Morgunblaðið - 20.06.2022, Page 11

Morgunblaðið - 20.06.2022, Page 11
FRÉTTIR 11Innlent MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 20. JÚNÍ 2022 Sigurður Bogi Sævarsson sbs@mbl.is „Stundum er sagt að dæma megi hvert samfélag af því hvernig það kemur fram við börn. Forritið sem við lifum eftir, oft ævina á enda, er búið til á fyrstu æviárum okkar. Við þurfum að sameinast um að leggja það besta til við börnin okk- ar,“ segir Árelía Eydís Guðmunds- dóttir borgarfulltrúi og nýr for- maður skóla- og frístundaráðs Reykjavíkur. „Skólakerfið á að kenna börnum grunnfærni, opna heiminn fyrir þeim með lestri og reiknilíkönum, blása þeim eldmóð í brjóst til að finna styrk sinn. Byggja þau upp með því að læra sjálfsaga en líka að gefa þeim færi á að takast á við síbreytilegt sam- félag. Í skólum Reykjavíkur er unnið frábært starf en við þurfum á því að halda að vera í kviku skólaumhverfi.“ Foreldrar séu ekki í óvissu Í Reykjavík eru alls 80 leik- skólar, þar sem samtals dvelja um 6.300 börn. Þá eru í borginni 42 grunnskólar – þar af sjö sjálfstætt starfandi – og nemendur þeirra alls um 15.440. Ónefnd eru þá 37 frístundaheimili og 24 félags- miðstöðvar. Alls starfa um 6.000 manns hjá skóla- og frístunda- sviði, sem er stærsta einingin í rekstri borgarinnar. Leikskólamál eru áherslu- atriði í starfi nýs skóla- og frí- stundaráðs Reykavíkur. Mark- miðið er að börn komist tólf mánaða gömul inn á leikskóla í borginni, en vegna fólksfjölgunar hafa forsendur breyst. Greint var frá því í vor að til stæði að byrja að bjóða börnum eins árs að aldri leikskólapláss í haust, samanber að á árinu skyldi taka í notkun alls 850 ný pláss. Nú er óljóst hvort slíkt næst. „Leikskólamálin þurfa að vera í lagi,“ segir Árelía Eydís. „Hjá Reykjavíkurborg hefur verið stofnað verkefnið Brúum bilið í því skyni að öll börn frá 12 mán- aða aldri eigi vísan aðgang að leikskólaplássum. Tryggja þarf að foreldrar séu ekki í óvissu um þátttöku sína á vinnumarkaði eftir fæðingu barns og að öll börn fái samþætta þjónustu.“ Gagnrýni á að börn komist ekki á leikskóla ársgömul, eins og heitið var, heldur einhvern tíma á öðru aldursárinu, segir Árelía Ey- dís að sé eðlileg. Hún minnir hins vegar á veruleika og aðstæður. Á síðustu tveimur árum hafi komið til erfiðleikar tengdir Covid-19, stríðsátökum í Úkraínu og vand- ræði þegar mygla hefur greinst í skólahúsum. „Sjö nýir leikskólar verða opnaðir á árinu, þar af hafa tveir verið opnaðir nú þegar, við Egg- ertsgötu og Bríetartún. Staðan í þessum málum er annars betri í austurhluta borgarinnar en þeim vestari. Aðstæður eru samt alltaf að breytast og ráðast af plássi, fjármagni og mönnun og flutn- ingum fólks milli hverfa og í hverfi.“ Farsældarlög breyta mörgu Lög um samþættingu þjón- ustu í þágu farsældar barna, sem Ásmundur Einar Daðason beitti sér fyrir sem ráðherra, munu breyta mörgu í starfsumhverfi skóla og velferðamála. Þau eru þegar komin til framkvæmda sem fléttast inn í alla starfsemi sveitar- félaga. Í þeirri vegferð segir Árel- ía Eydís að Reykjavíkurborg verði í forystu. Samstarf og skjaldborg „Sem samfélag þurfum við að slá skjaldborg um börn og grípa þau strax ef eitthvað bjátar á. Lögin kalla á aukið samstarf skóla- og frístundasviðs og vel- ferðarsviðs borgarinnar og aukna samfellu í starfi skóla, frístunda- heimila og félagsmiðstöðva svo foreldrar eigi auðveldara með að átta sig á hvaða hjálp stendur til boða,“ segir Árelía Eydís. Nýr formaður Félags grunn- skólakennara, Mjöll Matthías- dóttir, sagði í viðtali við Morgun- blaðið á dögunum að þess væru mörg dæmi að tvítyngd börn næðu ekki að fóta sig í skólum landsins. Þörf væri á sterkum fé- lagslegum stuðningi við mörg þeirra og efla þyrfti íslensku- kennslu samanber að lesskilningi fjölda barna fer aftur. Lýsing þessi leiðir þá eðlilega af sér þá spurningu hvernig skólar í Reykjavík séu á því herrans ári 2022 að sinna og taka utan um börn sem lifa í flóknu samfélagi nútímans. Þessu svarar Árelía Ey- dís svo að móta þurfi stefnu þar sem markmiðum í skólastarfi og velferðarmálum sé fléttað saman, auk heldur sem sjá verði til þess að börnin fái stuðning svo máltaka þeirra verði sem best. „Ein mesta áskorun sem blas- ir við íslensku menntakerfi er sú að tryggja börnum sem eru af er- lendu bergi brotin tækifæri til þess að láta drauma sína rætast. Hingað til höfum við einblínt á börn en hugsanlega er mikilvægt að ná til mæðra sem oftast taka af skarið hvað varðar menntun og uppeldi barna þeirra. Við þurfum því að horfa á mál í stóru sam- hengi og taka ákvörðun um stefnu og hvernig við byggjum upp fjöl- breytilegt samfélag. Börn af er- lendum uppruna eiga að hafa sama möguleika á að mennta sig í þeim framhaldsskóla sem þau kjósa og koma sterk inn í frekara nám síðar,“ segir Árelía Eydís og að lokum: Árangur segir sitt „Við getum þegar allt kemur til alls verið stolt af árangri menntakerfis okkar sem við sjáum m.a. í því hversu vel okkar fólk stendur sig í fjölbreyttum verk- efnum. Íslendingar eru eins og sagan segir jafnan ótrúlega fljótir að komast aftur á beina braut eftir öll áföll eða bakslög. Frábær árangur okkar fólks í nýsköpun, vísindastarfi, listum, menningu og mörgu öðru segir sitt.“ Markmiðum skólastarfs og velferðarmála sé fléttað saman, segir Árelía Eydís Guðmundsdóttir, formaður skóla- og frístundaráðs Reykjavíkur Morgunblaðið/Sigurður Bogi Menntun Skólakerfið kenni grunnfærni, segir Árelía Eydís. Best fyrir börn - Árelía Eydís Guðmunds- dóttir fæddist 1966; alin upp í Keflavík og er ættuð frá Brekku á Ingjaldssandi. Árelía lauk BA-prófi í stjórnmálafræði frá Háskóla Íslands árið 1991 og meistaragráðu í vinnumark- aðsfræði frá London School of Economics and Political Science árið 1993. Árelía stundaði doktorsnám við Uni- versity of Essex og Háskóla Ís- lands og brautskráðist 2001. - Árelía hefur verið dósent við viðskiptadeild Háskóla Íslands en sérsvið hennar er leiðtoga- fræði. Hún hefur skrifað fjölda greina sem birst hafa á fræði- legum vettvangi. Er einnig rit- höfundur en eftir hana hafa komið út átta bækur og þar af þrjár skáldsögur. Hún hefur setið í fjölmörgum stjórnum, ráðum og nefndum og haslar sér nú völl í stjórnmálum. Hver er hún? Breiðholt Ölduselsskóli er einn af 42 grunnskólum sem starfa í Reykjavík. Morgunblaðið/Sigurður Bogi Táknmál Börnum sé mætt á þeirra forsendum. Margrét Auður Jóhann- esdóttir, kennari í Hlíðaskóla, og Amelia Daszkowta tala saman. VIÐ SKIPTUM LITUM duka.is Dúka Kringlunni Dúka Smáralind Smáforrit HEIMA verður fljótlega gert aðgengilegt fyrir fjölskyldur á Íslandi. Forritið er hannað til að sjá um skipulag og hugræna byrði heimilisins fyrir fjölskyldur á ein- faldan, skemmtilegan og jafnrétt- iseflandi máta að sögn fram- kvæmdastjóra og stofnanda sprotafyrirtækisins HEIMA, Ölmu Dóru Ríkarðsdóttur. HEIMA er íslenskt sprotafyr- irtæki sem vann Gulleggið árið 2020 með hugmynd sinni að forrit- inu. Fyrirtækið hefur einnig verið áberandi í umræðunni um aðra og þriðju vaktina og er forritið þróað sem lausn við vandamálinu. Smá- forritið stefnir að því með því að út- búa sérsniðna verkefnalista fyrir hverja fjölskyldu og býður þeim upp á að bæta við stöðluðum verk- efnalistum fyrir hátíðir, veislur, ferðalög og fleira. Fjölskyldu- meðlimir fá síðan stig fyrir hvert unnið verkefni. Smáforritið heldur svo utan um stigatöflu fjölskyld- unnar. Í maí kom út fyrsta útgáfa smáforritsins sem var deilt með nokkrum fjölskyldum til prufu- keyrslu. Stefna stofnendur HEIMA á að deila smáforritinu með öllum sem allra fyrst. Ljósmynd/HEIMA Sproti Stofnendur sprotafyrirtækisins HEIMA, Alma Dóra Ríkarðsdóttir og Sigurlaug Guðrún Jóhannsdóttir. Verkefnið vann Gulleggið árið 2020. Von á HEIMA á heimili fólks fljótlega - Stafræn lausn fyrir öll fjölskylduverkin

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.