Morgunblaðið - 10.06.2022, Síða 29
MENNING 29
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 10. JÚNÍ 2022
Nánari upplýsingar um sýningartíma á sambio.is
TRYGGÐU ÞÉR
MIÐA INNÁ
Empire Rolling StoneLA Times
BENEDICT
CUMBERBATCH
ELIZABETH
OLSEN
chiwetel
ejiofor
BENEDICT
WONG
xochitl
gomez
MICHAEL
STÜHLBARG
RACHEL
MCadams
U S A TO D AY
72%
STÓRKOSTLEG NÝ FJÖLSKYLDUMYND
ÚR TÖFRAHEIMI HARRY POTTER.
SÝND MEÐ ÍSLENSKU TALI
96%
Empire
The Playlist BBC The sun
Total FilmRogerEbert.com
“Top Gun: Maverick is outstanding.”
Breathtaking
“It’s the BEST MOVIE OF THE YEAR!”
“Might be the best movie in 10 years.”
“Top Gun: Maverick is fantastic.” “Best Action Sequel Of All Time”
“What going to the movies is all about”
“You must see this one in the theater.”
“a must see!”
89%
AF LEIKLIST
Silja Björk Huldudóttir
silja@mbl.is
F
emCon nefnist fjórða og
síðasta sýningin sem
frumsýnd var undir
merkjum Umbúðalauss í
Borgarleikhúsinu þetta leikárið. Að
sýningunni stendur uppistandshóp-
urinn Fyndnustu mínar, sem skip-
aður er þeim Heklu Elísabetu Að-
alsteinsdóttur, Rebeccu Scott Lord,
Salvöru Gullbrá Þórarinsdóttur og
Lóu Björk Björnsdóttur. Aðeins
þrjár fyrstnefndu tóku þátt í sýn-
ingunni, sem sýnd var í tilraunar-
ými á þriðju hæð hússins um mán-
aðamótin síðustu.
Sem fyrr var rýmið hrátt og um-
gjörðin fábrotin. Komið hafði verið
fyrir upphækkuðu sviði þar sem
Hekla, Rebecca og Salvör fluttu
boðskap sinn, klæddar litríkum
drögtum til að leggja áherslu á
erindið. Þær messuðu yfir gestum,
dönsuðu og sungu á milli þess sem
sýnd voru fyrirframupptekin viðtöl
við forvitnilega viðmælendur, sem
voru meðal best heppnuðu hluta
kvöldsins, þar sem vandræðagangur
og þagnir nutu sín til hins ýtrasta.
Í upphafi kvölds var gestum
þakkað fyrir að vera hluti af rýni-
hópi uppistandshópsins. Fyndnustu
mínar upplýstu að þær hefðu kom-
ist að því að þær væru komnar að
glerþaki grínsins og við nánari
skoðun hafi þeim orðið ljóst að fem-
ínísk barátta hafi ekki skilað þeim á
þann stað sem þær telja sig eiga
skilinn. Vissulega hafi kvenrétt-
indabaráttan skilað konum kosn-
ingarétti og launajafnrétti, að
minnsta kosti í orði kveðnu, en þó
sé enn langt í land að jafnrétti verði
náð í reynd. Að mati þeirra hafi
femínisminn misst sjarma sinn, hafi
hann einhvern tímann verið fyrir
hendi. Lausnin á þessu felist að
þeirra mati í því að endur-
markaðssetja femínismann og horfa
þær í þeim efnum til þess sem virk-
ar til dæmis í pólitík og trúar-
brögðum.
Í samræmi við þemahugmyndina
um rýnihópinn voru áhorfendur
virkjaðir inn á milli með beinum
hætti en það heppnaðist mjög mis-
vel. FemCon virkaði í raun minna
eins og rýnihópur og meira eins og
hálfgerð ráðstefna, þar sem fyrir-
lesarar kynntu „rannsóknir“ sínar
og skoðanir, en notuðu þó fyrst og
fremst tækifærið til að pranga inn á
gesti hvers kyns varningi á sér-
stökum kynningarafslætti en samt á
okurprís. Í þeim skilningi mátti
skynja ákveðna ádeilu á markaðs-
væðinguna, sem í sífellu er beint að
konum, þar sem þeim er talin trú
um að þær geti eflt sig og bætt
stöðu sína innan feðraveldisins með
því einfaldlega að kaupa rétta vara-
litinn eða lesa réttu bækurnar. Á
sama tíma mátti greina ákveðna
gagnrýni á þá ofbeldismenningu
samfélagsins sem illa gengur að
ráða bót á. Ádeilan leið samt nokk-
uð fyrir skort á skýrari fókus í nálg-
un hópsins.
Hekla, Rebecca og Salvör áttu
allar ágæta spretti. Hekla var reffi-
leg í söluræðum sínum, þar sem
„rannsóknir“ hópsins voru kynntar.
Salka var skemmtilega vandræða-
leg, ekki síst sem spyrill í fyrra fyr-
irframupptekna viðtali kvöldsins,
sem var við Matthías Tryggva Har-
aldsson. Rebecca var kraftmikil í
boðskap sínum, en trúarræða henn-
ar leið nokkur fyrir slælega hljóð-
blöndun. Hópurinn gerði inngild-
ingu (e. inclusion) að umtalsefni í
seinna fyrirframupptekna viðtalinu.
Þar fór viðmælandinn, Þórdís Nadia
Semichat, á kostum í viðbrögðum
sínum við vandræðalegum spurn-
ingum. Rebecca hafði sjálf orð á því
hversu heppin hún væri að fá að
vera hluti af Fyndnustu mínum
þrátt fyrir að hún væri útlendingur.
Hún fór með allan sinn texta á
ensku og hefði verið tilvalið að nýta
appið Thea fyrir þá áhorfendur sem
ekki skilja ensku, enda leiðinlegt að
missa annars af þriðjungi innihalds-
ins.
Það er virðingarvert hjá Fyndn-
ustu mínum að beina athygli sinni
að brýnum málefnum sem snúa að
jafnrétti í orði sem á borði, kyn-
bundnu ofbeldi, inngildingu og
markaðsvæðingunni sem markvisst
er beint að konum. Uppistands-
hópurinn náði vel að halda athygl-
inni þann rúma klukkutíma sem
sýningin FemCon tók, en hefði
þurft að skerpa betur á fókus og úr-
vinnslu til að efniviðurinn hitti bet-
ur í mark.
Komnar að glerþaki grínsins
FemCon Rebecca Scott Lord, Salvör Gullbrá Þórarinsdóttir og Hekla Elísabet Aðalsteinsdóttir kynna hugmyndir
sínar um endurmarkaðssetningu femínismans í sýningunni FemCon sem var hluti af verkefninu Umbúðalaust.
» Það er virðingarvert
hjá Fyndnustu mín-
um að beina athyglinni
að brýnum málefnum
sem snúa að jafnrétti í
orði sem á borði.
Pólska dúóið Render býður upp á
óhefðbundna og leyndardómsfulla
rafupplifun í Mengi í kvöld kl. 20.
Verða haldnir um klukkustundar
langir tónleikar sem lýst er sem
blöndu hljóðs og sjónrænnar upplif-
unar og dúóið sagt spretta upp úr
hljóð- og vídeólistahópnum Distort
Visual. Tónleikarnir eru hluti af
pólsk-íslenska samstarfsverkefninu
Act In_Out sem er samstarfsverk-
efni Sláturhússins og Fabryka
Sztuki í Póllandi. Annað kvöld
fagnar hljómsveitin Múrarar út-
gáfu annarrar stuttskífu sinnar,
Evrópulaga, með tónleikum sem
hefjast kl. 21. Múrarar steypa
„tregablandið euro-centric/class-
ical-scandi-jazz-techno“, eins og því
er lýst í tilkynningu.
Pólskt dúó og
Múrarar í Mengi
Söngkonan Jóhanna Guðrún mun
fara með hlutverk Velmu í uppsetn-
ingu Leikfélags Akureyrar á söng-
leiknum Chicago á næsta ári.
Chicago, eftir þá John Kander,
Fred Ebb og Bob Fosse, er einn
þekktasti og vinsælasti söngleikur
allra tíma. Af kvikmyndastjörnum
sem farið hafa með aðalhlutverkin
má nefna Pamelu Anderson,
Brooke Shields og Melanie Griffith.
Jóhanna segist í tilkynningu allt-
af hafa haldið upp á söngleikinn.
„Og það er algjör daumur fyrir mig
að fá tækifæri til að leika Velmu,“
er haft eftir henni. Chicago verður
frumsýndur í Samkomuhúsinu í
janúar 2023 og fer miðasala fram á
mak.is.
Jóhanna Guðrún
leikur í Chicago
Í söngleik Jóhanna Guðrún söngkona.