Morgunblaðið - 10.06.2022, Qupperneq 24
Ó
ttar Pálsson fæddist 10.
júní 1972 í Reykjavík.
Hann fluttist tveggja
ára til Svíþjóðar og bjó í
Lundi í fimm ár með
foreldrum sínum sem sóttu þar há-
skólanám, en ólst síðan upp á Sel-
tjarnarnesi og í Laugarásnum.
„Ég spriklaði í íþróttum alveg út í
eitt, æfði fótbolta, handbolta og
körfubolta. Æfði með Þrótti og síðan
Val í fótbolta. Náði toppnum er ég
ásamt góðum félögum varð Íslands-
meistari með Val í öðrum flokki. Ég
lærbrotnaði síðan í leik með Val og
lét þetta gott heita þá.“ Á sumrin var
Óttar í byggingarvinnu og
garðyrkjustörfum.
Óttar gekk í Langholtsskóla og
síðan Verzlunarskóla Íslands. Hann
lauk þaðan verzlunarprófi og stúd-
entsprófi árið 1992. Hann varð lög-
fræðingur frá lagadeild Háskóla Ís-
lands 1997 og tók skiptinám við
kaþólska háskólann í Leuven, Belgíu,
veturinn 1996-1997. Hann lauk síðan
meistaragráðu (LL.M.) frá Univers-
ity College London árið 2000. Óttar
var virkur í félagslífinu í Versló og
hafði gaman af söng. „Ég tók örugg-
lega þátt í þremur nemendamótum
undir stjórn Jóns Ólafssonar og upp-
setningu á Börnum mánans í leik-
stjórn Þorsteins Bachmann. Það er
alltaf gaman þar sem er söngur og
spilerí. Ég tók námið aldrei neitt sér-
staklega alvarlega fyrr en fyrsta dag-
inn í lagadeildinni. Þann dag mætti
ég á bókasafnið að morgni og ekki
varð aftur snúið. Ég eignaðist frá-
bæra vini í lagadeildinni og lífið
næstu árin snerist um félagslífið í
Lögbergi og rökræður um lög-
fræðileg málefni. Það var frábær
tími.“
Óttar tók, eftir útskrift frá laga-
deild, við starfi sem löglærður fulltrúi
hjá A&P lögmönnum sem síðar varð
LOGOS. Hann gekk síðan í eigenda-
hóp LOGOS að loknu framhalds-
námi. Hann starfaði sem yfirlögfræð-
ingur hjá Straumi-Burðarás fjár-
festingabanka og síðar forstjóri
bankans til ársins 2010. „Ég var ráð-
inn forstjóri í kjölfar þess að Straum-
ur, ásamt öðrum fjármálafyrir-
tækjum á þessum tíma, fór á hliðina.
Þá var mér falið það verk að endur-
skipuleggja rekstur bankans og
semja við kröfuhafana.“
Óttar gekk aftur í eigendahóp
LOGOS árið 2010 og hefur sinnt þar
lögmennsku síðan ásamt ýmsum
trúnaðar- og stjórnarstörfum. „Ég
hef t.d. sinnt ýmsum trúnaðar-
störfum fyrir Lögmannafélagið, setið
í stjórn og siðareglunefnd og laga-
nefnd þess.“
Um margra ára skeið hefur Óttar
sinnt stundakennslu við lagadeild
Háskóla Íslands og flutt fjölmarga
fyrirlestra um ýmis lögfræðitengd
málefni. „Ég hef lengst af kennt
Óttar Pálsson lögmaður – 50 ára
Fjölskyldan Anna, Davíð, Auður, Bjarki og Óttar við Jökulsárlón.
Mikill fjölskyldumaður
Hjónin Óttar og Anna við Hverfell í Mývatnssveit.
Í veiði Anna, Auður og Óttar stödd
við Hítará á Snæfellsnesi.
24 DÆGRADVÖL
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 10. JÚNÍ 2022
60 ÁRA Gunnar er Reykvíkingur,
ólst upp í Laugardalnum en býr í
Kópavogi. Hann er með BS-gráðu í
tölvunarfræði frá Háskóla Íslands
og er vörustjóri hjá Opnum kerfum.
„Áhugamál mín eru golf, tónlist og
ljósmyndun og allt sem snýr að
hljóði og myndum. Einnig útivist og
skíði.“
FJÖLSKYLDA Eiginkona Gunn-
ars er Sigríður Inga Guðmunds-
dóttir, f. 1966, sérfræðingur hjá
Vegagerðinni. Börn þeirra eru Katr-
ín Elva, f. 1995, og Karl Friðleifur, f.
2001. Foreldrar Gunnars: Elva Reg-
ína Guðbrandsdóttir, f. 1941, d. 2020,
starfsmaður Laugarnesskóla, og
Friðleifur Björnsson, f. 1940, raf-
virkjameistari, búsettur í Kópavogi.
Gunnar Þór Friðleifsson
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl ,
Hrútur Það er full ástæða til að vera varkár
gagnvart fólki sem leggur ekki öll spilin á
borðið. Nú er lag að fá þá sem sleppa sér
við þig til þess að hlusta á mál þitt.
20. apríl - 20. maí +
Naut Láttu ekki ýmsa smámuni vefjast svo
fyrir þér að þú getir ekki sinnt því sem máli
skiptir. Sýndu ákveðni en vertu varkár um
leið.
21. maí - 20. júní 6
Tvíburar Stundum er nauðsynlegt að halda
fólki í ákveðinni fjarlægð. Leitaðu ráða til
þess að verja sjálfan þig og sinntu aðeins
þeim sem hugur þinn stendur til.
21. júní - 22. júlí 4
Krabbi Njóttu þess að finna að fólk sé farið
að meta þig að verðleikum. Þú gætir fengið
yndislega gjöf í dag.
23. júlí - 22. ágúst Z
Ljón Ef þú vilt ná einhverjum árangri skiptir
meira máli hvað kemur út úr þér en hvernig
þú lítur út. Gakktu glaður að hverju verki.
23. ágúst - 22. sept. l
Meyja Það er allt í lagi að hampa sjálfum
sér svona af og til ef það er ekki á annarra
kostnað. Vertu ánægður með þinn hlut.
23. sept. - 22. okt. k
Vog Áður en þú einangrast alveg skaltu
eyða tíma þínum í að finna út það sem þú
átt sameiginlegt með öðrum. Ef þú hagar
þér rétt er kaup- og stöðuhækkun á næsta
leiti hjá þér.
23. okt. - 21. nóv. j
Sporðdreki Sú aðstoð sem þú þarft á að
halda til að koma á umbótum á heimilinu
stendur þér til boða. Haltu því ótrauður
áfram og fylgdu málinu allt til enda.
22. nóv. - 21. des. h
Bogmaður Ein snjöll ákvörðun hefur góð
áhrif á fjármálin. Þú veist ekki hvaðan
næsta snilldarhugmynd þín mun koma.
22. des. - 19. janúar @
Steingeit Þú verður beðinn um að taka að
þér vandasamt verk og þarft að gera þér
grein fyrir þeirri ábyrgð sem því fylgir. Taktu
þér bara góðan tíma til að beita kunnáttu
þinni.
20. jan. - 18. febr. ?
Vatnsberi Græðgi er ljótur ávani. Þótt
margir hlutir séu eftirsóknarverðir ferst
heimurinn ekki þótt þú komir ekki höndum
yfir þá.
19. feb. - 20. mars =
Fiskar Vertu ekki niðurlútur þótt þér finnist
þú einn á báti með skoðanir þínar. Hvernig
fólk hagar sér í erfiðum aðstæðum ber kar-
akter þess vitni.
Til hamingju með daginn
Siglufjörður Snæfríður Edwald fædd-
ist 10. janúar 2022 kl. 0.41. Hún vó
2.990 g og var 49 cm löng. Foreldrar
hennar eru Egill Sigurðarson Edwald
og Sæunn Gísladóttir.
Nýr borgari
Djúsý
kjúklingasalatKringlan ... alltaf næg bílastæði
Borðabókanir á
www.finnssonbistro.is eða
info@finnssonbistro.is
Frábær kostur í hádeginu
Þín upplifun skiptir okkur máli