Morgunblaðið - 20.06.2022, Side 10
DÆTUR ÍSLANDS
Bjarni Helgason
bjarnih@mbl.is
Í fimmta þætti af Dætrum Íslands
heimsækjum við knattspyrnu- og
landsliðskonuna Alexöndru Jó-
hannsdóttur, leikmann Eintracht
Frankfurt í Þýskalandi.
Vegna ófyrirséðra tafa birtist
þátturinn í dag en Alexandra, sem er
22 ára gömul, gekk til liðs við þýska
félagið frá Breiðabliki í janúar 2021
og skrifaði hún undir tveggja ára
samning í Þýskalandi.
Hún er uppalin hjá Haukum í
Hafnarfirði en gekk til liðs við
Breiðablik árið 2017. Hún varð tví-
vegis Íslandsmeistari með Blikum,
2018 og 2020, og einu sinni bikar-
meistari, 2018.
Alexandra gekk til liðs við Breiða-
blik á nýjan leik í síðasta mánuði á
láni frá Frankfurt en hún mun snúa
aftur til Þýskalands að Evrópu-
mótinu loknu.
Alls á hún að baki 23 A-landsleiki
þar sem hún hefur skorað þrjú
mörk. Hún lék sinn fyrsta landsleik í
janúar 2019 gegn Skotlandi, þá 18
ára gömul, en hún er á leið á sitt
fyrsta stórmót með íslenska kvenna-
landsliðinu. „Þótt það gangi illa og
allt það þá er alltaf ógeðslega gaman
í fótbolta,“ sagði Alexandra í þætt-
inum.
„Það er alltaf gaman að mæta á
æfingar og sparka í bolta. Það var
erfitt að mæta á æfingar á
ákveðnum tímapunkti en eftir að ég
tók hugarfarið aðeins í gegn varð ég
aftur spennt fyrir því að mæta á
æfingar og staðráðin í að sýna þjálf-
arateyminu að ég ætti heima í þessu
liði,“ sagði Alexandra meðal annars.
Alltaf gaman í fótbolta sama hvað
Morgunblaðið/Hallur Már
Eintracht Frankfurt Alexandra fékk fá tækifæri með þýska liðinu á nýliðnu keppnistímabili og gekk til liðs við Breiðablik á láni í síðasta mánuði en hún snýr aftur til Þýskalands þegar EM lýkur.
- Miðjumaðurinn Alexandra Jóhannsdóttir er samningsbundin Eintracht Frankfurt í Þýskalandi
- Alexandra lék sinn fyrsta A-landsleik 18 ára gömul en hún er á leið á sitt fyrsta stórmót í sumar