Morgunblaðið - 20.06.2022, Page 12

Morgunblaðið - 20.06.2022, Page 12
BAKSVIÐ Ásgeir Ingvarsson ai@mbl.is Japanska jenið hefur veikst mikið gagnvart helstu gjaldmiðlum á und- anförnum fjórum mánuðum. Kostaði bandaríkjadalurinn 115 jen í byrjun marsmánaðar en um 135 jen í dag og er svipaða sögu að segja af þróun jensins gagnvart evru og renminbí sem hafa styrkst um ríflega 10% gagnvart jeninu á sama tímabili. Undanfarið ár hefur jenið veikst um 20% gagnvart dalnum. Felur þetta í sér töluverðan vanda fyrir verslanir sem selja innfluttan varning því japanskir neytendur eru mjög viðkvæmir fyrir verðhækkun- um og vanari því að verð fari al- mennt lækkandi. Frá aldamótum hefur það aðeins gerst tvisvar að verðbólga í landinu hefur mælst yfir einu prósentustigi og í mörg ár hefur mælst verðhjöðnun. Bregst almenningur í Japan oft illa við verðhækkunum sem skýrist m.a. af því að vegna menningarlegra og efnahagslegra þátta hafa laun í landinu nánast staðið í stað í aldar- fjórðung. Eru framleiðendur og selj- endur því mjög hikandi við að hækka hjá sér verðið. Financial Times segir vandann kristallast í rekstri verslanakeðjunn- ar Daiso sem byggir rekstur sinn á að selja vörur af öllu mögulegu tagi á aðeins 100 jen stykkið eða jafnvirði 97 króna. Daiso og aðrar verslanir af svipuðum toga hafa náð mikilli út- breiðslu í Japan á undanförnum þremur áratugum og hefur vel- gengni þeirra m.a. byggst á góðu framboði af ódýrum varningi frá verksmiðjum í Kína og SA-Asíu. Segir FT að í dag megi finna meira en 8.400 verslanir vítt og breitt um Japan sem sérhæfa sig í að selja vörur á 100 jen. Forstjóri Daiso seg- ir hækkandi innflutningsverð þrengja að rekstrinum en fyrirtækið muni ekki hækka hjá sér verðiðheld- ur leita frekar leiða til að breyta vöruframboðinu og þannig standa við 100 jena loforðið. Þá hyggst Daiso opna keðju verslana undir nýju nafni, bæði innan Japans og ut- an, þar sem allar vörur munu kosta 300 jen. ai@mbl.is Veiking japanska jensins gerir verslunum erfitt fyrir AFP/Kazuhiro NOGI Áskorun Fólk á ferðinni í verslunargötu í Tókýó. Jenið hefur veikst hratt. - Ekki vel séð að beina hærri innflutningkostnaði út í vöruverð 12 FRÉTTIR Viðskipti | Atvinnulíf MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 20. JÚNÍ 2022 Sími 555 2992 / 698 7999 Hátt hlutfall Omega 3 fitusýra Gott fyrir: • Maga- og þarmastarfsemi • Hjarta og æðar • Ónæmiskerfið • Kolesterol • Liðina Læknar mæla með selaolíunni Selaolían fæst í: Apótekum, Þín verslun Seljabraut, heilsuhúsum, Fjarðarkaupum, Fiskbúðinni Trönuhrauni, Hafrúnu ogMelabúð Óblönduð – meiri virkni Selaolía Ég heyrði fyrst um Selaolíuna í gegnum kunningja minn en konan hans hafði lengi glímt við það sama og ég, - stirðleika í öllum liðum og tilheyrandi verki. Reynsla hennar var það góð að ég ákvað að prufa. Fyrstu tvo mánuðina fann ég litlar breytingar, en eftir þrjá mánuði var ég farin að geta gengið niður stiga á vinnustað mínum sem ég hafði ekki getað áður. Ein góð „aukaverkun“ fylgdi í kjölfarið, ég var með frekar þurra húð um allan líkamann, en eftir að ég fór að nota Selaolíuna hvarf sá þurrkur og húð mín varð silkimjúk. Ég hef nú notað Selaolíuna í eitt og hálft ár og þakka henni bætta líðan og heilsu. Guðfinna Sigurgeirsdóttir. „Eftir þrjá mánuði var ég farin að geta gengið niður stiga á vinnustaðmínum sem ég hafði ekki getað áður.“ 20. júní 2022 Gengi Kaup Sala Mið Dollari 132.21 Sterlingspund 160.72 Kanadadalur 102.26 Dönsk króna 18.485 Norsk króna 13.147 Sænsk króna 12.857 Svissn. franki 135.57 Japanskt jen 0.9946 SDR 175.87 Evra 137.5 Meðalgengi/Viðskiptavog þröng 171.6068 Töluverðar raskanir hafa orðið á starfsemi flugvalla og flugfélaga víða í Evrópu að undanförnu og er útlit fyrir áframhaldandi truflanir í sumar. Er starfsfólk óánægt með kjör sín og aðbúnað og hótar verk- föllum. Þannig hyggst starfsfólk á inn- ritunarborðum British Airways á Heathrow-flugvelli leggja niður störf í júlí til að mótmæla því að launaskerðing sem það þurfti að þola í kórónuveirufaraldrinum hefur ekki gengið til baka að fullu. Þá hafa öryggisverðir á flugvellinum í Brussel boðað verk- fall í dag og ætla flugmenn Bruss- els Airlines að gera slíkt hið sama dagana 23. til 25. júní. Veruleg röskun gæti orðið á starfsemi Ryanair síðar í sumar því stéttarfélög flugþjóna í Ítalíu, Frakklandi, Portúgal, Belgíu og Spáni hóta verkfalli ef flugfélagið bregst ekki við kröfum þeirra um bætt vinnuskilyrði, að því er Reut- ers greinir frá. Fyrr í þessum mánuði þurfti að fella niður 25% flugferða til og frá Charles de Gaulle-flugvelli í París eftir að starfsfólk flugvallarins fór í eins dags verkfall til að krefjast 300 evra launahækkunar og betri vinnuskilyrða. Hefur annað verk- Verkföll og skortur á starfsfólki plaga flugfélög og flugvelli í Evrópu Ósátt Flugþjónar Ryanair hafa hótað því að fara í verkfall í sumar. fall verið boðað 2. júlí. Þá gætu um 1.000 flugmenn SAS í Danmörku, Noregi og Sví- þjóð farið í verkfall síðar í þessum mánuði vegna óánægju þeirra með laun sín og niðurskurðaraðgerðir flugfélagsins. Töluverðrar manneklu gætir hjá mörgum flugvöllum í álfunni og á t.d. enn eftir að manna um 20% af stöðum í flugafgreiðslu, ör- yggisvörslu og innritun hjá þýsk- um flugvöllum en á Charles de Gaulle- og Orly-flugvöllunum í París þarf að fylla a.m.k. 4.000 lausar stöður. Eykur það á vanda flugvallanna að störfin sem um ræðir eru oft líkamlega krefjandi, þykja ekki mjög vel borguð, og ferðalagið á vinnustaðinn er langt fyrir marga. Að auki getur þjálfun og örygisvottun flugvallar- starfsmanna tekið nokkra mánuði. ai@mbl.is Í viðtali við fréttastöðina ABC News á sunnudag sagði Janet Yel- len fjármálaráðherra Bandaríkj- anna að ríkisstjórn Joes Bidens væri að endurskoða ýmsa tolla á kínverskan varning með það fyrir augum að koma böndum á hátt verðbólgustig í landinu. „Við áttum okkur öll á að Kína stundar óeðlilega viðskiptahætti af ýmsu tagi og æskilegt að bregðast við því, en sumir af þeim tollum sem við erfðum frá fyrri ríkis- stjórn þjóna ekki hlutverki sínu,“ sagði Yellen. Á árunum 2018 og 2019 lét Don- ald Trump hækka tolla á ýmsar vörur frá Kína m.a. með það fyrir augum að styrkja samkeppnis- stöðu bandarískra fyrirtækja. Hef- ur ríkisstjórn Joes Bidens að mestu haldið tollunum óbreyttum og þannig hækkað innflutnings- verð kínverskra vara sem fluttar eru inn til Bandaríkjanna ár hvert fyrir mörg hundruð millj- arða dala. Með því að lækka tolla á vörur eða hráefni frá Kína má leiða líkum að því að takist að einhverju leyti að sporna við hækkun verðlags í Bandaríkjun- um. Þá eru stjórnvöld einnig að skoða þann möguleika að draga úr álögum á eldsneyti. Jennifer Granholm, ráðherra orkumála, mætti í viðtal hjá CNN um helgina og sagði ríkisstjórnina með það til athugunar að hætta tímabundið að leggja alríkisskatt á sölu bifreiðaeldsneytis og þann- ig sporna gegn ört hækkandi bensínverði. Í maí kostaði gallon af bensíni að jafnaði rúmlega 4,5 dali hjá bandarískum bensínstöðvum en kostaði ríflega 3 dali í maí 2021. Er bensínverð í Bandaríkjunum næstum því tvöfalt hærra í dag en í venjulegu árferði. ai@mbl.is Sumir Trump-tollar tilgangslausir - Bandarísk stjórnvöld skoða að lækka tolla á tilteknar kínverskar vörur - Kemur til greina að lækka skatta á eldsneyti til að hægja á verðbólgu Janet Yellen Jennifer Granholm AFP /Justin Sullivan Útgjöld Hækkandi eldsneytisverð á stóran þátt í verðbólgu í BNA. « Fjárfestar sýndu hlutabréfum ís- lenska lyfjafyrirtækisins Alvotech mik- inn áhuga þegar viðskipti hófust með bréf félagsins í Nasdaq-kauphöllinni í New York á fimmtudag. Kostuðu hluta- bréf Alvotech 10,3 dali við skráningu en verðið hækkaði upp í 13,5 dali strax á fimmtudagsmorgun. Eftir það hefur hlutabréfaverð félagsins fikrast niður á við og við lokun markaða á föstudag kostaði hluturinn 9,7 dali. ai@mbl.is Styrking Alvotech gengin til baka

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.