Morgunblaðið - 19.07.2022, Blaðsíða 19
sem lifir í hjörtum okkar.
Hvíl í friði elsku fallega systir
mín, þín verður sárt saknað, við
elskum þig. Ég veit og trúi að
mamma, pabbi, Dabbi bróðir og
Rakel frænka munu taka á móti
þér og vernda.
Þín litla systir,
Nína og fjölskylda.
Elskuleg vinkona mín er fallin
frá og það er sárt að á sjá eftir
þessari glæsilegu vinkonu sem
hún var.
Elsku Magga mín, brottför
þína bar brátt að og sorgin því
sárari og skarðið mun stærra. Ég
hefði viljað fá fleiri stundir með
þér, elsku vinkona, og spjalla um
lífið og tilveruna eins og við vorum
vanar að gera.
Mikið sem við áttum margar
góðar stundir saman í gegnum ár-
in og þau eru nú ekki fá. Í þau 57
ár sem við höfum þekkst höfum
við brallað ýmislegt, unnið saman,
ferðast og verið saman í sauma-
klúbbi öll þessi ár. þú varst ein-
stök vinkona og mikil forréttindi
að hafa kynnst þér, mikill gleði-
gjafi, alltaf stutt í húmorinn ein-
staklega trygg og traust og mikil
fjölskyldukona, ljómaðir alltaf
þegar fjölskyldan þín barst í tal.
Elsku Magga mín, ég á ótelj-
andi minningar með þér sem ég
mun varðveita í hjarta mínu.
Elsku Þorgeir og fjölskylda, ég
sendi ykkur innilega samúðar-
kveðju og bið góðan guð að
styrkja ykkur í þessari miklu
sorg.
Útgeislun þín er eins og
geislar sólarinnar.
Hún lýsir upp
eins og stjarna á himninum,
þar sem Guð annast þig.
Í dag brestur strengur
í brjóstum okkar
því þú ert ekki
lengur hjá okkur.
En minning þín
lifir í hjörtum okkar
og í hugsunum okkar
um aldir alda.
(Þýð.: Guðmunda Arnardóttir)
Ég þakka allt frá okkar fyrstu kynnum,
það yrði margt, ef telja skyldi það.
Í lífsins bók það lifir samt í minnum,
Er letrað skýrt á eitthvert hennar blað.
Ég fann í þínu heita, stóra hjarta,
Þá helgu tryggð og vináttunnar ljós,
er gerir jafnvel dimma daga bjarta,
úr dufti lætur spretta lífsins rós.
(MJ)
Þín vinkona,
Helga Halldórsdóttir
Elsku besta Magga mín. Hvað
á ég nú að gera þegar þú ert farin í
sumarlandið og með svona litlum
fyrirvara? Við vorum vanar að
hringja hvor í aðra á hverjum degi
í yfir 50 ár og nú hringir engin. Við
áttum margar skemmtilegar
stundir saman. Í den þegar við
vorum ungar og þú varst með gít-
arinn þá sungum við af hjartans
lyst. Þegar kom pása fengum við
okkur stundum smávindla og okk-
ur fannst við vera óskaplega töff
píur. Við fjögur, ég, Kiddi bróðir
þinn, þú og Þorgeir, brölluðum
ýmislegt saman en Þýskalands-
ferðin fræga stendur nú upp úr.
Við hlógum einhver ósköp og
skemmtum okkur vel. En engill-
inn minn, maður veit aldrei hvað
langan tíma maður fær sem betur
fer. Svo það á að njóta augnabliks-
ins eins og hún mamma þín
kenndi mér. Ég get ekki enn trúað
því að þú sért farin, þú varst límið
í fjölskyldunni en núna verða
stelpurnar þínar að taka við.
Takk fyrir allt og allt, elsku
Magga mín, og ég veit að það
verður tekið vel á móti þér í sum-
arlandinu.
Elsku Ragnhildur, Bára, Halla
og Þorgeir, innilegar samúðar-
kveðjur til ykkar allra og allrar
fjölskyldunnar og ég veita að þið
haldið vel hvert utan um annað.
Kveðja frá öllum mínum, þín
vinkona,
Helga Jörunds.
MINNINGAR 19
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 19. JÚLÍ 2022
✝
Arnlaugur
Kristján Sam-
úelsson fæddist 12.
desember 1957 á
fæðingardeild
Landspítalans í
Reykjavík. Hann
lést á gjörgæslu
Landspítalans við
Hringbraut 10. júlí
2022.
Arnlaugur var
sonur hjónanna
Samúels Þóris Haraldssonar, f.
12. apríl 1932, d. 6. apríl 1969 og
Kristínar Sigríðar Guðjóns-
dóttur, f. 25. september 1930, d.
18. október 2021.
Systkini Arnlaugs voru: Har-
aldur, f. 24. desember 1950;
óskírður drengur, f. og d. 22.
desember 1951; Guðrún Ólafía, f.
26. ágúst 1953; Borgný, f. 20.
desember 1954; Kristín Björk, f.
26. febrúar 1955; Drengur Helgi,
f. 21.febrúar 1960, d. 3. júní 2019;
Samúel Kristinn, f. 28. júlí 1961,
d. 9. mars 1963;
Gísli Sigurjón, f. 22.
október 1962; Jón-
ína Ingibjörg, f. 14.
apríl 1964; Kristján
Gaukur, f. 20. nóv-
ember 1965; Jón
Finnur, f. 10. júní
1973, d. 10. júlí
1991.
Eftirlifandi eig-
inkona Arnlaugs er
Þuríður Jana
Ágústsdóttir, f. 15. mars 1958.
Börn þeirra eru: 1) Ágúst Krist-
inn, f. 10. október 1975. Kona
hans er Harpa Björgvinsdóttir, f.
21. júlí 1975. Barn þeirra er Al-
mar Óli. 2) Samúel Henrik, f. 19.
desember 1976, d. 28. nóvember
1978. 3) Kristín Sigríður, f. 11.
apríl 1979. Börn hennar eru Arn-
laugur Samúel Arnþórsson og
Jana Kristín Leifsdóttir Dam.
Útför Arnlaugs fer fram frá
Fossvogskirkju í Reykjavík í
dag, 19. júlí 2022, kl. 11.
Elsku pabbi minn, mikið
óskaplega sakna ég þín mikið en
á sama tíma er ég óendanlega
þakklátur fyrir að þú hafir verið
pabbi minn með öllum kostum
og göllum. Ég sé eftir því núna
þegar það er orðið of seint að
hafa ekki sagt þér hversu stolt-
ur ég var af þér og hversu mikið
þú kenndir mér, ekki endilega
og eiginlega síður með orðum,
heldur með fordæmi.
Ég er stoltur af þér og
mömmu fyrir að hafa 17 ára,
þegar ég kem í heiminn, alltaf
sett fjölskylduna í fyrsta sæti og
gert það sem þurfti til að við
hefðum allt sem við þurftum,
vinnandi oft myrkranna á milli
til að fjölskyldan gæti komið sér
upp heimili í eigin húsnæði og
aldrei liðið skort.
Ég er stoltur af þér fyrir að
hafa alltaf verið til staðar fyrir
þá sem stóðu þér næst. Hvernig
þú hugsaðir um ömmu í mörg ár
allt þar til hún fór er einstakt.
Þú varst alltaf mættur fyrstur
til að hjálpa við hvaðeina er ég
var að gera eða datt í hug. Þú
framkvæmdir hluti, talaðir ekki
bara. Þegar ég og Harpa eign-
uðumst Almar hafði samband
okkar ekki verið gott og ekki
mikil samskipti í einhvern tíma.
Það breytti þó engu þegar ég
keypti litla blokkaríbúð sem við
nýja fjölskyldan ætluðum að
flytja í, þú mættir á hverjum
einasta degi eftir vinnu í mánuð
og um helgar og aðstoðaðir við
að standsetja, allt hreinsað út,
veggir heilsparslaðir og ekkert
var of mikið mál. Fjölskyldan í
fyrsta sæti og aldrei aftur urðu
samskipti okkar slæm þó að við
höfum ekki alltaf verið sammála.
Ég er stoltur af þér fyrir að
hafa geta gert málamiðlanir
þrátt fyrir að vera með mjög
sterkar skoðanir á öllum hlut-
um. Það var ekki þitt val að
byggja sumarbústað en þegar
málamiðlun hafði verið gerð
gafstu þig allan í verkefnið allt
þar til þú fórst og áttuð þið
mamma margar ykkar bestu
stundir þar. Einnig hefur ekki
verið auðvelt að hafa afa búandi
hjá okkur stóran hluta af minni
æsku, en fjölskyldan var númer
eitt.
Ég er stoltur af þér fyrir að
hafa alltaf haldið áfram og aldr-
ei gefist upp þrátt fyrir að vera
mjög oft mikið verkjaður. Það
hefði verið auðvelt að gefast upp
en þú sýndir í verki að eina leið-
in er áfram. Eftir hjartabilunina
hættirðu ekki að hafa mörg járn
í eldinum þó líkaminn fylgdi
ekki alveg eftir. Þú fórst upp í
sumarbústað, gast unnið í 20
mínútur og hvíldir í nokkra tíma
á eftir og þannig gekk dagurinn,
gerðir það sem þurfti og gafst
aldrei upp.
Ég á svo margar góðar minn-
ingar úr öllum ferðalögunum
sem við fórum í, bæði brot sem
ég man úr æsku og allar utan-
landsferðirnar undanfarin ár.
Þú talaðir hátt, reifst kjaft við
allt og alla og hafðir skoðanir og
hafðir gaman af rökræðum, það
var hægt að treysta því að þú
myndir alltaf velta upp öllum
hliðum þegar við ræddum ýmis
mál og varst helst ósammála
bara rökræðanna vegna þó þú
værir sammála. Það voru ekki
allir sem fengu að kynnast því
hversu tilfinningaríkur þú varst,
fólk sá þá hlið ekki oft en við
fjölskyldan gerðum það og viss-
um hvað var á bakvið lætin.
Takk fyrir allt elsku pabbi
minn.
Ágúst Kristinn
Arnlaugsson.
Elsku besti tengdafaðir og
afi.
Skrefin hafa verið þung un-
dafarna daga og erfitt að átta
sig á því að klettur fjölskyld-
unnar sé nú farinn í önnur verk-
efni, en minningarnar lifa áfram
í hjörtum okkar. Mér er sér-
staklega minnisstætt þegar ég
og Gústi giftum okkur og ætl-
uðum að fara bara tvö til prests-
ins, buðum engum en Addi lét
ekki segja sér það heldur mætti
bara óboðinn heim til okkar í
jakkafötunum með blóm og
sagðist vera á leið í brúðkaup
hjá syni sínum. Þetta lýsti hon-
um vel, hann var mikill fjöl-
skyldumaður og alltaf hægt að
leita til hans.
Addi var alveg einstaklega
vandvirkur og ber sumarbústað-
ur þeirra hjóna vel þess merki.
Hjálpsamur var hann með
eindæmum og var hann alltaf
tilbúinn að koma og hjálpa okk-
ur við hvaða vitleysu sem okkur
hjónum datt í hug. Dettur mér
til dæmis í hug þegar við
ákváðum að flísaleggja eldhúsið
og við vorum ekki viss hvernig
átti að bera sig að, þá mætti
hann með verkfærin sín og var
hjá okkur næstu daga og nætur
og kláraði verkið.
Allar utanlandsferðirnar sem
voru farnar eru dýrmætar í
minningabankann og þá helst
ferð sem farin var til Lundúna
árið 2019, þar var mikið skoðað,
brasað og hlegið.
Þegar fjölskyldan kom sam-
an, hvort sem var í útlöndum
eða hér heima, hafði Addi ein-
staklega gaman af því að elda
góðan mat eða fara á fín steik-
hús og eiga þeir feðgar það sam-
eiginlegt.
Í síðasta skipti sem ég hitti
Adda var daginn eftir útskrift-
ina mína, kom hann þá færandi
hendi með blómvönd og gjöf og
fengum við mæðgin þá risaf-
aðmlag og vel valin orð sem er
gott að hugsa til núna á þessum
erfiðu tímum. Með í för var
hundurinn hans, hann Atlas, og
var Addi búin að vera inni hjá
okkur í dáðgóða stund þegar að
hann áttaði sig á því að hann
hafði hleypt Atlas út úr bílnum
en gleymt að taka hann með inn,
hófst þá smá eltingaleikur sem
endaði vel. Við hlógum mikið
þegar að inn var komið.
Ein af minningum Almars af
afa sínum eru utanlandsferðirn-
ar með honum og er það honum
ógleymanlegt þegar að við kon-
urnar í fjölskyldunni fórum í
búðir því þá fékk hann gæða-
stundir með afa sínum og bröll-
uðu þeir ýmislegt saman. Í
þremur orðum lýsir Almar afa
sínum sem skemmtilegum,
traustum og mjög fyndnum.
Við vonum innilega að þér líði
betur líkamlega í nýju heim-
kynnum þínum umvafinn þínu
besta fólki.
Þín verður sárt saknað en
minningin um yndislegan
tengdafaðir og afa mun lifa
áfram í hjörtum okkar. Takk
fyrir allt.
Harpa og Almar Óli.
Afi.
Síðan að ég var lítil hefur þú
alltaf verið til staðar fyrir mig.
Þú passaðir alltaf upp á mig og
lést mig vita hversu miklu máli
ég skipti. Þú varst besti vinur
minn. Þú lést mig brosa og
hlæja á hverjum einasta degi og
bara að horfa á þig brosa gerði
daginn minn tíu sinnum betri.
Þú varst ein af góðhjörtuðustu
manneskjum sem ég hef þekkt.
Þú vildir öllum vel og sagðir
mér alltaf að vera tillitssöm og
kurteis við aðra.
Þegar ég náði ekki að sofa á
nóttunni vissi ég að ég gæti
komið til þín og talað við þig af
því þú sast alltaf frammi að
horfa á sjónvarpið eða varst að
búa til eitthvað til að borða. Þú
og amma eruð ástæðan fyrir því
að ég er sú manneskja sem ég
er í dag. Þú varst besti afi sem
ég gæti fengið. Þú gafst aldrei
upp á mér þegar aðrir gerðu
það og þú lést mig sjá lífið frá
allt öðru sjónarhorni. Þú varst
skynsamur og hugsaðir alltaf
um alla aðra í kringum þig. Að
geta ekki labbað fram um miðja
nótt og sjá þig sitjandi frammi í
stofu brýtur hjartað. Bestu sam-
ræðurnar okkar og minningar
voru gerðar á þeim tímum sem
við spjölluðum endalaust á nótt-
unni og þú gafst mér þín bestu
ráð. Við vorum svo lík á svo
margan hátt. Alltaf ef ég var úti
um miðja nótt beiðstu eftir mér,
þótt þú værir með mikla verki
eða þreyttur, bara til þess að
passa upp á að ég kæmi heim
örugg og í lagi. Ég leit á þig
sem pabba minn og þú komst
fram við mig eins og ég væri
dóttir þín. Þú skutlaðir mér og
sóttir mig hvar sem ég var eða
hvert sem ég var að fara. Í
hvert skipti sem ég sá þig kvelj-
ast fann ég til með þér og óskaði
að ég gæti tekið þetta allt frá
þér. Þú varst einn sterkasti og
duglegasti maður sem ég hef
þekkt. Ég vona að þér líði betur
núna. Ég vona að þú sért komin
til foreldra þinna, systkina og
sonar og líðir vel. Það er mjög
tómt án þín og að geta ekki
knúsað þig eða spurt þig um
eitthvað brýtur mig. Þú varst
kletturinn minn og þótt þú sért
ekki lengur heyri ég þig alltaf í
hausnum mínum tala við mig
eða segja mér eitthvað. Ég mun
sakna þín á hverjum einasta
degi. Ég mun passa upp á það
að þótt að þú sért ekki með mér
lengur mun ég halda áfram að
gera þig stoltan.
Þín,
Jana Kristín.
Arnlaugur
Kristján
Samúelsson
Okkar ástkæra og hjartahlýja dóttir og
systir,
SÓLRÚN LÁRA SVERRISDÓTTIR,
Kirkjubæjarklaustri II,
lést af slysförum föstudaginn 8. júlí.
Hún verður jarðsungin frá Prestsbakkakirkju
á Síðu laugardaginn 23. júlí klukkan 13.
Fanney Ólöf Lárusdóttir Sverrir Gíslason
Sigurður Gísli Sverrisson
Ásgeir Örn Sverrisson
Ástkær móðir, tengdamamma, amma
og langamma,
GUÐBJÖRG ÞÓRISDÓTTIR,
Bakkabakka 6b,
Neskaupstað,
lést á Fjórðungssjúkrahúsinu í Neskaupstað
þriðjudaginn 12. júlí. Útför hennar fer fram
frá Norðfjarðarkirkju fimmtudaginn 21. júlí klukkan 14.
Aðstandendur þakka starfsfólki Fjórðungssjúkrahússins fyrir
alúðlega umönnun.
Streymt verður frá athöfninni á Facebooksíðu Norðfjarðarkirkju.
Einnig má nálgast hlekk á streymi á mbl.is/andlat
Blóm og kransar vinsamlegast afþakkaðir en þeim sem vilja
minnast hennar er bent á
Hollvinasamtök Fjórðungssjúkrahússins í Neskaupstað.
Kristinn Hjartarson Klara Jónasdóttir
Arndís Hjartardóttir Vilhjálmur Skúlason
Sigþór Hjartarson Heiðlóa Ásvaldsdóttir
ömmu- og langömmubörn
Ástkær dóttir mín, eiginkona, mamma,
systir, tengdamamma, amma og
langamma,
ESTER GUÐLAUGSDÓTTIR,
Vesturbergi 96, Reykjavík,
lést föstudaginn 15. júlí á Landspítalanum
við Hringbraut.
Útförin fer fram frá Lindakirkju mánudaginn 25. júlí klukkan 13.
Ingibjörg Helgadóttir
Sæmundur K. Jóhannesson
Á. Hulda Sæmundardóttir Hólmgeir Eyfjörð
Nína Björg Sæmundsdóttir Bergþór Pálsson
Jóel Ingi Sæmundsson
barnabörn, barnabarnabörn og aðrir aðstandendur
Móðir okkar, amma og langamma,
BRYNDÍS JÓNASDÓTTIR
hjúkrunarfræðingur,
áður Asparfelli 6, Reykjavík,
lést 13. júlí á dvalarheimilinu Eir.
Útförin fer fram frá Dómkirkjunni
miðvikudaginn 20. júlí klukkan 15.
Streymt verður frá útförinni á hlekknum
https://youtu.be/xKN-6jVv_Wc
Einnig má nálgast hlekk á streymi á mbl.is/andlat
Mínerva Margrét Haraldsdóttir
Guðríður Haraldsdóttir
Svanhildur Sif Haraldsdóttir
Guðmundur Jónas Haraldsson
barnabörn og barnabarnabörn
Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, afi
og langafi,
JÓN ÞÓRÐARSON
bifreiðarstjóri,
Borgarnesi,
lést á hjúkrunar- og dvalarheimilinu
Brákarhlíð miðvikudaginn 13. júlí.
Útför hans fer fram frá Borgarneskirkju
þriðjudaginn 26. júlí klukkan 14.
Blóm og kransar vinsamlega afþakkaðir en þeim sem vildu
minnast hans er bent á minningarsjóð Brákarhlíðar.
Þórður Helgi Jónsson Sigríður Gígí Jónsdóttir
Gunnar Jónsson Helga Halldórsdóttir
Garðar Jónsson Lára Hagalín Björgvinsdóttir
Sesselja Jónsdóttir Árni Guðjón Hilmarsson
Finnbogi Jónsson Kristín Ósk Halldórsdóttir
barnabörn og barnabarnabörn