Morgunblaðið - 10.06.2022, Side 20

Morgunblaðið - 10.06.2022, Side 20
20 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 10. JÚNÍ 2022 Þau átt þú svo sannarlega öll skilið og svo miklu fleiri. Þú varst svo einlæg og sönn. Hafðir sterka samkennd og varst fljót að lesa í aðstæður. Fyrir utan augljósar gáfur þá bjóstu yfir sjaldgæfri visku. Visku sem er erfitt að út- skýra. Þú varst afburða náms- maður og rúllaðir upp erfiðustu prófunum í sjúkraþjálfun með 9 í einkunn. Enda varstu alltaf efst í bekknum. Þú hafðir keppnisskap og stóðst á þínu þegar þörf var á. Varst algjörlega laus við drama og þurftir engar málalengingar til að koma þínu á framfæri. Það gerðir þú hnitmiðað í fáum orð- um. Þú varst náttúrubarn og mér fannst svo fallegt hversu mikla núvitund þú hafðir. Gast verið al- gjörlega í núinu að horfa á eitt- hvað í umhverfinu eða setið í ró með tebolla og mola af dökku súkkulaði. Á ferðalögum erlendis hugnaðist þér frekar að leggjast í almenningsgarð með góða bók en að standa í búðarápi. Þrátt fyrir öll ferðalögin og allt það skemmtilega sem við höf- um gert þá eru það ekki síst hversdagslegu samverustundirn- ar sem vega þungt í minningunni. Að vera í þinni návist var svo dýr- mætt, sama hvað var í gangi í kring. Allar þessar stundir geymi ég í hjartanu og verð ævinlega þakklát fyrir þær og þig, elsku gull. Þú háðir erfiða baráttu við ill- vígan sjúkdóm af slíkri þraut- seigju og keppnisskapi að leitun er að öðru eins. Veikindi þín og fráfall nísta í hjartað og það er erfitt að taka þessum málalokum þótt vitað væri í hvað stefndi. Elsku Inga Hrund. Takk fyrir vinskapinn, hlýjuna, viskuna, hláturinn, skilninginn, foreldra- ráðin, ferðalögin, fjörugu stund- irnar sem og þungu stundirnar. Þú varst ómetanleg vinkona og ég mun sakna þín alla ævi. Sjáumst seinna á öðrum stað elsku vinkona. Öllum nánum aðstandendum votta ég mína dýpstu samúð. Ásdís Árnadóttir. Elsku Inga mín, elsku kok- teilpía, hlaupagarpur og fjalla- geit. Þegar ég hugsa til þín sé ég fyrir mér ljúfa fallega brosið þitt og finn innra með mér hlýjuna sem alltaf skein frá þér. Alltaf stutt í glensið og gleðina, meira að segja í gegnum erfiðu veik- indin undanfarið. Svo mikið af dásamlegum minningum með þér. Drauma- roadtrippið okkar um Bandaríkin var auðvitað engu líkt og allar fjallaferðirnar – töluðum svo mikið á göngu að við týndumst í fjallshlíðunum oftar en einu sinni. Ég hlæ í gegnum tárin þeg- ar ég sé okkur fyrir mér átta okk- ur á því að við séum týndar vegna djúps fjallatrúnós. Það er sárt að þurfa að kveðja þig svo langt fyrir aldur fram, mér finnst að við ættum að eiga inni svo margar fjallgöngur og trúnó, að hittast með krakkana og leyfa þeim að kynnast. Ég var heppin að leiðir okkar krossuðust og er svo þakklát fyrir öll æv- intýrin okkar saman. Takk fyrir allar ljúfu stundirnar, yndislega Inga. Mínar innilegustu samúðar- kveðjur til Dísanna þinna, Rún- ars og fjölskyldunnar, megi kær- leikur og hlýja umvefja ykkur á þessum erfiðu tímum. Þín vinkona, Þóra Elísabet. Lífið er ekki alltaf sanngjarnt og á svona dögum er fátt um svör og tilgang. Með sorg í hjarta leit- um við huggunar í ljúfar minn- ingar. Minningar um fallegu, lífsglöðu Ingu sem átti lífið framundan með stelpunum sín- um og Rúnari. Minningar um einstakan samstarfsfélaga og vinkonu sem sinnti starfi sínu af alúð og fagmennsku og nærði okkur öll með sinni hlýju nær- veru og léttu lund. Fyrir sam- veru með Ingu verðum við æv- inlega þakklát. Hún var einstök perla. Afar fágæt perla, skreytt fegurstu gimsteinum sem glitraði á og gerðu líf samferðamanna hennar innihaldsríkara og fegurra. Fáar perlur eru svo ríkulega búnar, gæddar svo mörgum af dýrmætustu gjöfum Guðs. Hún hafði ásjónu engils sem frá stafaði ilmur umhyggju og vináttu, ástar og kærleika. Hún var farvegur kærleika Guðs, kærleika sem ekki krafðist endur- gjalds. Hún var vitnisburður um bestu gjafir Guðs, trúna, vonina, kærleikann og lífið. Blessuð sé minning einstakrar perlu. (Sigurbjörn Þorkelsson) Elsku Rúnar, Ásdís, Heiðdís, Sunna, Guðjón og aðrir aðstand- endur, hugur okkar og hjarta er hjá ykkur. Megið þið finna styrk til að takast á við þennan mikla missi og þessa miklu sorg. Stefán og Elísabet. Í ársbyrjun 2008 tók nemi í sjúkraþjálfun sæti á framboðs- lista Vöku til Stúdentaráðs Há- skóla Íslands. Þar með duttum við heldur betur í lukkupottinn eins og allir sem fengu að kynn- ast Ingu Hrund. Hún sat svo í stjórn Vöku næsta árið og eign- uðumst við þar með yndislega vinkonu sem gerði árin okkar allra í Vöku enn betri. Inga Hrund var afburða vel gefin og harðdugleg en alltaf til í stuð og sá um að drífa hópinn upp á fjall, út að hlaupa eða í smá göngu í bland við allt fjörið. Eftir árin í Vöku var Inga Hrund alltaf til taks, hvort sem það var að veita góð ráð, hjálpa með tognanir, grindargliðnun, velja trúlofunarhring, peppa okkur eða jafnvel segja okkur að hætta þessu væli og drullast af stað. Meira að segja eftir grein- ingu og erfiða lyfjameðferð náði Inga Hrund að draga okkur í fjallgöngu! Þegar við vorum öll mætt sagði hún okkur reyndar að hún væri of slöpp til að ganga sjálf en skipaði okkur hinum að ganga, gaf okkur smá nesti og auðvitað hlýddum við. Inga Hrund var einstaklega vönduð manneskja og dásamleg blanda af dugnaði, hlýju, glensi og stuði. Við sjáum á eftir góðri vinkonu með miklum söknuði en minnumst hennar með gleði og þakklæti fyrir að hafa fengið að ganga með henni í lífinu þótt heitast hefðum við óskað að sú ganga hefði orðið lengri. Við þökkum Ingu Hrund fyr- ir ómetanlega vináttu og send- um Rúnari, börnunum og fjöl- skyldunni allri innilegar samúðarkveðjur. Fyrir hönd félaga úr Vöku, félagi lýðræðissinnaðra stúd- enta, Helga Lára, María, Sigrún Ingibjörg og Sunna Kristín. Vinkona okkar og samstarfs- félagi, Inga Hrund, var algjör perla sem var gædd mörgum mannkostum. Óþrjótandi keppn- isskap er einn af þeim fyrstu sem koma upp í hugann og það sýndi hún og sannaði í keppn- ishlaupum sem hún hafði þreytt á sínum hlauparaferli; hvort sem það var að hlaupa tvær ferðir á Esjuna eða láta slag standa og hlaupa Laugavegsmaraþonið þá nýorðin ólétt að Heiðdísi. Aðdá- unarvert var að fylgjast með hvernig Inga beitti keppnisskap- inu í sjúkdómsferli sínu. Það var alltaf bjart yfir Ingu – hún var hjartahlý, brosmild og gefandi – mannbætandi kostir sem aðrir fengu að njóta í starfi hennar sem sjúkraþjálfari. Inga var skörp og fagkona fram í fing- urgóma. Hún var iðin við að efla sig í faginu með því að sækja námskeið og lesa sér til. Kímni og glens var eitt af aðalsmerkj- um Ingu okkar enda var hún mikil stemningsmanneskja og húmoristi. Hún sló hendinni ekki á móti góðum gleðisamkomum eins og við Aflverjar stofnum reglulega til og var alltaf tilbúin að vera þátttakandi í góðu gríni. Síðast kom hún á Aflið í lok apríl til að taka þátt í mánaðarlegri sameig- inlegri máltíð. Þá var verulega af henni dregið vegna veikindanna. Engu að síður mætti Inga til leiks eins og henni var einni lag- ið – sagði sögur og var með húm- orinn að vopni. Inga Hrund var elskuð og dáð af skjólstæðingum jafnt sem okkur vinnufélögunum hér á Afl- inu. Við geymum fallegar, hlýjar og skemmtilegar minningar um elsku bestu Ingu í hjarta okkar um ókomna tíð. Sendum Rúnari, Ásdísi, Heið- dísi og öðrum aðstandendum okkar dýpstu samúðarkveðjur. Umhyggju og ástúð þína okkur veittir hverja stund. Ætíð gastu öðrum gefið yl frá þinni hlýju lund. Gáfur prýddu fagurt hjarta, gleðin bjó í hreinni sál. Í orði og verki að vera sannur var þitt dýpsta hjartans mál. (Ingibjörg Sigurðardóttir) Fyrir hönd samstarfsfélaga á Afli sjúkraþjálfun, Helga Þóra, Alex- andra, Ásdís, Jóna, Veigur og Stefán. Við Inga laumuðumst inn í líf hvor annarrar með tilstilli Ás- dísar, sameiginlegrar vinkonu okkar. Fyrir það er ég ævinlega þakklát. Við vorum duglegar að ferðast saman til fjarlægra landa, lifa vel og njóta. Inga var mikil núvitundarmanneskja og hennar nærvera var ávallt nota- leg, björt og skemmtileg. Við hlógum mikið að öllu og engu og ég var glöð með hvað pabba- brandararnir mínir hittu alltaf í mark. Á ferðalögum okkar fékk ég alltaf beint í æð hvaða skáld- sögur væri gaman að lesa, enda var Inga oftar en ekki með bók við hönd og las mikið. Það var einkennandi fyrir Ingu hvað hún bar mikinn kær- leik og hlýhug til allra sem til hennar sóttu. Það voru forrétt- indi að fá að vera þátttakandi í hennar lífi og hún gaf mér svo mikið. Hún kenndi mér að njóta dagsins í dag og hafa ekki áhyggjur af morgundeginum. Hún kenndi mér hvað náttúran er falleg og hversu yndislegt það er að ganga á milli trjánna eða skokka upp á fjöll. Hún kenndi mér hvað það er gaman að segja bara „já“ og koma með, hafa gaman og sækja náung- ann. Hún kenndi mér að horfa alltaf björtum augum á lífið, líka þegar eitthvað bjátar á. Inga Hrund var einstök manneskja og hún mun alltaf eiga sérstakan stað í mínu hjarta. Minn hugur er hjá Rúnari, Ásdísi og Heiðdísi. Erla Gunnhildardóttir. Inga Hrund Kjartansdóttir Árið 1993 var ég svo lánsöm að koma á Bíldudal, en það var í kjöl- farið á því að mað- urinn minn Oddur Björnsson var fenginn þangað til að leikstýra fyrir Leikfélagið Baldur. Leikritið var Fjársjóð- ur Franklins greifa eftir Haf- liða heitinn Magnússon og helstu leikararnir voru Örn og Ágúst Gíslasynir ásamt Hann- esi Friðrikssyni frænda þeirra og vini, sem ólst upp með þeim. Þessi för gjörbreytti lífi okkar, því þarna eignuðumst við marga góða vini, misnána eins og gengur, en alla góða. Fremst í flokki voru þessir þrír: Ági, Öddi og Hannes, ásamt eiginkonum þeirra, þeim Kollu, Völu og Helgu. Þetta varð m.a. til þess að ég keypti Sæbakka sem stendur í fjör- unni við Bíldudalsvoginn og gerði hann upp. Á þessum tíma voru listir og leikhúsmenning í hávegum hafðar í plássinu, og voru þeir frændur, ásamt fleira góðu fólki, potturinn og pannan í því. Við dvöldumst þarna eins oft og við gátum í árafjöld og und- um okkur með eindæmum vel. Vináttan óx og dafnaði og átt- um við alveg endalausar gæða- stundir. Öddi, sá öðlingur og Oddur minn eru látnir, og nú er röðin komin að Ága, sem, eins og allir sem til þekkja vita, að var ósér- hlífinn, traustur, glaðlyndur og góður maður, þó ekki bæri hann tilfinningar sínar á torg. Ági og hún Kolla hans voru þau sem við umgengumst lík- lega mest og eitt sumarið ferð- uðumst við saman um stóran hluta Suður-Englands og áttum frábæra daga, m.a. við allskyns uppákomur og vandræði með bíldruslu sem ég hafði fengið lánaða þar, en allt fór samt vel að lokum, þó svo að við yrðum að skilja hana eftir á miðri hraðbraut og koma okkur heim seint um kvöld í svartamyrkri og það fyrir daga gsm-símanna. Hver man ekki eftir Ága úti á tröppum, bakandi vöfflur á Grænu bauna hátíðunum, eða drekkandi kaffið á morgnana inni á Vegamótum með hinum körlunum, syngjandi og glöðum á mannamótum og síðustu árin rúllandi um á hjólinu góða. Allt- af sami ljúflingurinn. Stundirnar með þessum ynd- islegu vinum munu lifa með mér til æviloka. Ég sendi Kollu og fjölskyldu, Hannesi og Bíld- dælingum öllum mínar innileg- ustu samúðarkveðjur því góður drengur og sannur Bílddæling- ur er genginn. Góða ferð, kæri vinur. Bergljót Gunn- arsdóttir. Máltækið segir, „enginn ræð- ur sínum næturstað“, og leiðin okkar allra í þessu lífi er sú sama. Sumarið var varla byrjað þegar mér barst andlátsfregn þín. Við deildum báðir þeirri lukku að fá að slíta barnsskón- um á Bíldudal við Arnarfjörð. Hvílík fegurð, hvílík paradís, hvílíkt umhverfi og ævintýra- heimur, umkringdur skjólgóð- um fjöllum sem gnæfa yfir þorpið. Og fólkið maður! Alls- konar áhugaverðir og skrítnir karakterar. Þú varst einn af fólkinu í þorpinu fagra og veð- ursæla og settir svip á mann- lífið og menninguna. Það voru forréttindi að hafa vaxið úr Ágúst Gíslason ✝ Ágúst Gíslason fæddist 5. des- ember 1941. Hann lést 29. maí 2022. Útför fór fram 4. júní 2022. grasi á Bíldudal og að hafa fengið að kynnast þér. Fyrstu minning- arnar um þig eru annars vegar frá verksmiðjustjórat- íð þinni í gúanóinu hér á Bíldudal. Við kölluðu þig Áka í gúanóinu, pollarnir sem vorum oft að dorga á bryggjunni og lögðum upp hjá þér aflann. Stundum var greitt fyrir aflann í glerflöskum af gosdrykkjum sem skila mátti á Vegamót og fá að kaupa nammi í staðinn. Voru þetta langbestu sumar- dagarnir í minningunni hérna vestur á Bíldudal. Hins vegar á ég góðar minn- ingar um þig frá öllum jólaböll- unum í Baldurshaga. Þar fórstu fyrir allskonar hljómsveitum, allt frá því að syngja jólalög undir eins manns harmonikku- leik, upp í nánast fullskipaða hljómsveit. Þetta voru frábærir tímar sem eru mér og eflaust miklu fleirum dýrmætir í æsku- minningunni. Einnig man ég eftir leiksýningum með leik- félaginu Baldri sem þú komst oft við sögu í, að ógleymdum frábærum skemmtiatriðum á þorrablótum í gegnum tíðina. Samfélagið hérna var gott og mótaði mig á jákvæðan hátt. Foreldrar mínir ólu mig ekki ein upp, heldur sá þorpið og góðhjartaðir íbúar þess um restina af uppeldinu. Ég er mjög þakklátur fyrir að hafa fengið að kynnast öðlingum eins og þér, Ödda bróður þínum og fleirum þá ég var smápolli. Hugurinn er alltaf fyrir vest- an. Hvort sem ég dvel hér, ann- ars staðar á landinu eða í heim- inum. Bíldudalur og Arnarfjörður fylgir manni hvert sem maður fer eins og skáldið úr Vör sagði. Stundum rifja ég upp æskuminningarnar og sé þær í hillingum, með ein- hverskonar þrá um að upplifa þær aftur. Allt yrði eins og það var þá, þorpið okkar, fólkið, fjöllin, lognið. Skemmtilegustu minningarn- ar um þig eru frá öllum vísna- kvöldunum. Þar varstu kynnir og ég veit að þú hlakkaðir alltaf til að kynna mig á svið og sjá hvaða prógramm, uppistand, ljóð eða fíflalæti ég hefði fram að færa hverju sinni. Einnig sagðirðu oft brandara og varst með góðlátleg skot á þá sem fram komu. Það er sjónarsvipt- ir að þér, Áki minn, og þínum líkum. Við fráfall þitt sendum við feðgar Kolbrúnu, Matthíasi, Sirrý og Gísla Ægi sem og öðr- um aðstandendum okkar dýpstu samúðarkveðjur. Hug- urinn er hjá ykkur. Ljós í vorum hjörtum hér, hugljúft í minningunni. Ljósið fagurt færi þér, frið í eilífðinni. (ÍÖH) Ívar Örn Hauks- son og synir. Og svo allir með; Gekk ég yf- ir sjó og land… Elsku Ági okk- ar, já við fórum sannarlega með þér, Kollu og krökkunum ykkar yfir sjó og land og svo miklu miklu meira. Í raun munum við varla tilveru okkar án þín og þinnar einstöku fjölskyldu, sem eruð öll okkur svo kær. Svo sterkt hefur samband fjöl- skyldna okkar verið og verður það áfram. Það er nefnilega þetta með allar frábæru minn- ingarnar sem við eigum öll saman. Þetta einstaka, sem við höfum haft og hefur í raun ver- ið óritað lögmál, að við erum öll í þessu saman, í gleði og sorg. Að vera saman og standa sam- an. Hvort heldur sem stutt er á milli þess að við hittumst eða langt, þá er ekkert verið að takast í hendur þegar við loks hittumst. Nei, við föðmumst, tökum utan um hvert annað, knúsumst. Þannig heilsumst við. Ávallt hefur þú komið fram við okkur af virðingu og vænt- umþykju. Samband þitt og pabba okkar er alveg einstakt og er eitthvert sannasta vina- samband sem til er. Það læra börnin sem fyrir þeim er haft. Þannig hafið þið alið okkur upp og gefið okkur svo mikla gleði og væntumþykju sem hefur verið og verður okkar leiðar- ljós. Víst hefur gleðin verið mikil og mun verma okkur áfram og áfram. Þegar þú stýrðir jólaböllunum og fékkst okkur krakkana til að dansa og taka undir eins og á að gera. Enginn á eftir að toppa þá stemningu sem þú náðir þar. Enginn hefur heldur leikið konu betur en þú, þegar þú brást þér i hlutverk Stínu Vo- ler. Fáir hafa borið varalit jafn- vel og þú. Og leikgleðin og lífs- gleðin alltaf með í för. Svo öll ferðalögin og útilegurnar sem við fórum í saman fjölskyldurn- ar tvær. Alltaf saman, allir með. Enginn í fýlu, enda til- veran alltof stutt fyrir svoleiðis ves. Margt var nú brallað í þessum útilegum en líklega toppar ekkert stundina þegar við vorum eitt sinn sem oftar í tjaldútilegu á Dynjanda. Þú greipst næsta handklæði, sett- irþað um herðar þér, settist í næsta tjaldstól og sagðir við mömmu okkar: „Helga mín, klippingu takk, en bara særa aðeins.“ Elsku Kolla, Matti, Sirrý, Gísli og stórfjölskyldan okkar öll, söknuðurinn er mikill og tárin trilla hratt meðan við rit- um þetta systkinin. Við þekkj- um bara ekki tilveruna án Ága. En við erum rík af minningum og þær munu ylja okkur og vísa leiðina áfram. Ági okkar, við elskum þig og munum ávallt gera. Góða ferð. Systkinin í Birkihlíð Þórarinn, Kristín, Elfar Logi og Birna. Þær dapurlegu fréttir bárust okkur síðastliðinn sunnudag að heiðursmaðurinn Ágúst Gísla- son hefði lokið göngu sinni. Ég var þess gæfu aðnjótandi að kynnast Ága, eins og hann var kallaður, og fjölskyldu hans fyrir tæpum áratug þegar Matthías Garðarsson mágur hans fól mér verkefni í þeirra fallegu heimbyggð. Hvort sem er í blómlegum skrúðgarði eða meðal stjarnanna á næturhimn- inum eru ævinlega einhverjar rósir eða stjörnur sem augað staðnæmist við. Ágúst var slík perla. Ég minnist þess vel hve léttleikinn í fasi hans, hlátur- mildi og jákvæðni gat verið smitandi. Ági var hrókur alls fagnaðar hvar sem hann kom og stuðningur hans og jákvæðni voru ómetanleg. Jafnvel þó hann sjálfur hefði glímt við heilsubrest og mótvind síðustu ár þá var alltaf stutt í brosið og hvatningarorðin. Ég minnist sérstaklega skemmtilegrar ferðar á kúttmagakvöld yfir fjöllin til Patreksfjarðar fyrir nokkrum árum þar sem ég fékk góða innsýn í fjarðamenn- inguna og ekki síst í metnað hans fyrir hönd síns bæjar- félags. Litlu bæjarfélögin úti á landi eiga mönnum eins og Ága mikið að þakka þar sem lífs- gleði, jákvæðni og baráttuþrótt- ur eru ómetanlegir eiginleikar. Minningin um heiðursmann- inn Ága, jákvæðni hans og lífs- gleði lifir í hjörtum okkar. Ég votta Kolbrúnu og fjölskyldu Ága innilega samúð. Kjartan Ólafsson, formaður stjórnar Arnarlax.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.