Morgunblaðið - 10.06.2022, Síða 6

Morgunblaðið - 10.06.2022, Síða 6
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Varnarmál Artis Pabriks, varnar- málaráðherra Lettlands. Fjölmenni var í fyrirlestrasal Þjóð- minjasafnsins í gær, en þar var haldin málstofa á vegum Varðbergs og Alþjóðamálastofnunar HÍ um þær nýju áskoranir sem smáríki standa frammi fyrir í varnar- og öryggismálum í kjölfar innrásar- innar í Úkraínu. Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfa- dóttir utanríkisráðherra og dr. Art- is Pabriks, varnarmálaráðherra Lettlands, fluttu erindi á fundinum, auk þess sem Merle Maigre, sér- fræðingur í netöryggi, ávarpaði einnig fundinn í gegnum fjarfunda- búnað frá Eistlandi. Auk þeirra sátu Baldur Þórhalls- son, prófessor í stjórnmálafræði, René Värk, lagaprófessor við há- skólann í Tartu, og Guðbjörg Ríkey Th. Hauksdóttir, doktorsnemi við HÍ, í pallborði og voru fjörlegar umræður um erindin. Nýjar áskoranir smáríkja 6 FRÉTTIR Innlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 10. JÚNÍ 2022 Steinþór Stefánsson steinthors@mbl.is Umsagnir Félags atvinnurekenda (FA) og Samtaka verslunar og þjónustu (SVÞ) um frumvarp til laga um breytingu á áfengislögum, sem Jón Gunnarsson dómsmála- ráðherra flutti fyrir Alþingi 25. maí sl., benda til þess að fyrirhug- aðar breytingar samræmist mögu- lega ekki skuldbindingum Íslands samkvæmt samningnum um Evr- ópska efnahagssvæðið og fari gegn Evrópurétti. Brýtur upp einokun ríkisins FA og SVÞ telja að enn frekari breytinga sé þörf og að mögulega sé brotið gegn jafnræðisreglu Evr- ópuréttar þar sem frumvarpið veitir einungis þrönga undanþágu frá einkaleyfi ÁTVR á smásölu áfengis til afmarkaðs hóps fram- leiðenda. Stefán Már Stefánsson, prófess- or við lagadeild Háskóla Íslands, segir í samtali við Morgunblaðið að sjálfsagt verði að leyfa þeim sem bjóða sambærilega þjónustu erlendis að veita hana hér. „Það verður erfitt að stoppa það, hvort sem þeir ætla að koma til skemmri eða lengri tíma. Þeir verða að njóta jafnréttis og það er erfitt að einskorða það við Ísland,“ segir Stefán. Hann segir að rök verði að standa til þess að afmörkuðum hópi framleiðenda áfengis, það er smærri framleiðendum, sé hyglt en ekki öðrum, annars sé um mis- munun að ræða. „Fyrir slíkri mismunun verður að færa fram sannfærandi rök. Hvenær þau eru sannfærandi er náttúrlega svolítið matsatriði. Það er auðvitað svolítið krítískt að mis- muna framleiðendum með þeim hætti, þótt það sé ekki óhugsandi,“ segir hann en telur ljóst að með frumvarpinu sé verið að brjóta upp einokun ríkisins, sem hefur ríkt um áraraðir. Andrés Magnússon, fram- kvæmdastjóri Samtaka verslunar og þjónustu, segir mögulegt að frumvarpið fari gegn Evrópurétti. „Við vekjum athygli á því að það kunni að fara gegn grundvallar- reglum Evrópuréttar að það sé verið að mismuna með þeim hætti sem frumvarpið gerir ráð fyrir; að sala áfengis frá framleiðslustað sé heimil en aðrir megi það ekki. Það kann að fara gegn jafnræðisreglu Evrópuréttar,“ segir hann. Talað fyrir frelsinu Andrés segir hins vegar SVÞ styðja frumvarpið. Jón Ólafur Halldórsson, formaður SVÞ, tekur undir það. „Við tölum almennt fyr- ir frelsi í viðskiptum. Það er rauði þráðurinn í því sem við gerum og fögnum öllum breytingum sem eru gerðar á núverandi áfengislögum í átt að frjálsræði,“ segir hann. Ólafur Stephensen, fram- kvæmdastjóri Félags atvinnurek- enda, segir að margt hafi mátt fara betur við gerð fyrirliggjandi frumvarps. „Þetta er ekki nógu vel unnið, hvorki hvað varðar jafnræðisreglu Evrópuréttar, þ.e. að framleiðend- ur í öðrum EES-ríkjum hafi sömu tækifæri til að koma sínum vörum á framfæri við íslenska neytendur og þeir innlendu, og ekki heldur gagnvart innlendu jafnræðisregl- unni,“ segir hann. Gæti gengið gegn Evrópurétti - FA og SVÞ segja möguleika á að ekki sé gætt jafnræðis í áfengisfrumvarpi Morgunblaðið/Eggert Áfengi Hér er skálað á góðri stund en breyting á áfengislögum gæti stang- ast á við skuldbingar Íslands í samningnum um Evrópska efnahagssvæðið. Skemmtiferðaskipið Silver Moon sigldi til hafnar í Reykjavík á miðvikudagskvöld. Skipið var upp- haflega á leið til Hafnarfjarðar en ákveðið var að sigla til Reykjavíkur, að sögn Gísla Jóhanns Hallssonar, yfirhafnsögumanns hjá Faxaflóa- höfnum. Segir hann að skipið hafi aukalega ver- ið skráð hjá þeim og ekki verið bókað fyrr en í síðustu viku. Aðrar skráðar skipakomur á hafn- arsvæðum Faxaflóahafna eru samkvæmt áætlun. Mikill fjöldi skemmtiferðaskipa er væntanlegur í sumar en í ár eru 193 skipakomur skráðar hjá Faxaflóahöfnum. Gert er ráð fyrir að farþegar verði yfir 200 þúsund. Um er að ræða talsverða fjölgun frá því árið 2021 þegar heildarfjöldi far- þega var tæplega 19 þúsund. Morgunblaðið/Hákon Silver Moon meðal 193 heimsókna til Reykjavíkur mikill í raun og veru.“ Gunnar segir að íslenskir bændur hafi talsvert horft til Noregs sem líkt og Ísland er í EES. „Norðmenn gera búvörusamning til ákveðins tíma og hann snýr beint að bændum. Þeir endurskoða samn- inginn á hverju ári og leiðrétta kjör bænda með tilliti til launaþróunar á almennum vinnumarkaði. Nýjasti samningurinn hljóðar upp á hundr- aða milljóna hækkun vegna stríðs- átakanna og áhrifa þeirra til hækk- unar á áburði og öðrum aðföngum. Okkur hefur því miður ekki lánast að Guðni Einarsson gudni@mbl.is „Ég er mjög ánægður með stofnun Samtaka fyrirtækja í landbúnaði (SAFL),“ segir Gunnar Þorgeirsson, formaður Bændasamtaka Íslands. Búnaðarþing 2020 samþykkti breyt- ingu á aðild bænda að Bændasam- tökunum. Því fylgdi að ræða átti við fyrirtæki í landbúnaði um að gæta sameiginlegra hagmuna. „Ég sá fram á að við myndum ekki ná neinum árangri í því samtali nema þessi fyrirtæki sameinuðust um einhverja stefnu. Hingað til höf- um við þurft að tala við hvert einasta fyrirtæki sérstaklega. Nú getum við rætt við stjórn SAFL um sameigin- leg verkefni. Tollamál og loftslags- mál eru t.d. sameiginleg verkefni okkar,“ segir Gunnar. Hann tekur undir orð Sigurjóns R. Rafnssonar, formanns SAFL, í Morgunblaðinu í gær um mikinn vanda íslensks landbúnaðar og að ís- lenskir bændur og fyrirtæki í land- búnaði búi við lakari skilyrði en starfssystkini þeirra í öllum öðrum Evrópulöndum. „Landbúnaður í Evrópusam- bandinu (ESB) nýtur talsverðra undanþága í sam- keppnislegu tilliti sem við gerum ekki. Styrkjakerfi ESB er ótrúlega flókið og notaðar alls konar leiðir til þess að styðja við landbúnaðarframleiðslu þar. En það er hvergi hægt að fletta því upp í einni tölu hvað stuðningurinn er fara svipaða leið,“ segir Gunnar. „Ef innflutningi landbúnaðarafurða til Noregs er deilt niður á hvern Norð- mann þá munar það mörgum kílóum hvað við heimilum miklu meiri inn- flutning á íbúa en Norðmenn gera.“ Hann segir að Norðmenn meti hvort virkilega sé þörf á innflutningi landbúnaðarafurða með tilliti til þess sem til er í landinu á hverjum tíma. Gunnar segir líkt og Sigurjón hjá SAFL að bændur standi frammi fyr- ir bráðum vanda. Nauðsynlegt sé að bregðast við vandanum sem fyrst vegna gríðarlegra hækkana aðfanga. Landbúnaður stendur höllum fæti - Formaður Bændasamtakanna fagnar stofnun SAFL - Auðveldar samvinnu um sameiginleg viðfangsefni - Lakari skilyrði bænda hér en annars staðar í Evrópu - Bráður vandi steðjar að Gunnar Þorgeirsson

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.