Morgunblaðið - 10.06.2022, Side 12
Nú finnur þú
það sem þú
leitar að á
FINNA.is
12 FRÉTTIR
Viðskipti | Atvinnulíf
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 10. JÚNÍ 2022
BAKSVIÐ
Þóroddur Bjarnason
tobj@mbl.is
Mikill áhugi er á ráðstefnu Ice-
landSIF um ábyrgar fjárfestingar
sem haldin verður í Hörpu 15. og 16.
júní nk. Kristbjörg M. Kristinsdóttir
stjórnarformaður samtakanna segir
að uppselt sé á ráðstefnuna en þar
munu 165 manns koma saman til að
hlýða á erindi og taka þátt í um-
ræðum. Um helmingur þátttakenda
kemur frá öðrum löndum, sem
Kristbjörg segir sérlega ánægjulegt.
Einnig verður boðið upp á beint
streymi sem opið verður öllum.
Fyrsta ráðstefna hér á landi
„Þetta er fyrsta alþjóðlega ráð-
stefnan sem IcelandSIF stendur fyrir
á vettvangi NordicSIF en systursam-
tök IcelandSIF skiptast á að halda
ráðstefnuna á hverju ári. Þar koma
jafnan saman alþjóðlegir aðilar sem
kynna reynslu og þekkingu af ábyrg-
um fjárfestingum á fjármálamörkuð-
um heima fyrir. Þemað hjá okkur í ár
er „hafið“,“ segir Kristbjörg.
Samtökunum IcelandSIF er ætlað
að vera óháður vettvangur fyrir um-
ræðu og fræðslu um ábyrgar og sjálf-
bærar fjárfestingar eins og Krist-
björg útskýrir. „Félagsaðilar eru
tvenns konar, aðildarfélög og aukaað-
ilar. Aðildarfélög geta verið starfs-
leyfisskyld fjármálafyrirtæki, lífeyr-
issjóðir og tryggingafélög sem
fjárfesta fyrir eigin reikning eða í um-
boði þriðja aðila með starfsemi á Ís-
landi og styðja tilgang félagsins.
Aukaaðilar geta verið aðrir lögaðilar,
samtök og opinberir aðilar með starf-
semi á Íslandi sem styðja tilgang fé-
lagsins.“
Stendur Íslendingum nærri
Um þema ráðstefnunnar í ár segir
Kristbjörg að hafið standi Íslending-
um mjög nærri og sé þeim kært. „Við
völdum hafið sem þema til að sýna
kollegum okkar á Norðurlöndunum
hversu metnaðarfullt vísindastarf,
stefnumótun og nýsköpun er í þess-
um málum hér á landi.“
Erlendu gestirnir eru í flestum til-
vikum sérfræðingar sem stýra fjár-
magni í sínum heimalöndum og
margir hverjir eru mjög framarlega á
sínu sviði að sögn Kristbjargar. Að-
spurð segir hún að nokkrir þeirra séu
einmitt með sérstaka áherslu á lausn-
ir er tengjast hafi og vatni.
„Á ráðstefnunni verða fyrirlestr-
ar, vinnustofur og pallborðsumræð-
ur m.a. þar sem tekist verður á við
úrlausnarefni sem tengjast sjálfbær-
um fjárfestingum á sviði umhverf-
ismála, félagslegra þátta og stjórn-
arhátta. Ég er mjög spennt að
fylgjast með umræðum og sjónar-
miðum frá mismunandi hópum.“
Spurð hvort eitt af markmiðunum
sé að vekja athygli erlendra fjár-
magnseigenda á íslenskum fjárfest-
ingarkostum tekur Kristbjörg undir
það. Samtökin geti stuðlað að því að
kveikja neista hjá hinum erlendu að-
ilum. „Við viljum að þeir sjái hversu
framarlega við erum í þessum mál-
um og mögulega benda á Ísland sem
góðan fjárfestingarkost inn í fram-
tíðina. Við sjáum gífurlegt tækifæri í
að sýna fram á hvað Ísland er mikill
brautryðjandi í nýtingu auðlinda
hafsins og hvernig við getum skapað
okkur sérstöðu í heiminum hvað það
varðar.“
Mikill meðbyr um allan heim
Kristbjörg segir aðspurð að mikill
meðbyr sé með ábyrgum fjárfesting-
um um þessar mundir um allan
heim. „Þeir sem stýra fjármagni vita
að þetta er framtíðin.“
Það sé til vitnis um aukinn áhuga
að sífellt meira sé leitað eftir upplýs-
ingum um málefnið hjá IcelandSIF
og félagsaðilum fjölgar jafnt og þétt.
„Við tökum ekki afstöðu til einstakra
mála en erum gjarnan kölluð til til
að skýra út aðferðafræðina og á
hverju hún byggist. Til dæmis var
frábær þátttaka í opnum fræðslu-
fundum sem við héldum í faraldr-
inum þar sem yfir eitt hundrað
manns fylgdust með í hvert sinn á
netinu. Við finnum mjög skýrt fyrir
þörf og áhuga á fræðslu um þessi
mál.“
Kristbjörg segir að SIF-samtökin
hafi orðið til á Norðurlöndunum fyr-
ir allmörgum árum. Þau séu mjög
öflugur félagsskapur hvað viðkemur
sjálfbærum fjárfestingum en Norð-
urlöndin hafa leitt þessa umræðu
yfir lengra skeið að sögn Kristbjarg-
ar. „Á síðustu fimm árum eða svo
hafa Bandaríkin svo komið mjög
sterkt inn. Málefnin eru ekki lengur
gæluverkefni fárra heldur verkefni
heildarinnar.“
Marel og Sjávarklasinn
Meðal þeirra fyrirtækja sem
kynna starfsemi sína á ráðstefnunni
eru tæknifyrirtækið Marel og Sjáv-
arklasinn. Einnig verða myndskeið
frá Transition Labs og Running
Tide sem vinna að áhugaverðum
verkefnum tengdum loftslagsmál-
um. „Íslendingarnir sem eru hluti af
dagskránni eru sérfræðingar og
brautryðjendur á sínu sviði. Við hjá
IcelandSIF erum mjög stolt af því
að hafa fengið þau til liðs við okkur.
Einnig er ég virkilega ánægð með að
vísindakonurnar Anna Hulda Ólafs-
dóttir og Hrönn Egilsdóttir skuli
hefja ráðstefnuna og veita einstaka
sýn á vísindastarf á Íslandi. Þær eru
að vinna að mikilvægum verkefnum
fyrir Ísland á sviði loftslagsmála til
skemmri og lengri tíma.“
Opnunarerindið verður flutt af
Elízu Jean Reid forsetafrú. „Það
verður gaman að fá innsýn Íslend-
ings af erlendum uppruna á hafið
sem okkur er svo mikilvægt,“ segir
Kristbjörg að lokum.
Mikill áhugi á sjálfbærni
Sjór Kristbjörg M. Kristinsdóttir stjórnarformaður IcelandSIF er ánægð með góða þátttöku í ráðstefnunni.
- Hafið er þema alþjóðlegrar ráðstefnu IcelandSIF um sjálfbærar fjárfestingar
- Erlendir sérfræðingar - Löngu uppselt- Mikið leitað til samtakanna
Fjárfestingar
» Samtökunum Iceland SIF er
ætlað að vera óháður vett-
vangur fyrir umræðu og
fræðslu um ábyrgar og sjálf-
bærar fjárfestingar.
» Málefni tengd sjálfbærni
ekki lengur gæluverkefni fárra
heldur verkefni heildarinnar.
Stærsti bílafarmur, sem nokkru
sinni hefur komið með einu skipi
til Íslands, kemur til hafnar í
Þorlákshöfn í dag þegar flutn-
ingaskipið Mykines leggst að
bryggju með fullfermi.
Að sögn Lindu Gunnlaugs-
dóttur framkvæmdastjóra Smyril
Line, sem gerir flutningaskipið
út, er um 545 bíla að ræða. Skip-
ið getur að hennar sögn tekið
yfir 500 bíla á þrjú sérstök bíla-
dekk og auk þess 90 flutninga-
vagna. Fyrra met var 350 bílar
árið 2017 þegar félagið hóf sigl-
ingar með Mykines til Íslands.
„Þar sem meginhluti bílanna sem
kemur með skipinu á morgun
kom frá Zeebrugge í Belgíu var
ákveðið að senda skipið sérstaka
ferð þangað þar sem lestaðir
voru 329 Toyotabílar. Þetta var
það mikill fjöldi frá einum stað
að ákveðið var að taka smá út-
úrdúr. Þetta er þó einungis gert í
undantekningatilfellum. Þetta
hefur aðeins verið gert einu sinni
áður, þegar skipið fór sérstaka
ferð til Cuxhaven eftir Volks-
wagen-bílum,“ segir Linda.
Sérhannað fyrir bíla
Mykines er sérhannað til bíla-
flutninga og er bifreiðunum ekið
um borð.
„Nú er loksins að liðkast til í
bílaframleiðslu heimsins og hálf-
leiðaraskorturinn sem tafði fyrir
að minnka. Það hefur verið mikil
eftirspurn eftir bílum hér á
landi,“ segir Linda.
Smyril Line siglir þrjár ferðir í
viku til Þorlákshafnar. Tvisvar er
siglt til Rotterdam og einu sinni
til Danmerkur. Einnig rekur
fyrirtækið farþegaferjuna Nor-
rænu sem kemur að bryggju á
Seyðisfirði.
Stærsti bílafarmur sögunnar
- Fyrra met var
350 bifreiðar
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Eftirspurn Mykines er sérhannað
skip til bílaflutninga.
10. júní 2022
Gengi Kaup Sala Mið
Dollari 129.34
Sterlingspund 162.31
Kanadadalur 103.14
Dönsk króna 18.673
Norsk króna 13.699
Sænsk króna 13.236
Svissn. franki 132.46
Japanskt jen 0.9651
SDR 174.18
Evra 138.9
Meðalgengi/Viðskiptavog þröng 170.7287
« Stjórn Festar gæti verið í snúinni
stöðu verði krafa hóps hluthafa um
hluthafafund að veruleika. Eins og
greint var frá í Morgunblaðinu í gær
hefur hópur hluthafa í félaginu rætt
það sín á milli að óska eftir hluthafa-
fundi vegna óánægju með þá ákvörðun
stjórnar að víkja Eggert Þór Kristófers-
syni úr starfi forstjóra í síðustu viku. Í
tilkynningu sem send var Kauphöll á
miðvikudag í síðustu viku kom fram að
Eggerti Þór hefði sjálfur sagt upp
störfum, en eins og greint var frá í Við-
skiptaMogga á miðvikudag var það
ákvörðun stjórnar að víkja honum úr
starfi, þó þannig að hann myndi starfa
út júlímánuð. Samkvæmt heimildum
Morgunblaðsins var það sameiginleg
niðurstaða stjórnar og forstjóra að út-
færa uppsögnina með þeim hætti.
Þrátt fyrir þá útfærslu hafa bæði
Morgunblaðið og Viðskiptablaðið greint
frá því að Eggerti Þór hafi verið sagt
upp störfum. Fréttaflutningi blaðanna
af málinu hefur ekki verið mótmælt.
Fari svo að hluthafafundur verði
haldinn er stjórn félagsins engu að síð-
ur bundin af því sem búið er að til-
kynna til Kauphallar. Samkvæmt því
þarf stjórnin að tilkynna hluthöfum
sem sækja fundinn að málið sé svona í
pottinn búið og að Eggert Þór hafi
sjálfur sagt upp störfum. Þó verður að
teljast ólíklegt að þeir sem sérstaklega
óska eftir hluthafafundi sætti sig við
þau svör. Ef stjórnin hins vegar upp-
lýsir um önnur málsatvik þarf hún um
leið að viðurkenna að fyrrnefnd til-
kynning til Kauphallarinnar hafi verið
röng eða villandi. Fyrir stjórn í skráðu
félagi er slíkt nær ógjörningur enda
myndi það kalla á viðbrögð fjármálaeft-
irlits Seðlabankans.
Rétt er að taka fram að enn hefur
ekki verið kallað til hluthafafundar,
enda þurfa eigendur 10% hluta félags-
ins að óska eftir því. Samkvæmt heim-
ildum Morgunblaðsins er mikið þrýst á
þá lífeyrissjóði sem eiga hlut í félaginu
að styðja við beiðni um hluthafafund,
enda myndi þátttaka þeirra flýta fyrir
þeirri ákvörðun.
gislifreyr@mbl.is
Flókin staða fyrir stjórn
Festar á hluthafafundi
STUTT