Morgunblaðið - 20.06.2022, Síða 27

Morgunblaðið - 20.06.2022, Síða 27
leiðinni til félags í Hollandi. Hún hefur skorað fimm mörk í síðustu þremur leikjum með Breiðabliki, eftir að hún var færð í framlínu liðsins. Hildur hefur mest leikið sem miðjumaður á ferlinum. Knatt- spyrnudeild Breiðabliks staðfesti tíðindin við Morgunblaðið en gat ekki gefið út hvert hollenska félag- ið væri. _ Andri Þór Björnsson hafnaði í 46. sæti á Kaskáda Golf Challenge- mótinu á Áskorendamótaröðinni í golfi í Brno í Tékklandi. Hann lék fjóra hringi á pari. Bjarki Pétursson átti hins vegar erfiðan lokadag í gær og endaði á sjö höggum yfir pari og í 72. sæti. _ Englending- urinn Matthew Fitzpatrick bar sigur úr býtum á þriðja risa- móti ársins í golfi er hann fagnaði sigri á Opna banda- ríska meist- aramótinu á Brookline-vellinum í Massachusetts í gærkvöldi. Hann vann eftir mikla baráttu við Bandaríkjamanninn Will Zalatoris, sem var millímetrum frá því að tryggja sér umspil á lokahol- unni. Fitzpatrick lauk leik á sex höggum undir pari, einu höggu á undan Zalatoris og Scottie Scheff- ler. Sigurinn er sá fyrsti hjá Fitzpat- rick á risamóti en besti árangur hans á slíku móti fyrir gærdaginn náðist á PGA-meistaramótinu á dög- unum þar sem hann varð fimmti. _ Sofia Sóley Jónasdóttir úr Tennisfélagi Kópavogs og Rafn Kumar Bonifacius úr Hafna- og mjúkboltafélagi Reykjavíkur vörðu Íslandsmeistaratitla sína í einliðaleik í tennis í gærkvöldi. Sofia hafði bet- ur gegn Önnu Soffíu Grönholm úr Tennisfélagi Kópavogs, 6:1 og 7:6. Sofia hefur nú fagnað sigri á mótinu þrjú ár í röð og fjórum sinnum alls. Rafn Kumar vann Egil Sigurðsson úr Víkingi í karlaflokki, 6:0 og 6:0. Hann hefur nú orðið meistari fimm sinnum, þar af tvö ár í röð. _ Enska knatt- spyrnufélagið Liverpool hefur staðfest komu bakvarðarins Calvins Ramsa- ys til félagins frá Aberdeeen í Skotlandi. Kaupverðið er um fjórar milljónir punda. Ramsay er aðeins 18 ára en hefur þrátt fyrir það ver- ið lykilmaður hjá Aberdeen að undanförnu. Hann skoraði eitt mark og lagði upp önnur níu í 39 leikjum fyrir Aberdeen á síðasta tímabili. ÍÞRÓTTIR 27 MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 20. JÚNÍ 2022 KNATTSPYRNA Besta deild karla: Úlfarsárdalur: Fram – ÍBV...................... 18 Kópavogur: Breiðablik – KA............... 19.15 Garðabær: Stjarnan – KR ................... 19.15 2. deild kvenna: Akranes: ÍA – ÍH.................................. 19.15 Í KVÖLD! Ástralía South Adelaide – Norwood Flames .. 56:76 - Isabella Ósk Sigurðardóttir skoraði 5 stig, tók 12 fráköst, stal 2 boltum og varði 1 skot á 32 mínútum með South Adelaide. >73G,&:=/D Svíþjóð AIK – Rosengård ..................................... 0:6 - Guðrún Arnardóttir lék allan leikinn með Rosengård. Kristianstad – Piteå ................................ 1:0 - Amanda Andradóttir kom inn á hjá Kristianstad á 78. mínútu Kristianstad og Emelía Óskarsdóttir í uppbótartíma. Elísa- bet Gunnarsdóttir þjálfar liðið. - Hlín Eiríksdóttir lék fyrstu 75 mínúturn- ar með Piteå. Vittsjö – Örebro ....................................... 1:2 - Berglind Rós Ágústsdóttir lék allan leik- inn með Örebro. Kalmar – Djurgården ............................. 0:1 - Hallbera Guðný Gísladóttir var ekki í leikmannahópi Kalmar. Staðan: Rosengård 15 12 3 0 48:14 39 Linköping 15 11 1 3 39:13 34 Kristianstad 15 10 3 2 32:12 33 Häcken 15 8 5 2 29:13 29 Eskilstuna 15 9 2 4 20:13 29 Vittsjö 15 7 5 3 19:15 26 Hammarby 15 8 1 6 25:22 25 Djurgarden 15 7 1 7 22:22 22 Piteå 15 6 2 7 22:17 20 Örebro 15 6 0 9 14:21 18 Kalmar 15 3 0 12 12:41 9 Umeå 15 2 1 12 13:39 7 Brommapojkarna 15 2 0 13 12:35 6 AIK 15 2 0 13 9:39 6 B-deild: Uppsala – Team TG................................. 1:0 - Andrea Thorisson lék allan leikinn með Uppsala. Gamla Uppsala – Älvsjö.......................... 3:1 - Elva Friðjónsdóttir lék allan leikinn með Gamla Uppsala. Noregur Kristiansund – Bodö/Glimt.................... 0:2 - Brynjólfur Willumsson lék fyrstu 62 mínúturnar með Kristiansund. - Alfons Sampsted lék allan leikinn með Bodö/Glimt. Lilleström – Rosenborg .......................... 3:1 - Hólmbert Aron Friðjónsson kom inn á hjá Lilleström á 85. mínútu. Odd – Molde.............................................. 1:2 - Björn Bergmann Sigurðarson lék ekki með Molde vegna meiðsla. Sarpsborg – Strömsgodset..................... 5:1 - Ari Leifsson lék allan leikinn með Strömsgodset. Aalesund – Vålerenga............................. 2:2 - Brynjar Ingi Bjarnason var allan tímann á bekknum hjá Vålerenga og Viðar Örn Kjartansson ekki í hópnum. Viking – Sandefjord ................................ 2:1 - Patrik Sigurður Gunnarsson lék allan leikinn með Viking og Samúel Kári Frið- jónsson fyrstu 87 mínúturnar. Staðan: Lillestrøm 11 8 3 0 24:8 27 Molde 11 8 1 2 22:11 25 Viking 12 6 3 3 22:13 21 Strømsgodset 11 5 2 4 17:20 17 Sarpsborg 10 5 1 4 22:12 16 Bodø/Glimt 10 4 4 2 20:14 16 Aalesund 11 4 4 3 14:15 16 Rosenborg 10 3 5 2 16:13 14 HamKam 10 2 6 2 14:12 12 Sandefjord 9 4 0 5 14:17 12 Tromsø 10 2 6 2 13:16 12 Odd 11 4 0 7 10:17 12 Vålerenga 11 3 2 6 12:21 11 Haugesund 11 2 3 6 16:22 9 Jerv 10 2 1 7 5:19 7 Kristiansund 8 0 1 7 5:16 1 Rosenborg – Vålerenga.......................... 2:0 - Selma Sól Magnúsdóttir lék fyrstu 67 mínúturnar með Rosenborg og skoraði. - Ingibjörg Sigurðardóttir var í byrjunar- liði Vålerenga og fékk rautt spjald á 87. mínútu. Staðan: Brann 14 12 1 1 39:9 37 Rosenborg 15 11 2 2 32:10 35 Vålerenga 14 10 2 2 41:8 32 Stabæk 15 7 2 6 20:19 23 Lyn 14 6 4 4 19:18 22 Lilleström 14 5 3 6 15:15 18 Kolbotn 14 5 2 7 19:18 17 Arna-Bjørnar 14 3 1 10 14:43 10 Avaldsnes 14 2 1 11 11:43 7 Røa 14 0 2 12 7:34 2 B-deild: Start – Stabæk ......................................... 0:0 - Bjarni Mark Antonsson lék allan leikinn með Start. 4.$--3795.$ HANDBOLTI Jóhann Ingi Hafþórsson johanningi@mbl.is Haukur Þrastarson og Sigvaldi Björn Guð- jónsson, landsliðsmenn í handbolta, máttu sætta sig við silfurverðlaun er pólska meist- araliðið Kielce tapaði fyrir Spánarmeisturum Barcelona í úrslitum Meistaradeildar Evrópu í handbolta í Lanxess-Arena í Köln í Þýskalandi í gærkvöldi. Leikurinn var mögnuð skemmtun og réðust úrslitin í vítakeppni eftir 32:32-jafntefli í venjulegum leiktíma og framlengingu. Barce- lona skoraði úr öllum fimm vítum sínum í víta- keppninni en Gonzalo Pérez de Vargas varði þriðja víti Kielce frá Alex Dujshebaev. Haukur tekinn úr hópnum Þrátt fyrir að hvorki Sigvaldi né Haukur hafi leikið í gær tóku þeir við silfurverðlaunum í leikslok þar sem þeir hafa leikið með liðinu á leiktíðinni. Haukur heillaði marga með frammistöðu sinni í 37:35-sigrinum á Veszprém í undan- úrslitum. Engu að síður var Selfyssingurinn ekki í leikmannahópi Kielce í gær. Pólverjinn Michal Olejniczak var valinn í hópinn í stað Sel- fyssingsins. Þá hefur Sigvaldi glímt við meiðsli undanfarna mánuði og mun yfirgefa félagið á næstu dögum og ganga í raðir Kolstad í Noregi. Í fjarveru þeirra bauð Kielce upp á eina jöfn- ustu frammistöðu sem sést hefur í úrslitaleik í Evrópukeppni því sex leikmenn voru jafnir með fjögur mörk. Hjá Barcelona bar Aleix Gómez af og skoraði níu mörk og þeir Tomothey N’Gu- essan og Dika Mem gerðu fimm hvor. Barcelona hefur nú unnið Meistaradeild Evr- ópu tvö ár í röð en liðið bar einnig sigur úr být- um í keppninni á síðasta ári er Aron Pálmars- son var leikmaður þess. Félagið er það sigur- sælasta í keppninni frá upphafi með ellefu Evrópumeistaratitla. Núverandi fyrirkomulag keppninnar var sett á árið 2010, þar sem und- anúrslit og úrslit eru leikin sömu helgi, og er Barcelona fyrsta liðið til að verja titilinn síðan. Ciudad Real varð síðast Evrópumeistari tvö ár í röð, 2008 og 2009. Þrátt fyrir að vera í silfurliði var Artsem Karalek, hvítrússneski landsliðsmaðurinn í röð- um Kielce, valinn besti maður úrslitakeppn- innar. Þurftu að sætta sig við silfur - Barcelona Evrópumeistari annað árið í röð - Úrslitin réðust í vítakeppni AFP Meistarar Barcelona er Evrópumeistari í handbolta eftir sigur á Kielce í vítakeppni í úrslitaleik í Lanxess-Arena í Köln í gær. Markvörðurinn Gonzalo Pérez de Vargas heldur á verðlaunagripnum. Eiður Smári Guðjohnsen, einn besti knattspyrnumaður Íslands frá upphafi, hefur verið ráðinn þjálfari karlaliðs FH í fótbolta. Hann tekur við liðinu af Ólafi Jó- hannessyni sem var vikið frá störfum fyrir helgi. Eiður, sem semur við FH út tímabilið 2024, þekkir vel til hjá félaginu en hann stýrði FH ásamt Loga Ólafssyni árið 2020. Í kjöl- farið hætti Logi og Eiður sam- þykkti að vera einn aðaþjálfari. Þá bauðst honum að verða aðstoð- arþjálfari íslenska karlalandsliðs- ins, sem hann þáði. Eiður fær verðugt verkefni hjá FH því liðinu hefur vegnað illa í sumar. Hafn- arfjarðarliðið er með átta stig eft- ir níu leiki í Bestu deildinni, að- eins fjórum stigum fyrir ofan fallsæti. Bestu ár Eiðs sem leikmaður voru frá 2000 til 2009 er hann lék með stórliðunum Chelsea og Barcelona. Þá lék Eiður 88 A- landsleiki fyrir Ísland og skoraði í þeim 26 mörk og er hann marka- hæstur í sögu landsliðsins ásamt Kolbeini Sigþórssyni. Morgunblaðið/Árni Sæberg Hafnarfjörður Eiður Smári Guðjohnsen hefur verið ráðinn þjálfari karla- liðs FH í fótbolta í annað sinn og semur hann til loka tímabilsins 2024. Eiður Smári ráðinn aftur til FH Saga Traustadóttir úr GKG og Sig- urður Bjarki Blumenstein hjá GR eru Íslandsmeistarar í holukeppni árið 2022 eftir sigur á Íslandsmeist- aramótinu á Hlíðavelli í Mosfellsbæ í gær. Var mótið haldið í 35. skipti en keppt hefur verið um Íslands- meistaratitla í holukeppni í karla- og kvennaflokki samfellt frá árinu 1988. Saga vann einnig árið 2019 en Sigurður var að vinna sinn fyrsta Íslandsmeistaratitil og sitt fyrsta mót í fullorðinsflokki á vegum Golf- sambands Íslands. Þrettán ára í úrslitum Saga hafði betur gegn hinni 13 ára gömlu Pamelu Ósk Hjaltadótt- ur úr GM í úrslitaleiknum. Saga var með tveggja holu forskot þegar ein hola var eftir og fagnaði því sigri. Hafdís Alda Jóhannsdóttir úr GK varð þriðja eftir sigur á Árnýju Eik Dagsdóttur úr GR í bráðabana í bronsleiknum. Í karlaflokknum hafði Sigurður Bjarki betur gegn Kristófer Orra Þórðarsyni úr GKG í úrslitum. Rétt eins og í kvennaflokknum réðust úrslitin þegar ein hola var eftir, þar sem Sigurður Bjarki var með tveggja holu forskot. Bronsleikurinn í karlaflokki var töluvert ójafnari, en Kristján Þór Einarsson úr GM varð þriðji eftir öruggan sigur á Aroni Emil Gunn- arssyni úr Golfklúbbi Selfoss. Krist- ján var með átta holu forskot þegar aðeins sex holur voru eftir. Alls kepptu 64 keppendur á mótinu í ár, 32 karlar og 32 konur. Var þeim raðað í átta fjögurra manna riðla þar sem efsti kylfingurinn í hverj- um riðli fór í átta liða úrslit. Saga og Sigurður fögnuðu sigri Ljósmynd/Seth@golf.is Sigruðu Saga Traustadóttir og Sigurður Bjarki Blumenstein

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.