Morgunblaðið - 19.07.2022, Side 20

Morgunblaðið - 19.07.2022, Side 20
20 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 19. JÚLÍ 2022 ✝ Sigurður Hólm Guðmundsson fæddist á Vopna- firði 28. júní 1932. Hann lést í faðmi fjölskyldunnar á Landspítalanum við Hringbraut 4. júlí 2022. Foreldrar hans voru Guðmundur Skagfjörð Guð- mundsson, f. 5. október 1879, d. 15. apríl 1954, og Helga Gísladóttir, f. 24. apríl 1875, d. 24. apríl 1950. Eiginkona Sigurðar var Sól- veig María Björnsdóttir, f. 15. október 1922, d. 26. apríl 2014, frá Kirkjubæ í Hróarstungu. Foreldrar hennar voru Björn Sigurðsson, f. 10. júlí 1875, d. 24. maí 1950 og Sigurrós Eyj- ólfsdóttir, f. 21. ágúst 1882, d. 6. febrúar 1951. Þau gengu í hjónaband 10. september 1960 og eignuðust fjögur börn, þar af eru þrjú á lífi. gamall og var á höfum úti í yfir 50 ár. Rúmlega tvítugur lét hann smíða bátinn Helgu sem skírður var í höfuðið á fóstur- móður hans. Hann stundaði sjó- inn á sumrin á Vopnafirði en fór suður til Reykjavíkur á haustin og var þar á togurum á veturna. Hann var meðal annars á tog- urunum Mars og Neptúnusi og var hann einnig til sjós í Dan- mörku á Ísafold og Geysi. Sig- urður hætti á togurum 1960 og flutti sig yfir á síldveiðibáta. Sigurður rak einnig sínar eigin fiskbúðir. Í seinni tíð kom hann sér upp hjalli þar sem hann verkaði hákarl og var um tíma stórtækur hákarlaverkandi og mikill sérfræðingur í þeim efn- um. Sigurður hafði gaman af því að taka í spil og spilaði þá gjarn- an bridge ásamt eiginkonu sinni Maríu. Á yngri árum hafði hann gaman af því að dansa og var áhugamaður um samkvæmis- dans og danskeppnir alla sína tíð. Sigurður og eiginkona hans María voru bæði ættuð að aust- an en bjuggu saman og ólu upp börn sín í Reykjavík. Útför Sigurðar fer fram frá Fossvogskirkju í dag, 19. júlí, kl. 15. Þau eru: 1) Helga Rós, f. 3. ágúst 1961, sonur hennar og Atla Más Sigurðssonar er Sigurður Már, maki Agnes Orradóttir. 2) Björn Guðgeir, f. 16. júlí 1963, synir hans og Sigfríðar Sigurðardóttur eru Bjarki Steinar og Garðar Snær. 3) María Hlín, f. 27. ágúst 1964, dætur hennar og Jóhanns Hreiðarssonar eru Jenný Ýr, eiginmaður Hrafn Davíðsson og eiga þau þrjú börn, Hinrik Aron, Elías Davíð og Ylfu Maríu og Hanna María, eiginmaður Elís Rafn Björnsson og eiga þau eitt barn, Elmar Björn. 4) Stúlka, f. og d. 22. mars 1969. Sigurður ólst upp í Forna- hvammi á Vopnafirði hjá föður sínum Guðmundi og uppeldis- móður Helgu. Hann stundaði sjómennsku frá 12 ára aldri og keypti sinn fyrsta bát 13 ára Það er með miklum söknuði sem ég kveð afa í dag. Það er samt ekki bara söknuður heldur líka þakklæti fyrir það að hafa haft hann svona lengi hjá okkur og að hann hafi verið svona hress og hraustur fram á síðasta dag. Ég er þakklátur fyrir það samband sem við áttum og fyrir allar þær minningar sem við eig- um og allt það sem afi kenndi mér í gegnum tíðina. Það er erfitt að lýsa sambandi mínu við afa. Hann var svo miklu meira en bara afi minn, hann var minn helsti stuðningsmaður í einu og öllu, mín fyrirmynd og minn besti vinur. Afi var svo einstaklega góður maður, fyndinn, hress, trúr sín- um skoðunum og alltaf tilbúinn að gera allt fyrir alla og ætlaðist aldrei til neins á móti. Það er mér minnisstætt núna í seinni tíð hvað hann var alltaf hissa á því hvað ég var tilbúinn að aðstoða hann, þegar á þurfti að halda. Sannleikurinn er sá að afi átti þetta svo margfalt inni. Það er kannski það sem lýsir afa best, hvernig manneskja hann var. Ef ég þyrfti að lýsa afa fyrir fólki þá myndi ég fyrst og fremst lýsa honum sem góðum manni, barngóðum, miklum dýravini, ótrúlega hress og fyndinn. Hann hafði skoðanir á öllum málum, var minnugur í spilum, góður með tölur og skýr fram á síðasta dag. Hann var mikill dansari á yngri árum og mikill dansáhugamaður í seinni tíð þar sem hann lét sig aldrei vanta þegar ég var að keppa hérna heima. Það er erfitt að finna fé- lagslyndari mann. Afi keyrði bíl milli staða fram á síðasta dag. Hann mætti á hverjum morgni á N1 eða Kaffivagninn til þess að fá sér kaffisopa og ræða við mann og annan. Hann var dug- legur að hringja í útvarpið til að ræða hluti og fannst fátt skemmtilegra en að ná að skapa umræður og aðeins að æsa upp mannskapinn. Hann átti vini og kunningja út um allan bæ og allt land. Hann var heiðarlegur, trúr sínum skoðunum, mikill prin- sippmaður, vinur vina sinna og mikill fjölskyldumaður. Hann var grjótharður sjóari af gamla skólanum sem aldrei kvartaði. Mikið á ég eftir að sakna þess að heyra í honum í síma oft á dag, kíkja saman á rúntinn eða heimsækja hann og horfa á sjón- varpið saman. Borða saman kvöldmat, fara saman í veiði og ferðalög um landið og sérstak- lega að grínast og hlæja saman. Ég á eftir að sakna þess að heyra allar skemmtilegu sögurn- ar hans og frásagnir, en þær munu lifa í minningunni. Afi var góð fyrirmynd og von- ast ég til þess að geta verið jafn hress og hann og ná jafn háum aldri og hann gerði. Að vera orð- inn 90 ára, keyra bíl, elda og sjá um sig sjálfur fram á síðasta dag er eitthvað sem maður getur bara látið sig dreyma um. Samband hans við ömmu er líka eitthvað sem ég mun alltaf líta upp til. Ég veit að nú hugsa þau vel hvort um annað og ef ég þekki þau rétt, farin að spila bridge, yatzy og stíga nokkur spor. Minning þín mun lifa með mér að eilífu, elsku afi minn. Sigurður Már Atlason. Kynni okkar voru stutt en ég er svo þakklát fyrir að hafa kynnst honum Sigurði. Hann tók alltaf svo vel á móti mér, sagði okkur skemmtilegustu sögurnar, var mikill húmoristi, alltaf tilbú- inn að rétta fram hjálparhönd og lét fólk heyra það ef þess þurfti. Ég hafði mjög gaman af því að kynnast þér og mun sakna þess að koma til þín í heimsókn. Takk fyrir allt og takk fyrir að vera besti afinn fyrir Siggann minn. Agnes Orradóttir. Elsku besti afi Siggi lést rétt eftir 90 ára afmælið sitt. Satt best að segja vorum við farnar að halda að hann væri ódauðleg- ur þar sem hann hristi af sér hvert áfallið á fætur öðru fram að þessu. Hann var hraustur til seinasta dags og það er líklegast ástæðan fyrir því að manni fannst þetta svona óvænt og þungt högg. Maður átti alltaf von á því að hann myndi bara setjast upp og láta sem ekkert væri eins og hann hafði nú gert áður. Þegar við hugsum til afa er svo ótal margt sem kemur upp og erum við ótrúlega þakklátar fyrir að eiga svona mikið til af góðum minningum. Það sem stendur hvað helst upp úr er hvernig honum tókst að endur- gera kjötsúpuna hennar ömmu svo meistaralega eftir að hún kvaddi okkur. Það að koma í kjötsúpu til ömmu og afa var alltaf dýrmæt stund og dró fjöl- skylduna saman. Við erum þakklátar fyrir allar minningarnar frá Hjaltabakka og seinna frá Hlíðarhúsum. Þar áttum við góðar stundir þar sem við meðal annars spjölluðum mikið, spiluðum yatzy og horfð- um á íþróttir. Við erum þakklátar fyrir öll símtölin sem breyttust svo í facetime-símtöl á tímum covid. Það var ótrúlegt hvað hann var klár að bjarga sér í tækninni seinustu árin og gaf okkur gott fordæmi um að maður er aldrei of gamall til að læra. Það er ekki hægt að minnast afa án þess að nefna allar þær skemmtilegu sögur sem hann hafði að segja. Hann var mikill sjóari og fjölluðu því sögurnar yfirleitt um skip, túra eða há- karla. Þó maður hafði heyrt sumar sögurnar ansi oft þá naut maður þess að heyra ástríðu hans fyrir sjónum. Hann kenndi okkur líka að meta hákarl þrátt fyrir ungan aldur sem var ekki alveg jafn vinsælt hjá jafnöldr- um okkar. Við vorum alltaf stoltar af afa og persónunni sem hann hafði að geyma. Hann virtist hrífa alla í kringum sig þrátt fyrir sterkar og stundum óvinsælar skoðanir. Hann var mikill fjölskyldumaður og það sást vel þar sem hann ljómaði alltaf þegar hann sá langafabörnin sín. Það voru for- réttindi að fá að kalla þennan flotta og skemmtilega mann afa. Elsku afi, orð fá því ekki lýst hvað við eigum eftir að sakna þín mikið, takk fyrir allar yndislegu stundirnar sem við áttum saman. Jenný og Hanna. Lífið er saga um lífið, hvað það er undarlegt, varðandi aldur og fyrri störf, sem betur fer vit- um við ekki hvenær við fæðumst eða kveðjum þetta líf og förum í draumalandið þar sem þögnin ríkir, ekki neinn getur brúkað sig eða tekist á við fréttir dags- ins. Nú hefur hafsins hetja, há- karlaverkandinn Sigurður Hólm Guðmundsson frá Vopnafirði, sagt skilið við þessa jörð og tekið flugið til móts við sína elskulegu konu Sólveigu Maríu Björnsdótt- ur sem hann sá fyrst árið 1960 á Hótel Skjaldbreið sem var og hét. Hann var svo ástfanginn í fyrstu að ástarljós var í augum þeirra beggja, enda var Vopn- firðingurinn glæsimenni sem stúlkur höfðu áhuga á. En Sól- veig hans vann leikinn og náði Sigga sínum að lokum. Þau giftu sig áður en árið var liðið, slíkur var kærleikur þeirra beggja á milli. „Betri konu hefði ég ekki getað fengið,“ voru hans orð. Sjóhetjan stundaði sjó- mennsku frá barnsaldri á smá- bátum frá Vopnafirði á sumrin, þegar hausta tók var stefnan tekin á togara hjá Tryggva Ófeigssyni, sem var Mars, náði síðan í nýja Neptúnus árið 1951. Tók þátt í að bjarga 30 áhafn- armeðlimum af Agli rauða þegar hann fór upp í fjöru við Grænu- hlíð, hætti á togurum árið 1960 og sneri sér að öðrum veiðiskap sem voru síldveiðar á ýmsum skipum, hætti síðan á sjónum ár- ið 1995. Eftir það tók við verkun á hákarli fyrir alvöru. Siggi verkaði hákarl frá grunni í tré- kössum, ekki plastkössum. Hlóð miklu af grjóti ofan á hann, allt að hálfu tonni til að pressa úr honum ammoníakið. Siggi Há- karl fékk nafnbót eftir sína frá- bæru verkun og var með þeim fremstu á þessu sviði. Hann varð að hætta verkun árið 2011. „Ég er í heljargreipum Framsóknar- flokks og Sjálfstæðisflokks, sem réðust á eftirlaun mín, ef ég eignast krónu fram yfir það sem ég fæ í eftirlaun, þá skattleggja þeir mig í bak og fyrir.“ Eftir það var sjálfhætt vinnslu á há- karli, að sögn Sigurðar. En Siggi bjargaði á sínum tíma félaga sín- um úr magaveiki með því að fóðra hann á hákarli. Sigurður var ekki mikið fyrir popp og snakk við sjónvarpið heldur var það hákarl. „Ég var aldrei veik- ur í maga, því ég elskaði hákarl því hann er svo góður,“ sagði Sigurður. Fékk sem dæmi aldrei viðurkenningu fyrir sína sjó- mennsku eða heiðursorðu for- seta Íslands fyrir að vera fremsti hákarlaverkandi á Íslandi. Aumt er það. En nú of seint. Sigurður Hólm var mikill dansari, stóð vörð um bættan hag dansara, hringdi oft á RÚV með beiðni um að sýna frá sam- kvæmisdönsum barna, fullorð- inna, hugsanlega er barnabarn hans með sömu hæfileika og af- inn. Fagmenn taka eftir mjúkum hreyfingum beggja aðila. Sigurður Hólm lét ekki neinn eiga neitt inni hjá sér né lét áhrifaöfl hafa áhrif á sig í skoð- unum lífsins. Það urðum við fé- lagar mínir í Kaffivagninum var- ir við. Þann 28. júní 2022 varð Sigurður Hólm 90 ára, Morgun- blaðið fjallaði um merkismann- inn, þökk sé þeim. Í afmælishóf- inu var mikið stuð, karlinn tjúttaði við ungu stelpurnar og allt lék í lyndi. Ekki leið á löngu að vinur og félagi okkar hvarf af sjónarsviðinu. Við kaffifélagar þínir söknum þín. Jóhann Páll Símonarson. Sigurður Hólm GuðmundssonOkkar hjartkæra móðir, tengdamóðir, amma og langamma, JÓNA SIGRÍÐUR MARTEINSDÓTTIR, frá Sjónarhóli í Neskaupstað, lést föstudaginn 15. júlí. Inga María Sverrisdóttir Guðfinnur Einarsson Svanhildur Kr. Sverrisdóttir Bjarni Bjarnason Marteinn Sverrisson Margrét Halldórsdóttir ömmu- og langömmubörn Ástkær eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, GUÐRÚN ARADÓTTIR frá Skíðbakka II, Austur-Landeyjum, Króktúni 8, Hvolsvelli, lést á Sjúkrahúsi Suðurlands, laugardaginn 16. júlí. Útförin verður auglýst síðar. Eyvindur Ágústsson Ágúst Ómar Eyvindsson Elvar Eyvindsson Jóna Sigþórsdóttir Hafsteinn Eyvindsson Kristín Gunný Jónsdóttir og fjölskyldur Ástkær eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, BRYNDÍS FRIÐRIKSDÓTTIR, Huldugili 34, Akureyri, lést sunnudaginn 17. júlí á Fjórðungssjúkrahúsinu á Akureyri. Jarðarförin auglýst síðar. Rafn Gunnarsson Valdís Erla Eiríksdóttir Arnþór Elvar Hermannsson Hafdís Björk Rafnsdóttir Sigurður Gunnlaugsson Gunnar Rafnsson Gréta Grétarsdóttir Frímann Rafnsson Sólveig Þórarinsdóttir barnabörn og barnabarnabörn Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir og amma, NANNA SÆMUNDSDÓTTIR sjúkraliði, lést á hjúkrunarheimilinu Hömrum 10. júlí. Útförin fer fram í Árbæjarkirkju fimmtudaginn 21. júlí klukkan 13. Þeim sem vilja minnast hennar er bent á Alzheimersamtökin. Hlynur Freyr Stefánsson Matthildur Jónsdóttir Bylgja Rún Stefánsdóttir Bjarni Jakob Gíslason og barnabörn Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, GUÐRÚN HELGADÓTTIR, lést á Eir hjúkrunarheimili 9. júlí. Útförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hinnar látnu. Birgir Finnsson Elinborg Aðils Guðrún Finnsdóttir barnabörn og barnabarnabörn Ástkær móðursystir okkar og frænka, SVANHILDUR BJÖRNSDÓTTIR, Sléttuvegi 11, Reykjavík, lést á líknardeild Landspítalans við Hringbraut laugardaginn 11. júní. Útförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hinnar látnu. Ragnheiður Jónsdóttir Elías Magnússon Garðar Jónsson Hulda Óskarsdóttir Mary A. Campbell Jón Hinriksson Morgunblaðið birtir minningargreinar endurgjaldslaust alla útgáfudaga. Óheimilt er að taka efni úr minningargreinum til birtingar í öðrum miðlum nema að fengnu samþykki. Skilafrestur | Ef óskað er eftir birtingu á útfarardegi verður greinin að hafa borist eigi síðar en á hádegi tveimur virkum dögum fyrr (á föstudegi ef útför er á mánudegi eða þriðjudegi). Þar sem pláss er takmarkað getur birting dregist, enda þótt grein ber- ist áður en skilafrestur rennur út. Lengd | Minningargreinar sem birtast í Morgunblaðinu séu ekki lengri en 3.000 slög. Ekki er unnt að senda lengri grein. Lengri greinar eru eingöngu birtar á vefnum. Hægt er að senda örstutta kveðju, HINSTU KVEÐJU, 5-15 línur. Ekki er unnt að tengja viðhengi við síð- una. Formáli | Minningargreinum fylgir formáli sem nánustu aðstandendur senda inn. Þar koma fram upplýsingar um hvar og hvenær sá sem fjallað er um fæddist, hvar og hvenær hann lést og loks hvaðan og klukkan hvað útförin fer fram. Þar mega einnig koma fram upplýsingar um foreldra, systkini, maka og börn. Ætlast er til að þetta komi aðeins fram í formálanum, sem er feitletraður, en ekki í minningargreinunum. Minningargreinar

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.