Morgunblaðið - 20.06.2022, Qupperneq 25

Morgunblaðið - 20.06.2022, Qupperneq 25
DÆGRADVÖL 25 MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 20. JÚNÍ 2022 FAXAFEN 14, 108 REYKJAVÍK WWW.Z.IS um, mannlífi, listum, íþróttum og ferðalögum. Ég les skáldsögur á köflum en það fylgir mínu starfi að ég les fleiri skýrslur en skáld- sögur, því miður. En ég hef lesið mikið í gegnum tíðina. Á menntaskólaárunum lagðist ég yfir Laxness og gat eiginlega ekki lesið neitt annað árum sam- an. Það einhvern veginn skyggði á allt. Mér finnst rosalega mikið um öfluga rithöfunda á síðustu árum, til dæmis Hallgrímur Helgason, Auður Jónsdóttir, Jón Hallur og Sigríður Hagalín Björnsdóttir. Dagur Hjartarson hefur einnig skrifað skrifað mjög áhugaverðar og skemmtilegar bækur.“ Fjölskylda Eiginkona Dags er Arna Dögg Einarsdóttir, f. 18.4. 1975, yfir- læknir á líknardeild Landspítala. Þau gengu í hjónaband 22. sept- ember 2001. Þau eru búsett á Óðinsgötu í Reykjavík. Foreldrar Örnu eru hjónin Einar Þórhalls- son, f. 1.7. 1952, meltingarlæknir, og Sigríður Steinarsdóttir, f. 9.4. 1952, meinatæknir. Þau eru bú- sett í Svíþjóð. Börn Dags og Örnu eru Ragn- heiður Hulda Örnudóttir Dags- dóttir, f. 3.5. 2004, menntaskóla- nemi, Steinar Gauti Örnuson Dagsson, f. 26.9. 2005, mennta- skólanemi, Eggert Örnuson Dagsson, f. 14.8. 2009, grunn- skólanemi, og Móeiður Örnudótt- ir Dagsdóttir, f. 12.3. 2011, grunnskólanemi. Systkini Dags eru Gauti Berg- þóruson Eggertsson, f. 1.8. 1974, prófessor í hagfræði við Brown- háskóla í Bandaríkjunum, og Val- gerður Bergþórudóttir Eggerts- dóttir, f. 13.10. 1981, lögfræð- ingur hjá innanríkisráðuneytinu. Foreldrar Dags eru Eggert Gunnarsson, f. 2.1. 1949, dýra- læknir, og Bergþóra Jónsdóttir, f. 21.5. 1950, lífefnafræðingur. Þau eru búsett í Reykjavík. Dagur Bergþóruson Eggertsson Kristín Salóme Ingimundardóttir húsfreyja á Hóli í Bolungarvík Bjarni Jón Bárðarson skipstjóri á Hóli í Bolungarvík Jóna Halldóra Bjarnadóttir húsfreyja í Reykjavík Jón Hjaltalín Gunnlaugsson læknir í Reykjavík Bergþóra Jónsdóttir lífefnafræðingur í Reykjavík Sigrún Jónsdóttir húsfreyja í Súðavík Gunnlaugur Randver Einarsson sjómaður og formaður í Súðavík Theodóra Kristjánsdóttir húsfreyja í Reykjavík Þorkell Guðbrandsson verkamaður í Reykjavík Ragnheiður Hulda Þorkelsdóttir hjúkrunarfræðingur í Reykjavík Gunnar Steingrímsson loftskeytamaður í Reykjavík Þuríður Eggertsdóttir húsfreyja í Reykjavík Steingrímur Stefánsson bóksali í Reykjavík Ætt Dags B. Eggertssonar Eggert Gunnarsson dýralæknir í Reykjavík „FYRIRGEFÐU AÐ ÉG TRUFLI ÞIG VIÐ UPPLESTURINN, EN ÞETTA Á AÐ VERA ÓSKALISTI MEÐ LEIKFÖNGUM – EKKI LISTI YFIR ÞÁ SEM ÞÚ VILT FEIGA.“ „HÚN BAÐ MIG BARA AÐ PASSA KÖTTINN SINN UM HELGINA.“ Ferdinand Hrólfur hræðilegi Grettir ... að fá faðmlag frá smáfólki. Í klípu eftir Mike Baldwin eftir Jim UngerHermann HEI, KISI! LÁTTU ÞIG HVERFA! HVÍ? ÍKORNAFJÖLSKYLDA ÆTLAR AÐ SKOÐA HOLUNA ÞIÐ FASTEIGNA- ÍKORNARNIR ERUÐ ALDEILIS FREKIR ÞETTA VAR YFIRDRIFIÐ, MEIRA AÐ SEGJA FYRIR ÞIG, GRIMMÚLFUR GRIMMI! ÞÚ VARST EKKI BÚINN MEÐ BJÓRINN ÞINN! Ég hef alltaf haft gaman af þessu kvæði Kristjáns Karlssonar sem ber yfirskriftina: „Þau hin lit- verpu og litglæstu fjöll er blasa við í austri eru sögufróðustu fjöll Ís- lands …“ Sigurður Guðmundsson: Ræða á Íþróttavellinum í Reykjavík, 17. júní, 1918. Kom nótt og nem á burt hans fávís fjöll, að fyrir næsta dag vér getum aftur gert vort ferðalag. Og haldið hvurt? Krefjið oss einskis þér sem eruð öll, er raski vorri ró Demand me nothing: What you know you know. Þórarinn Sveinsson frá Kílakoti orti: Örðugan ég átti gang yfir hraun og klungur. Mér hefur legið fjall í fang frá því ég var ungur. Vellíðan Einn í þögn ég uni hér, angrið dó í geði. Bakkus fögnuð færði mér, fulla ró og gleði. Við skál: Hornasjórinn hressir geð, hylli sór ég veigum. Dýran bjórinn drósum með drakk ég stórum teygum. Maður nokkur sem fékkst við skáldskap kvæntist í sjötta skiptið. Var þá kveðið: Mjög þá skáldsins vandi vex, en verst er þó fyrir konugreyin ef þær troðast allar sex upp í til hans hinum megin. Um Látur við Eyjafjörð gerði Látra-Björg vísu þessa, en þar dvaldist hún lengi: Látra aldrei brennur bær, – bleytan slíku veldur – allt þar til er Kristur kær kemur og dóminn heldur. Ekki þóttu Fljótin í Skagafirði góð yfirferðar: Þar er kelda, þar er grjót, þar kann margt að buga. Ekki er gott að fara um Fljót fyrir ókunnuga. Ísleifur Gíslason á Sauðárkróki orti um Eirík nokkurn, er fyrstur kvað hafa hafið „landa“-bruggun í Skagafirði: Sykurgrautinn sýður hann, sigur hlaut í landi. Allar þrautir yfirvann Eiríkur brautryðjandi. Halldór Blöndal alldorblondal@simnet.is Vísnahorn Lítið ljóð og lausavísur

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.