Morgunblaðið - 10.06.2022, Side 26
KRAFTLYFTINGAR
Atli Steinn Guðmundsson
atlisteinn@mbl.is
Lucie Stefanikova, sem keppir nú í
fyrsta sinn fyrir Íslands hönd, hlaut
í gær bronsverðlaun í hnébeygju á
heimsmeistaramótinu í klassískum
kraftlyftingum sem nú stendur yfir í
Sun City í Suður-Afríku. Alls settu
þrír íslenskir keppendur átta Ís-
landsmet á mótinu í gær.
Lucie lyfti 207,5 kg í beygjunni
þegar hún keppti í -76 kg flokki og
setti þá Evrópumet sem hún þó
mátti sjá á eftir í hendur hinnar
sænsku Vilmu Olsson sem lyfti 210
kg. Í fyrsta sæti og með heimsmet
varð svo hin kanadíska Jessica
Buettner, 218,5 kg.
Lucie hafnaði í áttunda sæti af
átján keppendum samanlagt í
þyngdarflokknum. Auk afreksins í
hnébeygju lyfti Lucie 100 kg í bekk-
pressu og 205 í réttstöðulyftu svo
samanlögð þyngd hennar á mótinu
er 512,5 kg. Það skráist þó ekki sem
Íslandsmet þótt hún keppi fyrir Ís-
lands hönd þar sem hún er ekki
komin með endanlegan ríkisborg-
ararétt.
Birgit Rós Becker keppti í sama
flokki og endaði í þrettánda sæti
með samanlagt 462,5 kg. Lyfti Birgit
180 kg í hnébeygju, 92,5 kg í bekk-
pressu og 190 kg í réttstöðulyftu,
samanlagt 462,5 kg sem er bæting á
hennar eigin Íslandsmeti.
Þrjú met hjá Alexander
Alexander Örn Kárason átti mjög
góðan sprett í -93 kg flokki karla á
mótinu í gær. Þar byrjaði hann með
glæsibrag í hnébeygju og lyfti 272,5
kg sem var bæting á eigin Íslands-
meti um fimm kg, hóf því næst upp
190 kg í bekkpressu og sló botninn í
daginn með öðru Íslandsmeti, 300
kg í réttstöðulyftu, sem einnig var
fimm kílóa bæting á hans fyrra meti.
Þriðja Íslandsmetið setti hann svo í
samanlögðu, 762,5 kg sem, og hljóm-
ar kunnuglega, var bæting á hans
eigin eldra meti, 737,5 kg. Hafnaði
Alexander í 17. sæti í flokknum af 26
keppendum.
_ Nánar er fjallað um mótið og
rætt við íslensku keppendurna á
mbl.is/sport.
Lucie fékk brons-
verðlaun á HM
- Átta Íslandsmet féllu í Sun City
Ljósmynd/Kraft
Sun City Lucie Stefanikova, lengst til hægri, á verðlaunapalli heimsmeist-
aramótsins í gær þar sem hún fékk bronsverðlaunin í hnébeygju.
26 ÍÞRÓTTIR
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 10. JÚNÍ 2022
Lengjudeild karla
Selfoss – Fylkir......................................... 2:2
KV – Afturelding...................................... 2:1
Grindavík – Fjölnir .................................. 2:2
Staðan:
Selfoss 6 4 2 0 14:6 14
Fylkir 6 3 2 1 16:7 11
Fjölnir 6 3 2 1 15:10 11
Grótta 5 3 1 1 15:5 10
Grindavík 6 2 4 0 9:5 10
HK 4 2 0 2 7:6 6
Kórdrengir 5 1 3 1 5:4 6
Þór 5 1 2 2 6:10 5
Vestri 5 1 2 2 6:14 5
Afturelding 6 0 3 3 5:10 3
KV 6 1 0 5 6:17 3
Þróttur V. 4 0 1 3 1:11 1
2. deild karla
Höttur/Huginn – KFA............................. 2:2
Njarðvík – Haukar ................................... 2:2
Þróttur R. – Víkingur Ó........................... 3:0
ÍR – Reynir S............................................ 2:1
KF – Magni ............................................... 4:0
Staðan:
Njarðvík 6 5 1 0 20:5 16
Völsungur 5 4 1 0 13:6 13
Ægir 5 4 1 0 7:0 13
Þróttur R. 6 4 1 1 12:6 13
ÍR 6 3 2 1 9:5 11
Haukar 6 2 2 2 7:8 8
KF 6 1 4 1 11:8 7
Höttur/Huginn 6 1 2 3 8:13 5
Magni 6 1 1 4 4:17 4
KFA 6 0 3 3 7:12 3
Víkingur Ó. 6 0 2 4 3:11 2
Reynir S. 6 0 0 6 5:15 0
3. deild karla
Vængir Júpíters – KH ............................. 2:0
Staðan:
Dalvík/Reynir 5 4 0 1 13:6 12
KFG 5 4 0 1 12:6 12
Elliði 5 3 1 1 7:3 10
Sindri 5 3 1 1 10:7 10
Augnablik 5 3 1 1 8:6 10
Víðir 5 3 0 2 11:7 9
Vængir Júpiters 6 3 0 3 9:9 9
Kormákur/Hvöt 5 2 0 3 9:8 6
KFS 5 2 0 3 8:14 6
Kári 5 1 1 3 4:8 4
KH 6 1 0 5 3:13 3
ÍH 5 0 0 5 9:16 0
Lengjudeild kvenna
HK – FH ................................................... 1:3
Haukar – Víkingur R ............................... 1:2
Staðan:
FH 6 5 1 0 17:4 16
HK 6 5 0 1 13:6 15
Víkingur R. 6 4 0 2 15:8 12
Tindastóll 5 4 0 1 6:2 12
Fjarð/Hött/Leikn. 5 3 1 1 11:4 10
Grindavík 6 2 1 3 6:9 7
Augnablik 6 2 0 4 8:13 6
Haukar 6 1 0 5 4:13 3
Fjölnir 5 0 1 4 4:15 1
Fylkir 5 0 0 5 3:13 0
2. deild kvenna
ÍH – KÁ..................................................... 8:0
Staða efstu liða:
Grótta 3 3 0 0 20:2 9
KH 3 2 1 0 11:5 7
Fram 2 2 0 0 6:0 6
ÍR 2 2 0 0 7:4 6
Völsungur 2 1 1 0 3:2 4
Þjóðadeild UEFA
A-deild, 2. riðill:
Portúgal – Tékkland ................................ 2:0
Sviss – Spánn ............................................ 0:1
_ Portúgal 7, Spánn 5, Tékkland 4, Sviss 0.
B-deild, 4. riðill:
Noregur – Slóvenía .................................. 0:0
Svíþjóð – Serbía........................................ 0:1
_ Noregur 7, Serbía 6, Svíþjóð 3, Slóvenía
1.
C-deild, 2. riðill:
Grikkland – Kýpur ................................... 3:0
Kósóvó – Norður-Írland .......................... 3:2
_ Grikkland 9, Kósóvó 6, Norður-Írland 1,
Kýpur 1.
C-deild, 4. riðill:
Gíbraltar – Búlgaría................................. 1:1
Norður-Makedónía – Georgía................. 0:3
_ Georgía 9, Norður-Makedónía 4, Búlg-
aría 2, Gíbraltar 1.
D-deild, 2. riðill:
Malta – Eistland ....................................... 1:2
_ Eistland 6, Malta 3, San Marínó 0.
Vináttulandsleikir karla
Sádi-Arabía – Venesúela ......................... 0:1
Nýja-Sjáland – Óman............................... 0:0
San Marínó – Ísland................................. 0:1
Svíþjóð
AIK – Piteå ............................................... 1:0
- Hlín Eiríksdóttir lék fyrstu 60 mínúturn-
ar með Piteå.
>;(//24)3;(
KNATTSPYRNA
Mjólkurbikar kvenna, 8-liða úrslit:
Hásteinsvöllur: ÍBV – Stjarnan .......... 17.30
Selfoss: Selfoss – Þór/KA ......................... 18
Hlíðarendi: Valur – KR........................ 19.15
Kópavogur: Breiðablik – Þróttur R......... 20
1. deild kvenna, Lengjudeildin:
Árbær: Fylkir – Fjölnir ....................... 19.15
Í KVÖLD!
Ómar Ingi Magnússon hleypti mik-
illi spennu í baráttuna um marka-
kóngstitil þýsku 1. deildarinnar í
handknattleik í gær þegar hann
skoraði 13 mörk úr 13 skotum fyrir
Magdeburg í sigri gegn Leipzig á
útivelli, 36:31, í næstsíðustu umferð
deildarinnar. Fyrir lokaumferðina
er Hans Óttar Lindberg hjá Füchse
Berlín með 233 mörk, Ómar Ingi
með 231 og Bjarki Már Elísson hjá
Lemgo með 230 mörk en þeir þrír
eru langmarkahæstir í deildinni.
Lokaumferð deildarinnar er leikin
á sunnudaginn.
Ómar með 13 og
orðinn annar
Morgunblaðið/Eggert
Skorar Ómar Ingi Magnússon er
kominn með 231 mark.
Um 90 bandarískar fimleikakonur,
þar á meðal hin sigursæla Simone
Biles, ætla að krefja bandarísku al-
ríkislögregluna, FBI, um bætur upp
á einn milljarð dollara vegna að-
gerðaleysis og vanrækslu í rann-
sókn á lækninum Larry Nassar.
Hann afplánar nú marga lífstíðar-
dóma fyrir kynferðisbrot á fim-
leikakonunum sem áttu sér stað á
meðan hann starfaði sem læknir
bandaríska fimleikasambandsins.
FBI fékk upplýsingar um glæpi
Nassars í júlí 2015 en handtók hann
ekki fyrr en 14 mánuðum síðar.
Vilja milljarð í
bætur frá FBI
AFP/Saul Loeb
Heimsstjarna Simone Biles bar
vitni í réttarhöldum gegn FBI.
Selfyssingar eru áfram með þriggja
stiga forystu á toppi 1. deildar
karla í fótbolta eftir jafntefli í fjör-
ugum leik gegn Fylki á Selfossi í
gærkvöld, 2:2, þar sem tvö rauð
spjöld fóru á loft.
Nikulás Valur Gunnarsson kom
Fylki yfir undir lok fyrri hálfleiks
en á tíu fyrstu mínútunum svöruðu
sóknarmennirnir reyndu, Hrvoje
Tokic og Gary Martin, fyrir Selfyss-
inga og komu þeim í 2:1. Ásgeir
Eyþórsson jafnaði fyrir Fylki í upp-
bótartíma, 2:2. Selfyssingurinn Ar-
on Einarsson fékk rauða spjaldið
um miðjan síðari hálfleik. Fylkir
missti síðan Orra Svein Stefánsson
af velli með rautt spjald í blálokin.
Nýliðar KV náðu í sín fyrstu stig
þegar þeir lögðu Aftureldingu, 2:1,
í Vesturbænum. Björn Axel Guð-
jónsson skoraði sigurmarkið í upp-
bótartíma. Áður hafði Grímur Ingi
Jakobsson komið KV yfir en Ásgeir
Frank Ásgeirsson jafnað fyrir Aft-
ureldingu. Afturelding missti Elm-
ar Kára Enesson Cogic af velli á 30.
mínútu með rautt spjald og faðir
hans, Enes Cogic, aðstoðarþjálfari
Aftureldingar, fékk líka rauða
spjaldið í kjölfarið
Grindavík og Fjölnir skildu jöfn,
2:2. Aron Jóhannsson kom Grind-
víkingum yfir en Guðmundur Þór
Júlíusson jafnaði fyrir Fjölni og
rétt fyrir leikslok kom Lúkas Logi
Heimisson Grafarvogspiltum í 2:1.
En Dagur Ingi Hammer jafnaði fyr-
ir Grindvíkinga og niðurstaðan því
jafntefli.
Morgunblaðið/Óttar Geirsson
Selfoss Danski framherjinn Mathias Laursen sem leikur með Fylkis-
mönnum sækir að marki Selfyssinga í leik liðanna sem endaði 2:2.
Fjögur mörk og tvö
rauð í toppslag
Portúgal og Spánn eru í tveimur efstu sætum 2. riðils A-deildar Þjóðadeild-
arinnar í fótbolta eftir sigra í gærkvöld.
Portúgal vann heimasigur gegn Tékkum, 2:0. Joao Cancelo og Goncalo
Guedes skoruðu mörkin á fimm mínútna kafla seint í fyrri hálfleiknum.
Spánverjar sóttu Svisslendinga heim og sigruðu 1:0. Pablo Sarabia skor-
aði sigurmarkið strax á 13. mínútu.
Þegar keppnin er hálfnuð, búnar þrjár umferðir af sex, er Portúgal með
7 stig, Spánn 5, Tékkland 4 en Sviss er án stiga. Sigurlið riðilsins fer í fjög-
urra liða úrslit en neðsta liðið fellur niður í B-deild.
Portúgal og Spánn sigruðu
þriðja markið í byrjun síðari hálf-
leiks. Ísold Kristín Rúnarsdóttir
kom HK á blað með marki á 81.
mínútu.
Víkingur vann Hauka 2:1 á Ás-
völlum og komst í þriðja sæti deild-
arinnar en ljóst er að annaðhvort
Tindastóll eða Fjarðabyggð/
Höttur/Leiknir nær þriðja sætinu
þegar þau mætast á Sauðárkróki á
morgun.
FH komst í gærkvöld á topp 1.
deildar kvenna í fótbolta með því að
sigra HK, 3:1, í uppgjöri efstu lið-
anna í Kórnum í Kópavogi.
HK hafði unnið fimm fyrstu leiki
sína í deildinni en FH komst nú stigi
upp fyrir Kópavogsliðið og er eina
taplausa liðið í deildinni.
Kristin Schnurr og Elín Björg
Norðfjörð komu FH í 2:0 í fyrri
hálfleik og Shaina Ashouri skoraði
FH komst í efsta sætið
Morgunblaðið/Hákon
Kórinn FH-ingar fagna einu marka sinna gegn HK í Kórnum í gærkvöld.