Morgunblaðið - 20.06.2022, Side 16

Morgunblaðið - 20.06.2022, Side 16
16 UMRÆÐAN MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 20. JÚNÍ 2022 Örugg og traust þjónusta í fasteignaviðskiptum í áratugi arsalir@arsalir.is, s. 533 4200 Hagstætt verð. Glæsilegt skrifstofuhúsnæði. Sér inngangur. Tangarhöfði 6 - 2. hæð - 110 RVK ÁRSALIR FASTEIGNAMIÐLUN 533 4200 TIL LEIGU Í okkar sólkerfi er jörðin tvípóla segull, líkast til frá því í ár- daga, sem aðrar reikistjörnur hafa ekki nema þá Merk- úr. Tunglið hefur ekki segulsvið. Bæði Mars og Venus hafa þúsundfalt minni seg- ulmagnsstyrk en jörðin og eru ekki tvípóla. En segulsvið eru líka í sól- inni. Sólin geislar rafsegulbylgjum og svo hlöðnum kjörnum, aðallega vetnis- (prótónur) og helíum- kjörnum (alfaagnir) auk rafeinda og fleiri kjarna út í geiminn með allt að 1.000 km hraða á sekúndu og eru agnirnar einn til tvo daga á leið til jarðarinnar. Sólarljósið eða hvíta dagsbirtan er hins vegar bara 8,3 mínútur að fara 150 millj- ónir kílómetra til okkar. Ekkert líf gæti þrifist á jörðinni ef ekki væru varnarbelti sem sía sumt af þessu frá sólinni. Af rafsegulbylgjunum er það hvíta ljósið og eitthvað af útfjólubláum geislum og inn- rauðum sem sleppa í gegn og út- varpsbylgjur. Það er andrúmsloftið sem veitir mesta vernd öllu lifandi en segulsvið jarðar myndar tvö varnarbelti líka. Annað er um miðja jörðina og nær 3.600 km út frá 35° breidd sitthvorumegin við miðbaug. Hitt beltið nær að 65° breidd sitthvorumegin við miðbaug og sveiflast milli 5.000 og 25.000 km upp frá jörðinni. Þessi belti segulsviðsins sía hlöðnu agnirnar frá sólinni og koma þeim í hring- rás um jörðina. Þá er afhlaðið gas- lag í 70-500 km hæð með sterkum rafstraumum rafeinda, þökk sé segulsviði jarðar. Neðst í þessu lagi er ósonlagið, sem gleypir í sig útfjólubláa geisla (húðkrabbamein) og röntgengeisla (myndast af alfa- ögnum) sem annars útrýmdu öllu lífi á jörðinni. En þetta lag nýtist líka til að endurkasta útvarps- bylgjum um jörðina. Stutt er síðan tókst með sameiginlegu átaki mannkyns að hindra eyðingu óson- lagsins með útsleppi gastegunda sem eyða því. Eitthvað kemur af geimgeislum líka frá Vetrarbraut- inni. En allt þetta er háð styrk geimgeisla sem ná til jarðarinnar og svo styrk geislunar frá sólu og styrk jarðsegulmagnsins sem með hjálp ósonlagsins heldur þessum hlöðnu ögnum frá okkur og svo gufuhvolfinu sem sí- ar rafsegulsviðs- geislun sólarinnar en sleppir ekki allri orku þess út aftur og viðheldur meðalhita um 15°C á jörðinni, sem mannkynið á í basli með að hækki ekki með brennslu jarðefnaeldsneytis, en þá yrði mikil röskun á búsetu og gróðri auk lífsins í sjónum og sjávarhæðar. Þá hafa vísindamenn komist að raun um að sólin hafi 11 ára sveiflur í styrk sólargasa (sumir segja 22 ára) eða gosa sem skjót- ast hundruð þúsunda km út í geiminn. Í tvö til þrjú ár er þetta mest en minnkar síðan. Þá er tal- ið að farsóttir fylgi þessu mynstri, eins og svartidauði, kól- era, inflúensa og fleira, og hjarta- og æðasjúkdómar verði líka fyrir áhrifum. E.t.v. hafa þessi eldgos og sólarblettir sól- arinnar meiri áhrif á lífið á jörð- inni en nú vitað. En þá er það pólsnúningurinn. Öll 500.000-800.000 ár virðast pólar jarðsegulsviðsins skipta um set og suðurpóll verður norð- urpóll og öfugt, ásamt lækkun á styrk segulsviðsins, sem nær sér smám saman aftur. Jarðsögulega hafa margar umpólarnir verið staðfestar en engar á sögutíma. Slík umpólun yrði skelfileg fyrir lífríkið á jörðinni og geimgeislar myndu lenda ekki minna en þre- falt meira á henni með tilheyr- andi orku og tæki margar aldir að ná fyrri aðstæðum. E.t.v. er hér komin sú sía sem velur á náttúrulegan hátt það líf sem lifir þessar hörmungar af að sögn Bezanovs. Heimildir hugleiðinga minna eru kenningar dr. I.A. Bezanovs auk fróðleiks á Vísindavefnum og í almanakinu ásamt fleiru. Sólin, segulsvið jarðar og lífið á jörðinni Eftir Pálma Stefánsson Pálmi Stefánsson » Lífríkið hefur líklega þróast vegna raf- segulsviðs jarðar og er líklega háð stöðugleika og síun geislunar sólar, sem annars hefðu áhrif á allt líf. Höfundur er efnaverkfræðingur. spalmi@simnet.is Það eru tvær þjóðir í landinu; elítan sem telur sig hátt yfir aðra hafna og svo alþýðan sem fær e.t.v. brauð- mola sem falla af borð- um hinna. Þau hringja í eyrum mér orðin sem sjálfstæðismaður nokkur sagði varðandi það að lækka virðis- aukann t.d. af heim- ilistækjum, að þá gætu hinir efnameiri skipt oftar um heimilistæki og hinir tekjulægri þá líka í gegnum bland.is. Stjórnmálamenn nútímans og stórbokkar í atvinnulífinu og und- irgefnir verkalýðsleiðtogar eiga sér rætur og fyrirmyndir allt til land- námsins. Stórbændur og lénsherrar héldu hér vistarbönd þar sem fólk gat ekki verið frjálst nema jú það gat skipt um vinnustað einu sinni á ári, þ.e. ef því bauðst eitthvað yfir- höfuð. Vinnufólk þrælaði þar fyrir húsbændur og oftar en ekki við kröpp kjör, fundust örfáir inni á milli sem gerðu vel við sitt vinnu- fólk. Þetta má lesa í gegnum sögur og frásagnir frá liðnum tíma, í ævi- skrám og sagnabókum. En hefur þá ekkert breyst frá þessum tíma? Jú við erum komin inn í nútímann með tækni og öll verkfæri til þess að allir geti átt hér gott líf en þessi umrædda elíta kemur í veg fyrir það með öllum ráðum. Fær verkalýðsstéttina að borðum með smá brauðmolum og lætur að því liggja að allt fari á heljarþröm ef verkafólk tekur ekki á sig byrðarnar til þess að koma í veg fyrir „stórslys“ sem yrði ef elítan fær ekki sitt. Þessi elíta hefur komið ár sinni vel fyrir borð; er með vinnu- veitendur í lífeyris- sjóðum landsmanna sem geta þar „gambl- að“ með sjóðina, þ.e. stjórna þar fjárfest- ingum sjóðanna og þá til fyrirtækja sem fara á markað, en með það fyrir augum að styrkja sín eigin völd, eru ekki að hugsa um fólkið á plani. Þessi sama elíta hefur komið sínu fólki að í öllum stofnunum innan ríkisvaldsins og dómstóla, allir sett- ir í störf eftir óskum ráðherra sem velja fremur þá sem eru þeim þókn- anlegir. Aldraðir og öryrkjar mega ekki bíða sagði formaður Vg hér um árið og enn bíður þetta fólk. Ef rætt er um örlitlar kjarabætur til þessara hópa þá koma úrtöluraddir og segja að ekki megi gera of vel við þessa því þá kynni að fjölga í þessum hópi. Stór hluti tekna þess- ara hópa fer í leigu húsnæðis á mjög óheilbrigðum markaði, lög sem ríkið setur t.d. varðandi stofn- framlög miðast við sértæka hópa og aðrir sem vilja byggja að norrænni fyrirmynd óhagnaðardrifið húsnæði sitja eftir, rúmast ekki innan reglu- verks elítunnar sem með þessu sýn- ir að hún hefur engan áhuga á að bæta húsnæðismálin, vill viðhalda stöðu leigusala fremur en byggja upp betri stöðu leigutaka. Ég hef aldrei verið sérlega spennt fyrir ESB (Evrópusamband- inu) en er sífellt að færast nær þeirri skoðun að fara þangað inn. Þar er heilbrigðara regluverk sem við þyrftum að taka upp, elítan gæti ekki hagað sér eins og hún gerir, böndum yrði komið á sérhyglina og frændhyglina, siðareglur gætu komið þeim frá völdum sem starfa ekki innan þess regluverks og það væri ekki undir þeim komið, þeir yrðu að segja af sér eftir að upp kemst um það sem við köllum spill- ingu, hefðu ekki val. Einnig er ég á því að taka þurfi upp aðra mynt eða fasttengja íslensku krónuna t.d. við evru svo stjórnvöld geti ekki lengur hringlað með krónuna og fellt hana eftir „behag“ fyrir stórútgerðina, sem kemst upp með að fá greitt í evrum en greiðir svo laun í ónýtri krónu. Ég held að með þessu sé ég komin með enn eitt verkefnið, þ.e. að tala fyrir því að fara í ESB. Eftir Ragnhildi L. Guðmundsdóttur » Landið þar sem brauðmolakenningin fær að njóta sín; elítan eða alþýðan. Brauðmol- ar þeirra til alþýðu sem vilja græða á daginn og grilla á kvöldin. Ragnhildur L. Guðmundsdóttir Höfundur er kennari, náms- og starfsráðgjafi og nemi í þjóðfræði. ragnhildur@talnet.is Elítan og almúginn Ég er oft búinn að býsnast yfir þeirri ís- lensku máláráttu sem telur fólk eldra en það raunverulega er. Þeir sem eru nýorðnir fer- tugir eru sagðir á fimmtugsaldri, sjötug- ir á áttræðisaldri og svo framvegis. Eru þá ekki tíu ára krakkar á tvítugsaldri? Undir niðri veit ég að þessu verður ekki breytt í bráð þótt það sé bæði asna- legt og ferlega rangt. En ég er orð- inn gamall svo mér er leyfilegt að halda áfram að kvarta yfir því. Og þar sem ég er nýbúinn að halda upp á 90 ára afmælið verð ég að sætta mig við að vera kominn á tíræðis- aldur á Íslandi þótt ég sé enn bara níræður hérna í henni Ameríku. Í gær fór ég í mína reglulegu læknisheimsókn, sem ég geri tvisvar á ári. Læknirinn minn er þýsk kona, Ulrike að fornafni, sem búin er að starfa hér síðan hún kom hingað í framhaldsnám fyrir 30 árum. Hjúkrunarkonan hennar er frá Namibíu. Hér er allt fullt af útlend- ingum; það er næstum eins slæmt og á Íslandi. Þótt Ulrike sé ágæt verður hún að haga starfi sínu eins og aðrir læknar í vinnu hjá heilsu- fyrirtæki. Hún er stöðugt að mæla með öllum mögulegum rannsóknum sem hún vill láta framkvæma á sjúk- lingunum. Allt slíkt kostar morð fjár en tryggingafélögin og opinbera heilsubáknið borga brúsann. Sjúk- lingurinn veit sjaldnast um kostn- aðinn en heilsufyrirtækið og lækn- irinn maka krókinn. Læknirinn virðist stundum vera eins og hver annar sölumaður: Má ekki bjóða þér í ristilspeglun? Þarf ekki að líta á blöðruhálskirtilinn? Og hvað með nýrun? Er ekki tími til kominn að mæla afkastagetu þeirra? Og ekki má gleyma hjartanu og kransæðunum. Viltu ekki láta kíkja á þvagfærin? Ég sagði við Ul- rike að ég væri nú orðinn níræður og þyrfti ekki lengur að láta sér- fræðinga skoða á mér skrokkinn til að reyna að finna einhvern krankleika sem endan- lega gæti orðið mér að aldurtila. Ég vildi í lengstu lög komast hjá því að eyða þessum „gullnu“ árum í lækna- ráp og sjúkdóms- áhyggjur. Það fylgir oft elli- árunum að hugsa til baka og ígrunda hvort lífshlaupið hefði orðið öðruvísi ef vissar ákvarðanir hefðu verið teknar eða ekki teknar. Ég þjáist ekki af neins konar eftirsjá, því ég er hálfpartinn forlagatrúar. Við erum bara leiksoppar forlag- anna. Aftur á móti hefi ég stundum velt fyrir mér hvort ég hafi kannski misst af einhverju sem gaman hefði verið að gera, eins og til dæmis læra að spila golf. Ég hefi trú á því að ýmsir per- sónulegir hæfileikar gangi í ættir. Þar ráða genin, litningarnir. Þannig held ég að í minni ætt hafi ekki ver- ið öflug íþróttagen. Benni bróðir fékk reyndar bronsverðlaun í spjót- kasti á drengjamóti í frjálsum íþróttum endur fyrir löngu. Það er líklega besta íþróttaafrekið í minni fjölskyldu. Ekkert af okkur sjö systkinum spilaði golf, sem merki- legt má heita, og ekki einu sinni brids eftir því sem ég best veit. Eftir að ég kom til Ameríku stundaði ég keiluspil með vinnu- félögum mínum. Seinna meir fór ég nokkrum sinnum með eiginkonuna í keiluhöllina og kenndi henni þessa skemmtilegu íþrótt. Það leið ekki á löngu þar til hún fór að bera sigur úr býtum í næstum hvert skipti. Missti ég þá áhugann en hún fór að spila reglulega með kvennaliði og kom heim með marga verðlaunabik- ara í gegnum árin. Ofan í kaupið var hún einnig afbragðsbridsspilari. Í spilamennskunni komst ég aldrei lengra en ólsen ólsen. Þegar við fluttum til Flórída, þar sem við bjuggum í 38 ár, ætlaði ég mér svo sannarlega að læra að spila golf en einhvern veginn varð aldrei af því. Samt kynntist ég mörgum golfspilurum, amerískum og íslensk- um, og dáðist að því hve áhugasamir og tryggir þeir voru þessari göfugu íþrótt. Þar sem ég var ræðismaður í Suður-Flórída var ég eitt sinn beð- inn að fara til Orlandó að sjá um utankjörstaðarkosningu í íslensku golfnýlendunni þar. Á þeim árum var þar enginn ræðismaður. Þetta var þriggja og hálfs tíma akstur fyr- ir mig hvora leið svo ég tjáði golffor- ingjunum að ég myndi halda kjör- fund milli klukkan eitt og þrjú. Ne-ei, það var ekki hægt var svarið, golfkeppnin er ekki búin fyrr en klukkan fjögur og svo þarf að fara á barinn eftir átjándu holuna. At- kvæðagreiðslan gæti ekki hafist fyrr en í fyrsta lagi klukkan fimm. Ég var ekki kominn heim til mín fyrr en eftir miðnætti þann daginn. Til að enn frekar sýna hollustu golfaranna við litlu hvítu kúlurnar læt ég fylgja hér golfbrandara sem ég heyrði í Flórída. Bob hafði spilað með félögum sínum á hverjum laug- ardegi í mörg ár. Einn fagran jan- úarmorgun voru þeir að spila á vell- inum meðfram veginum sem lá út í kirkjugarðinn. Þar var þá á ferðinni líkfylgd, líkvagn og margir bílar á eftir í halarófu. Bob sneri sér þá að líkfylgdinni, stóð teinréttur og tók ofan húfuna. Tom félaga hans varð að orði: „Þú ert góður og kristinn maður, Bob, að sýna hinum fram- liðna virðingu þína með þessum hætti.“ „Það er nú varla annað hægt,“ svaraði hann, „við vorum gift í 47 ár!“ Eftir Þóri S. Gröndal »Ég var að halda upp á 90 ára afmælið og verð því að sætta mig við að vera kominn á tí- ræðisaldur á Íslandi þótt ég sé enn bara ní- ræður í henni Ameríku. Þórir S. Gröndal Höfundur er fyrrverandi fisksali og ræðismaður í Ameríku. floice9@aol.com Kominn á tíræðisaldur

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.