Morgunblaðið - 25.05.2022, Qupperneq 25

Morgunblaðið - 25.05.2022, Qupperneq 25
MINNINGAR 25 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 25. MAÍ 2022 duglegasti maður sem ég veit um. Amma fæddist ekki með silf- urskeið í munni og hafði lært að spara og nýta hluti og predikaði mikilvægi þess að eiga fyrir öllu sem maður kaupir sér. Hún upp- skar eins og hún sáði, ótrúlega fallegt og ríkulegt líf sem innihélt mikið af ferðalögum og svo hélt hún góðum tengslum við allt sitt fólk og elskaði að segja okkur fréttir af fjölskyldunni og hún varð spenntust allra ef hún fékk tækifæri til að segja mér glænýj- ar fréttir eða jafnvel leyndarmál. Hún lagði einnig mikla áherslu á að sérvelja allar gjafir fyrir börn sín og barnabörn og vonaðist auðvitað til að gjafirnar myndu hitta í mark sem þær gerðu jú oftast. Við amma áttum ótal góðar stundir sem ég er þakklát fyrir, fórum saman á opnanir og sýn- ingar, drukkum hvítvín með sænska sendiherranum sem henni fannst ægilega gaman og svo óteljandi stundir með börnin mín að horfa á hana hræra í vöffl- ur og hún að spilla þeim með súkkulaði og ís. Amma og Birta Katrín dóttir mín hlógu þegar þær kysstust bless, daginn áður en hún kvaddi þetta líf. Í okkar síðasta samtali sagði ég henni hvað hún væri elskuð og rík af góðu fólki. Hún sagði mér að hún væri með plan varðandi fjölskylduna og var fyrsta planinu hennar uppljóstr- að á hennar dánardegi og fengu þá öll langömmubörnin umslag merkt sér með stórum útlenskum seðli í merkt frá ömmu Dísu. Svo þau gætu keypt sér eitthvað fal- legt í ferðalögum erlendis. Hvíldu í friði og megi öll heimsins blóm og ást umlykja þig yndislega og brosmilda amma mín. Svana Lovísa Kristjánsdóttir. Nú kveð ég elsku vinkonu mína, Ásdísi Guðbjörgu Konráðs- dóttur sem alltaf var kölluð Dísa. Við kynntumst fyrst á Suðurgöt- unni í Hafnarfirði, síðar í okkar félagsstarfi og urðum við nánar vinkonur. Dísa var glæsileg kona, hlýleg og skemmtileg, mikill fagurkeri, enda bar heimili þeirra Kristjáns þess vel merki. Allt sem hún tók sér fyrir hendur gerði hún af miklum myndarskap. Dísa var dugnaðarforkur sem aldrei féll verk úr hendi. Við áttum mörg sameiginleg áhugamál, nutum þess að sækja söfn, tónleika og spiluðum fé- lagsvist. Í strætó fórum við út á land og sóttum ýmsar hand- verkssýningar. Öll símtölin sem við áttum, mikið á ég eftir að sakna þeirra. Það eru margar góðar minn- ingar að ylja sér við nú þegar Dísa er farin í Sumarlandið. Elskulega fjölskylda, ég sendi ykkur mínar innilegustu samúð- arkveðjur. Minning um yndislega konu lifir. Hver minning dýrmæt perla að liðnum lífsins degi, hin ljúfu og góðu kynni af alhug þakka hér. Þinn kærleikur í verki var gjöf, sem gleymist eigi, og gæfa var það öllum, er fengu að kynnast þér. (Ingibjörg Sigurðardóttir) Þín vinkona, Erna S. Mathiesen. Það var mikið gæfuspor þegar við fjölskyldan fluttum á Hring- brautina í Hafnarfirði og eignuð- umst okkar góðu nágranna. Ás- dís var þar fremst í flokki að öllum öðrum ólöstuðum. Ekki var hún bara elst okkar kvennanna á „torfunni“, hún hafði búið þar lengst, í Laufási, fallega heim- ilinu sínu. Hún fékk viðurnefnið Blóma- Dísa, því hún sá um vinnuflokka bæjarins sem sáu um að fegra umhverfi okkar. Þegar hún var ekki í vinnunni var hún gjarnan í garðinum sínum og var alltaf tilbúin til skrafs og ráðgerða og að leiðbeina okkur nýbúunum. Eftir því sem kynnin urðu meiri fjölgaði samverustundun- um og við nágrannarnir höfðum grillveislur á sumrin, oftast í garðinum í Laufási. Þorrablót voru líka haldin og þá var vandað vel til verka, allur almennur þorramatur var á boðstólum auk þess sem við bökuðum forláta flatbrauð hjá Dísu, algjört lost- æti. Allt voru þetta ógleymanleg- ar veislur sem stóðu í mörg ár. Að því kom að fólk flutti í burtu og veislurnar lögðust af. Dísa flutti í glæsilega íbúð í mið- bænum þar sem hún bjó ein eftir að Kristján, maður hennar, féll frá. Svo var það fyrir nokkrum árum að Dísa heimsótti mig og sagði að hún vildi endilega kalla okkur saman, gömlu nágrannana. Það voru ekki orðin tóm. Dísa útbjó einhverja þá glæsilegustu veislu sem um getur þar sem allt var meira og minna heimagert og var hún svo sannarlega í essinu sínu. Þannig vil ég minnast minn- ar góðu nágrannakonu. Sigríður Ágústsdóttir. „Stórborgir heilla mig,“ sagði Dísa vinkona mín meðal annars í viðtali sem að ég tók við hana fyr- ir jólablað Hamars árið 2005. Það var gaman að spjalla við hana en hún fór um víðan völl og sagði þar frá ferðum sínum og Kristjáns um heiminn. Heimskortið á ein- um veggnum í glæsilegri íbúð hennar var þakið pinnum. Dísa lá ekki á sólarströnd í fríum heldur ferðaðist um, skoðaði mannlífið og framandi menningu. Ferða- áhugi hennar kviknaði í æsku og svo bætti í þegar Kristján eigin- maður hennar sagði henni frá öll- um ævintýrunum sem hann hafði kynnst í siglingum um heimsins höf. Dísa var ein af þeim konum sem stóðu sterkar með sjálfum sér, fjölskyldu sinni og vinum. Hún ól upp sex börn og gladdist í gullbrúðkaupi með Kristjáni sín- um og hennar stóru fjölskyldu sem hún elskaði svo heitt og var mjög stolt af. Hún hafði ánægju af að segja frá því hvað krakk- arnir væru að gera, læra og upp- lifa. Fylgdist vel með sínum. Dísa var flott í tauinu og yngdist með árunum. Hún tók sér margt fyrir hendur og vannst henni vel. Bútasaumsteppin hennar eru gersemi. Krafturinn, þorið og gleðin yfir að vera til hélt henni við efnið. Hún stjórnaði til margra ára blómaflokki Hafnar- fjarðarbæjar og má með sanni segja að þar hafi hún farið fyrir boðun vorsins í bænum, skart- andi sínu fallega viðurnefni Blóma Dísa. Hreinlyndi Dísu og hispurs- leysi var aðdáunarvert, hún keypti sér ekki vinsældir heldur bjó að þeim vegna mannskosta sinna. Hún var mikill listunnandi og sótti allar þær sýningar sem hún hafði tækifæri til. Dömuboð- in hennar eru ógleymanleg. Þar sá Dísa til þess að konur sem höfðu ekki sést lengi áttu saman góða stund. Hún var trygglyndur höfðingi hún Dísa. Ég minnist Ásdísar Guðbjarg- ar Konráðsdóttur, kærrar vin- konu minnar, með virðingu og þakklæti. Hennar verður saknað. Kæra fjölskylda, hugheilar samúðarkveðjur færi ég og fjöl- skylda mín ykkur vegna andláts einstakrar ættmóður, sem færði lífinu lit með ómældum tíma sín- um, hlýju og gleði. Valgerður Sigurðardóttir. Hún Dísa, Blóma-Dísa, er fall- in frá. Hún og fjölskylda hennar og fjölskylda mín erum búin að vera samferða í gegnum lífið frá því herrans ári 1957. Þá flutti hún á loftið á Suðurgötu 31 og fjöl- skylda mín bjó á Suðurgötu 28. Dísa er mamma bestu vinkonu minnar, hennar Siggu, og hef ég notið þess að vera á heimili henn- ar og einnig unnið undir hennar verkstjórn. Heima hjá þeim Dísu og Kristjáni voru alltaf mörg börn og mikið fjör og er mér mjög minnisstætt þegar við sát- um i hring og Dísa skóf rófu ofan í okkur öll. Alltaf vorum við vel- komin til þeirra. Hún var dugn- aðarforkur bæði hvað varðar heimilið og vinnu. Ég vann með henni sem unglingur í blóma- hópnum og einnig í bæjarvinn- unni. Í blómaflokknum lagði hún okkur lífsreglurnar með vinnu- lag, nákvæmni og dugnað. Ef ekki var vel gert urðum við að leggja enn meira á okkur eins og þegar blóm voru ekki nægilega vel sett niður. Einnig var ekki í boði að skilja eftir svarta rusla- poka um bæinn fyrir helgarnar. Hún var mjög góður yfirmaður, réttsýn gagnvart okkur og sann- gjörn. Síðan hafa árin liðið og alltaf gott samband á milli fjöl- skyldanna. Árið 2008 fórum við mamma, Sigga og Dísa til Kaup- mannahafnar. Við Sigga vorum að fara að hlaupa og þær fylgdu okkur eftir í hlaupið og í samveru þessa daga. Í þeirri ferð vildi hún Dísa ganga sem mest og þar speglaðist enn og aftur dugnaður og eljan í fari hennar. Að lokum votta ég og fjölskylda mín hennar fólki dýpstu samúð. Guðrún Gunnarsdóttir. Ásdís Guðbjörg Konráðsdóttir lést hinn 24. apríl síðastliðinn. Ég hitti hana síðast þegar St. Jósefsspítali var opnaður á nýjan leik sem Lífsgæðasetur. Hún var dyggur stuðnings- maður Hollvinasamtaka St. Jós- efsspítala. Hún hafði til fjölda ára búið með fjölskyldu sinni á Suð- urgötu í nágrenni við sjúkrahúsið og starfsemi þess og taldi því réttast að heilbrigðistengd starf- semi kæmi aftur í húsið, eins og Hollvinasamtökin börðust fyrir. Við vorum glaðar og ánægðar þegar við gengum um fyrstu hæðina og sáum þessar góðu breytingar og þá fjölbreyttu starfsemi sem var að hefjast und- ir heiti St. Jósefsspítala sem Lífs- gæðasetur. Ásdís var alltaf svo jákvæð og hvetjandi og lá ekki á skoðunum sínum. Þarna kom hún til mín og óskaði mér til hamingju með áfangann. Á þessum tíma- punkti var barátta Hollvinasam- takanna búin að standa í rúmlega fimm ár. Hún var félagi í samtök- unum frá byrjun, og ég sakna hennar stuðnings í baráttunni fram undan; að fá lóð sjúkrahúss- ins skipulagða fyrir Lífsgæða- setrið. Ég var líka á fundi með Ásdísi þegar hún, ásamt fjölda íbúa í ná- grenni við Kató, mótmælti þriggja hæða byggingu sem byggja átti fyrir neðan Kató og taka þar með útsýni frá íbúum við Suðurgötu og víðar. Hún lét ávallt til sín taka ef henni fannst ekki verið að gera hlutina rétt. Ásdís stóð fyrir því að gerður var steyptur bekkur í Hellis- gerði. Í mörg ár var hún starf- andi við gróðursetningu með flokka úr unglingavinnunni við að skreyta bæinn og Hellisgerði með sumarblómum. Þá fékk hún hið fallega viðurnefni Blóma- Dísa. Ásdís bauð mér í heimsókn í íbúðina sína við Þórsplan. Þar var öllu fyrir komið á fallegan hátt og listmunir víða, þar á með- al hennar eigin handverk. Alltaf naut ég samveru og samstarfs með Ásdísi, þessari glæsilegu konu sem við kveðjum nú. Hún sagði mér frá fjölskyldu- hittingi heima hjá henni við Þórsplanið, þar sem börn og barnabörn mættu reglulega. Þeirra missir er mikill. Megi Guð styrkja þau á erfiðri stundu. Ég sendi mínar innilegustu samúð- arkveðjur til allra aðstandenda Ásdísar G. Konráðsdóttur. Bless- uð sé minning hennar. Steinunn Guðnadóttir, formaður stjórnar Hollvinasamtaka St. Jósefsspítala. ✝ Oddur Helgi Bragason fæddist í Reykja- vík 16. desember 1963. Hann lést á heimili sínu, Hlíð- arhjalla 52, Kópa- vogi, 26. apríl 2022. Foreldrar hans voru séra Bragi Reynir Frið- riksson, prófastur og sóknarprestur í Garðabæ, f. 15. mars 1927 á Ísafirði, d. 27. maí 2010, og Katrín Eyj- ólfsdóttir, bankastarfsmaður og prófastsfrú, f. 6. ágúst 1928 á Eskifirði, d. 4. júní 2021. Systkin Odds: Ingibjörg, f. 8. apríl 1954, d. 5. febrúar 2017; Eyjólfur Reynir, f. 19. júní 1955; Auður Soffía, f. 18. júlí 1958. Oddur átti eina dóttur, Gunnhildi Rós, f. 21. júlí 1989. Móðir hennar er Soffía Dag- mar Þorleifsdóttir, f. 14. maí 1968. Oddur ólst upp í Garða- hreppi og gekk í barna- og gagnfræðaskóla þar. Hann dvaldi sumarlangt með for- eldrum sínum í Íslendinga- byggðum í Mikley, Kanada, árið 1977 og í Minnesota um haustið á meðan faðir hans var þar í framhaldsnámi í guðfræði. Oddur varði stórum hluta æv- innar í þágu þeirra sem minna mega sín. Hann var lengi meðferðarfulltrúi hjá SÁÁ og BUGL, og vann m.a. sem hópstjóri á meðferðarheim- ilinu Stuðlum. Þá starfaði hann einnig sem lögreglu- þjónn um tíma. Síðar vann hann um nokkurra ára skeið sem útfararstjóri hjá Útfar- arstofu Íslands áður en hann breytti um stefnu og tók meirapróf og leiðsögumanna- próf. Undi hann sér vel í starfi leiðsögumanns enda naut hann þess að ferðast um landið með hóp ferðamanna og kynna þeim sögu lands og þjóðar. Oddur var félagslyndur og naut hestamennsku um árabil. Hann var frændrækinn og hafði mikinn áhuga á ættfræði og sögu. Útför Odds Helga fer fram frá Garðakirkju í dag, 25. maí 2022, og hefst athöfnin klukk- an 13. „Sæll frændi!“ Þessi orð óma í höfði mér þegar ég hugsa til Odds frænda. Svona heilsaði hann manni alltaf og orðunum fylgdi glaðhýr svipur og breitt bros. Hann var ljúfur maður hann Oddur. Oddur Helgi Bragason fædd- ist í Reykjavík 16. desember 1963. Hann var skírður í höfuðið á ömmu sinni, Oddnýju Jóhönnu Eyjólfsdóttur, en seinna nafnið, Helgi, var fengið frá afa hans, Friðriki Helga Guðjónssyni. Oddur ólst upp í Garðahreppi og var sannarlega orkumikill og uppátækjasamur strákur. Prakkarastrik hans og vina hans rötuðu meira að segja í vinsælar barnabækur. Pabbi hans hét séra Bragi Friðriksson og var sóknarpresturinn í hreppnum. Oddur og félagar nýttu sér oft skrifstofu prestsins í „erind- rekstur“ en sögur segja að þeir hafi falsað skilnaðar- og dán- arvottorð í gríð og erg. Bless- unarlega sá presturinn alltaf við þeim áður en þau fóru í umferð. Þegar Oddur komst til manns kviknaði í brjósti hans mikill áhugi á landi og þjóð. Hann hafði verið í sveit á Ástjörn í Þingeyjarsýslu sem barn og þar átti hann góðar stundir. Á full- orðinsárum ferðaðist hann víða, starfaði sem leiðsögumaður og var mikill hestaunnandi. Ég á fallegar minningar af frænda mínum. Hún er t.d. sterk minningin þegar hann teymdi mig áfram á skjóttum hesti í íslenskum sumarblóma. Ég var ekki hár í lofti, en leið eins og keisara sem reið um lönd sín, hnarreistur og mikill. Frændi minn var glæsimenni í sjón, hávaxinn og herðabreið- ur, ljós og fagur. Hann var hlýr og skemmtilegur og hafði ein- kennandi hlátur, ekkert ósvip- uðum þeim sem systir hans Ingibjörg hafði, sem kvaddi líka allt of snemma. Barnið í manni skynjaði hlýleikann sem bjó um góðlegt hjarta hans. Góðhugur einkenndi þennan yndislega mann og lék um bjartan svip hans og viðmót allt. Hann vildi öllum vel. Hann var hjarta- hreinn. Oddur var frændrækinn. Hann rækti kynnin við frænd- fólk sitt og vini alla tíð. Þannig fór hann margar ferðir norður á æskuslóðir föður síns í Miðfjörð- inn og á heimaslóð móður sinnar á Eskifirði. Hann fékk ættfræ- ðiáhugann í arf frá föður sínum og rannsakaði ættina í þaula. Ég naut góðs af því á margvíslegan hátt. Oddur var áhugasamur um ævisögu föður síns sem ég hef unnið að undanfarin misseri. Hann fór í margar ferðir norður til að nálgast sögur, ljósmyndir og heimildir. Ein ferðin bar ríkulegan ávöxt, þegar 97 bréf sem séra Bragi hafði skrifað frá 10 ára aldri til 50 ára aldurs fundust á ævintýralegan hátt í rykföllnum trékistli í Miðfirði sem læstur hafði verið um ára- tugaskeið. Það var sem fólkinu þar hefði verið beint að kistl- inum af himnum ofan – séra Bragi virtist leikstýra þessu öllu saman. Oddur kom með bréfin til mín og hann var auðsjáanlega spenntur, því þarna mátti greina kjarnann í sálu föður hans. Hon- um var annt um að sagt yrði frá manneskjunni Braga Reyni og hvað það var sem skóp þann mann. Ég lofaði honum að gera það og ég mun standa við það í þakkargjörð við elsku frænda minn sem var mér svo góður. Ég bið að Guð varðveiti hann og blessi. Minningin um góðan og glaðan frænda lifir. Hrannar Bragi Eyjólfsson. Oddur Helgi Bragason er lát- inn, fallinn frá langt um aldur fram. Þessi harmafregn barst okkur fyrrverandi starfsfélögum Odds á geðdeild Landspítalans á Kleppi óvænt í liðinni viku. Við unnum þar saman á árunum 1991 til 1995. Ungir menn sem allir áttu sínar væntingar og drauma um framtíðina. Við þessi ferðalok viljum við minnast Odds, okkar góða fé- laga, með nokkrum orðum. Odd- ur var glæsilegur maður, hávax- inn, bjartur yfirlitum og bar sig ávalt vel, stoltur af uppruna sín- um og fjölskyldu. Þær eru margar minningarn- ar þar sem Oddur kemur við sögu sem allar eiga það sameig- inlegt að bera vott um mann- kosti hans á borð við góð- mennsku, einlægni, hlýju og húmor sem eins og gefur að skilja voru gulls ígildi í við- kvæmu starfsumhverfi þar sem þessara eiginleika er mest þörf. Oddur var líka vinur og félagi okkar utan vinnutíma og bar þar aldrei skugga á, en mikið grín- ast og hlegið við mörg eftir- minnileg tækifæri sem lifa í minningunni um þann góða fé- laga sem við kveðjum nú. Upp úr árinu 1995 fórum við allir hver í sína áttina, við fylgdumst samt ætíð hver með öðrum úr fjarska. Um leið og við þökkum Oddi fyrir samfylgdina vottum við Gunnhildi dóttur hans og skyld- mennum hans okkar dýpstu samúð í sorginni. Daníel Guðjónsson, Eyþór Brynjólfsson, Jónatan Karlsson og Ægir Haraldsson. Ég trúi því ekki enn að hann Oddur minn sé farinn. Mikið mun ég sakna símtalanna sem byrjuðu yfirleitt sæl kæra vin- kona, en oftar var það sæl gamla og svo skellti hann upp úr, þegar ég minnti hann á að ég væri yngri. Við kynntumst árið 2000 þeg- ar við vorum að vinna saman á Stuðlum, meðferðarstöð fyrir unglinga, og urðum strax góðir félagar. Oddur bjó í næstu götu við mig í Kópavoginum og datt honum þá í hug að við færum í gönguferðir á kvöldin. Þessir göngutúrar urðu margir og mik- ið sem við möluðum um allt milli himins og jarðar. Margir töldu að ég væri komin með mann upp á arminn og þóttu þessar gönguferðir okkar dularfullar, því sumar voru ansi seint á kvöldin eftir kvöldvaktir hjá Oddi, en okkar á milli var alltaf bara góður vinskapur. Þá var það bara fínt að fólk héldi það, enda Oddur frábær. Svo hár og myndarlegur. Oddur elskaði Íslandið sitt og þekkti það vel, enda mikill úti- vistarmaður og hestamaður. Hann kynnti mér síðan líka fjöll- in í kringum Reykjavík og gönguleiðir allt í kringum höf- uðborgarsvæðið og þá var oft stráksi minn líka með í för. Eitt sinn datt honum í hug að við stelpurnar í saumaklúbbnum myndum skella okkur í stóð- hestaréttir í Húnavatnssýslunni, sem var auðvitað best, og við drifum okkur, þvílíka ævintýra- helgin sem það var. Ég flutti síðan til Englands og alltaf hélst gott samband okkar á milli, en þó hittingarnir yrðu færri urðu símtölin fleiri. Hann kom nokkrum sinnum að heimsækja okkur, enda þótti honum gott að skreppa frá Ís- landi. Við kynntumst síðan enn betur þegar ég fór að vinna í ferðaþjónustunni í Englandi 2010. Oddur var fljótur að bjóða fram krafta sína, þá sjálfur bú- inn að vera að vinna í ferðaþjón- ustunni heima. Hann tók að sér allskonar verkefni fyrir mig svo sem eins og móttöku ferða- manna, áramótaferðir, einka- ferðir og norðurljósaferðir og svo stóð hann vaktina með mér eitt sinn á bás í London og mik- ið var nú gaman hjá okkur þá og mikið hlegið. Lífið hjá Oddi var oft erfitt, veikindi hans stoppuðu drauma hans um allavega hluti sem hann langaði að gera. Hann sagði mér að sig langaði svo að búa í Englandi, spurði mig líka hvort mig vantaði ekki starfs- mann á skrifstofuna, en ekkert varð af því. Oddur var með þeim fyrstu að heiman til að hafa samband og athuga með mig í Covid, þar sem hann vissi hvernig mér liði þegar ferðaþjónustan lá niðri. Þá sjálfur veikur, en mundi samt eftir vinkonu sinni í Eng- landi. Í síðustu samtölum okkar sagði hann mér að hann væri mest að vinna því að verða besta útgáfan af sér. Innilegar samúðarkveðjur til dóttur, fjölskyldu og vina. Takk, elsku vinur, fyrir sam- veruna, ég mun alltaf sakna þín. Þín vinkona, Jórunn. Oddur Helgi Bragason

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.