Morgunblaðið - 19.07.2022, Qupperneq 12

Morgunblaðið - 19.07.2022, Qupperneq 12
12 FRÉTTIR Viðskipti | Atvinnulíf MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 19. JÚLÍ 2022 Flatahrauni 7 | 220 Hafnarfirði | Sími 565 1090 | www.bjb.is Fékk bíllinn ekki skoðun? Aktu áhyggjulaus í burt á nýskoðuðum bíl Sameinuð gæði BJB-Mótorstilling þjónustar flesta þætti endurskoðunar anngjörnu verði og að ki förum við með bílinn n í endurskoðun, þér kostnaðarlausu. á s au þin að « Árshækkun heildarlauna á greidda stund var 7,3% á fyrsta ársfjórðungi 2022 en ársfjórðungsleg hækkun nam 0,6%, að því er fram kemur í tilkynn- ingu á vef Hagstofu Íslands. „Vísitala heildarlauna varpar ljósi á þróun launa þar sem breytingar á sam- setningu vinnuafls og vinnutíma hafa áhrif. Útreikningar byggja á samtölu allra staðgreiðsluskyldra launa á greidda vinnustund,“ sagði þar jafn- framt um launaþróunina. Vísitala heildarlauna upp um 7,3% á ári Garðar Hannes Friðjónsson, for- stjóri Eikar fasteignafélags, segir unnið að áreiðanleikakönnunum vegna hugsan- legra kaupa fé- lagsins á öllu út- gefnu hlutafé í Lambhagavegi 23 ehf. og Laufskál- um fasteigna- félagi ehf., af Klöpp eignar- haldsfélagi ehf. Upplýst var í Kauphöll 16. júní að náðst hefði samkomulag um helstu skilmála kaupsamnings. Á föstudaginn birtist svo tilkynning um viðauka við samkomulagið. Spurður um stöðu málsins segir Garðar kaupin í farvegi. „Það er enn verið að vinna áreiðanleikakannanir í tengslum við þessi kaup, svo og end- anlegan kaupsamning,“ segir hann. Áðurnefnd tvö félög eiga stórar fasteignir en þar fer fram grænmet- isrækt Lambhaga ehf. sem einnig er í eigu seljanda. Samhliða tilboði Eik- ar í fasteignafélögin gerði annar aðili tilboð í allt hlutafé Lambhaga ehf. Félagið Lambhagavegur 23 á tæp- lega 12 þúsund fermetra gróðurhús í Úlfarsárdal í Reykjavík, auk íbúðar- húsnæðis, og Laufskálar fasteigna- félag á lóð og fasteign í Lundi í Mosfellsdal sem er rúmlega 6.800 fermetrar auk 14.300 fermetra byggingarheimildar. Garðar segir aðspurður ekki horft til þess að kaupa húsin með niðurrif og svo uppbyggingu í huga. „Við erum að hugsa um að eiga húsin og skoða áframhaldandi upp- byggingu í Lundi. Samhliða þessum kaupum verður reksturinn seldur en við horfum til langtímaleigusamn- inga,“ segir Garðar. baldura@mbl.is - Forstjóri Eikar segir frekari uppbyggingu í Lundi í skoðun Garðar Hannes Friðjónsson Hyggjast leigja eignirnar Morgunblaðið/Árni Sæberg Lambhagi ehf. Rekstur og fast- eignir félagsins eru í söluferli. Logi Sigurðarson logis@mbl.is Kaup franska fjárfestingarsjóðsins Ardian á Mílu af Símanum eru nú í uppnámi eftir að Samkeppniseftir- litið (SKE) gerði athugasemdir við kaupin. Sjóðurinn telur þær tillögur, sem hann hefur lagt fyrir eftirlitið, íþyngjandi fyrir Mílu. Því vilji hann ekki ljúka viðskiptunum á grundvelli óbreytts kaupsamnings. Orri Hauksson, forstjóri Símans, segir í samtali við Morgunblaðið að hann geri ráð fyrir því að sjóðurinn vilji semja um lægra kaupverð á Mílu. Helsta áhyggjuefni eftirlitsins sé viðskiptasamband Mílu og Símans eftir að viðskiptin gengju í gegn. Viðskiptasamningur liggi fyrir „Okkar ábendingar eru þær að við teljum að það hafi fjölþætt jákvæð áhrif að Síminn selji Mílu. Sam- keppniseftirlitið er sjálft búið að mæla með því að Síminn og Míla verði ekki lengur í sama eignarhaldi og það er verið að reyna að koma því í kring. Að sjálfsögðu þarf að vera við- skiptasamningur , en það er miklu lausbeislaðra samband en eignar- samband, sem er staðan í dag,“ segir Orri. Ef kaupin gangi í gegn komi sterkur aðili inn á íslenskan fjar- skiptamarkað sem ætli að fjárfesta mikið í bættum innviðum. Lífeyris- sjóðirnir séu helstu eigendur fjar- skiptafyrirtækja á Íslandi og því myndi salan draga úr eignarhaldi þeirra á fjarskiptamarkaði, sem SKE hafi mælt með. Aðspurður segir Orri það hafa komið sér á óvart hvað SKE hafi séð marga neikvæða fleti á þessari sölu. „Míla er ekki seljanleg eign ef henni fylgja ekki viðskipti við stærsta kúnnann, að minnsta kosti þann sem er með mestu viðskiptin við félagið í dag. Það getur vel verið að aðrir við- skiptavinir Mílu muni stækka um- fram Símann í framtíðinni, sérstak- lega þegar Míla er farin úr eignar- haldi Símans. Þá hafa keppinautar Símans meiri áhuga á því að versla við Mílu. Við teljum klárlega út frá samkeppnisvinklinum að þá sé þetta mjög jákvætt skref,“ segir Orri. Heiðar Guðjónsson, forstjóri Sýn- ar, segir eignarhald Símans á Mílu hafa verulega slæm áhrif á fjar- skiptamarkaðinn, hindri uppbygg- ingu og bitni á neytendum. „Samkeppniseftirlitið hefur haft orð á því lengi að Síminn þurfi að selja Mílu. Ég vona svo sannarlega að það sé hægt að komast að samkomu- lagi milli Ardians, Símans og Sam- keppniseftirlitsins svo að þessi sala fari fram, það er best fyrir Ísland,“ segir Heiðar. Aðspurður segir Heið- ar það ekki rökrétt hjá SKE að halda að viðskiptasamband Símans og Mílu verði of sterkt eftir söluna, sérstak- lega miðað við stöðuna í dag. Stjórnkerfið of svifaseint Kaupsamningur Ardians og Sím- ans var undirritaður í október í fyrra og hljóðaði upp á 519 milljónir evra, rúma 78 milljarða króna á þáverandi gengi. SKE hóf að skoða söluna í febrúar og skilaði andmælaskjali nú í júlí. Heiðar segir það einsdæmi í Evrópu hve langan tíma það taki fyr- ir eftirlitsstofnanir að vinna jafn mikilvæg mál og hér sé um að ræða. „Íslenska stjórnkerfið tekur sér allt of langan tíma. Það virðist ekki átta sig á því að Ísland er í samkeppni um fjármagn við önnur lönd. Þegar við erum með viðskipti sem sannar- lega gagnast landinu og almenningi mjög mikið, finnst mér ekki sann- gjarnt að taka sér svona langan tíma,“ segir Heiðar og tekur dæmi af því að þegar Sýn seldi „stál og steypu“ til bandarísks fjárfestinga- sjóðs í fyrra hafi allir frestir verið gjörnýttir. Ferlið hafi tekið þrefalt lengri tíma en gengur og gerist í öðr- um Evrópulöndum. Tjáir sig ekki um einstök mál Lilja Alfreðsdóttir viðskiptaráð- herra segir í skriflegu svari ekki við- eigandi að tjá sig um einstök mál á borði SKE. Hún sé þó hlynnt erlendri fjárfestingu hérlendis, bæði í þjón- ustu- og framleiðslu. Þó þurfi að fara varlega í erlenda fjárfestingu í inn- viðum og auðlindum með tilliti til ör- yggis- og varnarsjónarmiða. Keppinautarnir sammála um söluna - Forstjóri Símans telur Ardian vilja semja um lægra kaupverð - Forstjóri Sýnar segir seinagang SKE einsdæmi í Evrópu - Salan góð fyrir samkeppni á markaði - SKE áður mælt með sölu á Mílu Morgunblaðið/Eggert Viðskipti Síminn og Ardian undirrituðu kaupsamning í október í fyrra. Orri Hauksson Heiðar Guðjónsson Andrés Magnússon, framkvæmda- stjóri Samtaka verslunar og þjón- ustu, telur áhyggjur af verðbólgu farnar að hafa áhrif á væntingar almennings í efnahagsmálum. Væntingavísitala Gallup var 93,6 stig í júní, en var 93,3 stig í maí síðastliðnum, og hefur hún ekki verið jafn lág síðan í árslok 2020. Versnandi verðlagshorfur Andrés bendir á nýja verðbólgu- spá Landsbankans en samkvæmt henni verður 9,2% verðbólga í júlí og 9,5% verðbólga í ágúst. Það er mikil hækkun milli ára en 4,3% verðbólga var í júlí og ágúst í fyrra (sjá graf). „Verðlagshorfur verða sífellt svartari. Verðbólguspá Landsbank- ans fyrir júlí og ágúst er sú hæsta sem hefur birst. Drífa Snædal, for- seti ASÍ, hefur réttilega bent á vægi innfluttrar verðbólgu í þessu efni. Þá er aðfangakeðjan enn að hiksta hvert sem litið er og það heldur áfram að hafa áhrif á framboð vöru og þar með verðlag. Það er segin saga að svona svartsýnisspár hafa bein áhrif á væntingar fólks. Það er ekkert sem bendir til að staðan í heimshagkerfinu muni fara batnandi. Fyrir mánuði sótti ég aðal- fund Evrópusamtaka verslunar- innar (EuroCommerce) og á þeim tuttugu árum síðan ég hóf að sækja þá fundi hef ég ekki upplifað jafn mikla svartsýni í smásölu- og heild- sölugeiranum í Evrópu. Við áður- nefnda þætti bætist orkukreppan í Evrópu,“ segir Andrés. Hefur verið mæld frá 2001 Gallup hefur frá mars 2001 mælt væntingavísitöluna mánaðarlega. Einstaklingar 18 ára og eldri eru spurðir fimm spurninga: Annars vegar um mat á núverandi efnahags- aðstæðum og hins vegar um vænt- ingar til efnahagslífsins. Ef vísitalan er yfir 100 stigum eru fleiri jákvæðir en neikvæðir um horfurnar. baldura@mbl.is Verðbólgan dregur úr bjartsýni - Framkvæmda- stjóri SVÞ bendir á verðhækkanir 10% 8% 6% 4% 2% 0% 150 125 100 75 2021 20212022 2022 Verðbólga frá janúar 2021 og spá fyrir júlí og ágúst 2022 Væntingavísitala Gallup* frá janúar 2021 til júní 2022 Þróun verðbólgu og væntingavísitala 4,3% 94,4 140,8 93,6 9,5% júní 2022 8,8% Rauntölur (Hagstofan) Spá Landsbankans fyrir júlí og ágúst 2022 *Vísitala yfir 100 merkir að fleiri eru jákvæðir en neikvæðir um efnahags- horfurnar 19. júlí 2022 Gengi Kaup Sala Mið Dollari 138.09 Sterlingspund 163.43 Kanadadalur 105.65 Dönsk króna 18.662 Norsk króna 13.517 Sænsk króna 13.111 Svissn. franki 141.03 Japanskt jen 0.9958 SDR 180.85 Evra 138.9 Meðalgengi/Viðskiptavog þröng 171.6762

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.