Morgunblaðið - 10.06.2022, Page 27

Morgunblaðið - 10.06.2022, Page 27
_ Litháíski körfuboltamaðurinn Adomas Drungilas er kominn til Ís- lands á nýjan leik og hefur samið við Tindastól um að leika með liðinu á næsta keppnistímabili. Körfuknatt- leiksdeild Tindastóls skýrði frá þessu í gærkvöld. Drungilas lék með Þór í Þor- lákshöfn tímabilið 2020-21 og var mjög drjúgur þegar liðið tryggði sér sinn fyrsta Íslandsmeistaratitil en þá var hann valinn besti leikmaður úr- slitakeppninnar. Hann sneri aftur til Tartu í Eistlandi síðasta sumar, en hann lék þar áður en hann kom til Þor- lákshafnar. _ Haraldur Franklín Magnús atvinnu- kylfingur lék fyrsta hringinn á Emp- orda Challenge-golfmótinu í Girona á Spáni í gær á 71 höggi, einu yfir pari vallarins. Hann er í 63.-84. sæti af 156 keppendum og leikur annan hringinn í dag. Mótið er liður í Áskorendamóta- röð Evrópu. _ Axel Bóasson er í 9.-11. sæti eftir tvo hringi af þremur á Thomas Björn Classic-golfmótinu sem stendur yfir í Samsö í Danmörku. Hann er samtals á sjö höggum undir pari vallarins eftir að hafa leikið á 69 höggum á öðrum hring í gær. Andri Björnsson er í 13.- 15. sæti á fimm höggum undir pari og þeir Bjarki Pétursson og Aron Júl- íusson komust líka í gegnum niður- skurðinn í gær. _ Mohamed Salah úr Liverpool og Sam Kerr úr Chelsea voru í gær út- nefnd bestu leikmenn tímabilsins 2021-22 í ensku knattspyrnunni af Samtökum atvinnuknattspyrnu- manna, PFA. Phil Foden og Lauren Hemp, bæði frá Manchester City, voru valin efnilegustu leikmennirnir. _ Úrúgvæski knattspyrnumaðurinn Darwin Núnez er langt kominn með að ganga til liðs við enska félagið Liver- pool sem hefur þó ekki ennþá náð samkomlagi við félag hans, Benfica, um kaupverðið. The Athletic segir að Núnez sé þegar búinn að semja við Liverpool un kaup og kjör. Talið er að hann geti kostað allt að 85 milljónum punda en Núnez skoraði 34 mörk í öll- um mótum fyrir Benfica í vetur, m.a. í báðum leikjum liðsins gegn Liverpool í Meistaradeildinni. Eitt ogannað LANDSLEIKUR Gunnar Egill Daníelsson gunnaregill@mbl.is Íslenska karlalandsliðið í knatt- spyrnu hafði betur gegn San Mar- ínó, liðinu sem er í 211. og neðsta sæti styrkleikalista FIFA, með naumindum í vináttulandsleik í Serravalle í smáríkinu í gærkvöldi. Lauk leiknum með 1:0-sigri Íslands í einkar bragðdaufum og mjög slök- um knattspyrnuleik. Aron Elís Þrándarson skoraði sigurmark leiksins, hans fyrsta landsliðsmark, á 11. mínútu leiks- ins þegar hann tók frábært, hnit- miðað skot, talsvert fyrir utan teig, og boltinn hafnaði niðri í bláhorn- inu hægra megin. Íslenska liðið átti nokkrar prýðis rispur í fyrri hálfleiknum eftir markið þar sem Mikael Anderson komst í tvígang nálægt því að skora og Albert Guðmundsson einu sinni, allt eftir laglegan samleik þeirra á milli, en báðir fóru þeir illa að ráði sínu. Staðan var því 1:0 í hálfleik eftir þokkalega viðunandi frammistöðu í fyrri hálfleik gegn afskaplega slök- um mótherjum. Hörmulegur seinni hálfleikur Við tók hins vegar einn allra slakasti hálfleikur sem ofanritaður hefur séð hjá íslenska karlalands- liðinu. Allir leikmenn liðsins hrein- lega týndust, gátu ekki tengt sam- an sendingar og þá sérstaklega ekki stuttar sendingar. Um langt skeið í síðari hálfleik stýrði San Marínó ferðinni og var líklegra til þess að jafna metin en Ísland til þess að bæta við. Besta færi heimamanna kom eftir tæp- lega klukkutíma leik þegar Aless- andro Golinucci sneri laglega á Ara Leifsson, Patrik Sigurður Gunn- arsson í marki Íslands, sem lék sinn fyrsta A-landsleik, fór út fyrir eigin vítateig í sannkallað skóg- arhlaup, Golinucci kom boltanum til hliðar á Andrea Grandoni sem tók skotið af vítateigslínunni fyrir opnu marki en það hafnaði í hlið- arnetinu við nærstöngina. Jason með ágæta innkomu Við innkomu Jasons Daða Svan- þórssonar, leikmanns Breiðabliks, á 70. mínútu í hans fyrsta A- landsleik hresstist íslenska liðið ögn við en það var þó fyrst og síð- ast framlag Mosfellingsins sem átti þar hlut að máli. Hann átti til að mynda stórhættulega fyrirgjöf þvert fyrir mark San Marinó á 78. mínútu sem hvorki Andri Lucas Guðjohnsen né Mikael náðu að teygja sig í og sendi svo Stefán Teit Þórðarson aleinan í gegn eftir hraðaupphlaup undir lok leiksins en Skagamaðurinn var kærulaus í afgreiðslu sinni og skaut beint á Aldo Simoncini í marki San Marínó, sem var kominn fyrir utan eigin vítateig. Fátt jákvætt Eftir frammistöðu sem þessa er fátt jákvætt hægt að tína til. Aron Elís skoraði mjög gott mark og sinnti varnarvinnu sinni vel en átti í stökustu vandræðum með stuttar sendingar, líkt og raunar flestallir í liðinu. Þeir einu sem hægt er að tala um að hafi náð sér á strik fyrir utan fyrirliða gærkvöldsins er varamaðurinn Jason Daði og áð- urnefndir Mikael og Albert en í þeirra tilfellum átti það þó aðeins við um fyrri hálfleikinn. Komust engan veginn í takt Gegn þetta slökum andstæðingi getur það ekki talist ásættanlegt að liprir leikmenn á borð við Mikael og Albert týnist alveg í síðari hálf- leiknum. Mikael Egill Ellertsson og Sveinn Aron Guðjohnsen kom- ust engan veginn í takt við leikinn í fremstu víglínu, Atli Barkarson átti erfitt uppdráttar í vinstri bakverði og Ari Leifsson og Brynjar Ingi Bjarnason voru allt of linir í mið- varðarstöðunum. AFP/Javier Soriano Skoraði Aron Elís Þrándarson var fyrirliði Íslands í Serravalle í gærkvöld og skoraði sigurmarkið snemma leiks. Þá er aðeins nokkurra leikmanna úr byrjunarliðinu ógetið en ljóst má vera af frammistöðu liðsins sem spilaði stærstan hluta leiksins í gærkvöldi að fáir ef einhverjir þeirra gera tilkall til þess að byrja næsta leik, heimaleik gegn Ísrael í Þjóðadeild UEFA á Laugardals- vellinum næstkomandi mánudags- kvöld. Dapurt í San Marínó - Ísland marði 1:0-sigur gegn slakasta liði heims - Sigurmark Arons kom strax á 11. mínútu - Afleitur síðari hálfleikur - Þrír nýliðar komu við sögu í leiknum SAN MARÍNÓ – ÍSLAND 0:1 0:1 Aron Elís Þrándarson 11. M Aron Elís Þrándarson Rautt spjald: Markvarðaþjálfari San Marínó á 20. mínútu. Dómari: Michael Fabbri – Ítalíu. Áhorfendur: 300. Ísland: (4-3-3) Mark: Patrik Sigurður Gunnarsson. Vörn: Valgeir Lunddal Friðriksson, Ari Leifsson, Brynjar Ingi Bjarnason (Damir Muminovic 86), Atli Barkarson. Miðja: Stefán Teitur Þórð- arson, Aron Elís Þrándarson (Júlíus Magnússon 86), Albert Guðmundsson (Höskuldur Gunnlaugsson 86). Sókn: Mikael Egill Ellertsson (Jason Daði Svanþórsson 70), Sveinn Aron Guð- johnsen (Andri Lucas Guðjohnsen 70), Mikael Anderson. _ Aron Elís Þrándarson var fyrirliði Íslands í fyrsta sinn og skoraði sitt fyrsta mark fyrir landsliðið, í sínum 13. landsleik. _ Jason Daði Svanþórsson og Júlíus Magnússon komu inn á sem varamenn og léku sinn fyrsta A-landsleik. Damir Muminovic kom inn á í sínum öðrum landsleik. _ Albert Guðmundsson var leikjahæst- ur af þeim sem tóku þátt í leiknum og lék sinn 32. A-landsleik. _ Jón Dagur Þorsteinsson, Hákon Arnar Haraldsson, Davíð Kristján Ólafsson og Þórir Jóhann Helgason komu ekkert við sögu, eins og mark- verðirnir Rúnar Alex Rúnarsson og Ingvar Jónsson. _ Þá voru Arnór Sigurðsson og Daníel Leó Grétarsson báðir utan 23 manna hópsins í leiknum. _ Leikurinn var sá fyrsti á milli A- landsliða Íslands og San Marínó. Þjóð- irnar hafa áður mæst í U21 og U19 ára landsliðum. _ Birkir Bjarnason, Hörður Björgvin Magnússon og Alfons Sampsted koma aftur inn í hópinn fyrir leikinn gegn Ísrael á mánudagskvöldið. ÍÞRÓTTIR 27 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 10. JÚNÍ 2022 Spjótkastarinn Dagbjartur Daði Jónsson hafnaði í sjöunda sæti í úr- slitum bandaríska háskólameist- aramótsins í frjálsíþróttum í fyrri- nótt en mótið stendur nú yfir í Eugene í Oregon. Dagbjartur kast- aði 76,29 metra, tæpum fimm metr- um skemur en sigurvegarinn Marc Minichello, sem var sá eini sem kastaði yfir 80 metra. Dagbjartur á best 79,57 metra, sem hann náði á Íslandsmótinu á Akureyri á síðasta ári en með því er hann sjötti besti spjótkastari Ís- lands frá upphafi. Dagbjartur sjö- undi í Eugene Ljósmynd/Mississippi State Spjótkast Dagbjartur Daði Jónsson er í fremstu röð í háskólunum. Boston Celtics náði í fyrrinótt undirtökunum í einvíginu við Gol- den State Warriors um NBA- meistaratitilinn í körfuknattleik með því að vinna þriðja leik liðanna í Boston, 116:100. Staðan er 2:1 fyr- ir Boston og liðið verður aftur á heimavelli í fjórða leiknum í kvöld. Jaylen Brown skoraði 27 stig, Jayson Tatum 26 og Marcus Smart 24 fyrir Boston en hjá Golden State voru Stephen Curry með 31 stig og Klay Thompson með 25 allt í öllu. Curry meiddist á fæti undir lokin en óvíst er hvaða áhrif það hefur. Staða Boston orðin vænleg AFP/Elsa Góður Jayson Tatum keyrir að körfunni hjá Golden State. Þýskaland Leipzig – Magdeburg.......................... 31:36 - Ómar Ingi Magnússon skoraði 13 mörk fyrir Magdeburg og Gísli Þorgeir Krist- jánsson tvö. Hamburg – Stuttgart .......................... 27:32 - Viggó Kristjánsson skoraði sjö mörk fyrir Stuttgart og Andri Már Rúnarsson þrjú. N-Lübbecke – Hannover-Burgdorf .. 21:20 - Heiðmar Felixson er aðstoðarþjálfari Hannover-Burgdorf. Minden – Erlangen.............................. 22:21 - Ólafur Stefánsson er aðstoðarþjálfari Erlangen. Staðan fyrir lokaumferðina: Magdeburg 62, Kiel 56, Füchse Berlín 53, Flensburg 48, Göppingen 38, Lemgo 35, Wetzlar 33, Melsungen 33, Leipzig 32, RN Löwen 30, Bergischer 27, Hamburg 26, Hannover-Burgdorf 26, Erlangen 25, Stuttgart 22, Minden 18, Balingen 16, N- Lübbecke 14. _ Magdeburg er meistari og fer ásamt Kiel í Meistaradeildina. _ Füchse Berlín, Flensburg og Göppingen fara í Evrópudeildina. _ N-Lübbecke er fallið og Balingen er nán- ast fallið. Gummersbach og Hamm taka sæti þeirra. Vináttulandsleikur kvenna Danmörk – Slóvenía ............................. 38:30 .$0-!)49,

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.