Morgunblaðið - 10.06.2022, Síða 21

Morgunblaðið - 10.06.2022, Síða 21
MINNINGAR 21 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 10. JÚNÍ 2022 ✝ Guðmundur Ingi Gunn- laugsson fæddist í Reykjavík 14. sept- ember 1951. Hann lést 4. júní 2022. Guðmundur Ingi var sonur Elínar Bjarnveigar Ólafs- dóttur og Gunn- laugs Birgis Daní- elssonar. Systkini Guðmundar Inga sammæðra: Helga (látin), Anna, Bára, Ólafur Þór (látinn), Birg- ir, Þórhallur og Fanney. Systk- ini samfeðra: Hrefna, Kristján, Torsten og Einar Viðar. Fóstur- foreldrar Guðmundar Inga voru Ingibjörg Jónsdóttir og Guð- mundur Ólafsson frá Geirlandi, Hveragerði. Skorri og Kolbrún Emma. 4) Katrín Ósk, barn hennar er Alexandra Rós. Fyrir átti Guð- mundur Ingi dótturina Írisi, maki hennar er Sindri Guð- mundsson og börn þeirra eru Aron Örn og Gísli Hjálmar. Börn Arons Arnar eru Bær- ingur Elís og Unnur Signý. Sambýliskona Gísla Hjálmars er Þorgerður Ýr Þorvarðardóttir og barn þeirra er Júlían Þorri. Guðmundur Ingi fór tveggja mánaða gamall í fóstur til hjónanna Ingibjargar og Guð- mundar á Geirlandi í Hvera- gerði þar sem hann ólst upp fyrstu ár ævi sinnar, en þar undi hann hag sínum allra best. Hann lauk landsprófi frá Gagn- fræðaskóla Vesturbæjar árið 1967 og stundaði síðan nám í Menntaskólanum í Reykjavík og í Menntaskólanum við Hamra- hlíð í þrjá vetur. Guðmundur Ingi starfaði að loknu námi sem sölumaður og skrifstofustjóri hjá heildverzlun Sverris Þór- oddssonar hf., sem fram- kvæmdastjóri hjá Bandag, hjól- barðasólun hf. frá 1975-1980, hjá Fossnesti á Selfossi frá 1981-1986, hjá verslunardeild Sambands íslenskra samvinnu- félaga frá 1986-1990, sveit- arstjóri Rangárvallahrepps frá 1990-2002, sveitarstjóri Rangár- þings ytra frá 2002-2006, bæjar- stjóri í Grundarfirði frá 2006- 2010, oddviti Rangárþings ytra frá 2010-2014, en þá lagði hann pólitíkina á hilluna. Sextugur að aldri ákvað hann að taka meira- próf og gerðist bílstjóri hjá Kynnisferðum þar sem hann lauk starfsævi sinni. Eftir það fór hann í Ferðamálaskóla Ís- lands og lauk þar leiðsögunámi. Guðmundur Ingi var virkur í margskonar félagsstörfum, þ.á m. Rótarýklúbbi Selfoss og Rót- arýklúbbi Rangæinga. Guð- mundur Ingi gekk í Oddfellow- regluna 1998 og gegndi þar ýmsum embættisstörfum. Útför Guðmundar Inga fer fram frá Selfosskirkju í dag, 10. júní 2022, klukkan 14. Eiginkona Guð- mundar Inga er María Busk sjúkra- liði, einnig fædd 14. september 1951. Foreldrar hennar voru Niels Kjeldsen Busk og Ragnheið- ur Kjartansdóttir Busk. Guðmundur Ingi og María eign- uðust fjögur börn, þau eru: 1) Ingi- björg, maki Sveinn Skorri Skarphéðinsson, börn þeirra eru Andri Már og Andrea María. 2) Guðmundur Ingi, maki Bylgja Brynjarsdóttir, börn þeirra eru Erik Ingi og Mikael Aron. 3) María Hrönn, maki Daði Sigurjónsson, börn þeirra eru Valdís Katla, Benjamín Við kveðjum pabba hinstu kveðju í dag kl. 14:00. Fyrir sléttri viku sat ég hjá honum kl. 14:00 niðri á gjörgæslu og minningarnar streymdu fram með tárunum. Ég velti fyrir mér hvort þetta gæti verið kveðjustundin en ákvað að trúa læknunum sem töldu allt vera á réttri leið, þetta yrði samt lang- hlaup. Með þá von í brjósti kvaddi ég hann kl. 15:00 með kossi á enni og kærleiksorðum. Seint sama kvöld kom símtalið: „Þetta er að fara á versta veg, þú ættir að koma.“ Ég var komin niður á gjör- gæslu kl. 23:30, beint inn á fund með læknunum sem fóru yfir stöð- una. Við kvöddum hann eitt í einu og svo saman með presti, ritning- arlestri og bæn, meðan hann sleit jarðvistarböndin, rúmlega eitt eft- ir miðnætti. Sjokkið var mikið þótt ég hafi innst inni óttast þetta fyrr um daginn. Hann var bara sjötug- ur, hann átti svo mörg ár eftir. Ég ólst ekki upp hjá honum og Maju stjúpu minni en átti þar alltaf hlýtt skjól og þau létu mig alltaf finna að ég væri hluti af fjölskyldunni. Mig dreymdi í vikunni að ég væri stödd á Geirlandi. Ég var búin að opna hliðið að innkeyrslunni, eins og við Ingibjörg amma gerðum yfirleitt saman þegar von var á pabba, og eins og í gamla daga þá stóð ég í dyragættinni og beið þess að hann keyrði inn innkeyrsluna. Þetta gerðist of fljótt, of hratt. Með sorg í hjarta kveð ég þig, pabbi minn, þar til við hittumst á ný. Þín Íris. Elsku pabbi minn, öll orð virð- ast fátækleg á þessari stundu og það er erfitt að trúa því að það sé komið að kveðjustund. Við söknum þín mikið og við söknum þín sárt, en það sem huggar eru góðu minn- ingarnar. Ég kveð þig með miklum trega í hjarta en með þakklæti fyr- ir allt. Ó, elsku pabbi, ég enn þá er aðeins barn, sem vill fylgja þér. Þú heldur í höndina mína. Til starfanna gekkstu með glaðri lund, þú gleymdir ei skyldunum eina stund, að annast um ástvini þína. Þú farinn ert þangað á undan inn. Á eftir komum við, pabbi minn. Það huggar á harmastundum. Þótt hjörtun titri af trega og þrá, við trúum, að þig við hittum þá í alsælu á grónum grundum. (Hugrún) María Hrönn Guð- mundsdóttir Busk. Pabbi, ég er svo þakklátur að við náðum að hittast stuttu áður en þú kvaddir okkur, en samt er þetta svo sárt og söknuðurinn mikill. Í gegnum sársaukann er ég full- ur af minningum sem ég minnist þín með og ylja mér við. Þegar ég rifja upp okkar sam- leið þá er ég svo þakklátur fyrir allt sem þú og mamma hafið að- stoðað mig með. Hvort sem það var þegar ég var á mínum lægsta punkti í lífinu eða þegar ég var í Háskólanum í Danmörku. Þið vor- uð þar til staðar. Þú og mamma hafið kennt mér hvað það er að vera til staðar, hvort sem það var fyrir mig eða systur mínar og einnig þegar þú varst bæjar- og sveitarstjóri. Þá gátu heilu bæjarfélögin leitað til þín. Þetta er sú persóna sem ég minnist, að alveg sama hvað, þá varstu til staðar. Þú skilur eftir þig mömmu og okkur fimm systkinin, og ég skal reyna gera mitt besta til að vera til staðar fyrir þær. Það eru nokkrar minningar sem ég gleymi aldrei, sem lýsa líka þín- um húmor. Sem svo oft áður, þá vorum við á fótboltaleik og í þetta skipti á KR-vellinum að horfa á KR og Fylki spila. Svo skorar Sævar Þór þetta líka drauma- markið fyrir Fylki og mitt í KR- stuðningshópnum þar sem ég var að styðja mína menn í KR þá hrist- ir þú mig af miklum fögnuði. Það horfðu margir KR-ingar á Vals- manninn fagna þetta líka rosalega mikið. Gamli Hlíðarendi er sá staður þar sem við eyddum miklum tíma saman horfandi á Valsliðið spila. Oft eftir leiki þá fengum við okkur að borða og í eitt skiptið var haldið á Pizza Hut. Þú pantar þér litla 9“ jalepenos-pizzu. Eitthvað sem ég hafði aldrei heyrt um eða prófað. Svo ég panta 12“ tommu af því sama og þú segir ekki neitt. Svo koma pizzurnar og ég ung- lingurinn byrja að háma í mig og svo áður en þú ert búinn með 1/4 af þinni þá er ég hálfnaður með mína. Svo byrja ég að svitna og loga all- ur, því þetta var fjandi sterk pizza. Þú hreinlega ætlaðir ekki að hætta að hlæja að mínum tilburðum til að minnka logann í líkamanum. Þessar sem og svo margar aðr- ar minningar er gaman að rifja upp með mömmu og systrum mín- um. Það deyfir aðeins sársaukann og söknuðinn. Elsku pabbi, takk fyrir allar minningarnar, takk fyrir allt sem þú hefur kennt mér, leiðbeint mér og öll samtölin okkar um heima og geima. Takk fyrir samveruna um páskana. Hún er mikils virði í dag. Svefninn laðar, líður hjá mér. Lífið sem ég lifað hef. Fólk og furðuverur Hugann baðar andann hvílir. Lokbrám mínum læsi uns Vakna endurnærður. Það er sumt sem maður saknar Vöku megin við. Leggst út af á mér slokknar. Svíf um önnur svið í svefnrofunum finn ég Sofa lengur vil. Því ég veit að ef ég vakna upp Finn ég aftur til. Svefninn langi laðar til sín Lokakafla ævi skeiðs. Hinsta andardráttinn. Andinn yfirgefur húsið Hefur sig til himna Við hliðið bíður drottinn. (Lag/texti: Jón Ólafsson / Björn Jr. Friðbjörnsson og Daníel Á. Haralds- son.) Þinn sonur, Guðmundur. Minning um bróður. Ég var yngst af börnum mömmu og á mínum unga aldri var hún oft í burtu. Þá var þér falið að sjá um mig og í minningu þinni var það ekki alltaf létt. Þegar ég var 10 ára ákvaðstu að koma með stelpu heim. Greyið átti erfitt með að komast inn í íbúðina, ég stóð þarna í vegi fyrir henni. Ég átti þig ein. En svo sættist ég við hana og nú eru liðin 50 ár. Þegar ég var komin á gifting- araldur var mér sagt að þú ættir mynd af mér þar sem ég lá í göt- unni í frekjukasti. Mig langaði í ís en það var enginn peningur til. Þú ætlaðir að sýna tilvonandi manni mínum myndina. Mig minn- ir að það hafi ekki gerst því að hann giftist mér. Svo í gegnum ævina hefur þú alltaf verið þarna og ég getað leitað til þín. Og þá sérstaklega í gegnum erfiða tíma, Þegar hlutir gengu ekki upp hjá mér. Þú varst nú enn í æfingu og engu gleymt. Elsku Maja og fjölskylda. Nú er komið að því að kveðjast og þakka fyrir allt. Nú er kominn tími til að minn- ast alls sem áður var. Nú sorgin okkar hjörtu fyllir en segir okkur samt að við kveðjumst bara í bili og hittumst aftur heil. Fanney Amelía. Harmafrétt! Góður félagi okk- ar, Guðmundur Ingi Gunnlaugs- son, er fallinn frá aðeins rúmlega sjötugur að aldri. Þetta skyndilega fráfall leiðir hugann að því að eng- inn veit hverjum klukkan glymur. Guðmundur Ingi var í hópi nokkurra fyrrverandi samstarfs- manna, sem hafa undanfarin ár hist mánaðarlega, snætt saman hádegisverð og spjallað um alla heima og geima. Þetta hefur verið mjög ánægjulegt og Guðmundur Ingi var duglegur að mæta enda þótt hann ætti um lengstan veg að fara, þ.e. frá Selfossi til Reykjavík- ur. Hann var líka ætíð hress og já- kvæður í tali, fylgdist vel með sam- tímaatburðum og kunni frá mörgu að segja vegna reynslu sinnar og kynna af mönnum og málefnum. Hann hafði mjög ákveðnar mein- ingar um málefni eins og hagsmuni lífeyrisþega og var baráttumaður fyrir úrbótum á því sviði. En það var stutt í bros og kímni hjá Guð- mundi sem ég veit að við munum allir sakna þegar við komum aftur saman í haust eftir sumarhlé. Ég vil fyrir hönd hópsins að leiðarlokum þakka Guðmundi Inga góða vináttu og félagsskap og votta eiginkonu hans og fjölskyldu samúð okkar. Sigurður Jónsson. Ég kynntist Guðmundi Inga sumarið 1990 þegar hann var ráð- inn sveitarstjóri Rangárvalla- hrepps. Ég var oddviti sveitarfé- lagsins þrjú kjörtímabil í röð til 2002 og var Guðmundur sveitar- stjóri allan þann tíma. Það er til marks um hvað hann var vel kynntur að allir hreppsnefndar- menn samþykktu ráðningu hans, meirihluti og minnihluti frá upp- hafi. Það var gott að vinna með Guðmundi, hann var nákvæmur í störfum sínum, sumum þótti reyndar um of, en ætíð stóð hann við ákvarðanir sínar sem hann tók alltaf að vel ígrunduðu máli eftir gaumgæfilega skoðun á lögum og reglugerðum sem vörðuðu hvert mál. Það tókst fljótlega góður kunningsskapur okkar hjóna mér og Kristínar við þau Guðmund og Maríu Busk. Ferðuðumst við nokkuð saman um landið og áttum öll um tíma fellihýsi sem við not- uðum óspart. Einnig fórum við saman á ýmsar skemmtanir sem í boði voru, t.d. þorrablót og fleira. Mér finnst óneitanlega að lát Guð- mundar Inga sé ótímabært og við Kristín sendum Maríu og öllum öðrum í fjölskyldunni innilegar samúðarkveðjur. Óli Már Aronsson. Sumarið 2006 var Guðmundur Ingi Gunnlaugsson ráðinn til starfa sem bæjarstjóri Grundar- fjarðarbæjar eftir nauman kosn- ingasigur Sjálfstæðismanna fyrr um vorið. Guðmundur hafði átt farsælan feril sem sveitarstjóri á Hellu og stýrt sveitarfélaginu með myndarbrag sem eftir var tekið og með honum kom dýrmæt reynsla og yfirgripsmikil þekking á sveit- arstjórnarmálum sem átti eftir að nýtast vel í Grundarfirði. Enda þótt ýmislegt og ýmsir tengdust okkur Guðmundi þekkt- umst við ekki fyrr en við fórum að starfa saman að bæjarstjórnar- málum þetta sumar, undirrituð þá forseti bæjarstjórnarinnar. Guð- mundur með sína reynslu og rólegt fas tókst á við verkefni sín af kost- gæfni. Þegar gefa tók á, fyrst í að- draganda bankahrunsins með mikilli skerðingu aflaheimilda til útgerða í sveitarfélaginu og svo eftir bankahrunið í október 2008, komu mannkostir Guðmundar sér vel. Gjörbreytt efnahagsumhverfi krafðist aukins aðhalds á öllum sviðum, það voru margar brekkur framundan, en aldrei var hik eða fum á Guðmundi. Þegar Guðmundur hvarf til annarra starfa að kjörtímabili loknu og flutti aftur á Suðurland hélt hann tryggð við okkur íbúana, hann fylgdist vel með málefnum bæjarfélagins og heimsótti Grund- arfjörð oft. Stundum komu hann og María eiginkona hans í dags- ferð og stundum var hjólhýsið með í för og þá var stoppað lengur. Þau nutu þess að ferðast um landið og stefndu að fleiri ferðum í sumar. Guðmundur hafði mikinn áhuga á þjóðmálum og tók oft þátt í um- ræðum um ýmis mál. Alla jafna lagði Guðmundur aukna þekkingu til umræðunnar og náði að dýpka og þroska umræðuna hverju sinni. Að leiðarlokum færi ég Maríu og fjölskyldunni allri innilegar samúðarkveðjur. Sigríður Finsen. Guðmundur Ingi Gunnlaugsson ✝ Einar Óli Sig- urðarson for- ritari fæddist í Reykjavík 13. jan- úar 1984. Hann lést á heimili sínu, Hlein í Mosfellsbæ, 21. maí 2022. Einar Óli lætur eftir sig einn son, Aron Gabríel, f. 29. ágúst 2006, barns- móðir hans er Anna Maja Albertsdóttir leikskóla- kennari, f. 3. júlí 1985. Móðir Einars Óla er Að- alheiður Bjarnadóttir, f. 8. ágúst 1964, og faðir Sigurður Kristinn Guðfinnsson tónlistarmaður, f. 26. janúar 1965. Alsystir Einars Óla er Tanja Dagbjört hárgreiðslumeistari og förðunarfræðingur, f. 9. júní 1990, dóttir hennar er Gabríela Tara, f. 8. október 2014. Hálf- bróðir hans og sonur Sigurðar er Ævar Daníel, f. 31. janúar 1995. Eiginmaður Aðalheiðar og Einar Óli byrjaði ungur að hafa áhuga á forritun og var duglegur að sjálfmennta sig, hann fór einnig í Ntv-skólann og tók áfanga í Háskólanum í Reykjavík. Hann var frábær teiknari og hafði gott auga fyrir hönnun ýmiskonar. Ásamt syn- inum var tónlist alltaf hans líf og yndi. Einar Óli starfaði nær alla tíð við tölvuforritun ýmiskonar og byrjaði fljótlega eftir gunnskóla að vinna hjá Verði ljós og síðan hjá markaðsfyrirtækinu Allra átta. Þaðan fór hann til starfa hjá hugbúnaðarfyrirtækinu Me- niga og hafði nýhafið störf hjá Námsfús Ísland þegar áfall dundi yfir fyrir fimm árum. Hinn 28. maí 2017 fékk Einar Óli væga heilablæðingu og í að- gerð sem gerð var á Karolinska sjúkrahúsinu í Stokkhólmi tveimur dögum síðar fékk hann aðra stærri blæðingu. Í fram- haldinu greindist hann með „Locked-In Syndrome“ og náði aldrei aftur upp neinni getu í hreyfingu eða tali og voru augun hans tjáningarmáti allt fram á hinstu stund. Útför Einars Óla fer fram frá Grafarvogskirkju í dag, 10. júní 2022, klukkan 13. stjúpfaðir Einars Óla er Kristján Þór Ingvarsson kvik- myndagerðarmað- ur, f. 28. október 1965. Eiga þau sam- an Hrafneyju Lilju, f. 16. nóvember 1998. Dætur Krist- jáns frá fyrri sam- búð eru: 1) Rósalind talmeinafræðingur, f. 7. desember 1982, eiginmaður hennar er Arnar kennari og börn eru Ísak Birkir, Daníel Darri, Andri Viðar og Baltasar Breki. 2) Hólmfríður sameindalíffræðingur, f. 6. nóv- ember 1988, sambýlismaður hennar er Jens Magnús fast- eignasali og dóttir þeirra er Margrét Signý. Einar Óli byrjaði skólagöngu sína í Ártúnsskóla en var lengst af í Hólabrekkuskóla. 11 ára gamall flutti hann með móður sinni, stjúpföður og systur til Indónesíu og bjó þar í tvö ár. Elsku pabbi ég sakna þín svo mikið, ég vildi að við hefðum fengið meiri tíma saman til að skapa fleiri minningar. Við verð- um alltaf bestu vinir og ég mun alltaf elska þig mest. Þinn besti vinur og sonur, Aron Gabríel. Elsku Einar, sorgin er mikil og söknuðurinn er sár. Ég man þegar ég leit þig aug- um fyrst í Kringlunni í október 1999, þú varst í hvítri dúnúlpu og með gel í hárinu, mikill töff- ari, gelgjan ég horfði á þig og þorði ekki að segja neitt heldur stóð ég bara með stelpunum á meðan þær spjölluðu við vini þína, seinna sama dag reddaði ég símanúmerinu þínu og sendi þér sms og þannig hófust okkar samskipti. Ég stalst oft í stóra gula símann hennar mömmu til að senda þér skilaboð þegar inn- eignin mín var búin. Við ákváðum nokkrum dögum seinna að hittast aftur í Kringl- unni, undir rúllustiganum sem var þá, og kyssast og byrja bara saman, ekki var það flókið. Þannig byrjaði okkar samband, þú fimmtán ára og ég fjórtán. Í þrettán ár vorum við saman og sundur, byrjuðum að búa saman árið 2004 þegar þú keypt- ir íbúðina í Berjarima og árið 2006 kom litli drengurinn okkar í heiminn, ást okkar á honum styrkti okkur og þroskaði, við vorum orðin fjölskylda. Þú varst sá allra besti pabbi, þið Aron Gabríel áttuð mörg áhugamál saman og hann var mikið hjá þér þó að leiðir okkar hafi skilið árið 2012. Við gerðum okkar allra besta í að ala hann upp saman og höfðum alltaf hans hagsmuni í fyrirrúmi. Ég verð ávallt þakk- lát fyrir hvað okkur tókst það vel og hvað við pössuðum upp á Aron og hans þarfir, hann fékk að deila sínum tíma með okkur báðum. Stuttu áður en þú veiktist ár- ið 2017 fór ég með Aron til Spánar og hann saknaði þín mikið, beið spenntur eftir að hitta þig. Hann tók ekki annað í mál en að fara beint til þín þeg- ar við lentum aftur heima á Ís- landi þó að við lentum að nóttu til, auðvitað fékk hann það og fór beint til þín og eyddi með þér dýrmætum dögum áður en þú veiktist. Þetta er allt svo óraunveru- legt, tómarúmið er mikið, sárin eru stór og missirinn er mikill. Elsku Einar, ég veit að þú vakir yfir okkur í sumarlandinu, skálar í beilís með klökum og nýtur þess að fylgjast með syni þínum frjáls og laus úr höftum veiks líkama og verndar hann Aron þar sem þú ert. Ykkar tími hér saman á þessari jörðu var alltof stuttur og það finnst mér svo óréttlátt og sorglegt. Ljós þitt lifir í hjarta okkar elsku Einar og minning þín lifir í elsku syni okkar. Ég lofa að passa vel upp á hann eins og þú myndir gera, elska hann eins og þú gerðir og myndir alla tíð gera, vernda hann eins og þú myndir gera, leiða hann í gegnum lífið eins og þú myndir gera. Ég lofa. Takk fyrir okkar stundir sam- an elsku Einar, ég veit að við hittumst á ný. Þín barnsmóðir og æskuást, Anna Maja. Einar Óli Sigurðarson

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.