að stela korni frá Úkraínu og selja það annars staðar, en gervihnattamyndir frá Maxar-fyrirtækinu sem birtust í gær virtust renna stoðum undir þær ásakanir. Sýndu myndirnar rússnesk flutningaskip á Krímskaga, sem ver- ið var að hlaða með korni, áður en þau héldu til Sýrlands. David Beasley, framkvæmdastjóri matvælaaðstoðar Sameinuðu þjóð- anna, varaði í gær við því að ef ekki tækist að opna fyrir kornsendingar frá Úkraínu blasti hungursneyð við víða um veröld, þar sem landið fram- leiddi venjulega mat sem dygði fyrir 400 milljónir manna. Voru Evrópu- sambandið og Bretar sagðir leita leiða í gær til þess að koma um 20 milljón tonnum af korni landleiðina frá Úkraínu. AFP/Aris Messinis Bryndreki Úkraínskir hermenn á leið til átaka í Donbas-héraði. Bandaríkjastjórn lýsti því yfir í fyrradag að hún hygðist dreifa bólu- efni gegn apabóluveirunni til fólks sem væri nákomið þeim sem hefðu smitast, en nú þegar hafa eitt stað- fest og fjögur grunuð tilfelli komið upp vestanhafs. Eru öll tilfellin sögð hafa komið upp í karlmönnum sem hafi ferðasögu sem styðji við þá til- gátu að um apabólu sé að ræða. Ekki talin meira smitandi Útbreiðsla apabóluveirunnar nú hefur vakið grunsemdir um að hún hafi fundið leið til að vera meira smitandi, en fátt er þó sagt renna stoðum undir þá tilgátu. Í frétta- skýringu New York Times sagði til dæmis að ólíkt kórónuveirunni væri apabóluveiran stór og þung, og ætti hún því erfiðara um vik að berast langar vegalengdir í lofti. Þá hefur til þessa verið sjaldgæft að veiran berist manna á milli, þar sem helsta smitleið hennar sé snert- ing á milli fólks. Þó geti hún einnig borist með rúmfötum og klæðnaði sem fólk deili með sér. Ekki er hins vegar talið að veiran sé smitandi áður en einkenni hennar koma fram, ólíkt kórónuveirunni. Útbrotin sem fylgi apabólunni geti því hjálpað til við að halda útbreiðslu hennar í skefjum. AFP/Sóttvarnastofnun Bandaríkjanna/Brian W.J. Mahy Apabóla Þessi mynd var tekin árið 1997 við rannsókn á faraldri sem kom upp í Austur-Kongó og sýnir útbrot sem talin eru dæmigerð fyrir veiruna. FRÉTTIR 13Erlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 25. MAÍ 2022 Fjöldi skjala og ljósmynda, sem lek- ið hefur verið frá Xinjiang-héraði í Kína, þykir varpa nýju ljósi á þær aðferðir sem kínversk stjórnvöld hafa beitt gegn Úígúrum í héraðinu. Mannréttindasamtök hafa sakað kínversk stjórnvöld um að hafa sent rúmlega eina milljón Úígúra og aðra íslamska minnihlutahópa í landinu í fangabúðir í héraðinu en stjórnvöld þar segja búðirnar einungis ætlaðar til endurmenntunar og að fólk fari þangað sjálfviljugt. Fræðimaðurinn Adrian Zenz fékk hins vegar send til sín skjöl, sem fengin voru með tölvuinnbroti í opinberan gagnabanka í Xinjiang- héraði, sem benda til þess að harka- legum aðferðum hafi verið beitt í búðunum, og að helstu leiðtogar Kína, þar á meðal Xi Jinping, forseti landsins, hafi kallað eftir því að beita hörðum meðölum til að kveða niður trúarlega mótspyrnu í hér- aðinu. Skjölin eru t.d. sögð sýna að Zhao Kezhi, öryggismálaráðherra Kína, hafi sagt að rúmlega tvær milljónir manna í suðurhluta Xinjiang væru nú undir „alvarlegum áhrifum“ frá íslamskri öfgatrú. Fjöldi ljósmynda af föngum Þá eru rúmlega 5.000 ljósmyndir af fólki sem lögreglan í Xinjiang hef- ur handtekið, og benda gögnin til þess að hið minnsta 2.800 þeirra hafi verið færðir til búðanna. Sumir þeirra eru undir lögaldri, þar á með- al var hinn 17 ára gamli Zeytunigul Ablehet, sem var fangelsaður fyrir að hlusta á ólöglega ræðu, og hinn 16 ára gamli Bilal Qasim, en sök hans virðist hafa verið sú að vera skyldur öðrum sem höfðu verið hnepptir í varðhald. „Hin vænisjúka skynjun á ógn birtist í þessum skjölum, og sýnir hina innri réttlætingu á því hvers vegna það þarf að ráðast gegn heilli þjóð,“ sagði Zenz í upptöku sem fylgdi skjölunum, en hann starfar fyrir bandaríska minningarstofnun um fórnarlömb kommúnismans. Skjölin voru birt í gær í fjölda fjölmiðla víða um heim, þar á meðal breska ríkisútvarpinu BBC, Der Spiegel og Le Monde. Veita þau einnig innsýn í líf fólks sem býr í einangrunarbúðunum. Þar á meðal voru ljósmyndir sem sýndu lögreglumenn beita kylfum til að halda aftur af föngum, sem voru með hettur fyrir andlitinu og hand- járnaðir. Gögnin sögð hneykslanleg Liz Truss, utanríkisráðherra Bretlands, sagði í gær að það sem kæmi fram í gögnunum væri hneykslanlegt. Hvatti hún kínversk stjórnvöld til þess að veita Michelle Bachelet, mannréttindafulltrúa Sameinuðu þjóðanna, óhindraðan aðgang að héraðinu, svo að hún gæti rannsakað staðreyndir málsins en hún er nú í umdeildri heimsókn til héraðsins. Annalena Baerbock, utanríkis- ráðherra Þýskalands, sagði í gær við Wang Yi, utanríkisráðherra Kína, að gögnin kölluðu á óháða og gegnsæja rannsókn á meintum mannréttinda- brotum gegn Úígúrum. Kínverska utanríkisráðuneytið fordæmdi hins vegar gagnalekann í gær. Sagði Wang Wenbin, tals- maður ráðuneytisins, að gögnin væru „hraðsoðin saman“ af „and- kínverskum öflum“ sem vildu rægja Xinjiang-héraðið. Sakaði Wenbin jafnframt þá fjölmiðla sem birtu gögnin um að dreifa lygum og orð- rómi. Byggt á gervihnattamyndum sem Xinjiang Data- verkefni hugveitunnar Australian Strategic Policy Institute fór yfir og birti í september 2020 Kínversk stjórnvöld segja búðirnar vera endurmenntunarbúðir og að þau vilji draga úr áhrifum Íslamista í kjölfar alvarlegra hryðjuverka Meintar einangrunarbúðir í Xinjiang Heimild: ASPI 250 km XINJIANG KASAKSTAN MONGÓLÍA KIRGISTAN KÍNA Viðbyggingar frá júlí 2019 - júlí 2020 Grunur um fangabúðir Urumqi Turfan AksuKashgar Hotan Ljósmyndir og skjöl varpi nýju ljósi á fangabúðirnar - Bachelet í umdeildri heimsókn - „Lygar og orðrómur“

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.