Morgunblaðið - 10.06.2022, Qupperneq 4
Aðgerðir lögreglu gegn skipulagðri brotastarfsemi
Þetta var lagt hald á
200 kannabis-
plöntur
200 kg af marijúana
og 20 kg af hassi 20 kg af kristal-
metamfetamíni
Einnig var lagt hald
á kannabisvökva,
stera og íblöndunar-
efni, kylfur, skotvopn, síma,
tölvur og ökutæki
20
milljónir kr.
í reiðufé
Áætlað söluandvirði efna, sem
tengjast rannsókninni, er um
1,7 milljarðar
króna
7 kg af MDMA-kristal,
sem framleiða má úr
50 þúsund e-töflur
20 lítra af MDMA-
basa, sem hægt
er að framleiða úr 200
þúsund e-töflur
40 lítra af amfeta-
mínbasa, sem
má vinna úr 170 kg
af amfetamíni
Inga Þóra Pálsdóttir
Sólrún Lilja Ragnarsdóttir
Veronika Steinunn Magnúsdóttir
Lögreglan lagði hald á fíkniefni og
efni til framleiðslu á fíkniefnum að
andvirði 1,7 milljarða króna í
tengslum við umfangsmikla rannsókn
á skipulagðri brotastarfsemi hér á
landi sem staðið hefur yfir síðustu
mánuði. Um er að ræða mesta magn
fíkniefna sem lagt hefur verið hald á í
tengslum við eina rannsókn sem er
samstarfsverkefni nokkurra emb-
ætta.
Þetta kom fram á blaðamannafundi
lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu í
gær, en þar var farið yfir tvö um-
fangsmikil mál sem lögreglan hefur
haft til rannsóknar undanfarin miss-
eri, en rannsóknin í öðru málinu hefur
staðið yfir frá sumri 2020 og í hinu í
nokkra mánuði.
Við rannsókn málanna hefur lög-
reglan m.a. lagt hald á 200 kannabis-
plöntur, 200 kg af maríjúana og 20 kg
af hassi. Þá voru gerð upptæk sjö kg
af MDMA-kristal, sem hægt er að
framleiða úr 50 þúsund e-töflur; 7.000
e-töflur auk rúmlega 20 lítra af
MDMA-basa, en hægt er að framleiða
um 200 þúsund e-töflur úr því magni.
Þá var einnig lagt hald á um 40 lítra af
amfetamínbasa, en miðað við styrk-
leika hans má framleiða 170 kg af am-
fetamíni úr honum. Þá lagði lögreglan
einnig hald á 20 kg af
kristalmetamfetamíni.
Tuttugu leitir vegna málsins
Margeir Sveinsson, aðstoðaryfir-
lögregluþjónn hjá miðlægri rannsókn-
ardeild, sagði að hópur manna hefði
verið til rannsóknar vegna fyrra máls-
ins grunaður um aðild að umfangs-
mikilli dreifingu og sölu fíkniefna.
Alls hefðu tuttugu leitir verið gerð-
ar í ökutækjum og húsnæði í tengslum
við rannsóknina og tíu verið hand-
teknir. Fimm hefðu verið hnepptir í
gæsluvarðhald og væri einn enn í
haldi.
Grímur Grímsson, yfirlögreglu-
þjónn hjá miðlægri rannsóknardeild
lögreglunnar, sagði á fundinum að
lögreglu hefðu borist upplýsingar frá
Europol um skipulagða brota-
starfsemi hér á landi um mitt ár 2020
og í kjölfarið hefðu ríkislögreglustjóri,
lögreglan á Suðurnesjum, lögreglan á
höfuðborgarsvæðinu og ríkisskatt-
stjóri hafið rannsókn.
Í byrjun síðasta árs hefðu fundist
efni sem notuð voru til að framleiða
rúmlega 117 kíló af amfetamíni og
jafnframt hefði verið lagt hald á fimm
kíló af amfetamíni í annarri rannsókn.
Götuvirði efnanna er um 700 milljónir
króna.
Í maí síðastliðnum réðst lögregla
svo í aðgerðir á höfuðborgarsvæðinu
og voru þá tíu handteknir vegna máls-
ins. Fimm voru úrskurðaðir í gæslu-
varðhald og þrír eru enn í haldi.
Vilja breytingar á lögum
Hulda Elsa Björgvinsdóttir,
sviðsstjóri ákærusviðs, sagði í sam-
tali við mbl.is eftir fundinn að lög-
reglan kallaði eftir lagabreytingum
um gæsluvarðhald, þar sem hún
gæti ekki elt ýmsa anga sem kynnu
að koma upp vegna þröngs tíma-
ramma gæsluvarðhalds, en ekki er
heimilt að úrskurða sakborninga
hér á landi til að sæta gæsluvarð-
haldi lengur en í tólf vikur, nema
mál hafi verið höfðað gegn þeim.
Vísar lögreglan einnig til þess að
í þeim löndum sem við miðum okkur
við sé ekki afmörkun á gæsluvarð-
haldstíma. Hér á landi er ekki heim-
ilt að úrskurða sakborning til að
sæta gæsluvarðhaldi lengur en í tólf
vikur nema mál hafi verið höfðað
gegn honum eða brýnir rannsókn-
arhagsmunir krefjist þess. Þetta
kom fram í máli Huldu Elsu Björg-
vinsdóttur, sviðsstjóra ákærusviðs, í
samtali við mbl.is að loknum blaða-
mannafundi lögreglunnar fyrr í dag
þar sem hún greindi frá tveimur
stórum fíkniefnamálum.
„Við finnum það vel á eigin skinni
hvað það hefði verið ágætt að þurfa
ekki að vera með þessi tímamörk.
Það hefði auðveldað okkur miðað við
hvernig rannsókn er stödd í dag,“
segir Hulda Elsa. Þrír aðilar sem
tengjast málunum tveimur eru nú í
gæsluvarðhaldi til mánaðamóta.
Hulda Elsa segir að í þessum mál-
um geti lögreglan ekki sýnt fram á
brýna rannsóknarhagsmuni til að fá
gæsluvarðhaldið framlengt, en þó sé
hægt að sýna fram á rannsóknar-
hagsmuni. Stefnt er að því að mál-
unum verði komið yfir til héraðs-
saksóknara í ágúst, en nánar er rætt
við Huldu Elsu á mbl.is.
Lögregla lagði hald á fíkniefni
fyrir 1,7 milljarða að götuvirði
- Tuttugu handtökur vegna tveggja fíkniefnamála - Aldrei meira magn gert upptækt í stöku máli
Morgunblaðið/Eggert
Fíkniefnin Lagt var hald á gríðarlegt magn fíkniefna í aðgerðum lögreglu undanfarna mánuði, í kílóa- og lítravís.
Morgunblaðið/Eggert
Lögreglan Frá blaðamannafundinum í gær, f.v. Margeir Sveinsson, Halla
Bergþóra Björnsdóttir, Grímur Grímsson og Hulda Elsa Björgvinsdóttir.
4 FRÉTTIR
Innlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 10. JÚNÍ 2022
„Þetta er stórt og mikilvæg skref
fyrir okkur á Akranesi, ekki síst til
framtíðar litið,“ segir Sævar Freyr
Þráinsson, bæjarstjóri á Akranesi,
um þau tíðindi sem kunngerð voru í
gær um að bandaríska loftslags-
fyrirtækið Running Tide myndi
hefja starfsemi á Akranesi í sumar.
Fyrirtækið undirritaði í gær
samning við Breið – þróunarfélag
og Brim hf. um leigu húsnæðis und-
ir aðstöðu fyrir rannsóknir og
framleiðslu á þörungum til kolefnis-
bindingar í hafi. Undirritunin er
fyrsta skrefið í uppbyggingu á
starfsemi fyrirtækisins á Akranesi,
sem einnig horfir til þess að vera
með starfsemi á Grundartanga.
Hyggst Running Tide nýta þekk-
ingu sem fyrirtækið hefur aflað sér
í hátækniþörungarækt og byggja
upp starfsemi sína á því sviði.
Hluti lausnarinnar sem Running
Tide vinnur að byggist á að rækta
stórþörunga sem binda kolefni í
stórum stíl á sérhönnuðum baujum
á hafi úti en þörungarnir og bauj-
urnar vinna einnig gegn súrnun
sjávar, segir í tilkynningu.
Lausnir fyrirtækisins á sviði kol-
efnisbindingar bæta þannig lífríki
hafsins og skila ávinningnum til
sjávarplássa og vistkerfa heimsins.
Þróun og framleiðsla á þörungun-
um sjálfum fer fram á Akranesi og
forsvarsmenn fyrirtækisins telja að
Ísland hafi alla burði til að verða
miðstöð kolefnisbindingar í heim-
inum.
Framleiða þörunga til
kolefnisbindingar í hafi
- Stórt og mikilvæg skref, segir bæjarstjórinn á Akranesi
Akranes Fulltrúar frá Running Tide, Akraneskaupstað, Breið – þróunar-
félagi og Brimi að lokinni undirritun samningsins í gær.
Halla Berg-
þóra
Björns-
dóttir, lög-
reglustjóri á
höfuðborg-
arsvæðinu,
segir lög-
regluna
telja að hin
skipulagða
brota-
starfsemi sé mesta ógn sem
samfélög glími við í dag.
Starfsemin ógni þó ekki beinu
öryggi almennra borgara.
„Það fer eftir því hvernig
maður lítur á hvað sé að ógna
almenningi. Eins og hefur
komið fram hjá Europol þá er
mjög mikil starfsemi og mjög
mikill hagnaður af þessari
starfsemi. Telja þeir að þetta
sé jafnvel ógn við lýðræðið út
af því að hagnaðurinn er svo
mikill að það sé verið að múta
og spilling ríki. Það kemur
auðvitað allt niður á almenn-
ingi,“ sagði Halla við Morg-
unblaðið.
– Almenningur þarf þó
samt ekki að óttast um beint
öryggi sitt?
„Nei, kannski ekki beint en
þetta kemur niður á sam-
félögum og það er hluti af
okkar öryggi.“
Mikil ógn við
samfélögin
BROTASTARFSEMIN
Halla Bergþóra
Björnsdóttir