Morgunblaðið - 27.07.2022, Page 1
M I Ð V I K U D A G U R 2 7. J Ú L Í 2 0 2 2
.Stofnað 1913 . 174. tölublað . 110. árgangur .
VOTTUNIN
VEITIR
FORSKOT DULÚÐLEGT VERK MEÐ
GAMANSÖMUM TÓN
TRYGGÐU SÉR
SÆTI Í ÞRIÐJU
UMFERÐ
HLJÓÐSERÍAN SKERIÐ 24 SAMBANDSDEILDIN 22VIÐSKIPTAMOGGINN
Baldur Arnarson
Ásgeir Ingvarsson
Ríkisskuldir hafa aukist um rúmlega
100 milljarða frá áramótum og vega
verðtryggðar skuldir þar þyngst.
Fyrir vikið hefur vægi verðtryggðra
ríkisskulda aukist og munu þær því
aukast með vaxandi verðbólgu.
Björgvin Sighvatsson, forstöðu-
maður Lánamála ríkisins, segir í
samtali við ViðskiptaMoggann það
eiga þátt í aukningu verðtryggðra
ríkisskulda að skuld gagnvart ÍL-
sjóðnum, áður Íbúðalánasjóði, var
skuldbreytt í verðtryggðar skuldir.
Gæti smitast í verðbólgu hér
Verðbólga er á mikilli uppleið í
Evrópu og mælist hún til dæmis um
20% í Eystrasaltsríkjunum þremur.
Þá mælist hún tæplega 10% að
meðaltali í EES-ríkjunum og innan
Evrópusambandsins, skv. sam-
ræmdri mælingu, en þaðan kemur
hlutfallslega mestur innflutningur til
Íslands. Mun sú þróun að óbreyttu
smitast meira út í verðbólguna hér.
Verðbólgan á þennan mælikvarða
mælist hvað minnst á Íslandi.
Við þetta bætist að fjármögnunar-
kostnaður er á uppleið vegna vaxta-
hækkana seðlabanka. Búist er við
því að bandaríski seðlabankinn
hækki vexti í dag og fylgi þannig í
fótspor evrópska seðlabankans.
Þessar vaxtahækkanir munu að
óbreyttu auka vaxtakostnað ríkis-
sjóðs. Á móti kemur að hlutfall
hreinna skulda af landsframleiðslu
er hér mun lægra en víða í Evrópu.
Orkuverð ógnar hagvexti
Hækkandi raforkukostnaður í
Evrópu ógnar hagvexti og hefur Al-
þjóðagjaldeyrissjóðurinn varað við
niðursveiflu í hagkerfum heimsins.
Þá hefur Deutsche Bank áætlað að
orkuvandinn kunni að valda 5-6%
samdrætti í landsframleiðslu Þýska-
lands á næsta ári.
100 milljarða skulda-
aukning frá áramótum
- Ríkisskuldir, ekki síst verðtryggðar, eru aftur á uppleið
Verðbólga í Evrópu
sl. 12 mánuði*
5,4%
8,6%
9,5% 9,6%
Ísland Evru-
svæðið
EES-
meðaltal
ESB-
meðaltal
*Samræmd
vísitala
neysluverðs
Heimild:
Hagstofan
MViðskiptaMogginn
Heldur mikil aðsókn hefur verið í bifreiða-
skoðun hjá Tékklandi nú, rétt fyrir eina af
stærstu ferðahelgum ársins, verslunar-
mannahelgi. Ætla má að fjöldi landsmanna
verða þær að líkindum ófærar með öllu. Ein-
ar Sveinbjörnsson, veðurfræðingur hjá Vega-
gerðinni og Bliku, segir að úrkoman verði
mikil miðað við árstíma.
sumarlegasta en rigningu er spáð víðs vegar
um landið. Þá er útlit fyrir mikið vatnsveður
á Suðurlandi í dag, einkum við Eyjafjöll og í
Mýrdal. Mjög mun vaxa í ám í Þórsmörk og
verði á ferðinni um landið en síðustu tvö ár
hefur lítið verið um hátíðahöld yfir helgina
vegna heimsfaraldurs Covid-19.
Veðurspáin fyrir helgina er ekki hin
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Landsmenn láta kanna ástand bíla sinna fyrir stóru ferðahelgina
Heidelberg Cement Pozzolanic Mat-
erials (HPM) ehf. fær 50 þúsund fer-
metra lóð fyrir nýja verksmiðju í
Þorlákshöfn, sem framleiðir íblönd-
unarefni fyrir sement. Skipulags- og
umhverfisnefnd Ölfuss samþykkti
lóðarúthlutunina 21. júlí.
„Það er gert ráð fyrir að endanleg
niðurstaða um gerð verksmiðju og
fjárfestingu liggi fyrir á fyrsta fjórð-
ungi næsta árs og að framkvæmdir
hefjist þá væntanlega upp úr miðju
næsta ári ef allt gengur að óskum,“
segir Þorsteinn Víglundsson, for-
stjóri Hornsteins ehf.
„Okkur þykja stærstu tíðindin í
þessu vera að á bak við hver milljón
tonn sem verksmiðjan framleiðir er
dregið úr útblæstri gróðurhúsa-
lofttegunda um 700 þúsund tonn,“
segir Elliði Vignisson, bæjarstjóri
Ölfuss. »2
Verksmiðja
sem dregur
úr losun
- Framleiðir íblönd-
unarefni í sement
_ Viðskipti með
notaða bíla hafa
verið mikil að
undanförnu og
helsta áhyggju-
efni bílasala er
takmarkað fram-
boð. Margar
ástæður eru þess
valdandi, en
veigamikill þátt-
ur í breytunni er
að á Covid-tímanum var fram-
leiðsla á nýjum bílum lítil og salan
sömuleiðis. Nú þegar eftirspurnin
er komin í eðlilegt horf er því
löng bið eftir nýjum bílum og fólk
leitar því eftir notuðum, sé þá ein-
hvers staðar að hafa. Plönin fyrir
framan bílasölurnar hafa grisjast
verulega að undanförnu og
ósennilegt að mikið bætist við á
næstunni.
„Eftirspurnin er mikil og allir
bílar sem við fáum á söluskrá
fara fljótt. Gildir þá einu hvort
við erum með smábíl sem fer á
kannski 500 þúsund krónur eða
jeppa sem leggur sig á 10 til 12
milljónir kr.,“ segir Gunnar Har-
aldsson, sölustjóri notaðra bíla
hjá Öskju. »6
Sala á notuðum bíl-
um óvenjumikil nú
Bílar Viðskipti lífleg
og eftirspurn mikil.