Morgunblaðið - 10.06.2022, Blaðsíða 10

Morgunblaðið - 10.06.2022, Blaðsíða 10
10 FRÉTTIR Innlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 10. JÚNÍ 2022 Sjómannadagsblaðið, sem Sjómannadagsráð höfuðborgarsvæðisins hefur gefið út árlega í til- efni sjómannadagsins allt frá árinu 1938, kom út í vikunni. Í fyrsta sinn í sögu blaðsins er það nú einnig upplesið og aðgengilegt öllum endur- gjaldslaust á Hljóðbókasafninu, hbs.is, og annast leikarinn Pétur Eggerz upplesturinn. Í blaðinu er m.a. rætt við forseta Íslands, Guðna Th. Jóhannesson, sem vinnur að bók um útfærslu landhelginnar í 12 mílur fyrir 50 árum. Einnig er rætt við Kristján Ragnarsson, fv. for- mann Landssambands íslenskra útvegsmanna. Þá er í blaðinu allt um dagskrá sjómannadagsins í Reykjavík um helgina. Sjómannadagsblaðið upplesið í fyrsta sinn Guðmundur Björgvin Helga- son var í gær kjörinn í embætti ríkisendurskoð- anda á Alþingi með 54 sam- hljóða atkvæðum en þrír greiddu ekki atkvæði. Tólf gáfu kost á sér í embættið. Guðmundur Björgvin fæddist árið 1964. Hann var staðgengill ríkis- endurskoðanda og sviðsstjóri hjá Ríkisendurskoðun og forstöðumað- ur skrifstofu embættisins á Akur- eyri. Hann var áður ráðuneytis- stjóri í landbúnaðarráðuneyti og mannauðsstjóri hjá Flóttamanna- hjálp SÞ í Jórdaníu. Guðmundur kjörinn ríkisendurskoðandi Guðmundur Björg- vin Helgason Þriðjudagskvöldið 14. júní kl. 20 mun Mervi Luoma umhverfisfræð- ingur ásamt starfsfólki Grasagarðs Reykjavíkur fjalla um ágengar plöntur og hvað sé hægt að gera til að stemma stigu við þeim. Hefst fræðslugangan við bílastæðið við Listasafn Sigurjóns Ólafssonar á Laugarnestanga. Fram kemur í tilkynningu að þátttakendum í göngunni býðst að safna ágengum plöntum sem hægt er að nota í matreiðslu. Þeir sem vilja taka jurtir með heim eru beðn- ir að mæta með skæri og pappírs- poka fyrir söfnunina. Leiðsögnin fer fram á ensku en verður þýdd á íslensku fyrir þá sem þurfa. Þátttaka er ókeypis og allir vel- komnir. Fræðsluganga í Laug- arnesi um illgresi STUTT Karlotta Líf Sumarliðadóttir karlottalif@mbl.is „Hvernig getur svona lagað gerst nú til dags? Þetta vekur fyrst og fremst stórkostlega undrun og þetta er bara sorglegt,“ segir Hulda Guð- mundsdóttir, skógarbóndi á Fitjum í Skorradal, í við- tali við Morg- unblaðið. Svöðu- sár í hlíðum Dragafells í Skorradal vegna vinnuslóða Skóg- ræktarinnar hef- ur vakið hörð við- brögð meðal íbúa og sumarhúsaeig- enda á svæðinu. Segir Hulda að Skógræktinni hafi verið skylt að afla leyfis fyrir framkvæmdinni, sem ekki var gert. Hreinn Óskarsson, sviðsstjóri þjóðskóga hjá Skógræktinni, segir aftur á móti að Skógræktin hafi ver- ið í góðri trú þegar vinnuslóðinn var lagður. „Þetta er vinnuslóði sem er gerður með jarðýtu til að opna að- gengi inn á svæði sem verið er að gróðursetja á. Það er svona megin- tilgangurinn en síðan nýtist svona slóði í framtíðinni til að bera á skóg- inn og opnar leið fyrir brunavarnir ef það verður gróðureldur á svæð- inu,“ segir Hreinn. „Þetta er ekki breiður vegur heldur í rauninni bara spor sem til stendur að dreifa áburði og grasfræi á þannig að það grói upp og verði ósýnilegt úr fjarlægð að mestu. Þetta er inni á landi sem Skógræktin er búin að vera með í nokkra áratugi. Ríkið felur Skóg- ræktinni umsjón með löndum og svona svæði eru úti um allt land. Yf- irleitt er þetta skilgreint í aðal- skipulagi sem skógræktarsvæði og hluti af því að rækta upp skóginn er að leggja vinnuslóða á svæðinu.“ Telur Skógræktin því að ekki hafi þurft að afla leyfis fyrir fram- kvæmdinni. „Aftur á móti ef við vær- um að fara inn á alveg nýtt svæði sem væri í raun ekki skipulagt skóg- ræktarsvæði í aðalskipulagi þá hefð- um við náttúrulega sótt um fram- kvæmdaleyfi fyrir allri fram- kvæmdinni og líka gróðursetningu og öðru slíku eins og skipulagslög gera ráð fyrir. Þannig að við vorum bara í mjög góðri trú um að bæta að- gengi,“ segir Hreinn. Huldu finnst Skógræktin þó fara býsna frjálslega með umboð sitt. „Að halda að þeir geti framkvæmt eitthvað svona án þess að sækja um framkvæmdaleyfi og án þess að vera í samráði við skipulagsyfirvöld á nokkurn hátt,“ segir hún og bætir við: „Búið er að stöðva framkvæmd- ina en skaðinn er skeður. Fyrir utan það að taka í sundur svona hlíð, menn eiga að vita að það getur skap- að hættu á skriðuföllum.“ Lögregla kölluð til Hulda er ákveðin í að leggja fram kæru og á tíma hjá lögreglunni 14. júní næstkomandi. Hreinn segir að skipulagsfulltrúi hafi kallað til lögreglu vegna máls- ins. „Í skipulagslögum er gert ráð fyrir að skipulagsfulltrúi geti vissu- lega stöðvað framkvæmdir ef þær eru í óleyfi en aftur á móti þarf hann að hafa samþykkt sveitarstjórnar fyrir því og þá er venjulega haft samband við framkvæmdaraðila og spurt hvað sé í gangi en það er nú yfirleitt ekki kölluð til lögregla í svona tilfellum,“ segir Hreinn og bætir við að framkvæmdinni hafi verið lokið er lögregla kom á staðinn og jarðýtan verið farin. Hreinn segist skilja viðbrögð fólks. „Það er fólk sem er í nýjum bústöðum þarna inni í skóginum handan við vatnið sem hringdi. Við hefðum kannski getað kynnt þetta betur áður en byrjað var á þessu svona til að minnka hringingar frá fólkinu. Ég ætla að vona að það spretti bara upp skógur þarna í hlíð- inni, það er nú það eina sem við stefnum að en ég veit ekki hvort það verði einhverjar aðrar afleiðingar. Það verður þá bara rætt og ég vona bara að ný sveitarstjórn taki þetta fyrir fljótlega,“ segir Hreinn. Skorradalur Svöðusár í hlíðum Dragafells í Skorradal vegna vinnuslóða sem lagður var af Skógræktinni hefur vakið hörð viðbrögð meðal íbúa og sumarhúsaeigenda á svæðinu. „Þetta er fyrst og fremst sorglegt“ - Hulda Guðmundsdóttir á Fitjum í Skorradal hyggst kæra Skógræktina til lögreglu Votlendi Skógræktin í Skorradal plægir í votlendi. Hreinn Óskarsson

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.