Morgunblaðið - 10.06.2022, Qupperneq 2

Morgunblaðið - 10.06.2022, Qupperneq 2
2 FRÉTTIR Innlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 10. JÚNÍ 2022 Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 569 1100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Andrés Magnússon andres@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is Viðskipti Gísli Freyr Valdórsson vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Winkel Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf. Sólrún Lilja Ragnarsdóttir solrun@mbl.is „Við erum búin að vera að bíða eftir því að hún [apabólan] komi og höf- um talið líklegt að það gerist eins og í Evrópu. Það er ekkert gríðarlega hraður gangur í þessu í Evrópu en þó nokkur. Um 1.000 manns hafa greinst núna utan Afríku og talan er eflaust hærri en það, þannig að við sjáum þetta sama mynstur og í öðr- um Evrópulöndum,“ segir Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir. Tveir karlmenn á miðjum aldri greindust hér í fyrradag með apa- bólu. Sýni verða send til útlanda eins fljótt og verða má, til að stað- festa greininguna. Yfirgnæfandi lík- ur eru á að greiningin sé rétt en smitin má rekja til ferðalags til Evr- ópu. Hvorugur mannanna er alvar- lega veikur. Þórólfur segir fólk þó geta verið rólegt, enda sé mikill eðlismunur á apabólu og Covid. Ekki sé búist við stórum faraldri. Hann bendir á að veiran smitist við náið samneyti eins og kynmök og í gegnum öndunar- færi með dropasmiti. „Þau smit sem hafa verið að greinast í Evrópu og hér á landi eru sennilega við kynmök og byrja þá á húð á kynfærum. Það er það sem við erum að vekja athygli á. Í fyrsta lagi höfum við beðið fólk að fara varlega í skyndikynnum, sérstak- lega á ferðum erlendis. Við biðjum fólk líka að vera vakandi fyrir ein- kennum, bólum og blöðrum, sér- staklega á kynfærum og í kringum kynfæri, og leita sér aðstoðar.“ Apabólan er komin - Tvö tilfelli í fyrra- dag - Sýni send út AFP/Brian W.J. Mahy Apabóla Smitast við náið samneyti. Atli Steinn Guðmundsson atlisteinn@mbl.is „Þetta eru svo sannarlega spenn- andi niðurstöður sem voru kynntar á ASCO-ráðstefnunni í Chicago,“ seg- ir dr. Sigurdís Haraldsdóttir, yfir- læknir krabbameinslækninga við Landspítalann og dósent við lækna- deild Háskóla Íslands, um fréttir af þróun bóluefnis gegn briskrabba- meini sem breska dagblaðið The Telegraph greindi frá og fjallað var um á mbl.is í gær. Kveður Sigurdís vert að halda rannsóknum áfram á þessum vett- vangi og bendir á að nýkynntar nið- urstöður séu úr svokallaðri fasa eitt rannsókn. „Þar er fyrst og fremst verið að skoða hvort bólu- efnið virki ónæm- iskerfið og hvort það valdi ein- hverjum auka- verkunum,“ út- skýrir hún. Niðurstöður fasa eitt rannsóknar- innar gefi vissa ástæðu til bjartsýni þar sem efnið virki ónæmiskerfi 50 prósenta sjúklinga og valdi engum alvarlegum aukaverkunum. „Þess- um rannsóknum þarf þó alltaf að fylgja eftir með stærri rannsóknum þar sem í þeim fyrri er verið að rannsaka lyf sem gefin eru í fyrsta skipti eða hafa ekki verið gefin mönnum áður. Þar þarf að skoða vel hvort verkun þessara lyfja sé sú sem hún á að vera, í þessu tilfelli að koma í veg fyrir að briskrabbamein komi aftur eftir aðgerð,“ segir Sigurdís. Horfur í briskrabbameini eru að hennar sögn ekki góðar, þar sé raun- ar um að ræða eitt versta krabba- mein sem læknavísindin glíma við. Í tilfelli þeirra sjúklinga sem rann- sóknin beindist að var erfðaefni ein- angrað úr krabbameininu og rað- greint með það fyrir augum að kanna hvaða stökkbreytingar í meininu gætu vakið áhuga ónæmis- kerfisins og bóluefnið hannað út frá því. „Þannig að þetta er sérhannað fyrir hvern sjúkling fyrir sig og yrði því mjög dýrt lyf,“ segir læknirinn. „Hér á landi greinast um 40 manns á ári með briskrabbamein en vegna þess hve illa gengur að meðhöndla það er fimm ára lifun í kringum fimm prósent. Þetta er fjórða al- gengasta dánarorsök krabbameina hér á Íslandi þannig að það sárvant- ar betri meðferðir,“ segir hún að lokum. Sárvantar betri meðferðir - Bóluefni gegn briskrabbameini góðar fréttir - Eitt skæðasta krabbameinið Sigurdís Haraldsdóttir Fyrsta sperra nýs flugskýlis Landhelgisgæslunnar á Reykjavíkurflugvelli reis í blíðskaparveðri í gær en framkvæmdir við skýlið hófust fyrr í vetur og mun það tengjast eldra flugskýli Gæslunnar. Nýja skýlið mun enn frem- ur hýsa skrifstofur flugdeildar, mötuneyti starfsmanna, búningsklefa og hvíldarrými starfsfólks, greinir Gæslan frá, og er reiknað með að skýlið standi fullbúið á haustdögum. Fyrirtækið Öryggisfjarskipti ehf. hefur veg og vanda af byggingu nýja skýlisins og mun Landhelgisgæslan, samkvæmt samkomulagi milli hennar og Öryggisfjarskipta, leigja skýlið af fyrir- tækinu. „Þetta gengur samkvæmt áætlun og við stefnum á að klára að reisa þetta í næstu viku ef guð og veður lofa,“ segir Þórhallur Ólafsson, framkvæmdastjóri Öryggisfjarskipta, í samtali við Morgunblaðið, en fyrir- tækið er dótturfyrirtæki Neyðarlínunnar og að mestu í ríkiseigu. Ellefu manns starfa nú að sögn Þórhalls við að koma nýja flugskýlinu upp á til- settum tíma. atlisteinn@mbl.is Morgunblaðið/Árni Sæberg Nýtt flugskýli Gæslunnar tilbúið með haustinu Þórólfur Guðnason Gunnhildur Sif Oddsdóttir gunnhildursif@mbl.is Á fyrsta fundi nýrrar bæjarstjórnar Vestmannaeyja í gær var samþykkt einróma að fela bæjarstjóra og bæjar- ráði að taka upp samtal við stjórn- völd um að kanna fýsileika á gerð jarðganga milli lands og Eyja. Njáll Ragnars- son, bæjarfulltrúi E-listans, lagði til- löguna fram. Í samtali við mbl.is sagði hann tillög- una ganga út á að skoðaðir verði möguleikar á að koma á vegtengingu við Vestmannaeyjar. „Það hefur svo sem mikið verið rætt um þetta í gegnum tíðina en það á eftir að klára ákveðnar rannsóknir hér á jarðlögum svo hægt sé að segja til um hvort þetta sé mögulegt eða ekki,“ segir Njáll. Tillagan gangi því að hluta til út á að rannsóknirnar verði kláraðar og reiknaður út fýsileiki þess að fara í þessa framkvæmd, auk samfélags- legs og félagslegs ábata þess að leggja jarðgöng til Eyja. „Við viljum hugsa stórt“ Aðspurður segir Njáll það hafa ver- ið ansi táknrænt að leggja tillöguna fram á fyrsta fundi bæjarstjórnarinn- ar. „Við erum að fara í nýtt kjörtíma- bil og við viljum hugsa stórt. Þetta náttúrlega kostar mikið en við teljum að fyrir samfélagið hérna í Eyjum sé mjög mikilvægt að fá að minnsta kosti úr því skorið hvort þetta sé hægt eða ekki.“ Auk þess hafi allir bæjarfulltrúar verið sammála um að fara í þessa veg- ferð og taka þetta samtal. „Í kosningabaráttunni var þetta eitt af þeim málum sem komu til um- ræðu og öll framboðin lýstu sig í raun- inni fylgjandi því að klára þessa rann- sókn og gera þessa fýsileikakönnun,“ segir Njáll. Það hafi því ekki komið honum á óvart að tillagan skyldi ein- róma samþykkt. „Næstu skref eru þá að viða að okk- ur þeim gögnum sem eru til og fara síðan í þingmenn okkar og ráðherra um að klára þessar rannsóknir á jarð- lögum milli lands og Eyja,“ segir Njáll og bætir við að síðan þurfi að reikna út ávinning þess að koma á vegtengingu við Vestmannaeyjar. Geti verið þjóðhagslega arðbært „Við vitum að rekstur Herjólfs kostar íslenska ríkið töluverðar fjár- hæðir á ári og dýpkun Landeyjahafn- ar kostar sömuleiðis sitt svo það spar- ast alltaf á öðrum stöðum,“ segir hann. „Við teljum að einhvers staðar inni í framtíðinni komi að því að það verði þjóðhagslega arðbært að fara í þessa framkvæmd,“ segir Njáll að lokum. Skoða möguleika á göngum til Eyja - Fyrsti fundur nýrrar bæjarstjórnar fór fram í gær - Öll framboðin vildu klára rannsókn á göngum Morgunblaðið/Óskar Pétur Friðriksson Bæjarstjórn Tillagan um jarðgöng hér samþykkt einróma á fyrsta fundi. Njáll Ragnarsson

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.