Morgunblaðið - 27.07.2022, Qupperneq 8
8 FRÉTTIR
Innlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 27. JÚLÍ 2022
FORNUBÚÐIR 12, HAFNARFIRÐI | S: 555 0800 | SIGN@SIGN.IS | SIGN.IS
Björn Bjarnason skrifar um al-
þjóðavæðingu grunnskólans
og leggur út af nýjum tölum Hag-
stofu Íslands. Þær sýna að grunn-
skólanemendum með erlendan bak-
grunn fjölgar en
þeim sem hafa ís-
lenskan bakgrunn
fækkar. Fjölgunin
er mest meðal barna
sem fæðast hér á
landi en eiga for-
eldra sem fæddir
eru erlendis. Ef
fjölgun meðal þessara barna með
erlendan bakgrunn kæmi ekki til,
væri fækkun í grunnskólum hér á
landi.
- - -
Fjölgun barna með erlendan
bakgrunn hefur verið mjög
hröð, farið úr um 15% nemenda ár-
ið 2006 í 26% árið 2021. Nær helm-
ingur þessara nemenda, sem hafa
erlendan bakgrunn, telst hafa er-
lent tungumál að móðurmáli.
- - -
Eins og Björn bendir á er þessi
þróun „ekki til marks um að
hér sé útlendingum skipulega hald-
ið frá landinu“ eins og ætla mætti
af umræðunni þegar grípa þarf til
brottvísunar erlendra ríkisborgara.
- - -
Björn segir einnig að skólakerfi,
heilbrigðiskerfi og löggæsla
taki „óhjákvæmilega á sig nýja
mynd vegna þessarar þróunar, svo
að ekki sé talað um húsnæðismark-
aðinn. Alla þessa þætti verður að
skoða í nýju ljósi vegna umskipt-
anna sem verða á líðandi stund.“
- - -
Og hann spyr hvaða stoðir sam-
félagsins sé „brýnast að
styrkja við gjörbreyttar aðstæður?
Varla verður látið reka á reiðan-
um?“ Vonandi ekki, en til að svo
fari ekki er nauðsynlegt að almenn-
ingur og stjórnmálamenn átti sig á
þróuninni.
Er víst að allir geri það?
Björn Bjarnason
Alþjóðlegir ísl-
enskir grunnskólar
STAKSTEINAR
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
Ágæt reynsla hefur fengist af notkun
hraðamyndavéla sem settar voru upp
í nóvember sl. á Grindavíkurvegi og í
Norðfjarðargöngum. Vélarnar
mynda umferð sem þarna fer um, það
er á tveimur stöðum og með því að
mæla tímann sem það tekur bílana að
aka milli þeirra mælipunkta er með-
alhraði þeirra reiknaður út. Gögn úr
myndavélunum eru yfirfarin af lög-
reglunni á Vesturlandi og sektir gefn-
ar út, ef ástæða er til.
Hámarkshraði á Grindavíkurvegi
er 90 km/klst. en 70 km/klst. í Norð-
fjarðargöngunum. „Vélarnar halda
hraðanum vel niðri, við fáum ekki inn
í þær vélar bíla á miklum hraða. Þar
eru fyrst og fremst ökumenn sem eru
3-7 km yfir þeim hraða sem við mæl-
um á,“ segir Ásmundur Kr.
Ásmundsson, settur yfirlögreglu-
þjónn á Vesturlandi.
Hjá lögreglu gildir sú vinnuregla
viðvíkjandi vélarnar á Grindavíkur-
vegi að allir þeir bílstjórar sem þar
aka á 99 km/klst. og þaðan af hraðar
eru sektaðir. „Enn á eftir að reyna á
hvernig fer fyrir dómi með tilvik þar
sem gögn eru úr meðalhraðamynda-
vél,“ segir Ásmundur.
Til stendur að setja upp innan tíðar
meðalhraðamyndavélar í Hval-
fjarðargöngum. Þá er slíkur búnaður
nýlega kominn upp í Dýrafjarðar-
göngum vestra en er ótengdur enn.
sbs@mbl.is
Meðalhraðamyndavélar reynast vel
- Komnar á Grindavíkurveg og í Norðfjarðargöngum - Fleiri eru væntanlegar
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Hvalfjörður Hámarkshraði er 70
km/klst. í öllum jarðgöngum.
Bragi Þórðarson, fyrr-
verandi prentsmiðju-
stjóri, bókaútgefandi og
rithöfundur, er látinn,
89 ára að aldri. Bragi
fæddist á Akranesi 24.
júní 1933 og gekk þar í
skóla. Hann lauk
sveinsprófi í prentiðn
(setningu) árið 1954 og
öðlaðist meistarabréf
árið 1957. Bragi starfaði
í tæpa þrjá áratugi í
Prentverki Akraness,
fyrst við setningu en
síðan sem prentsmiðju-
stjóri og einn af eig-
endum fyrirtækisins. Hann stofnaði
ásamt Elínu eiginkonu sinni Hörpuút-
gáfuna árið 1960. Árið 1982 seldi Bragi
sinn hlut í Prentverki Akraness og
sneri sér alfarið að útgáfustarfsemi og
ritstörfum. Sama ár stofnuðu hann og
Elín Bókaskemmuna, bóka- og tölvu-
verslun á Akranesi, sem þau ráku til
ársins 1992. Hörpuútgáfuna ráku þau í
hátt á fimmta áratug eða til ársins
2007. Alls voru gefnir út um 500 titlar
á starfstíma Hörpuútgáfunnar. Eftir
Braga liggja alls 22 bækur þar sem
hann ritaði einkum um þjóðlegan fróð-
leik tengdan Akranesi og Borgar-
fjarðarhéraði en einnig tvær ævisögur.
Bragi var mjög virkur í félags-
málum alla tíð. Hann sat m.a. í stjórn
Félags íslenska prentiðnaðarins, í
stjórn Félags íslenskra bókaútgef-
enda, í stjórn Sögu-
félags Borgarfjarðar
og í stjórn Bæjar- og
héraðsbókasafns
Akraness á árunum
1966-1996, þar af
stjórnarformaður í 10
ár. Hann var skáti og
virkur í skátastarfinu á
Akranesi frá 1943, þar
af félagsforingi
Skátafélags Akraness
um árabil. Hann vígð-
ist í Oddfellowregluna
árið 1960 og var virkur
félagi til æviloka. Þar
gegndi hann fjölmörg-
um trúnaðarstörfum bæði fyrir stúku
sína og regluna á landsvísu.
Bragi hlaut Borgfirsku menningar-
verðlaunin og Menningarverðlaun
Akraneskaupstaðar árið 2004. Sama
ár var hann gerður að heiðursfélaga í
Félagi íslenskra bókaútgefenda. Hann
var sæmdur heiðursmerki Oddfellow-
reglunnar árið 2005 og árið 2006 varð
hann heiðursfélagi í Skátafélagi Akra-
ness. Bragi var sæmdur riddarakrossi
hinnar íslensku fálkaorðu árið 2007.
Árið 2018 veitti bæjarstjórn Akra-
ness honum nafnbótina heiðursborg-
ari Akraness.
Efirlifandi eiginkona Braga er Elín
Þorvaldsdóttir og eignuðust þau tvö
börn, Þorvald og Bryndísi. Barna-
börnin eru fjögur og eitt barna-
barnabarn.
Andlát
Bragi Þórðarson