Morgunblaðið - 27.07.2022, Page 4

Morgunblaðið - 27.07.2022, Page 4
4 FRÉTTIR Innlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 27. JÚLÍ 2022 Guðni Einarsson gudni@mbl.is CNN Travel hefur uppfært frétt sína um áhrif hvalveiða á orðspor Ís- lands og ferðaþjónustu. Viðbótin felst í tilvitnunum í Kristján Lofts- son, fram- kvæmdastjóra Hvals hf. Í upp- runalegu frétt- inni sagði að hann hefði neitað að tjá sig, en Kristján segir það rangt. Hann hafi viljað tjá sig um það sem blaðamað- urinn skrifaði en aldrei fengið neitt sent til að tjá sig um fyrir birtingu. Eftir að greinin birtist, sendi Krist- ján CNN skriflegar athugasemdir. Morgunblaðið greindi frá frétt CNN og fleiri erlendra miðla, um meint áhrif hvalveiða á ferðaþjón- ustu þann 27. júní, og ræddi þá m.a. við Jóhannes Þór Skúlason, fram- kvæmdastjóra Samtaka ferðaþjón- ustunnar. Morgunblaðið leitaði þá viðbragða hjá Kristjáni við frétt CNN en hann ákvað að bíða með viðbrögð þar til nú. Í grein CNN er m.a. haft eftir Ás- bergi Jónssyni, hjá Travel Connect í Reykjavík, að hvalveiðar séu ekki lengur lífvænlegar fjárhagslega. Kristján mótmælir þessu og segir að þvert á móti séu hvalveiðar fjárhags- lega lífvænlegar. Fólkið sem vinni við þær fái tekjur og veiðarnar skapi útflutningstekjur fyrir þjóðarbúið. Í grein CNN eru bornar saman heildartekjur af hvalaskoðun, sem voru 3,2 milljarðar króna 2017, og heildartekjur Hvals hf. af hval- veiðum það ár, upp á 1,7 milljarða. Þess má geta að Hvalur stundaði ekki hvalveiðar 2017 en seldi þess í stað eldri birgðir. Kristján bendir á að CNN minnist ekkert á afkomu hvalaskoðunarfyrirtækjanna. Hann segir við CNN að hvala- skoðunarfyrirtækin í heild hafi oft átt erfitt með að skila hagnaði. Auk þess bendi ekkert til þess að hval- veiðar dragi úr fjölda ferðamanna. Fjölgun ferðamanna geti í raun ver- ið vegna hvalveiðanna. Hann benti á það í athugasemdum sínum að árið 2018, þegar síðast voru stundaðar hvalveiðar, þar til nú, hafi komið 2.343.800 ferðamenn til Íslands. Árið eftir, þegar ekki voru veiddir hvalir, hafi komið 2.013.200 ferðamenn. Þeim hafi þannig fækkað þegar ekki voru hvalveiðar. Skoðaði reksturinn 2018-2020 Þá segir Kristján við CNN að það að veiða 161 langreyði, úr stofni sem telji allt að 30.000 dýr, hafi lítil áhrif og nóg sé til af hvölum til að skoða í náttúrulegu umhverfi þeirra. Kristján lét taka saman tölur úr ársreikningum stærstu hvalaskoð- unarfyrirtækjanna sem aðgengilegir eru hjá Skattinum og sendi CNN. Athuguð voru árin 2018 til og með 2020. „Þegar heildin er skoðuð, þá er ekkert eigið fé í þessum félögum. Það hefur verið talað um hvala- skoðun sem gullkálf, hvað varðar af- þreyingu ferðamanna í gegnum ár- in,“ segir Kristján í samtali við Morgunblaðið. „Árin 2018 og 2019, áður en faraldurinn hóf innreið sína, var samtals yfir 440 milljóna króna tap á þessum félögum.“ Samantektin sýnir að árið 2018 var velta stóru hvalaskoðunarfyr- irtækjanna samtals 3,483 milljarðar, laun og launatengd gjöld voru 1,695 milljarðar, tapið var rúmlega 287 milljónir og skuldir 3,466 milljarðar. Árið 2019 var heildarveltan 3,185 milljarðar, laun og launatengd gjöld 1,448 milljarðar, tap samtals 157 milljónir og skuldir samtals 3,362 milljarðar. Heimsfaraldurinn dró mjög úr komu ferðamanna 2020. Velta fyrirtækjanna var þá samtals um 855 milljónir, laun og launatengd gjöld 481 milljón, tap var samtals 814 milljónir og skuldir jukust í 3,793 milljarða króna. Hvalaskoðun skilar dræmri afkomu - Hvalur hf. skoðaði afkomu stórra hvalaskoðunarfyrirtækja - CNN Travel uppfærði frétt um áhrif hvalveiða á orðspor Íslands og ferðaþjónustu - Fjöldi ferðamanna virðist ekki stjórnast af veiðunum Búið var að veiða 54 langreyðar í gær á þessari vertíð, að sögn Kristjáns Loftssonar, fram- kvæmdastjóra Hvals hf. Bræla var úti á miðunum og báðir hvalbátarnir í höfn. Hvalvertíðin hófst 22. júní síðastliðinn þegar veiðar á lang- reyði hófust aftur en þær voru síðast veiddar sumarið 2018. Vertíðin stendur venjulega í um 100 daga og lýkur í september. Samkvæmt ráðgjöf Hafrann- sóknastofnunar er heimilt að veiða 161 langreyði í ár. 54 langreyð- ar veiddar HVALVERTÍÐIN Morgunblaðið/Eggert Hvalveiðar Í gær var búið að veiða 54 langreyðar á hvalvertíðinni. Bræla var á miðunum og hvalbátarnir í höfn. Kristján Loftsson Veronika Steinunn Magnúsdóttir Tómas Arnar Þorláksson „Að sjálfsögðu var farþegum brugðið. Þegar flugvél er snúið við í lofti og lendir í svona er mikilvægt að fólk fái sálrænan stuðning,“ segir Björg Kjartansdóttir, sviðsstjóri yf- ir fjáröflunar- og kynningarmálum hjá Rauða krossi Íslands. Viðbragðshópur frá Rauða kross- inum var sendur á Keflavíkurflug- völl klukkan sjö í fyrrakvöld þegar flugvél þurfti að nauðlenda á Íslandi vegna sprengjuhótunar. Vélin, sem var á vegum þýska flugfélagsins Condor, var á leið frá Frankfurt í Þýskalandi til Seattle í Bandaríkjunum þegar orðið „bomb“, eða sprengja, var skrifað á salernis- spegil í vélinni. Sá sem það skrifaði var ekki fundinn þegar vélin fór aft- ur í loftið síðdegis í gær. „Það helsta sem við gerum í þeim aðstæðum er í raun og veru að veita sálrænan stuðning. Síðan hjálpaði Rauði krossinn líka til við að dreifa mat til farþeganna. Og auðvitað taka svona aðstæður á, fólk fer inn á lokað svæði og verður að dvelja þar. Fólk fær ekki að yfirgefa svæðið,“ segir Björg. Þegar vélin lenti í Keflavík tók við strangt öryggisferli og var leitað á öllum farþegum og var við- bragðshópurinn á svæðinu í fimm klukkustundir. Starfsfólk hjálpaðist að við að miðla upplýsingum til gest- anna sem fengu síðan gistingu, áður en haldið var í flug daginn eftir. Ringulreið greip um sig „Fólk byrjaði að tala um að sal- ernin virkuðu ekki og stuttu eftir það var salerninu lokað með lím- bandi og snúið við. Okkur var til- kynnt að um væri að ræða tæknilega bilun og við vissum ekki raunveru- legu ástæðuna fyrr en vélin lenti,“ sagði Cristina Thudium í samtali við Morgunblaðið í gær. Hún er ein af 266 farþegum flug- vélarinnar sem nauðlenti í Keflavík. Cristina býr í Kaliforníu í Bandaríkj- unum og var að ferðast með eigin- manni sínum Scott Thudium. Bjugg- ust þau við að lenda í Seattle á mánudagskvöld, en í fluginu tók við atburðarás sem hún lýsir sem skelfi- legri. Hún sagði ringulreið hafa skapast meðal farþeganna þegar þeim var tilkynnt að snúa þyrfti flugvélinni við. Fengu þau þá að vita að um tæknilega bilun væri að ræða og að af þeim sökum þyrfti að lenda í Keflavík. Vissu strax að þetta væri alvarlegt „Við vissum öll að þetta væri alvar- legt þegar við lentum og fórum úr vél- inni og það var leitað á okkur og við beðin um að skilja handfarangur eftir á flugbrautinni.“ Að hennar sögn fengu hún og aðrir farþegar ekki fréttir um sprengjuhót- unina fyrr en þau voru komin inn á flugvöllinn. Líkaði vel við Ísland Hún tók þó fram að íslenska lög- reglan hefði staðið sig með prýði og að allt hefði gengið smurt fyrir sig. „Við fengum samlokur og vatn frá Rauða krossinum, sem kom sér mjög vel,“ sagði Cristina og þakkaði Rauða krossinum fyrir vel unnin störf. Rauði krossinn bauð farþegum upp á áfalla- hjálp í Leifsstöð og sagði Cristina marga hafa þegið hana. Hún tók fram að viðbrögðin við að- stæðunum hefðu verið frábær hjá flugfélaginu. Farþegarnir fengu að yfirgefa flugvöllinn rétt fyrir mið- nætti á mánudagskvöld og fóru með rútu á hótel þar sem þau dvöldu yfir nóttina. Bæði rútuferðin og gistingin voru í boði flugfélagsins og að hennar mati var gistingin fyrsta flokks. Í lok samtalsins tók Christina fram að sér hefði líkað vel við Ísland og að landið væri mjög fallegt þrátt fyrir stutt stopp. „Við munum að sjálfsögðu koma aftur við betri aðstæður.“ Öll flugumferð stöðvuð Öll umferð til og frá Keflavíkurflug- velli var stöðvuð í klukkutíma í fyrra- dag eftir að sprengjuhótunin barst. Guðjón Helgason, upplýsingafulltrúi Isavia, sagði í gær að það væri hefð- bundin aðgerð á flugvöllum í Evrópu að stöðva umferð til og frá vellinum í klukkutíma í kjölfar þess að sprengju- hótun berist. „Þetta gerist sjálfkrafa þegar sprengjuhótun berst,“ sagði Guðjón. Á vefsíðu Isavia kemur fram að sautján flugvélar frá kl. fjögur síðdegis á mánudag til kl. átta um kvöldið hafi farið meira en hálftíma seinna af stað en tilkynntur brottfarartími gerði ráð fyrir. Lengsta töfin var á flugi til Bil- lund í Danmörku en því seinkaði um einn og hálfan tíma. Einnig varð seinkun á nokkrum flugferðum til Íslands. Til dæmis lenti flugvél frá München í Þýskalandi klukkan 18:39 á Keflavíkurflugvelli en hún átti upprunalega að lenda klukkan fjögur. Guðjón sagði að þrátt fyrir töf hefði hann ekki heyrt af því að neinar at- hugasemdir hefðu verið gerðar. Málið í rannsókn Lögreglan hefur engan grunaðan um að bera ábyrgð á athæfinu. Úlfar Lúðvíksson, lögreglustjóri á Suður- nesjum, sagði í gær að farþegarnir hefðu brugðist ágætlega við og að þeir hefðu verið samvinnufúsir og sýnt ástandinu skilning. Málið er til rannsóknar hjá lögreglunni á Suður- nesjum. Fólki brugðið eftir sprengjuhótun - Farþegar fengu sálræna aðstoð og mat frá Rauða krossinum eftir að sprengjuhótun beindist að flugvél á leið til Seattle - Hafa ekki fundið þann sem er ábyrgur - Málið til rannsóknar hjá lögreglu Ljósmynd/Cristina Thudium Keflavíkurflugvöllur 266 farþegar voru um borð en lögreglan leitaði á þeim þegar vélin hafði verið rýmd.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.