Morgunblaðið - 10.06.2022, Side 16
16 UMRÆÐAN
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 10. JÚNÍ 2022
VINNINGASKRÁ
55 9775 17712 28243 38988 51375 60930 70467
73 9785 17866 28288 39008 51478 61257 71245
456 9916 18336 29237 39776 51570 61317 71487
603 10218 18478 29238 39937 52171 61623 71811
695 10303 18487 29294 40813 52452 61847 72404
1129 10689 18673 29334 41097 52664 61947 72432
1464 10702 18681 29559 41249 53623 61963 73286
1599 10854 18692 30959 41299 54382 62017 73984
2231 11099 19143 31025 41540 54390 62041 74292
3487 11136 20348 31421 41830 54422 62150 75095
3586 11317 20991 31436 41908 54972 62324 75885
3698 11373 21414 31678 41912 55069 62933 76309
3823 12270 21727 31719 42421 55099 62956 76447
3874 12415 21833 31931 42612 55709 63046 76493
3997 12441 22048 32292 42974 56040 63571 76761
4143 12781 22075 32322 43518 56070 63870 77744
4212 13334 22252 32591 44024 56707 64156 77862
4260 13482 22282 32733 44529 56893 64238 77982
4686 14038 22423 33208 44594 57513 64263 78282
4906 14135 22646 34152 45377 57554 64374 78289
5743 14327 22830 34919 45424 57682 64670 78545
5919 14812 23053 35090 45673 57807 65187 78632
6776 14813 23212 35215 45984 57896 65384 78844
6914 14981 23850 36043 46130 57974 65479 78952
7018 15283 23872 36285 46334 57987 65920 79121
7056 15649 23955 36799 46521 58131 66491 79195
7333 15813 25008 37272 46555 58247 66620 79291
7497 16001 25076 37355 47409 58274 66844 79550
7537 16145 25203 37599 47684 58403 67338 79597
7577 16917 25403 37663 47798 58474 67436 79706
7741 16994 25879 37775 48407 58747 67550 79720
7903 17064 26451 37785 48442 59174 67879
8624 17118 27055 37921 48956 59349 68224
9004 17409 27213 38107 49016 60123 69330
9052 17425 27283 38352 49261 60464 69395
9171 17476 27641 38394 49647 60517 69919
9503 17662 27869 38842 50429 60926 70210
102 9297 18630 24444 37571 49294 63217 75799
271 10801 19091 26543 38573 51746 64068 76196
312 11214 19443 26710 41328 52880 64228 76464
762 11300 19542 27570 41525 54271 64401 77606
1977 11341 19907 30556 41877 56278 65034 78385
3271 12648 20036 30638 42334 56451 66283 78484
3368 13227 20077 31204 42402 56550 67101 79040
4784 13344 20154 32247 42878 58976 67754 79047
5034 15341 20588 33573 44386 59096 70181 79637
5271 15787 22202 35048 44797 59161 71681
6427 15956 22504 35092 47673 60513 72886
7347 16558 22811 35152 47685 61742 73400
7360 18175 23683 35258 47952 63005 74479
Næstu útdrættir fara fram 16., 23. & 30. júní 2022
Heimasíða: www.das.is
Vinningur
Kr. 15.000 Kr. 30.000 (tvöfaldur)
Vinningur
Kr. 25.000 Kr. 50.000 (tvöfaldur)
Vinningur
Kr. 150.000 Kr. 300.000 (tvöfaldur)
8231 22818 40180 41270 55726
Vinningur
Kr. 50.000 Kr. 100.000 (tvöfaldur)
4231 11780 24827 46495 65872 71938
4712 16027 37498 46760 67501 75816
6753 20868 40547 47006 68938 78036
8964 21680 44641 50020 69964 79030
Aðalv inningur
Kr. 2.000.000 Kr. 4.000.000 (tvöfaldur)
3 8 7 3
6. útdráttur 9. júní 2022
Ein af helstu ástæð-
um þess að Ísland rað-
ar sér á topp þeirra
ríkja sem mestar
tekjur hafa er mikil
þátttaka íslenskra
kvenna á vinnumark-
aði. Þessi mikla at-
vinnuþáttaka kvenna
skapar hins vegar ekki
einungis mikinn auð í
íslensku samfélagi
heldur eykur hún beinlínis fram-
leiðni samkvæmt alþjóðagjaldeyr-
issjóðnum. Framleiðni er mæli-
kvarði á rekstrarhagkvæmni og
segir í raun hversu mikið er fram-
leitt á klukkutíma.
Hins vegar fyrirfinnst launamun-
ur milli kynja vegna kynskipts
vinnumarkaðar sem kostar okkur
öll. Kostnaðurinn liggur ekki ein-
ungis hjá konum. Þessi launamunur
og ójafnrétti á vinnumarkaðinum
dregur nefnilega bæði
úr framleiðni og vexti.
Óréttlátt og
óskynsamlegt
Framkvæmdastjóri
alþjóðagjaldeyrissjóðs-
ins sagði nýverið:
„Þessi ójafna staða
milli karla og kvenna
veldur efnahagslegum
kostnaði þar sem hún
dregur úr framleiðni og
hagvexti.“ Samkvæmt
rannsóknum er þessi
kostnaður jafnvel enn meiri en áður
var talið.
Þá sýnir nýleg rannsókn frá Har-
vard að launahækkun til kvenna
eykur framleiðni meira en launa-
hækkun til karla.
Rannsóknir hafa jafnframt sýnt
að með því að minnka launamun
kynjanna um 10% getur framleiðni
vinnuafls aukist um 3%, sem er um-
talsvert.
Til að setja þessa 3% tölu í sam-
hengi þá varð árlegur framleiðni-
vöxtur hjá hinu opinbera 0,5% á
tímabilinu 1998-2020. Því er eftir
miklu að slægjast fyrir samfélagið
allt.
Störf sem eru að stærstum hluta
unnin af konum eru iðulega lægra
launuð en störf unnin af körlum. Það
er ekki einungis hrópandi óréttlæti
heldur er það einnig efnahagslega
óskynsamlegt.
Þetta ættu allir að hafa í huga í
næstu kjarasamningum.
Eftir Söndru
B. Franks » Þá sýnir nýleg rann-
sókn frá Harvard að
launahækkun til kvenna
eykur framleiðni meira
en launahækkun til
karla.
Sandra B. Franks
Höfundur er formaður
Sjúkraliðafélags Íslands.
sandra@slfi.is
Á að hækka laun kvenna?
Nú nærri 24 árum
eftir að Hæstiréttur Ís-
lands kvað upp dóm í
máli mínu gegn ís-
lenska ríkinu vegna
synjunar á umsókn
minni um fiskveiðileyfi
og aflaheimildir hefur
Alþingi ekki enn leið-
rétt stjórnarskrár-
brotin sem felast í lög-
um um stjórn fiskveiða
og framkvæmd þeirra.
Í dómi Hæstaréttar í máli nr. 145/
1998 fimmtudaginn 3. desember var
einróma niðurstaða allra fimm dóm-
aranna að lög um stjórn fiskveiða
nr. 38/1990 brytu í bága við 65. og
75. grein stjórnarskrárinnar, þ.e.
gegn jafnræðisreglu og atvinnu-
frelsi, og að ríkisvaldinu hefði því
ekki verið heimilt að hafna umsókn
minni um veiðileyfi og aflaheimildir
með vísun til laganna. Ekki verður
þrískipting ríkisvaldsins skilin með
öðrum hætti en að löggjafarvaldinu
hafi þá verið skylt að breyta svo lög-
um að þau stæðust stjórnarskrá Ís-
lands. Það hefur ekki verið gert þó
að margar aðrar breytingar hafi
verið gerðar á lögunum, sem heita
núna lög nr. 116/2006.
Enginn tekur sæti á Alþingi án
þess að sverja þess eið að halda
stjórnarskrána. Það hvílir því tvö-
föld skylda á sérhverjum þingmanni
nú og hefur gert það í tæp 24 ár að
bregðast við þessum galla laganna,
bæði vegna dómsins og svo frum-
kvæðisskyldan að gæta þess að lög
landsins samrýmist stjórnar-
skránni. Óhollusta við stjórnar-
skrána núna verður ekki afsökuð
með óheilindum fyrri þingmanna og
þá sérstaklega þeirra sem sátu á Al-
þingi í desember 1998.
En það er ekki einasta stjórnar-
skráin sem rekur á eftir að gengið
verði í það verk að hreinsa þennan
smánarblett af Alþingi Íslendinga,
heldur er einnig alveg ljós andstaða
þjóðarinnar við núverandi kvóta-
kerfi, sem byggist á nefndum lög-
um. Nýleg viðhorfskönnun leiddi
m.a. í ljós að þrír fjórðu hlutar
þeirra sem afstöðu tóku voru and-
vígir fiskveiðikerfinu, svipað og ver-
ið hefur mestan hluta kvótatímans
eða í fjóra áratugi. Þingmenn sitja á
Alþingi í umboði þjóðarinnar. Þeir
eru kosnir til að framfylgja vilja
hennar. Þar kemur þriðja ríka
ástæðan til að leiðrétta lög um
stjórn fiskveiða að fara að vilja eig-
anda fiskveiðiauðlindarinnar, sem
er íslenska þjóðin sbr. 1. grein
nefndra laga:
1. gr.
Nytjastofnar á Ís-
landsmiðum eru sam-
eign íslensku þjóð-
arinnar. Markmið laga
þessara er að stuðla að
verndun og hagkvæmri
nýtingu þeirra og
tryggja með því trausta
atvinnu og byggð í land-
inu. Úthlutun veiði-
heimilda samkvæmt
lögum þessum myndar
ekki eignarrétt eða
óafturkallanlegt for-
ræði einstakra aðila yfir
veiðiheimildum.
Algjörlega fráleitt er að nokkur að-
ili með einhverja þekkingu á þessum
málum finnist, sem áttar sig ekki á
því að markmið þessarar greinar hef-
ur á engan hátt gengið eftir. Greinin
er hrein öfugmæli við ríkjandi
ástand.
Kvótakerfið hefur leitt til minni
hefðbundins afla og stuðlar hreint
ekki að hagkvæmri nýtingu. Þorsk-
aflinn á Íslandsmiðum hefur verið að-
eins 40% af því sem hann hafði verið
áratugum saman fyrir daga kvóta-
kerfisins. Það er fjórða ríka ástæðan
til að breyta lögunum. Þorskaflinn,
sem hefur verið hafður af þjóðinni,
samsvarar um 100 milljörðum króna
á ári upp úr sjó en meira en tvöfalt
hærri upphæð í útflutnings-
verðmætum fyrir utan afleiddar
tekjur hagkerfisins, sem ella skiluðu
sér margfalt inn í þjóðartekjurnar.
Og þarna erum við bara að miða við
þorskinn. Það sama á við um annan
hefðbundinn afla.
Fimmta ríka ástæðan fyrir alþing-
ismenn til þess að breyta fiskveiði-
stjórnarkerfinu er að hvata vantar til
nýsköpunar í nýtingu auðlindarinnar.
Ýmsar sjávarafurðir eru hreinlega
ekki nýttar. Þarna má tilgreina ýmis-
legt gamalkunnugt eins og skelfisk
ýmiss konar, hákarl, sæbjúgu,
smokkfisk en ekki síður ýmislegt sem
tilheyrir grundvallarlífi hafsins eins
og áta og sjávargróður. Þarna fara í
súginn mikil verðmæti og um leið
tækifæri fyrir unga menn að vinna að
nýsköpun sem er sjötta ríka ástæðan
fyrir alþingismenn að reka nú af sér
slyðruorðið, sem er orðið þeim til
rækilegrar skammar.
Sjöunda ríka ástæðan fyrir alþing-
ismenn er að breyta svo fiskveiði-
stjórninni að brottkast afla í stórum
stíl yrði stöðvað. Allir, sem ekki hafa
hag af ósannindum, viðurkenna að
brottkast er mjög mikið í núverandi
kvótakerfi. Kvótastýring bókstaflega
kallar á brottkast afla til að hámarka
nýtinguna á takmörkuðum kvóta.
Jafnvægi í byggð landsins er síðan
áttunda ríka ástæðan til að leiðrétta
gjafakvótakerfið sem riðlaði byggðum
landsins með stórkostlegu eignatjóni
fólks víða í byggðum landsins.
Níunda ríka ástæðan fyrir alþingis-
menn væri svo að stuðla að réttlátu
samfélagi en almennt réttlæti í sam-
félögum eru mikilvæg verðmæti sem
ekki ættu að gleymast. Tíunda ríka
ástæðan fælist svo loks í vellíðan þing-
manna við að láta gott af sér leiða.
„Gjör rétt – þol ei órétt“ ætti að vera
leiðarstef allra þingmanna en ekki að-
eins innihaldslaust slagorð nokkurra
þeirra.
Ég veit að það hefur vafist fyrir
fulltrúum þjóðarinnar á Alþingi að sjá
hvað koma ætti í staðinn fyrir núver-
andi kvótakerfi. Ljóst er að ýmsar
leiðir eru vænlegar og myndu leiða til
stóraukinna tekna fyrir þjóðarbúið.
Ef gætt er að réttum leikreglum hafa
allar leiðir sem kæmu til greina þann
stóra kost að fulltrúar þjóðarinnar í
umboði hennar gætuð þreifað sig
áfram með hagkvæmar leiðir og hugs-
anlega myndi í framtíðinni finnast hin
eina rétta leið. Ég, eins og eflaust
margir kunnáttumenn á þessu sviði,
treysti mér til að velta upp nokkrum
möguleikum ef þess er óskað.
Svo vel vill til að það er engum vafa
undirorpið að þjóðin á nytjastofnana
eins og segir í upphafi l. greinar lag-
anna. Því getur ekki ríkt neinn ágrein-
ingur um rétt Alþingis til að breyta
reglum um stjórn fiskveiða.
Einnig má benda á að í dómi
Hæstaréttar nr. 12/2000, svokölluðum
Vatneyrardómi 6. apríl 2000, kemur
fram það álit að engin fyrirstaða sé til
þess breyta reglunum. Í Vatneyrar-
dóminum kemur m.a. fram að Alþingi
geti vikið til hliðar ákvæðum stjórn-
arskrárinnar um stundarsakir til að
afstýra vá eins og meint ofveiði hafi þá
verið á Íslandsmiðum. Enginn getur
haldið því fram að ástand fiskistofna
landsins réttlæti slíkt um fjóra ára-
tugi. Ástandið réttlætti raunar aldrei
þessi ósköp enda var ekki um neina vá
að ræða, hvorki þá né núna.
Hér hafa verið tilgreindar 10 ríkar
ástæður fyrir alþingismenn að bregð-
ast við. Hver og ein hefði verið næg
ástæða. Nú er mál að linni og þótt
miklu fyrr hefði verið.
Tíu ríkar ástæður
fyrir alþingismenn
Eftir Valdimar
Jóhannesson » „Gjör rétt – þol ei
órétt“ ætti að vera
leiðarstef allra þing-
manna en ekki aðeins
innihaldslaust slagorð
nokkurra þeirra.
Valdimar H
Jóhannesson
Höfundur er á eftirlaunaaldri.
vald@centrum.is
Allt um sjávarútveg