Morgunblaðið - 19.07.2022, Síða 28

Morgunblaðið - 19.07.2022, Síða 28
28 MENNING MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 19. JÚLÍ 2022 2013 2018 Reki ehf • Skemmuvegur 46 • 200 Kópavogur • Sími 562 2950 www.reki.is Við sérhæfum okkur í síum í allar gerðir véla Eigum til flest allar gerðir af síum á lager Áratuga reynsla í þjónustu við íslenskan iðnað DAGMÁL Ragnheiður Birgisdóttir ragnheidurb@mbl.is Í von um að stuðla að auknum lestri almennings hefur fólkið sem stend- ur á bak við vefsíðuna Lestrarklef- inn.is lagt hart að sér til þess að halda uppi lifandi bókmenntavef, þar sem fjallað er um bókmenntir af öllu tagi, allt frá spennusögum og skvísubókum yfir í ljóð og fagurbók- menntir. Ritstjórar Lestrarklefans, Katrín Lilja Jónsdóttir og Rebekka Sif Stefánsdóttir, voru gestir í nýjasta þætti Dagmála. Þar sögðu þær frá markmiðum sínum með rekstri vef- síðunnar, áhuga sínum á lestri og viðhorfi sínu til bókaumfjöllunar hér á landi. „Svo vatt þetta upp á sig“ Katrín Lilja stofnaði Lestrarklef- ann í janúar 2018. „Upprunalega hugmyndin var að mig langaði að hafa einhvern tilgang með mínum lestri, mig langaði að auka lestur. Þannig að ég stofna síðu þar sem ég fer að skrifa um bækur og svo vatt þetta eiginlega bara svolítið upp á sig. Fólk vildi vera með. Og ég fann fljótt að það var svolítil þörf fyrir eitthvað svona þannig að ég ákvað að stækka þetta.“ Nú eru pennarnir orðnir þrettán og er þeim nokkuð frjálst að skrifa um sín hugðarefni tengd bókum þótt fundað sé mánaðarlega og viss stefna mótuð. Sumir þeirra hafa myndað sér ákveðin sérsvið á borð við ljóðabækur, spennusögur eða barnabækur og þannig tekst þeim að sinna vel hinum ýmsu bók- menntagreinum. „Þetta er samfélag. Við hittumst og tölum um bækur. Það verða tengingar og það verður innblástur til,“ segir Rebekka. Pennar Lestrarklefans eru dug- legir að sinna þeim bókmenntateg- undum sem stundum eru taldar „ófínni“, svo sem afþreyingarbók- menntum á borð við skvísusögur. „Þetta heitir Lestrarklefinn. Við viljum stuðla að auknum lestri. Við viljum að fólk lesi af því að það gefur manni svo mikið, alla vega mér,“ segir Katrín. „Fólk er ekkert endilega að sækja í að lesa einhverjar þungar bók- menntir, ekki hinn almenni Jón og Gunna. Við erum það náttúrlega mörg, bara svona venjulegt fólk. Þá þarf auðvitað að fjalla um þessar bækur sem fólk er að lesa og er að tala um.“ Hún nefnir sem dæmi að svokall- aðar skvísubókmenntir njóti mikilla vinsælda meðal almennings um þessar mundir og mikið sé gefið út af þeim. Rebekka tekur undir: „Það er stór sveifla í þeim einmitt og það er svo gaman að við getum verið með umfjöllun um þær og hjálpað fólki við að velja.“ Afþreyingarbókmenntir af þessu tagi hafa svolítið átt undir högg að sækja og segir Rebekka að gott sé að upphefja þetta bókmenntaform. Finna fyrir þakklæti Þær nefna að þær hafi tekið eftir því hvað höfundar og forlögin séu þakklát fyrir umfjöllunina, þá sér- staklega þeir höfundar sem skrifa innan bókmenntagreina sem iðulega fá lítið pláss í fjölmiðlunum. Þær hafi fljótt fundið fyrir því að þörf var fyrir vefsíðu eins og Lestrarklefann þar sem bókaumfjöllun er aðeins að finna í örfáum fjölmiðlum hér á landi. „Í fullkomnum heimi myndi fólk vera í fullu starfi við að gera þetta,“ segir Rebekka og Katrín bætir við: „Í fullkomnum heimi myndum við fá greitt fyrir vinnuna okkar.“ Lestrarklefinn er rekinn í sjálf- boðavinnu þeirra sem að honum standa en Katrín bendir á að hægt sé að styðja við starfið bæði með frjálsum framlögum og með því að kaupa auglýsingar á vef þeirra. Þær tækju glaðar við styrkjum til þess að geta haldið viðburði, hafið hlað- varpsgerð á ný eða þá greitt sér örfáar krónur fyrir störfin. „Það er ekki skortur á hug- myndum. Við erum með svo mikið af flottu og hæfileikaríku fólki sem er með endalaust af hugmyndum. Þannig að í rauninni vantar bara smá fjármagn og tíma.“ Morgunblaðið/Ágúst Óliver Lestrarklefinn Rebekka Sif og Katrín Lilja ræddu um störf sín í þágu bókmenntaumræðu hér á landi. Bókaunnendur hvetja til lestrar - Hjá Lestrarklefanum má finna metnaðarfulla umfjöllun um alls konar bókmenntir - Katrín Lilja Jónsdóttir og Rebekka Sif Stefánsdóttir halda vefsíðunni uppi ásamt góðum hópi bókaunnenda Ljósmynd sem lögreglan tók af David Bowie þegar hann var handtekinn í New York 1976 var á föstu- dag seld á uppboði hjá Ewbank’s fyrir 3.800 pund sem jafngildir um 620 þúsundum ísl. kr. Þetta kemur fram á vef Ewbank’s en fyrirfram var búist við því að í mesta lagi 1.500 pund fengjust fyrir myndina. Samkvæmt frétt Rolling Stone var Bowie, ásamt Iggy Pop, handtekinn eftir tónleika í Rochester í mars 1976 og sakaður um vörslu fíkniefna, en um 230 grömm af kannabis fundist í húsnæðinu þar sem þeir héldu tónleikana. Bowie neitaði sök og var sleppt lausum gegn 2.000 dala tryggingu. Á vef Ewbank’s kemur fram að seljandi ljós- myndarinnar hafi átt hana í 46 ár. Þar segir að eiginmaður frænku hans hafi verið lögregluþjónn- inn sem tók myndina. Lögregluþjónninn hafi gefið seljandanum myndina í brúðkaupsgjöf þar sem hann vissi hversu eldheitur aðdáandi Bowie hann væri. Ljósmynd lögreglunnar seld á uppboði Ljósmynd/ewbankauctions.co.uk Handtekinn David Bowie í haldi lögreglu í árið 1976. Írski rithöfundurinn Claire Keegan hlaut Orwell-verðlaunin, sem veitt eru fyrir pólitísk verk, fyrir skáld- verkið Small Things Like These. Sally Hayden hlaut hin sömu verð- laun í flokki fræðirita fyrir verkið My Fourth Time, We Drowned: Seeking Refuge on the World’s Deadliest Migration Route. Skáldsaga Keegan gerist á Írlandi á 9. áratug síðustu aldar og segir frá kola- og timbursölumanni sem stendur frammi fyrir siðferðis- legu vandamáli. Ákvörðun hans varpar ljósi á spurningar samtím- ans um félagsþjónustu, líf kvenna og siðalögmál samfélagsins. Verk Hayden fjallar aftur á móti um flóttamannastrauminn frá Norður-Afríku til Evrópu frá hin- um ýmsu sjónarhornum. Með verk- inu veitir hún flóttamönnum í ólík- um aðstæðum tækifæri til þess að segja sögur sínar. Jean Seaton, framkvæmdastjóri Orwell-sjóðsins, sagði bækurnar tvær gera lesendum kleift að velta því fyrir sér hvernig gera megi framtíðina betri. Claire Keegan hlaut Orwell-verðlaunin Rithöfundur Claire Keegan er annar handhafa Orwell-verðlaunanna í ár. Nýrri þýðingu Philips Roughton á skáldsögu Halldórs Laxness Sölku Völku verður fagnað með umræðu- viðburði sem fram fer á netinu í kvöld. Þar mun þýðandinn sjálfur, Phil- ip Roughton, ræða við rithöfundinn Will Chancellor, sem skrifaði A Brave Man Seven Storeys Tall, og Ezra Goldstein, einn eigenda bóka- búðarinnar Community Bookstore sem einmitt stendur fyrir viðburð- inum. Samtal þeirra verður aðgengi- legt á Zoom og hefst það klukkan 17 að staðartíma en kl. 21 að íslenskum tíma. Þessi nýja enska þýðing Rough- tons hefur gert það að verkum að fjölmiðlar vestanhafs hafa í kjölfar útgáfunnar kallað Sölku Völku „enduruppgötvað meistaraverk“. Pulitzer-verðlaunahafinn Jane Smiley skrifaði um verkið fyrir The Washington Post og sagðist sjaldan hafa lesið jafn skilningsríkt verk um kvenpersónu skrifað af karli. Þá skrifaði bandaríski rithöfund- urinn Salvatore Scibona langa grein um Laxness sem birt var í The New Yorker nýverið. Þar rek- ur hann sögu Laxness og kynni Bandaríkjamanna af honum og endar svo á því að segja frá Sölku Völku. Auk þess að hafa þýtt verk Hall- dórs Laxness hefur Philip Rough- ton, sem búsettur er hérlendis, þýtt verk Jóns Kalmans Stefánssonar, Steinunnar Sigurðardóttur og Kristínar Marju Baldursdóttur. Skráning á hinn rafræna viðburð fer fram á vef bókabúðarinnar: communitybookstore.net/salka- valka. ragnheidurb@mbl.is Morgunblaðið/Ólafur K. Magnússon Endurfundir Ný ensk þýðing á Sölku Völku vekur athygli. Enduruppgötvun Laxness - Philip Roughton ræðir nýja þýðingu sína á Sölku Völku

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.