Morgunblaðið - 20.06.2022, Side 32
STILLANLEG
HJÓNARÚM
MEÐ BODYPRINT DÝNU
WWW.SVEFNOGHEILSA.IS
Svefn heilsa&
PANDORA
STILLANLEGUR
HÆGINDASTÓLL
VANDAÐAR
SÆNGUROG
KODDAR Í
ÚRVALI
EITT MESTA
ÚRVAL AF
HEILSUDÝNUM
Á LANDINU
ÚRVALAF
VÖNDUÐUM
HEILSURÚMUM
GERIÐ GÆÐA- OG
VERÐSAMANBURÐ
Alþjóðlega heimildarmyndahátíðin IceDocs verður
haldin á Akranesi í fjórða sinn nú í vikunni, hefst mið-
vikudaginn 22. júní og lýkur 26. júní. Líkt og á fyrri há-
tíðum verður boðið upp á úrval heimildarmynda og við-
burða enda markmiðið að koma því besta sem er að
gerast í alþjóðlegri heimildarmyndagerð á framfæri á
Íslandi og tengja saman kvikmyndagerðarfólk víðs-
vegar að úr heiminum, eins og segir á facebook. Frítt er
inn á allar bíósýningar en selt inn á tónleika og aðra
staka viðburði. Allar kvikmyndasýningar fara fram í
Bíóhöllinni og aðrir viðburðir annars staðar í bænum,
m.a. á breiðinni og í Akranesvita.
IceDocs haldin í fjórða sinn
MÁNUDAGUR 20. JÚNÍ 171. DAGUR ÁRSINS 2022
Sími: 569 1100
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is mbl.is: netfrett@mbl.is
Í lausasölu 776 kr.
Áskrift 8.383 kr. Helgaráskrift 5.230 kr.
PDF á mbl.is 7.430 kr. iPad-áskrift 7.430 kr.
Spænska stórveldið Barcelona vann sinn ellefta Evr-
ópumeistaratitil í handbolta, annan í röð, er liðið vann
37:35-sigur á Kielce frá Póllandi í vítakeppni í úrslita-
leik Meistaradeildar Evrópu í Lanxess-Arena í Köln í
Þýskalandi í gærkvöldi.
Haukur Þrastarson var ekki valinn í leikmannahóp
Kielce, þrátt fyrir flotta frammistöðu gegn Veszprém
frá Ungverjalandi í undanúrslitum. Sigvaldi Björn Guð-
jónsson lék ekki með liðinu vegna meiðsla. Þrátt fyrir
það fengu þeir báðir silfurmedalíu í leikslok. »27
Haukur og Sigvaldi fengu silfur
ÍÞRÓTTIR MENNING
Steinþór Guðbjartsson
steinthor@mbl.is
Þríburabræðurnir Guðfinnur Ragn-
ar, Gunnar Már og Þórir Örn Jó-
hannssynir í Bolungarvík luku fyrir
skömmu verklegum hluta sveinsprófs
í rafvirkjun og fá sveinsprófsbréf 1.
júlí, en þeir kláruðu 4. stig í vélstjórn
frá Vélskóla Íslands í fyrravor og raf-
virkjun frá Raftækniskólanum í des-
ember sem leið.
Bræðurnir eru ættaðir af Strönd-
um. Guðrún Guðfinnsdóttir, móðir
þeirra, er úr Árneshreppi, og Jóhann
Gunnarsson, faðir þeirra, frá Drangs-
nesi. Þeir fluttu með foreldrum sínum
og tveimur systkinum frá Hólmavík
til Bolungarvíkur, þar sem þeir luku
10. bekk grunnskólans áður en þeir
fóru í Menntaskólann á Ísafirði.
Stella Guðrún, þroskaþjálfi í grunn-
skólanum í Bolungarvík, er elst
systkinanna, en Sigurjón Snær, sá
yngsti í fjölskyldunni, er stálsmiður
hjá Vélsmiðjunni Ásgarði á Ísafirði.
„Við sáum fljótlega að áhuginn lá í
þessu véladóti,“ segir Guðfinnur um
framvindu náms þríburabræðranna,
en þeir byrjuðu reyndar hver í sínu
faginu.
Gunnar Már setti strax stefnuna á
vélstjórnina og bræður hans stukku
fljótlega um borð. Þeir segja að at-
vinnumöguleikarnir hafi verið af
skornum skammti fyrir vestan en úr
mestu að moða í störfum tengdum
sjávarútvegi. Auðveldara væri að fá
vinnu með auknum réttindum og því
hafi vélstjórnin og svo rafvirkjunin
legið beinast við.
Sameiginlegt áhugamál
„Áhugamálið auðveldaði okkur val-
ið,“ segir Þórir. Að loknu B-stiginu í
vélstjórninni í Menntaskólanum á
Ísafirði hafi þeir Gunnar verið á sjón-
um í tvö ár áður en þeir þrír hafi farið
suður til að klára námið. „Þótt ég hafi
gaman af því að vinna í kringum
bátana hef ég ekki rosalega mikinn
áhuga á því að fara út á sjó og vann
því sem vélvirki í landi á meðan,“ seg-
ir Guðfinnur.
Bræðurnir segja að eftir að hafa
útskrifast úr vélstjórnarnáminu hafi
þeir séð að þeir þyrftu að bæta litlu
við til að fá réttindi í rafvirkjun og því
látið slag standa. „Við þurftum bara
eina önn til viðbótar og það er fínt að
vera búinn með þennan áfanga,“ seg-
ir Þórir. „Það er enda helvíti gaman í
rafvirkjuninni.“
Nánast hvert sem litið er eru
bræðurnir samrýndir og samstiga.
„Við höfum allir áhuga á tækjum og
bílum,“ segir Guðfinnur og bætir við
að þeir Gunnar hafi verið virkir í
björgunarsveitinni undanfarin ár.
„Frítíminn fer mikið í björgunar-
sveitina en annars erum við alltaf að
dunda okkur í einhverju,“ segir
Gunnar. „Ég byrjaði með þeim en
hætti og er aðallega að leika mér í bíl-
um, er svolítið meiri bílakall en þeir,“
segir Þórir. „Við erum mikið saman
og erum samtaka,“ áréttar Gunnar.
Guðfinnur vinnur hjá Orkubúi
Vestfjarða á Ísafirði en bræður hans
hjá Rafverki Alberts Guðmunds-
sonar í Bolungarvík. Þeir eru alsælir í
vinnunni. „Það er fínt hérna,“ segir
Þórir og bræður hans taka undir það.
Gunnar segir að þeir séu farnir að
íhuga að fara í meistaranám, jafnvel
að byrja í því um næstu áramót. „Við
sjáum til hvað gerist.“
Að loknu verklega prófinu Þríburabræðurnir Guðfinnur Ragnar, Þórir Örn og Gunnar Már Jóhannssynir.
Rafmagnaðir þríburar
- Fyrst vélstjórn og tóku svo sveinsprófið saman í rafvirkjun