Morgunblaðið - 20.06.2022, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 20.06.2022, Blaðsíða 4
4 FRÉTTIR Innlent MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 20. JÚNÍ 2022 Bi rt m eð fy rir va ra um pr en tv ill ur .H ei m sf er ði rá sk ilj a sé rr ét tt il le ið ré tti ng a á sl ík u. At h. að ve rð ge tu rb re ys tá n fy rir va ra . 595 1000 www.heimsferdir.is 79.900 Flug & hótel frá Frábært verð! á mann 99.650 Flug & hótel frá Fyrir 2 á mann BÓKAÐU SÓL ALLUR PAKKINN Tenerife. Draumaeyjan 27.JÚNÍÍ8NÆTUR Hljóð á myndskeiðum sem tekin voru um borð í flugvélinni TF-ABB, um það leyti þegar hún var að koma inn að Ölfusvatnsvík í Þingvalla- vatni, gefur til kynna að afl hafi verið á hreyflinum. Heyra má aflið minnka, og flugið lækkar í kjölfarið niður að vatnsyfirborðinu. Þetta kemur fram í bráðabirgðaskýrslu rannsóknarnefndar samgönguslysa, sem kom út um helgina. Þunnur ís var tekinn að myndast í Ölfusvatnsvík, með stórum vökum á milli. Nær-innrauðar gervihnatta- myndir frá Veðurstofu Íslands sýndu ísmyndun nær ströndinni í Ölfusvatnsvík. Sjö sekúndna lágflug Upptökur úr öryggismyndavél við Þingvallavatn sýna hvar flug- vélin flýgur frá sunnanverðri Ölfus- vatnsvík í Þingvallavatni til norð- urs. Hún lækkar flugið í átt að vatninu og beygir til vinstri en lækkar þá flugið enn frekar. Flug- vélin virðist fljúga nálægt vatns- yfirborðinu í um sjö sekúndur áður en hún hafnar í vatninu. Engin merki bárust frá neyðarsendi flug- vélarinnar við slysið, en reynt verð- ur að komast til botns í því hvers vegna svo sé. Neyðarlínunni barst nokkurra sekúndna símtal þegar klukkuna vantaði níu mínútur í tólf, en engin greinileg samskipti áttu sér stað. Þó mátti heyra í einhverj- um í neyð, og rakning á símtalinu leiddi í ljós að það barst úr síma eins farþegans. Rétt fyrir klukkan eitt var farið að grennslast eftir flugvélinni, en áætlaður lendingartími hennar í Reykjavík hafði verið 12:38. Flug- slysabúnaður var virkjaður og meg- inþungi leitarinnar beindist fljótt að svæðinu sunnan Þingvallavatns. Þegar fleiri vísbendingar bárust, svo sem staðsetning á síma eins far- þegans í Ölfusvatnsvík, og brák á yfirborði vatnsins, færðist leitin á það svæði. Sérhæfðir hópar með viðeigandi tækjabúnað voru fengnir til að aðstoða við leit í vatninu. Notaður var kafbátur, og að kvöldi hins 4. febrúar fannst flug- vélin á um 47 metra dýpi í víkinni. Ítarleg myndskeið sýndu að vélin var mannlaus. 56 til 130 metra frá vélinni Fjögur lík fundust svo á botni Þingvallavatns. Voru þau á bilinu 56 til 130 metrum suður af flugvélinni. Vegna mikils frosts og ísmynd- unar þurfti að fresta þeim verkhluta sem sneri að því að ná flugvélinni upp á yfirborðið og í land, en það var gert hinn 22. apríl og gekk sú aðgerð vel. Var flugvélin því næst flutt í rannsóknarskýli rannsóknar- nefndarinnar. Ekki í sætisbeltum Leiddi sú rannsókn í ljós að neyðarsendirinn var virkur og dyr lokaðar. Farþegar í aftursætum voru líklega ekki í sætisbeltum þeg- ar slysið átti sér stað og hvorki flugmaður né farþegi í framsæti notuðu axlarólar sætisbelta. Þá gaf strekking mittisólar sætisbeltis í hægra framsæti til kynna að hún hefði ekki verið notuð. Pakkningar björgunarvesta voru óopnaðar. Neðri vélarhlíf er verulega skemmd og skemmdir eru einnig á fremri hlið beggja aðalhjólsleggja. Skrúfu- blöð virðast þó óskemmd. Rannsókn er ekki lokið en skýrslan var gefin út til bráðabirgða og því ljóst að upplýsingar geta breyst. Neyðarsend- irinn í TF- ABB virkur - Lækkaði flugið, beygði til vinstri og lækkaði á ný - Þunnur ís og stórar vakir Reykjavík Selfoss Hveragerði Áætluð flugleið TF-ABB 3. febrúar 2022 Kl. 11.45 400 feta hæð y.s. Kl. 11.31 Kl. 10.38 Tekur á loft frá Reykjavíkurflugvelli Flugvélinni var flogið frá Reykja- vík, yfir Hellisheiði og Ölfusár- ósa, meðfram suðurströndinni að Þjórsárósum og svo til norðvesturs yfir Grímsnes. Því næst var flugvélinni flogið vestan Úlfljótsvatns og stefnan tekin á Ölfusvatnsvík í sunnan- verðu Þingvallavatni. Heimild: Rannsóknarnefnd samgönguslysa Kl. 11.51 Ölfusvatnsvík HELLISHEIÐI GRAFNINGUR MOSFELLSHEIÐI GRÍMSNES Ölfusárósar Úlfljótsvatn Laugarvatn Apavatn Þjórsá Þjórsárósar Hvítá Ölfusá Þingvalla- vatn 1 Eyrarbakki Þorlákshöfn Stokkseyri Ferð Breiðafjarðarferjunnar Bald- urs frá Stykkishólmi í gær gekk mjög vel, að sögn Gunnlaugs Grett- issonar, framkvæmdastjóra Sæ- ferða, en ferjan var á reki um 300 metra frá landi í rúmar fimm klukkustundir á laugardag vegna bilunar. „Enn og aftur berast fréttir af bilun í Breiðafjarðarferjunni Baldri með yfir hundrað manns um borð. Margoft hefur verið bent á það ör- yggisleysi sem fylgir því að vera með gamalt skip í siglingum yfir Breiðafjörð sem hefur ítrekað bilað. Að leggja líf fólks í hættu við að sigla með þessu skipi er algjörlega óboðlegt og á ekki að líðast með nokkru móti,“ segir í yfirlýsingu frá bæjarstjórn Vesturbyggðar og sveitarstjórn Tálknafjarðarhrepps. Segir í yfirlýsingunni að nú sé nóg komið og stjórnvöld verði að bregð- ast við með tafarlausum úrbótum. Um borð voru 102 farþegar auk áhafnar þegar bilunin varð og voru þyrla Landhelgisgæslunnar og björgunarsveit á Snæfellsnesi kall- aðar út. Fyrri ferð Baldurs, klukkan kort- er í átta, var aflýst á sunnudag en ferjan sigldi síðari ferð dagsins samkvæmt áætlun. Siglt var frá Stykkishólmi korter yfir þrjú og segir Gunnlaugur allt hafa verið í fínu lagi. Ferjan sigldi síðan frá Brjánslæk klukkan hálfsjö og er ferðin sögð hafa gengið vel. Gunnlaugur segir erfiðan botn hafa tafið fyrir þegar bilunin átti sér stað. „Við hentum út akkeri og það var erfitt að ná því upp aftur.“ Það hafi engu að síður verið gott þar sem það hélt skipinu vel á með- an þess þurfti. Segir hann þetta hafa verið krefjandi aðstæður. Spurður um framhald ferjunnar segir Gunnlaugur að siglt verði samkvæmt sumaráætlun, að minnsta kosti þar til annað verði ákveðið. Sigling Baldurs frá Stykkis- hólmi gekk vel degi eftir bilun - Ferjan Baldur varð vélarvana á Breiðafirði á laugardag Siglingar Ferjan Baldur var á reki í rúmar fimm klukkustundir. Nýtt skip Loðnuvinnslunnar á Fá- skrúðsfirði, Hoffell SU-60, sigldi í heimahöfn í brakandi blíðu í gær- morgun. Móttökuathöfn var við Bæjarbryggjuna þar sem skipið var blessað, því formlega gefið nafn og bæjarbúar og aðrir gest- ir fengu að skoða skipið og gæða sér á veitingum. Áður hét skipið Asbjørn HG-265 og var í eigu danskrar útgerðar. Skipið er fjórtán ára gamalt og því níu árum yngra en eldra Hof- fellið. Nýtt Hoffell er með 2.530 rúm- metra lest og með 8.100 hestafla vél.Morgunblaðið/Albert Kemp Nýtt Hoffell SU-60 á Fá- skrúðsfirði

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.