Morgunblaðið - 27.07.2022, Síða 10
10 FRÉTTIR
Innlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 27. JÚLÍ 2022
Skoðið fleiri innréttingar á
innlifun.is
Suðurlandsbraut 26 Sími 587 2700
Opið 11-18 virka daga innlifun.is
DAGMÁL
Andrés Magnússon
andres@mbl.is
Það er mjög góður tímapunktur nú,
eftir heimsfaraldurinn, til þess að
fara í heildarendurskoðun á heil-
brigðiskerfinu og Landspítalanum
sérstaklega. „Það er sóun í þessu
kerfi eins og öllum öðrum.“
Þetta segir Bergþór Ólason,
þingflokksformaður Miðflokksins, í
viðtali í Dagmálum, sem birt er í
dag. Hann kveðst binda miklar von-
ir við nýjan forstjóra spítalans og
nýja stjórn hans til þess að bæta
starfsemi hans og nýta opinbert fé
til heilbrigðismála betur. Dagmál
eru streymi Morgunblaðsins á net-
inu, sem opið er öllum áskrifendum.
Hugmyndir Björns Zoëga
Þrátt fyrir að pólitísk umræða
liggi gjarnan í láginni yfir hásum-
arið skaut heilbrigðismálunum
skyndilega efst á baug þegar Björn
Zoëga, nýr stjórnarformaður Land-
spítalans, greindi frá hugmyndum
um hagræðingu í rekstri spítalans.
Hann nefndi sérstaklega að ein-
falda þyrfti stjórnskipulag spít-
alans, fækka stjórnunarlögum inn-
an hans og leggja áherslu á
heilbrigðisstarfsfólk og þjónustu
þess frekar en stoðdeildir ýmsar,
sem ekki væru skjólstæðingum
stofnunarinnar jafn nauðsynlegar.
Spítalinn hefði á sínum snærum of
margt fólk sem ekki fengist við
umönnun sjúklinga, en kontórist-
unum hefði á umliðnum árum fjölg-
að meira en þeim sem veittu sjúk-
lingum þjónustu. Það gengi ekki til
lengdar.
Vegna sumarleyfa var ekki auð-
hlaupið að því að finna þingmenn til
þess að ræða þau mál, en Bergþór
Ólason var innan seilingar og þekk-
ir vel til umræðu um heilbrigðis-
mál, situr fundi bæði velferðar-
nefndar Alþings og
fjárlaganefndar.
Eins og hann benti þó á varðar
umræða af þessu tagi ekki aðeins
heilbrigðisgeirann, svipaður vandi
er við ríkisrekstur almennt, en mál-
efni Landspítalans brýn.
Þarf að ræða um fitulögin
„Málaflokkar eins og heilbrigðis-
mál og þá sérstaklega Landspít-
alinn eru svo stór hluti af heildar-
rekstri hins opinbera að við verðum
að geta rætt hvernig við fáum mest
fyrir peninginn þar inni,“ segir
Bergþór. „Hluti [þeirrar umræðu]
er hvort unnt sé að skera fitulög
af.“
Eru fitulög?
„Það þykir mér því miður líklegt.
Það er eðli opinberrar starfsemi að
þenjast út.“
En er hægt að taka þá umræðu,
t.d. í ljósi viðbragða Samfylking-
arinnar, sem þvertók fyrir að
starfsfólki spítalans yrði nokkuð
fækkað?
„Viðbrögðin voru frekar fyrir-
sjáanleg. Auðvitað vilja sumir
flokkar passa upp á að ríkisstarfs-
mönnum fækki ekki.“
Bergþór bendir á að miðað við
rekstrarbreytingar á Karolinska
sjúkrahúsinu í Svíþjóð, sem Björn
Zoëga gekkst fyrir þar, kynni
starfsmönnum við Landspítalann
að fækka um 300 manns eða þau
störf að flytjast til.
„Sama hvar í flokki við stöndum,
þá ber okkur beinlínis skylda til
þess að fara vel með skattfé og fá
sem mest út úr því,“ segir Bergþór
og bendir á að það eigi hvergi frek-
ar við en á heilbrigðissviðinu.
Þarf að skoða hugmyndirnar
„Það er ekki boðlegt að slá þess-
ar hugmyndir [Björns] út af borð-
inu á þeim forsendum einum að það
megi ekki segja neinum upp eða að
það megi engu breyta.“
Hann bendir á að Björn hafi náð
gríðarlega miklum árangri á Karol-
inska, bæði hvað varðaði bættan
rekstur og bættan árangur.
„Sá árangur á að duga til þess að
við þurfum að skoða þær hug-
myndir sem hann hefur um umbæt-
ur hér. Ef það er prósent hér eða
prósent þar, sem næst að spara, þá
er það heilmikill árangur,“ segir
Bergþór og minnir á að þá fjármuni
megi þá nota betur til annars. Um
það snúist þetta: Að nýta fé til heil-
brigðismála í þágu sjúklinga.
Sóun í þessu kerfi eins og öllum öðrum
- Bergþór Ólason ræðir heilbrigðiskerfið, Landspítalann og ríkisrekstur í viðtali í Dagmálum í dag
Morgunblaðið/Kristófer
Heilbrigðismál Bergþór Ólason, þingflokksformaður Miðflokks, telur
skipulagsbreytingar á Landspítala nauðsynlegar og ákaflega tímabærar.
Á vef Þjóðkirkjunnar hefur verið
tilkynnt hverjir sóttu um tvö
störf sem auglýst voru laus til
umsóknar fyrir skömmu. Nú bar
svo við að fleiri umsækjendur
óskuðu nafnleyndar en þeir sem
heimiluðu birtingu nafna.
Biskup Íslands óskaði eftir
presti til þjónustu í Glerár-
prestakalli, Eyjafjarðar- og Þing-
eyjarprófastsdæmi. Umsóknar-
frestur rann út 17. júlí
síðastliðinn. Þrjú sóttu um og tvö
óskuðu nafnleyndar. Umsækjandi
er Helga Bragadóttir guðfræð-
ingur. Allar gildar umsóknir fara
til valnefndar.
Glerárprestakall er í sveitarfé-
laginu Akureyrarkaupstað. Í því
er ein sókn, Lögmannshlíðarsókn.
Sóknin er á samstarfssvæði með
Akureyrarsókn, sem myndar Ak-
ureyrar- og Laugalands-
prestakall.
Þá auglýsti biskup Íslands eftir
djákna til þjónustu í Grafarvogs-
prestakalli, Reykjavíkurprófasts-
dæmi eystra. Umsóknarfrestur
var til 17. júlí 2022.
Fjórir umsækjendur voru um
starfið. Tvö óska nafnleyndar, en
hin eru dr. Guðmundur Brynjólfs-
son djákni og Kristín Kristjáns-
dóttir djákni. Sóknarnefnd
ákveður hver verður ráðinn.
sisi@mbl.is
Morgunblaðið/Sigurður Ægisson
Glerárkirkja Tveir af þremur um-
sækjendum óskuðu eftir nafnleynd.
Meirihluti
umsækjenda
vildi nafnleynd
Ferðaskrifstofunni Tripical Travel
var óheimilt að hækka verð á pakka-
ferð útskriftarnema til Krítar um 15
þúsund krónur 20 dögum fyrir brott-
för, samkvæmt niðurstöðu Neyt-
endastofu.
Stofnuninni barst fjöldi kvartana
vegna verðhækkananna sem hefðu
verið útskýrðar með vísan til hækk-
unar á eldsneytisverði. „Í ákvörðun
Neytendastofu er um það fjallað að
meginreglan sé sú að verð samnings
um pakkaferð skuli haldast óbreytt.
Samkvæmt lögum sé þó heimilt að
gera verðbreytingu m.a. vegna
hækkunar á eldsneytisverði. Þá er
um það fjallað að til þess að verð-
hækkun sé heimil þurfi að uppfylla
eftirfarandi skilyrði:
1) heimild sé til verðbreytinga í
skilmálum pakkaferðar
2) nákvæmlega sé tilgreint hvern-
ig verð skuli reiknað út og
3) ferðamanni sé í samningi veitt
sambærileg heimild til verðlækkun-
ar,“ segir í umfjöllun um málið á vef-
síðu Neytendastofu.
Auk þessa er bent á að tilkynna
skuli verðhækkun eigi síðar en 20
dögum fyrir brottför og rökstuðn-
ingur og útreikningar hækkunar eigi
að berast ferðamanni „á varanlegum
miðli innan sama frests“.
Fram kemur að útskriftarferðin
var bókuð í janúar á þessu ári. Verð
ferðarinnar var 209.990 kr. á mann
miðað við fjóra í herbergi. Hópurinn
var alls 315 manns.
Í svari ferðaskrifstofunnar kemur
m.a. fram að hún geri alltaf ráð fyrir
einhverjum breytingum á verði, eins
og á eldsneyti og vegna gengis-
breytinga, þegar ferðir eru kynntar
án þess að slíkar breytingar leiði til
hækkunar á verði farmiða. „Þær að-
stæður sem undanfarið hafi verið
uppi varðandi þróun á verði þotu-
eldsneytis séu hinsvegar langt fyrir
utan það að vera eðlilegar markaðs-
sveiflur. Forsendur séu einfaldlega
allt aðrar og í raun brostnar.“
Í umfjöllun Neytendastofu segir
að í skilmálum Tripical Travel var fé-
laginu veitt heimild til hækkunar á
verði m.a. vegna breytinga á elds-
neytiskostnaði en ferðamönnum var
ekki veitt heimild til verðlækkunar
af sömu ástæðum. „Þegar af þeirri
ástæðu voru ekki uppfyllt skilyrði
laga til hækkunar á verði pakkaferð-
ar. Var Tripical Travel því óheimilt
að hækka verð ferðarinnar.“
Hækkun á pakkaferð óheimil
- Hópur útskriftarnema ósáttur við 15 þúsund kr. verðhækkun Tripical Travel á
pakkaferð til Krítar - Neytendastofa bannar ferðaskrifstofunni að hækka verðið
Morgunblaðið/Ómar Friðriksson
Krít Hópur útskriftarnema keypti pakkaferð af ferðaskrifstofunni.